Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
02.11.2020 10:24Óstöðvandi smala mennskaSiggi í Tungu og Kristinn Bæjarstjóri eru alltaf að smala og var einstaklega fallegt veður í gær til að smala og fóru þeir tvisvar upp fyrst fóru þeir fyrir ofan Hrísar og náðu þar einni kind frá Friðgeiri sem kom til okkar líka í fyrra og var það móðir hennar Gjöf sem ég fékk hjá Friðgeiri í fyrra og gaf Emblu í jólagjöf. Svo fóru þeir upp í Svartbakafell og náðu þar einni kind með tvö lömb sem reyndist vera frá kvíabryggju og passaði það þeim vantaði akkurrat eina sem þeir vissu að væri einhversstaðar á þessu svæði. Hér sést hluti af veðurblíðunni séð inn i Mávahlíð frá Tungu. Ég skuttlaði Sigga og Kidda inn í Fögruhlið upp á Rauðskriðumel í gær. Hér eru Siggi og Kiddi um daginn þegar þeir voru að smala upp undir myrkur fé frá Gísla á Álftarvatni sem Kiddi kom með í því var svo forrystu kind með lömb frá Lýsudal. Forrystan er á bak og burt og hefur ekki sést til hennar en við náðum kindinni frá Gísla og var hún með tvö lömb sem reyndust vera undan Ask frá mér þvi hann var í afkvæma rannsókn hjá Gísla á Álftavatni. Gummi kom svo og tók kindurnar sem hann fær hjá mér þær eru þrjár svo kom Bárður og tók hjá mér 10 sem hann fær og svo bíttaði ég á við hann um eina gimbur sem mig langaði svo mikið í hjá honum. Ég fékk þessa hjá honum og auðvitað var það liturinn sem heillaði mig. Hann fékk þessa hjá mér sem er undan Sóldögg og Mínus sæðingarstöðvarhrút. 02.11.2020 10:13Ásettnings gimbrar hjá Kristni BæjarstjóraHér er svo gimbrin aftur frá Sigga sem Kristinn setur á. Hún er undan Svínku og Bolta. Hún fær nafnið Tuðra. 42 kg 33 ómv 2,5 ómf 5,0 lag 104 fótl 9,5 framp 18,5 læri 7,5 ull 8 samræmi. Þessa gimbur fékk hann hjá Óttari á Kjalvegi og hún er undan Rassbót og Vask sem er frá okkur og er undan Ask. Hún fær nafnið Tuska. 45 kg 31 ómv 2,9 ómf 4 lag 9 framp 18 læri 9 ull 8,5 samræmi. 02.11.2020 07:39Ronja Rós 13 mánaða 27 októberRonja Rós er heldur betur farin að príla út um allt og er mikill prakkari í sér og núna eru Donna og Myrra í miklu uppáhaldi og þær forða sér undan henni því hún hleypur á eftir þeim og grípur í skottið á þeim og reynir að setjast ofan á Donnu ef hún liggur einhversstaðar. Orðaforðinn er alveg komin á fullt og er farin að komast á eftirhermu aldurinn og apar allt upp eftir manni og fær það svo algerlega á heilann eins og páfagaukur alveg yndisleg. Elskar öll dýr og sérstaklega hænurnar núna byrjar leið og við stoppum fyrir utan hjá Freyju og Bóa í sveitinni að segja gogg gogg þvi þar veit hún að hænurnar eru. Þessi frábæra prinsessa kann svo alveg lagið á ömmum sinum og Jóhönnu frænku að láta halda á sér og bræðir alla með kátínu og prakkara skap. Hér er hún brosandi að fá að príla upp á eitthvað nýtt. Svo yndisleg. Inn í Tungu hjá Sigga að leika með snigilinn sem hefur verið í miklu uppáhaldi hjá öllum krökkunum. Við náðum í þetta píanó frá Freyju þegar hún var litil því Embla var að æfa sig á píanó inn í herbergi og Ronja var alveg óð að fara inn í herbergi og trufla Emblu og ýta á alla takkana og þegar við föttuðum að við ættum þetta og náðum í það var hún alveg í skýjunum með það. Þurý systir hennar mömmu heklaði þetta fallega hárband í stíl við kjólinn mjög flott. Hún elskar að vera í kringum lömbin enda eru þau alveg einstaklega gæf. Hér er hún að skottast með þeim svo glöð og kallar me me. Þessi mynd er eitthvað svo einlæg og sæt af okkur. Með ömmu Huldu sinni. Hér er hún mikið að segja a við tré hundinn he he. Hér er hún að borða egg með afa Bóa í sveitinni. Það eru svo fleiri myndir af henni hér inn í albúmi. 31.10.2020 08:06Ásettnings gimbrar hjá Sigga í Tungu.Þessi er undan Mosa og Lottu.
44 kg 34 ómv 3,6 ómf 4,5 lag 107 fótl
9 framp 18,5 læri 9 ull 8 samræmi.
Þessi er undan Slettu og Ask.
52 kg 35 ómv 3,4 ómf 5 lag 112 fótl
9 framp 18 læri 7,5 ull 8,5 samræmi
Þessi er undan Hélu og Ask.
44 kg 30 ómv 3,2 ómf 4,5 lag 107 fótl
9 framp 18,5 læri 7,5 ull 8,5 samræmi.
Þessi er undan Skrúfu og Ask.
47 kg 32 ómv 3,9 ómf 4,5 lag 111 fótl
9 framp 18 læri 9 ull 8,5 samræmi.
