Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
04.08.2015 01:37Elsku Steini okkar kvaddiÞað er mér með sorg í hjarta að segja frá því að hann Steini okkar hefur kvatt okkur úr þessum heimi. Hann var frændi hans Emils sem bjó á móti okkur með systir sinni Jóhönnu. Þau eru okkur rosalega náin. Steini greindist með krabbamein í mars minnir mig og tók það að herja á hann mjög hratt. Hans hinsta ósk var að hann myndi ná brúðkaupinu okkar og tókst honum það ætlunarverk sitt og meira til og stóð sig eins og hetja. Við erum enn í sjokki og meðtekur maður ekki allveg að hann sé farinn. Hann var daglegur gestur hjá mér mörgum sinnum á dag og ef mig vantaði einhvað var alltaf hægt að hóa í hann því það var allt ekkert mál. Seinustu mánuði sem hann var orðinn frekar máttfarinn hafði hann gaman af því að elda alltaf í hádeginu og bjóða mér að borða með sér til að fá félagsskap já svona var Steini alltaf að hugsa um aðra og gera öðrum greiða, allveg gull af manni. Það er erfitt að horfa yfir götuna og sjá hann ekki í dyragættinni á svölunum því þar sat hann jafnan alltaf og leit yfir hvort einhvað líf væri vaknað hér snemma morguns til að koma og fá sér morgun kaffi og dekra við börnin. Börnin okkar eiga erfitt með að meðtaka þetta og segja enn við ætlum að fara yfir til Steina og Jóhönnu sem auðvitað er bara eðlilegt í þeirra augum. Benóný og Steini áttu rosalega sterkt band saman og á Benóný erfitt með að átta sig á þessu og spyr og spyr ótal spurninga um dauðann enda búnað kynnast honum allt of mikið svona ungur af aldri. Hann veit að Steini frændi minn er dáinn svo dó pabbi minn og Raggi frændi bróðir þeirra og þetta þurfti að útskýra fyrir honum því hann mundi eftir Leif afa sínum og Ragga frá því að þeir voru á Dvalarheimilinu og eins Dagmar ömmu Emils. Pabbi Emils dó svo á þessu ári og Gerða í Tungu árið áður svo þetta hefur verið ansi mikil afföll hjá okkur á stuttum tíma. Við munum sakna Steina óendalega mikið og það verður mikið skarð sem hann skilur eftir sig og verður aldrei fyllt aftur. Hann var tekinn allt of fljótt frá okkur en hér kemur smá minningar til heiðurs honum og blessuð sé minning hans um aldur og ævi. Við erum svo þakklát fyrir hvað við fengum að njóta nærveru hans í gegnum árin. ![]() Hér eru þeir vinirnir saman í sumarbústað í Húsafelli Benóný og Steini. ![]() Í sveitinni hjá Freyju og Bóa. ![]() Í fjöruferð með mér og börnunum um vorið. Mig langaði svo út með krakkana og gat ekki farið ein með þau öll og Emil var á sjónum og auðvitað bauðst Steini til að koma með mér svo ég kæmist aðeins út í góða veðrið. ![]() Svo gaman hjá þeim í fjörunni inn í Bug. Steini með Emblu og Benóný. ![]() Með eðal traktorinn sem honum þótti svo vænt um. Hann dekraði svo við hann og gerði hann upp og málaði . Hann var svo stoltur þennan dag þegar hann var næstum tilbúinn og svo var hann geymdur inn í upphituðum bílskúr en bílinn var geymdur úti. ![]() Ungur að aldri með Emil að keppa. Þeir áttu sigursælan feril saman í mótum í hestamennsku og fóru á fjórðungsmót og landsmót og gerðu góðu hluti. Emil og Steini voru eins og feðgar svo sterk voru bönd þeirra enda bjó Emil hjá þeim Jóhönnu í nokkur ár. Emil á fullt af bikurum og verðlaunapeningum frá þeirra tíma og príða þeir stofuskápana hjá okkur. Steini og Jóhanna áttu mjög flotta og vel gerða hesta. 04.08.2015 01:25Rúntur 31 júlí![]() Svört hans Sigga með sæðingana sína undan Bekra. Hún var með þrjú og tapaðist stærsti hrúturinn hennar fyrir um 2 vikum þá fann Siggi hann dauðann. Alltaf jafn svekkjandi að missa þetta þegar það er svo stutt í að maður fari að smala. ![]() ![]() Sumarrós með hrútana sína í Mávahlíðinni. ![]() Prakkararnir hennar Mirröndu forrystu. ![]() Gimbur undan Drífu og Glaum. ![]() Hin gimbrin á móti. ![]() Glódís með gimbrina sína mér líst svo rosalega vel á hana. ![]() Sá þessa í Höfðanum held hún sé frá Önnu Dóru og Jón Bjarna á Bergi. ![]() Sá þessa líka og fannst hún svo flott að ég varð að taka mynd af henni veit ekki hver á hana en hún gæti verið frá Bergi líka. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessum rúnti. 04.08.2015 01:17Rúntur 30 júlí![]() Hrútarnir hennar Frigg. ![]() Frá Sigga undan Botnu og Bekra sæðing. Virkar rosalega flottur hrútur. ![]() Gugga með lömbin sín. ![]() Svana með sín lömb undan Jóker sæðing. ![]() Frá Sigga í Tungu. ![]() Flottur hrúturinn hennar Draumarós og Marels. ![]() Kindurnar hans Guðmundar Ólafs Ólafsvík. Það eru svo fleiri myndir hér inni. 04.08.2015 01:12Rollu rúntur 24 júlí![]() Gimbranar hennar Snældu undan Tvinna. ![]() Flottir frændur saman Benóný og Alexsander. ![]() Hrútur frá Sigga undan Gemling. ![]() Fíóna með hrútinn sinn. ![]() Gemsurnar Ísafold og Vofa með lömbin sín. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu. 04.08.2015 01:00Sumarbústaður í júlí![]() Fórum í sumarbústað með Steinari og Unni í júlí. Við fórum auðvitað í sund fyrir Benóný á Húsafelli og Borgarnesi. Ætluðum í sund á Varmalandi en þar var engin rennibraut þrátt fyrir að bæklingurinn sýni að það eigi að vera rennibraut og var Benóný ekki sáttur með það. Við fórum í göngutúr hér í paradís sem er rétt hjá Bifröst og er mjög fallegur staður svo áttum við skemmtileg kvöld saman sem var eitt í að svæfa börnin sem voru mislengi að sofna svo fullorðna fólkið gæti spilað og slappað af. ![]() Heyskapur er svo hafinn í Fögruhlíð í blíðskapar veðri. ![]() Flotti traktorinn príðir Mávahlíðina. ![]() Hér er svo verið að safna saman rúllunum í Mávahlíðinni og keyra þeim upp í Tungu. ![]() Hestarnir hennar Jóhönnu hafa það frábært inn í Tungu. Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu saman hér inn í albúmi. 23.07.2015 03:25Rollu rúntur 2015Já sæll það er sko hafinn rollu rúntur á þessum bæ ...... Ekki seinna vænna að fara þrusa því hér inn og auðvitað fylgir alltaf afföll á sumrin á lömbum og rollum. Við misstum eina rollu í vor hana Heklu hans Bóa og hennar verður saknað hún var góð rolla. Lömbin hennar eru búnað vera móðurlaus inn í Mávahlíðar túni síðan snemma í júní. Ég hef tekið eftir að það vantar annað lambið hjá Flekku, Ísey,Loppu og Eygló sem er leiðinlega mikið. Svo í dag kom ég að ömurlegu að það var búið að keyra á rollu og lamb frá mér og auðvitað var það mórauð rolla sem ég vildi engan veginn missa en það er aldrei spurt af því. Elding var það og gimbrin hennar sem var svarbotnótt. Svo ég hringdi í Sigga og hann aðstoðaði mig við að jarða þær því Emil og Bói eru á fullu að heyja inn í Bug. Það er samt að gott að engin slasaðist það er alltaf leiðinlegt að lenda í svona. Við heyjuðum hjá Sigga í seinustu viku og það er miki minna hey núna enn í fyrra en það er miklu betra hey og kraftmeira. Þeir eiga eftir að heyja inn í Bug og Klettakoti svo förum við inn í Mávahlíð,Tungu og Fögruhlíð og klárum þar. Ég vona bara að við náum þessu öllu áður en það fer að rigna og rigna maður er svo hræddur við það þegar það er búið að vera svona rosalega lengi þurrkur. ![]() Dóra með Hitler undan Hæng sæðishrút. ![]() Skvísa með æðislegu þrílembingana sína allar gimbrar og engin sama lit. Svarflekkótt, Botnuflekkótt og Botnubíldótt þetta verður vandamál í haust held ég verði að setja þær allar á ![]() ![]() Svo sætar. ![]() Svana með sín undan Jóker sæðishrút. ![]() Botnleðja með hrút og gimbur svona fallega botnuflekkótt með hvítan kraga. ![]() Heyskapur í Tungu. Emil er á rúlluvélinni í ár vegna veikinda Steina. ![]() Lulla gemlingur hans Bóa með gimbrina sína. ![]() Gugga með sín lömb. ![]() Ísafold gemlingur undan Garra með tvílembingana sína undan Tvinna Saum syni. Hún bar í endað maí frekar smá hjá henni. ![]() Held að þetta verði einhver dreki þetta er Hæng sonur undan Hriflu Hriflonsdóttur. Hún var með 3 í fyrra öll geggjað góð og svo sæddi ég hana of daufa og hún hélt og auðvitað kom hún bara með eitt ég dauðsá eftir að hafa sætt hana svona daufa því þetta er án efa besta rollan mín og ég hefði viljað fá hana með tveimur lömbum. ![]() Hulda hans Emils hana þarf nú ekki að kynna he he aðal karekterinn okkar og hér er hún komin til mín með gimbrina sína og ég lék heldur á hana lét skrjáfa í poka en var ekki með neitt og hún var frekar fúl við mig og húrraði í burtu í fýlu allveg yndisleg rolla. ![]() Krútturnar okkar með í sveitinni. ![]() Perla hennar Jóhönnu með hrútinn sinn. ![]() Hrúturinn hennar Skuggadís undan Marel Guffa syni. ![]() Ísey bara með annað lambið sitt. ![]() Gimbranar hennar Rauðhettu svo fallegar hlakka svo ógó mikið til að sjá þær í haust. ![]() Lömbin undan Kápu og Myrkva sæðishrút. ![]() Mjallhvít með boltana sína. ![]() Stóru pungarnir Glaumur og Fróði. ![]() Gloppa hans Sigga með sæðis gimbranar sínar. ![]() Forrystu hrúturinn hennar Mirröndu er alltaf að villast undan henni en ég sá hann var svo kominn aftur til hennar. ![]() Hér eru sæðislömb undan Bekra og Myrkva. ![]() Hér er Frigg með boltana sína undan Glaum sem ég var að gera tilraun til að fá gráa gimbur en það misheppnaðist eitthvað he he þetta er þvílíkur ólitur á þeim ljós grá botnóttir. Frigg er nefla undan Herkúles sem var gráflekkóttur svo ég var að vonast eftir að fá almennilega grátt. Jæja það eru svo fullt af fleiri lamba myndum hér inn í albúmi. 23.07.2015 01:34Brúðkaups undirbúningur og BrúðkaupJæja ætlaði nú að vera löngu búnað blogga um Brúðkaupið okkar en svo hef ég verið að bíða eftir tíma og myndum en ég er aðeins með örfáar myndir. Ég á eftir að fá myndirnar hjá Óla hennar Maju systir hann tók allveg æðislegar myndir af okkur og á eftir að vinna þær. Stóri dagurinn okkar var 27.júní og fór athöfnin framm í Mávahlíð sveitinni minni. Dagurinn var fullkominn í alla staði nema smá smáatriði sem klikkuðu eins og þegar Ég var komin inn í Mávahlíð að klæða mig þá fattaði ég að ég hafi gleymt blómunum inn í ískáp heima ob ob þá kom smá stress en Steini frændi minn reddaði því og sótti þau. Síðan voru rosalega fallegar blómakörfur sem stelpurnar áttu að vera með og þær gleymdust óvart í bílnum okkar heima svo við létum það bara eiga sig. Þetta var allt útpælt hjá mér og ég var löngu búnað semja við Fróðahreppinn minn að gefa mér fullkominn dag og ég varð ekki fyrir vonbrigðum og er allveg fullviss að ef maður þráir eitthvað nógu heitt og stefnir að því alla daga til þess að maður fái það. Þessi dagur allavega staðfesti það fyrir mér því ekki er veðrið búið að leika við okkur í sumar og yfirleitt er alltaf gola eða rok inn í Mávahlíð á daginn en ekki þennan dag. Besta vínkona mín Irma greiddi mér og ég bað hana allveg sérstaklega að setja nóg af hárlakki í hárið því það væri alltaf rok eða gola. En aldrei eins og vant var allveg logn og ekki það mikil sól að allir væru grettnir á myndunum svo þetta var fullkomið ljósmyndaveður fyrir Óla. Sigrún frænka faðraði mig og Marta frænka og Milla systir Irmu sáu um að vinna fyrir okkur í veislunni. Svavar frændi var tæknimaður. Þetta var svolítið mikið útpælt hjá okkur því ég lét teyma mig á hesti og ég var með hring undir kjólnum svo hann passaði allveg og steig þá ekki á hann en ég gat ekki verið með hringinn á hestinum svo þegar ég steig niður af hestinum þurfti ég að fá aðstoð við að skella hringnum undir he he en það gekk allt saman eftir og hesturinn henti mér ekki af baki og ég rann ekki af, svo allt tókst vel úfff ég hafði mestar áhyggjur af þeim áfanga að komast alla leið á hestinum. Maggi bróðir leiddi mig svo upp til Emils og Óskars prests og Steina frænda Emils sem var svaramaður hans. ![]() Bói að teyma mig niður brekkuna frá Mávahlíð. Ég keypti auðvitað bleikt teppi á hestinn og var með bleikt semelíu beisli og taum og múl og svo fékk hann bleikt slör. Bói var að hafa áhyggjur að aumingja hesturinn sem er karlkyns þyrfti smá áfallahjálp eftir alla þessu bleiku múderingu he he. ![]() Svona boginn sem Bói smíðaði fyrir mig og svo skreytti ég hann með bergfléttum og greni og svo hvítar gervi rósir. Við vorum svo með stóran rekaviðs staur sem við settum svo gæru yfir til að krjúpa á. Skrautið að er svo hvittaðir girðingastaurar með bleiku skrauti og bandi. Mottur til að labba á og það var svolítið mál að redda þeim og ég pældi mikið í hvernig skóm ég ætti að vera í og endaði að vera bara í stigvélum renndum og fór svo í fínu skóna í veislunni sem var svo haldin í Félagsheimilinu í Ólafsvík. ![]() Hér er hringurinn kominn undir kjólinn og gæran á rekaviðinn allt orðið klárt ![]() ![]() Við orðin hjónó æðislega gaman og vaðalinn allveg sléttur í baksýn og æðislegu fjöllin sem mér þykir svo vænt um. ![]() Benóný flotti strákurinn okkar stóð sig með prýði sem hringaberi. ![]() Sætu skvísurnar okkar svo var Karítas frænka brúðarmey með þeim og þær voru allar svo rosalega flottar og stóðu sig svo vel vantaði bara blómakörfurnar sem gleymdust. ![]() Alda Dís besta söngkona landsins söng fyrir okkur og pabbi hennar spilaði undir og það var allveg meiriháttar allveg gæsahúð allan hringinn. Hún söng fyrir okkur 4 lög og útgöngulagið var Lífið er yndislegt og hún gerði það svo fallega að sínu og breytti Stjörnusalnum í Mávahlíðinni og Herjólfsdalnum í Fróðahreppnum það var allveg æði. ![]() Við að labba upp úr athöfninni og út í bíl í myndatöku leiðangur um sveitina. ![]() Irma og Nonni bestu vinir okkar voru svo yndisleg að skreyta og pússa bílinn sinn til að lána okkur. Maggi bróðir var svo bílstjóri. Veislan fór svo framm um 2 tímum seinna eftir myndatökuna og var hún langt framm á nótt og Dóra vínkona var veislustjóri og sá um að halda uppi stuðinu til 10 hálf 11 en þá tók við Dj sem spilaði framm eftir nóttu. Í veislunni voru stelpurnar í Saumó með skemmtilega leiki fyrir okkur og stelpurnar okkar Embla og Freyja sungu fyrir okkur ógleymalega flott lag með Friðrik Dór Mannstu eftir mér eurovison lagið. Við yfirgáfum svo veisluna um hálf 1 og þá keyrði Óli og Maja okkur upp í bústaðinn þeirra í Bröttuhlíð sem er rétt við Mávahlíð og þar beið okkar kex og kræsingar inn í ískáp í boði Maju systir og Irmu vínkonu allveg yndislegar. ![]() Nú ætla ég að byrja á byrjuninni hér er boðskortið okkar að utan. ![]() Inn í mynd af mér á hrút og ljóð um hrúta. ![]() Neðar var svo mynd af Emil á hesti þegar hann var lítill. Ég hannaði kortið sjálf og valdi pappír svo lét ég Steinprent búa það til fyrir okkur. ![]() Þessi mynd var á Brúðartertunni okkar. Ég á ekki mynd af henni en ég held að Óli hafi tekið mynd af henni. ![]() Svona var þegar inn var komið gömul taska með gæru svo gestabók . Mynd af Emil á hestbaki og svo hrúturinn okkar upp á vegg og svo mynd sem mamma gaf okkur daginn fyrir Brúðkaupsdaginn af málverki af mér með hest sem Þurý systir mömmu málaði. Húsið málaði ég sjálf og gerði borðaskipunina inn í rammana. ![]() Gestabókinn ég gerði hana sjálf. ![]() Inn í gestabókina setti ég svo myndir og klippti út af okkur litlum og meira. ![]() Húsið fékk ég hjá Einari nágranna og ég málaði það og skreytti og klippti út pappír og skrífaði borðaskipunina. ![]() Það var rolluþema og skærbleikt og líka svolítil náttúra því ég týndi þessi grjót í Fögruhlíð í sveitinni hjá mér og svo skeljar í fjörunni og málaði þær sumar en hafði svo litlu bara venjulegar svo sneri ég skel á hvolf og límdi og setti kerti á hana. Skeifuna hafði ég bara lausa því hún er það þung að hún var allveg kyrr. Græna er svo hreindýra mosi sem ég týndi í fyrra í Búlandshöfða og hann límdi ég á :) ![]() Það voru rollustyttur þar sem ég sat. ![]() Bátar þar sem hann sat. Svona áhugamál og vinnan okkar. ![]() Á veisluborðinu var hrútur og rolla hvað annað............ ![]() Önnur svo hinum megin. ![]() Þessi skreyting var svo fyrir aftan okkur og sá Freyja tengdamamma um að gera hana mjög flott hjá henni. ![]() Saumó skvísurnar mínar í Preggy að halda á mér þær eru allveg æðislegar og hjálpuðu mér svo mikið við allt takk kærlega fyrir okkur elska ykkur knús knús og takk kærlega allir fyrir að deila með okkur þessu frábæra Brúðkaupsdegi hann var fullkominn. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. Það eiga svo eftir að koma geggjaðar myndir í viðbót þegar Óli er búnað vinna þær. 23.07.2015 01:23Húsdýragarðurinn![]() Hér er Embla í Húsdýragarðinum. ![]() Freyja að kíkja á geiturnar. ![]() Emelía frænka kom með okkur í garðinn svaka gaman hjá þeim. ![]() Steinar og Unnur með Alexsander og Birgittu og Benóný að prófa kerruna. ![]() Benóný að keyra rosa flottur að setja olíu eins og Steini frændi sinn. Við fórum í Húsdýragarðinn í júní byrjun ég hef bara haft svo lítinn tíma eins og alltaf til að blogga en svo tek ég algera rispu og skelli öllu inn. Þíðir ekkert annað he he. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 23.07.2015 01:06Útskrift Magga bróðirsSnillingurinn hann Magnús Már bróðir minn er nú orðin löglegur lögfræðingur . Hann hefur útskrifast úr Háskóla Reykjavíkur. Hann útskrifaðist 22 júní svo það er löngu orðið tímabært að fara blogga hér inn og monta sig af honum enda frábær drengur og glæsilegt að fá að fagna þessu með honum. Ég get ekki annað en brosað þegar ég hugsa til þess að hann bjó hjá okkur Emil í þó nokkur ár þegar hann var unglingur og var alltaf að horfa á Boston legal lögfræði þætti og hann elskaði þá og sjá gaurana með koníak og feitan vindill þetta fannst honum svo geðveikt svalt og ég er allveg pottþétt að þegar hann var allveg límdur við þessa þætti fann hann hvað hann ætlaði að verða þegar hann yrði stór he he. Allavega hef ég voða gaman af því að stríða honum á því. ![]() Hér er kallinn nettur á því á vinnustaðnum sínum Logos. ![]() Geggjaður árangur hjá honum. Hann var með frábærar einkanir og hæðstur í mörgum áföngum svo svefnleysi,höfuðverkur og ótrúleg vinnuseigla hefur skilað honum hingað. Innilega til hamingju elsku Maggi okkar þetta er frábært hjá þér. Það eru svo fleiri myndir af útskriftinni hans hér inn í albúmi. 15.06.2015 23:30Sauðburðarlok 2015Jæja þá er búið að sleppa öllu fé út þetta árið. Það er nú ekki búið að vera mjög sumarlegt hjá okkur en vonandi fer þetta nú að koma hjá okkur. 119 lömb eru á lífi. 9 lömb dóu á sauðburði. 2 fórust af slysförum. 61 gimbur er lifandi eftir þetta vor. 58 hrútar eru lifandi. Sæðislömb voru 17. 11 gimbrar og 6 hrútar. Hængur á 5 afkvæmi Myrkvi á 5 afkvæmi Saumur 3 Jóker 2 Bekri 2 Nú er bara krossleggja fingur að þetta heimtist allt vel af fjalli í haust. ![]() Finnst þessi mynd allveg æðisleg hér er Freyja með lamb hjá Bárði og Dóru á Hömrum. ![]() Sæðislömbin undan Kápu og Myrkva fæddir þrílembingar eitt var vanið undan sem er ekki á myndinni og var svo óheppin að það var keyrt á það um daginn það var svartur hrútur með hvíta stjörnu. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi ![]() Benóný með gimbrina undan Skvísu sem er þrílembingur. ![]() Smá prufu myndataka hjá mér fyrir Brúðkaupið okkar. ![]() Það fór vel um rollurnar um daginn þegar versnaði veðrið svo mikið að við rákum allt inn og settum þær inn í hlöðu hjá Sigga og hann var búnað útbúa þessar flottu jötur fyrir þær. Hér er svo Bói og Siggi að klaufsnyrta. ![]() Hrifla með hrútinn sinn undan Hæng. ![]() Hér er verið að fara sleppa lambhrútunum inn í Mávahlíð. ![]() Það er nú aðeins farið að grænka en hlíðin er ansi líflaus miðað við júní. ![]() Kíktum á Arnar á Kálfárvöllum og hér má sjá féið hans. Hann er að taka fyrir okkur 2 hesta í tamningu. ![]() Ég svo lukkuleg með gimbranar undan Rauðhettu báðar fallega svarflekkóttar. ![]() Botnleðja með hrút og gimbur botnuflekkótt undan Glaum hans Sigga. ![]() Hekla með lömbin sín. Það má svo sjá fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. ![]() Álft gemlingur bar seinust þessari fallegu hvítu gimbur. ![]() Hér fara þær út seinustu lambærnar þetta árið og það er nú aðeins farið að grænka meira en hlíðin er enn frekar dauf. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér. ![]() Stóri strákurinn okkar hann Benóný Ísak er hér að útskrifast úr leikskólanum. Vá hvað tíminn líður hratt okkur finnst hann en vera svo lítill og nýfæddur. ![]() Hér er svo útskriftarhópurinn hans svo flottir krakkar. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér í albúmi. Jæja svo er það alvaran sem tekur við núna og það er að fara demba sér út í að plana Brúðkaupið okkar sem á vera núna 27 júní. Svo það er ekki seinna vænna en að drekkja sér í hugmyndum og plani því nú er sauðburður á enda og tíminn líður ansi hratt. Þetta er samt allt að skríða saman hjá okkur og planið er að það verði geggjað gott veður sem ég er auðvitað búnað panta hjá Fróðahreppi því ég ætla hafa athöfnina út á túni inn í Mávahlíð og þemað verður auðvitað Rolluþema og skærbleikur verður liturinn en ekki hvað he he þeir sem þekkja mig kemur það allavega ekkert á óvart. Þetta er sem sagt ástæðan fyrir því að ég er búnað vera ansi tímalaus til að geta bloggað hér inn. Mér var svo síðan rænt úr byrjuninni á sauðburðinum og gæsað mig. Fékk þó að senda sms hvort eitthvað væri búið að bera því spenningurinn var í hámarki yfir sæðislömbunum sem áttu að koma þá en þær fundu þetta á sér rollurnar og héldu í sér meðan á gæsuninni stóð he he. Það var farið með mig suður í Kjós í húsið hjá Togga og Höllu foreldrum Irmu vínkonu minnar og gist þar. Um morguninn var farið með mig í lystflug sem var eitt það hræðilegasta sem ég hef gert á ævinni en jafnframt það skemmtilegasta og frumlegasta sem ég hef á ævinni upplifað ,það var allveg æði. Síðan var farið í bogfimi og lasertag sem var líka rosalega gaman. Síðan tók við kósý heit í heitum potti í spa og þar fékk ég svo föðrun og greiðslu frá vínkonum mínum og við klæddum okkur í betri fötin og þegar við komum úr því var draumur minn uppfylltur sem ég hef dreymt lengi um. Það kom Hömmer limmó sem beið fyrir utan eftir okkur og keyrði með okkur rúnt um bæinn, það var algert æði svo enduðum við að borða á Ask veitingarhúsi frábæra nautasteik og svo var kíkt smá tjútt niður í bæ að dansa og svo keypt subway og aftur upp í bústað um 2 um nóttina og þar gáfu frábæru vínkonur mínar og Maja systir og mákonur mér gjöf sem var gjafabréf í snyrtingu hjá Rán snyrtistofu. Ég er allveg óendalega þakklát fyrir að eiga þessar frábæru vínkonur, Maju systir og mákonur sem gerðu þennan dag svo fullkominn í alla staði og ég tala ekki um hvað þær lögðu mikið á sig að gera þetta allt fyrir mig. Elska þær óendalega mikið ![]() Hér má svo sjá mig í löggubúning sem þær létu mig fara í og hér er ég við flugvélina sem ég fór í . 21.05.2015 22:49Sauðburður 2015Jæja þannig týnist tíminn hjá mér sem ég ætlaði að vera löngu búnað gefa mér tíma í að fara henda inn sauðburðarbloggi. En betra er seint en aldrei og ég ætla að reyna koma einhverju smá hérna inn af fyrstu sæðislömbunum sem fæddust hjá okkur í endan apríl og byrjun Maí. ![]() Hér er lambadrottningin hennar Dúfu hennar Jóhönnu og hún er undan Hæng sæðishrút Ég stalst til að sæða hana því ég ætlaði aldeilis að búa til mórauða gimbur fyrir hana en hún er ekkert sérlega mórauð eða hvað he he. Maður pantar víst ekki litina fyrirfram. ![]() Gulla hans Sigga með þrílembingana sína undan Jóker sæðishrút. ![]() Dropa hans Sigga með sæðinga undan Saum. ![]() Eyrún með hrút undan Saum og þau eru allveg áberandi þykk fædd undan Saum. Hún kom með gimbur líka sem villtist yfir í aðra kró og við héldum að önnur rolla sem var að bera á sama tíma ætti gimbrina en svo bar hún 2 lömbum og þá var vafi á hvort hún væri jafnvel þrílembd en þegar leið á sást á vaxtarlaginu á gimbrinni að hún var allveg eins og hrúturinn hjá Eyrúnu svo það fór ekki milli mála að hún var undan Saum enda hefði hin rollan aldrei getað átt 3 svona þykk og stór lömb. ![]() Hér var ruglingurinn og þið sjáið stærðina á lömbunum svo þetta stóðst allt saman að Eyrún á þessa gimbur sem liggur og Svana á hin og þau eru undan Jóker sæðishrút. Það varð svo smá púsluspil úr þessu. Svana er með hrútinn sinn og gimbrina hennar Eyrúnu og Rósalind fóstrar gimbrina hennar Svönu. ![]() Freyja kát að klappa Hröfnu og Hosu. ![]() Zelda með 2 gimbrar undan Bekra gula og svarbotnótta. ![]() Rósaling með hrút undan Fróða Stera syni sem ég keypti af Ragnari á Heydalsá og svo er hún fóstra fyrir gimbrina hennar Svönu. ![]() Svört hans Sigga er með þrjú svarbotnótt undan Bekra sæðishrút. ![]() Bolla hans Sigga með sæðinga undan Jóker. ![]() Mjöll hans Sigga með sæðinga undan Saum. ![]() ![]() Botna hans Sigga með sæðing undan Bekra. ![]() Embla og Freydís í fjárhúsunum. ![]() Kápa kom með þrjú undan Myrkva sæðishrút en Glódís fóstrar svartan hrút fyrir hana. ![]() Sessa með tvær gimbrar undan Myrkva. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu. Kíkti svo við í fjárhúsin hjá Bárði að skoða sauðburðinn hjá honum og Dóru á Hömrum. ![]() Mamma kom með mér og hér er hún með Benóný og Emblu að gefa heimaling pela. ![]() Aðalbústjórinn var sestur í hásætið hans Bárðar hann Bjargmundur og lét fara vel um sig. ![]() Það var vel hlegið þegar ein fullorðin réðst á pelann hjá Huldu mömmu. Já hún var sko ekki búnað gleyma neinu þessi hún var heimalingur í fyrra og kláraði allt úr pelanum he he. ![]() Hér er Dóra með lömbin hjá mömmu hans Salómóns sæðingarhrút sem er á stöðinni. ![]() Brjálað stuð í hlöðunni hjá Bárði og Dóru. Það eru svo fleiri myndir hér inni af þessu. ![]() Eygló með hrútana sína þeir eru mjög sérstakir á litinn. ![]() Skvísa með þrílembingana sína undan Glaum og það eru allt gimbrar og geggjaðar á litinn ein er botnuflekkótt svo svarflekkótt og svo botnubíldótt. ![]() Eik var sónuð með 2 og kom með eitt fóstur og svo svarflekkótta gimbur. ![]() Mirranda forrysta kom með tvo forrystu hrúta sem eru mógolsubotnóttir á lit held ég þetta er svo sérstakur litur að ég er ekki allveg viss hvað þetta er. ![]() Hér sést framan í hann. ![]() Þetta verður bara höfuðverkur hjá mér í haust það er svo mikið af fallegum litum og allt gimbrar hér er Botnleðja með hrút og gimbur undan Glaum botnuflekkótt. ![]() Þessi er í miklu uppáhaldi þetta er Hitler undan Dóru og Hæng sæðishrút. ![]() Þruma stóð fyrir sínu og kom með mórauða gimbur og mórauðan hrút fyrir mig undan Mugison. ![]() Mikið af þessum lit grábotnótt. ![]() Gemlingur hjá Sigga með botnubíldóttan hrút undan Korra Garra syni. Það eru svo fleiri myndir hér inni. Jæja læt þetta duga í bili á fullt af meira efni en læt það inn á næstunni ![]() 29.04.2015 00:564 ára afmæli Emblu, Ferming og kindurnarÉg verð að henda inn hér smá bloggi áður en sauðburður byrjar og auðvitað er ég allveg að fara á taugum að bíða eftir að hann byrji he he. En til að stytta mér biðina ætla ég að henda hér inn þessu og vona svo að þær fari að skjóta þessu úr sér svo ég geti farið að setja hér inn blogg af sauðburði. ![]() Ágúst og Íris komu um páskana með Dalíu og hér er hún í góðu yfirlæti með Huldu ömmu sinni. ![]() Við sprautuðum kindurnar 2 vikum fyrir burð og hér eru Jóhanna og Emil að setja þær niður í hólf svo það verði sem minnst áreiti fyrir þær. ![]() Lifeline stampurinn kominn í hús. ![]() Í fjárhúsunum hjá Bárði og Dóru mjög sniðugt að hafa svona rólu fyrir krakkana, ![]() Það var fjör hjá okkur við vorum að passa strákana hennar Donnu, Mikka og Simba. Það eru svo fleiri myndir hér af rollunum inn í albúmi. ![]() Embla Marína 4 ára afmælisskvísa hélt svo upp á afmælið sitt. ![]() Fékk þessa flottu prinsessu köku. Það eru svo fleiri myndir af afmælinu hennar hér. ![]() Jóhann Eldar orðinn svo stór búnað fermast. Hér er hann svo flottur með mömmu sinni Dagbjörtu og pabba sínum Kjartani. ![]() Flotta kakan hans. ![]() Flottir frændur að pósa. Benóný og Jón Gunnar náðu svo rosalega vel saman að það var allveg yndislegt að fylgjast með þeim þeir voru allveg eins og samlokur alla veisluna. Það eru svo fleiri myndir af fermingunni með því að smella hér. Jæja var að fá þær fréttir áðan frá Sigga að sauðburður er hafinnnnnnnnnnnn Jibbí það var hún Dúfa hennar Jóhönnu sem var að bera hvítri gimbur sem ég var búnað ákveða að hún átti að verða mórauð en það var einhvað vitlaust þar he he sem sagt Dúfa er mórauð og ég sæddi hana með Hæng með von um að fá mórautt. En sem sagt sauðburður hafin svo nú fer biðin að enda og vonandi eitthvað að fara bresta á. Það er nú samt kanski ágætt að fá þetta ekki fyrr því ekki brosir þetta blessaða veðurfar við okkur það er allveg nístings kuldi og leiðinda vindur alla daga. Sumar þú mátt allveg fara láta sjá þig því nú eru lömbin að koma og koma svo sól sól skín á mig ský ský burt með þig ![]() aðeins upp í þessu Íslandi. Sjáumst súper hress í næsta bloggi og vonandi verður komið nóg af hita sól og lömbum. 06.04.2015 10:53Gleðilega páskaKæru vinir við óskum ykkur Gleðilegra páska og vona að þið hafið haft það gott. Það er nú orðið mjög langt síðan ég hef bloggað en það er bara búið að vera rosalega mikið að gera. Emil hefur verið að róa frá Grindavík og ég ein með börnin plús það að ég tók að mér afleysingar á leikskólanum á Hellissandi svo dagurinn hjá mér dugar varla fyrir allt sem ég þarf að komast yfir. Ég fer í vinnu kl 9 og með krakkana svo klára ég að vinna korter í 3 og sæki börnin og því næst eru þau í pössun meðan ég hef farið inn í Tungu að gefa kindunum. Því næst er klukkan orðin um 5 og þá þurfa börnin sína athygli og heimilsstörfin þar líka eftir. Kvöldmatur og svæfa og svo ætla ég að reyna hafa smá tíma fyrir mig en er þá allveg búin með orkuna og fer bara að sofa. En þetta er bara gaman ég þrífst vel í því að hafa nóg að gera ![]() Þangað til ég spring he he. Það eru skemmtilegir tímar framundan það styttist í sauðburð og svo höfum við ákveðið að gifta okkur í sumar 27 júní. Svo það er eins gott að fara setjast niður og plana það allt saman. Við ætlum að vera úti inn í Mávahlíð ef veður leyfir en annars í kirkjunni á Brimisvöllum. Núna á stuttum tíma er búið að vera mikið í gangi. Við höfum farið í jarðaför hjá pabba hans Emils sem var búnað vera veikur í 2 vikur á spítala. Skírn hjá Alexsander Ísar sem er sonur Steinars og Unnar og svo verður brúðkaup hjá okkur í sumar svo við erum að fara upplifa allar útgáfur af kirkjuathöfnum. Mikil sorg og svo bara mikil gleði og hamingja eftir það. Ótrúlegt hvað lífið er fullt af uppákomum og gengur í hringi. ![]() Gullmolarnir okkar kátir með páskaeggin sín sem þau fundu með aðstoð okkar. Það má svo sjá fleiri myndir af páskunum hér. ![]() Fjör á Öskudaginn Freyja Hello kitty. Embla Anna prinsessa og Benóný spiderman. ![]() Hér er Embla búnað fá Elsu búningin sinn sem kom daginn eftir öskudag. Ég pantaði þá báða af Aliexpress og þeir eru æðislegir og smell passa. ![]() Stuð að renna inn í Mávhlíð. Það eru svo fleiri myndir af öskudeginum og börnunum hér inn í albúmi ![]() Skírnin hjá Alexsander Ísar. Hér eru Steinar og Unnur með gullmolana sína Alexsander og Birgittu Emý. Það eru fleiri myndir af skírninni hér inn í albúmi. ![]() Emil var þrítugur 1 apríl og við fórum með Steinari, Unni, Magga, Erlu Dagbjörtu og Kjartani út að borða á Argentínu á Skírdag. Það var rosalega gott að borða og gaman við enduðum svo kvöldið í keilu í Egilshöll og þar var aðeins tekið á því og allir orðnir vel mjúkir og hressir framm á kvöld. ![]() Hér eru öll systkini Emils samankomin í jarðaförinni hjá pabba hans. Steinar Darri yngstur svo Emil Freyr, Dagbjört Hlín, Marinó Ingi og Jóhann Arnór. Það eru svo fleiri myndir af því hérna inni. ![]() Svo kemur að alvörunni he he Rollunum. Það var klaufsnyrting um daginn og hér er Emil og Bói með nýja tækni við eina litla he he. ![]() Búið að rýja gemlingana og rollurnar seinni rúning og við skildum eftir á rassgatinu og undir kviðnum því það er búið að vera svo kalt . ![]() Stórir og þroskamiklir gemlingarnir hjá Sigga í Tungu. Hann skildi eftir á rassgatinu strax en við bara í seinni rúning og finnst mér það koma miklu betur út hjá honum að skilja strax eftir þeir loðna miklu betur og hafa þroskast meira finnst mér. ![]() Lambhrútarnir okkar frá Sigga þessi við jötuna hann er þrílembingur undan Garra sem heitir Korri svo er Tvinni þrílembingur undan Saum. Undan Guffa sem heitir Marel Fróði sem er undan Stera keyptur frá Heydalsá hjá Ragnari. ![]() Stóru jálkarnir Kjölur undan Klett í eigu Sigga og svo Bliki Gosa son í eigu okkar. ![]() Glaumur hans Sigga sem er undan Draum sem var undan Topp okkar. ![]() Flottir litir á gemlingunum hjá Bárði og Dóru. Það eru svo fleiri myndir af rollunum okkar og hjá Bárði og Dóru hér inni. Nú styttist óðum í sauðburð fyrsta á tal 27 apríl og ég vinn á leikskólanum fram að helginni fyrir það svo það verður fljótt að líða. Það þarf líka að huga að því núna strax eftir páska að halda Félagsfund hjá Búa fjárræktarfélaginu svo ég þarf að fara keyra það í gang. Það fer líka að koma að seinni sprautu hjá gemlingunum og að sprauta allar rollurnar. Ég lofa að það kemur svo mjög fljótlega annað rollu blogg og fundarblogg :) heyrumst hress 18.02.2015 12:14Fósturtalning 2015Já sæll hvað ég hef ekki verið að standa mig í blogginu á þessu ári. En það er aðeins ein leið til að bæta það að BLOGGA feitt núna... Það fór framm fósturtalning hjá flestum hérna á Nesinu seinast liðinn laugardag og var útkoma víðast hvar góð þar sem ég hef heyrt. Bárður toppar frjósemina á hverju ári og er núna með 17 þrílembur. Hjá mér og Bárði var ekki frjósamt sæðið úr Hæng sæðingahrút við fengum bæði einlembur frá honum. Rollur plús gemlingar eru 79 í heildina. Hjá mér eru 6 í heildina með 3 7 með 1 1 ónýt 43 með 2 Það var talið í 56 rollum Gemlingarnir voru allir með lömbum sem áttu að fá Þeir eru 23 í heildina 3 hafðir geldir 4 með 2 16 með 1 Veturgömlu eru inn í tölunni hjá rollunum og þær voru allar með 2 nema ein með eitt sem ég sæddi og ein er með 3. Glaumur hans Sigga er faðir hjá 3 sem eru þrílembdar svo er Myrkvi,Tvinni og Fróði kollótti hrúturinn sem ég keypti af Heydalsá. Gimbrin sem ég keypti af Ragnari á Heydalsá er sónuð með 2 svo ég er mjög ánægð með kaupin mín sem ég gerði hjá honum. Smá svona innlegg í hversu mörg lömb ég mun fá undan hvaða hrút ef allt gengur eftir. Fróði undan Stera kollóttur keyptur af Heydalsá eru 18 lömb Tvinni Saum sonur 24 lömb Bliki Gosa sonur 15 lömb Glaumur Draum sonur 27 lömb Marel Guffa sonur 29 lömb Korri Garra sonur 5 Kjölur 3 lömb Hektor forrystu hrútur 2 lömb Mugison Soffa sonur 2 lömb Jóker sæðingur 2 lömb Saumur sæðingur 3 lömb Myrkvi sæðingur 6 lömb Bekri sæðingur 2 lömb Hængur sæðingur 7 lömb Þá er það upptalið. Ég er mjög ánægð með veturgömlu eða tvævettlurnar þær eru orðnar það í ár undan Blika voru allar sónaðar með 2 þó þær séu nú bara 3 þá er ég mjög sátt því ég fór varlega í að setja á undan honum út af frjóseminni. Einnig er ég með gemlinga undan honum sem eru allir með lömbum og einn sónaður með 2 svo ég get verið óhrædd um að nota hann áfram. Það var svolítið skondið að af einlembunum eru 4 sæddar 2 með Hæng 1 Saum og ein með Myrkva. Þessar þrjár sem voru eftir eru svo allar kollóttar og fengu með Fróða kollótta. Það er alltaf eitthvað rugl á þessu 123 og þess vegna hef ég ekki bloggað lengi og núna get ég ekki sett inn myndir á bloggið svo ég verð bara að sleppa því í þetta skiptið en þið getið séð myndir inn í albúmi af sónanum og gamlar myndir frá áramótunum http://isak.123.is/pictures/ Látum þetta duga í bili kveðja Dísa. ![]() 28.12.2014 10:11JólabloggKæru vinir við óskum ykkur Gleðilegra Jóla og farsældar á komandi ári. Þakka kærlega fyrir innlitið og kommentin á síðuna á liðnu ári. Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar. ![]() Það hafðist á endanum að ná svona þokkalegri fjölskyldumynd án þess að allir væru á iði grettnir á svip eða grenjandi ![]() ![]() Jólasveinarnir komu og heimsóttu okkur á aðfangadag og færðu börnunum gjafir en þó voru ekki allir jafn spenntir að sjá þá eins og sést á þessari mynd hér fyrir neðan. ![]() Freyja var svo hrædd við þá að hún ríghélt í pabba sinn og sagði ég er hrædd við jólasveininn og vill ekki sjá hann. En hún fékkst á endanum til að taka við pakkanum hjá þeim og varð þá rólegri eftir að hún sá að þeir voru bara góðir. ![]() Hér náðist ein góð af krúttunum okkar saman. ![]() Flottar saman Freyja með barnabarnið sitt hana Eyrúnu Ösp. Jólin voru mjög kósý hjá okkur með nóg af fjöri í kringum krakkana að sjálfsögðu. Þó fengum við aðeins að kenna á því að Benóný fékk handa og fóta veikina sem er eins og gin og klaufaveiki bara í mönnum fyrir jól og svo fékk Freyja streftókokka og Emil líka svo það var í nógu að snúast fyrir jól plús fengitími líka en það leið svo yfir og jólin tóku við. Mikill spenningur var að opna pakkana en það var gert í röð og reglu svo tækist að skrifa niður hvað væri frá hverjum. Ég var svo heppin að Emil gaf mér linsu á myndavélina í jólagjöf svo nú get ég varla beðið eftir að geta farið og súmað lengst upp í fjall af rollunum og lömbunum það verður æði. Það eru svo fleiri jólamyndir hér inn í albúmi. ![]() Freyja Naómí var svo 2 ára 12.12. og vorum við með lítið kósý afmæli fyrir nánustu. Það var mjög gaman og getið þið séð fleiri myndir af því hér inn í albúmi. Það er búið að vera mikill snjór hjá okkur í desember og muna menn vart eftir svona miklum snjó svo langt er síðan að það varð svona mikið. Þetta er fyrir framan húsið okkar við þurftum bókstaflega að moka okkur út. ![]() ![]() Við nýttum okkur snjóinn vel og bjuggum til snjóhús fyrir framan þegar við vorum búnað moka göngin út og það þótti krökkunum mjög spennandi. ![]() Bliki fékk smá jólaskreytingu á fengitímanum. Ég byrjaði að sæða 7 des með sæði af suðurlandinu og fékk það frekar seint í hendurnar svo ég sæddi ekki fyrr en 7 um kvöldið og var það orðið heldur seint miðað við hvenær ég leitaði. Ég notaði Danna og Jóker og sæddi 5 og 5. 3 héldu með Jóker ein hjá mér og 2 frá Sigga. Aðeins 1 hélt með Danna og var frá Sigga. 8 des sæddi ég með Saum 5 kindur. 4 af 5 héldu 2 frá mér og 2 frá Sigga og ein frá mér gekk upp. 9 des sæddi ég með Myrkva 3 héldu allar. 4 með Bekra héldu allar. 4 með Hæng og ein gekk upp. 11 des sæddi ég með Hæng 5 kindur. 3 af 5 héldu. Svo í heildina sæddi ég 31 kind 11 fyrir Sigga og héldu 9 af 11 hjá honum. Hjá Jóhönnu sæddi ég eina og hún hélt. Fyrir mig og Bóa sæddi ég 19 og það héldu 11 af þeim. Heildarútkoman er því 21 af 30 sem halda í allt. Ég er bara þó nokkuð sátt en hefði viljað fá betri útkomu af fyrsta deginum en það getur líka verið að mig hafi skort æfinguna. Mér finnst maður alltaf vera fyrst kominn upp á lag með að sæða þegar maður er að hætta því maður sæðir svo fáar. Fengitíminn gengur annars bara vel og er langt kominn á leið. Það var reynt að skipta jafnt á milli allra lambhrútana til að fá góða reynslu á þá og svo voru Bliki og Glaumur mikið notaðir líka. Ég á eftir að sjá eina veturgamla ganga sem var geld sem gemlingur og svo eru 9 lömb eftir. Það er skondið að segja frá því að Tvinni Saum son fékk fyrst að kíkja á rollu í ull sem kom frá Óttari og vildi hann engan veginn sjá hana sama hvað við reyndum þó var þetta fyrsta ærin sem hann átti að lemba svo hann hafði ekki fengið ær sem var snoðuð. Við reyndum með 4 kindur á ákveðnu milli bili en aldrei vildi hann sjá þær svo prófuðum við að hleypa hann á eina af okkar kindum sem er rökuð og þá bara hvis bang og lemdi hana eins og skot allveg magnað. Hann er þessi hreinhvíti á myndinni hér. ![]() Við vorum orðin óróleg þegar leið á fengitímann því Siggi er með ull á rassgatinu á sínum kindum hvort hann vildi lemba þær og viti menn Nei ekki til í dæminu Siggi reyndi í yfir klukkutíma að láta hann lemba en kauði vildi ekki með nokkru móti sjá þær. Já það má segja að þetta sé hrútur með ákveðin smekk á rökuðu og órökuð eða þó heldur að hann vilji þær ekki í nærbuxum eins og Bárður sagði við mig he he. Siggi náði svo að láta hann lemba eitt lamb hjá sér með því að sleppa honum í stíuna hjá þeim og leyfa honum að vera þar þá stökk hann á eitt þó það væri með ull á rassinum en rollurnar vill hann ekki svo Siggi kemur til með að nota hann bara næsta vetur. Við gátum annars notað hann vel á okkar kindur og hann meira segja dettur aftur fyrir sig þegar hann lembir krafturinn er svo mikill og svo er hann svo láfættur greyjið að það er mesta furða hvað honum gengur vel með þessar stóru rollur. Jæja rosalega er ég glöð að hafa loksins náð að blogga mig var búnað langa svo lengi að koma því inn. ![]() Flettingar í dag: 489 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 2026 Gestir í gær: 19 Samtals flettingar: 1387039 Samtals gestir: 75063 Tölur uppfærðar: 9.2.2025 02:59:23 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is