Þessi er undan Sprella sem er undan Gosa frá Guðmundi Ólafs Ólafsvík eins og Mosi og
Prílu.
46 kg 34 ómv 2,7 ómf 5 lag 107 fótl
9 framp 18,5 læri 8 ull 9 samræmi.
Þessi er undan Slyddu og Mosa .
50 kg 37 ómv 1,9 ómf 5 lag 109 fótl
9 framp 18 læri 8 ull 9 samræmi.
Þessi er frá Sigga og verður í eigu Kristins Bæjarstjóra hún er undan Bolta hrútunum hans
Kristins og Svínku.
42 kg 33 ómv 2,5 ómf 5 lag 104 fótl
9,5 framp 18,5 læri 7,5 ull 8 samræmi.
24.10.2020 22:42Smalað lömbunum heim og aðkomu féFórum að sækja kindurnar og lömbin í dag og virtist þetta ætla vera voða þæginlegt í fyrstu engin inn fyrir Búlandshöfða en þegar að var gáð betur kom í ljós að það voru nokkrar eftir inn fyrir Höfða og voru niður fjöru.Það gekk samt allt saman vel þegar það var komið af stað. Siggi hélt svo að hann ætti eina upp á Eyrunum við Rauðskriðumelið hinum megin við ána og fór einn á eftir henni en svo kom annað í ljós að hún var alls ekki frá okkur og ætlaði sér ekki að rekast niður og fór yfir ána í tvígang og mikill eltingarleikur átti sér stað í kringum hana en bugaðist þó að lokum það kom svo í ljós að hún var frá Óla á Mýrum. Það voru svo aðrar aðkomu kindur sem voru mjög óþekkar og erfitt að reka og mikill eltingarleikur var að ná þeim. Kristinn hafði séð þær upp á Fróðarheiði og þær hefðu svo villst inn efir og voru komnar niður í Hrísar. Siggi,Kristinn,Emil og Jóhanna voru komin með þær alveg upp að fjárhúsum þegar ég kom til baka eftir að ég var búnað fara og tékka á Ronju hjá Freyju og Bóa og hélt að þær væru bara að fara inn hjá þeim en það var síður en svo þær ætluðu sér ekki inn og tóku straujið aftur til baka og ætluðu að rjúka inn í Kötluholt en við náðum að komast fyrir þær og koma þeim inn í girðinu og enn héldu þær áfram og vildu ekkert láta sér segjast að fara inn í fjárhús. Þá var tekið til ráða að hleypa nokkurm frá okkur út og ná að sameina þessar við og reka þær saman inn og það hafðist og loks voru þær komnar inn. Þessar ær reyndust svo vera alla leiðina frá Guðjóni í Knarrartungu Breiðvík. Það var svo farið til Óttars á Kjalveg og náð í eina kind sem ég ætla að vera með fyrir hann og gimbur sem hann lét Kristinn hafa. Lalli á Hellissandi var svo að dæla út fyrir okkur og þess á milli var hann að hjálpa okkur að stöðva kindur og reka inn he he fékk engan frið að dæla út og hjálpin var vel metin. Svo nú eru öll lömbin komin svo nú get ég farið að taka myndir af þeim og setja inn fljótlega. Hér eru Kristinn og Siggi með kindurnar sem voru að fela sig niður í fjöru Búlandshöfða megin. Hér eru þær komnar vel áleiðis og stelpurnar komnar að hjálpa Freyja og Embla. Embla Marína dóttir okkar svo dugleg að smala. Hér erum við að komast fyrir hornið Siggi efstur svo Kristinn og Embla neðst og við Freyja rekum lestina. Hér erum við komin fyrir ofan Mávahlíðarhelluna. Hörku smalar. Embla fremst á eftir kindunum svo koma Kristinn og Freyja. Siggi er fyrir ofan veg upp í hlíð. Allt orðið svo vetrarlegt og það er farið að bæta í vindinn hjá okkur og frekar kalt sérstaklega ef það þarf að stoppa og bíða. Hér halda þær áfram frá Mávahlíð og yfir í Tungu. Freyja labbaði með mér inn hlíðina og það var orðið ansi kalt hjá okkur í restina að bíða. En svo komu þær allar niður eftir að Kristinn og Siggi voru búnað fara upp á Sneið og reka þær niður og þá gátum við Freyja lagt af stað niður. Hér halda þær áfram niður í Fögruhlíð. Hérna er þessi óþekka sem stökk í ána og er frá Óla á Mýrum. Kristinn og Embla að reka inn og Embla fer létt með þetta og hleypur alveg þindarlaust á eftir þeim. Allt að koma hjá okkur verið að reka inn úr girðingunni hjá Sigga í Tungu. Smalarnir sáttir við daginn Kristinn,Siggi og Emil á leið í kaffi hjá Sigga. Hluti af ásettnings gimbrunum. Golsi fallegur hann er 87,5 stig og undan Ask og fær nafnið Þór. Hér er fallega veturgamla sem ég mun hafa fyrir Óttar og hliðina á henni er gimbur sem hefur fengið nafnið Tuska og er frá Óttari og er í eigu Kristins. Hér er í bland gimbrar frá okkur og Sigga sem verða settar á. Falleg Golsa sem er undan Kviku. Benóný var að leyfa Móru hans Sigga að prófa húfuna sína og hún brosti líka svona breytt alveg hæðst ánægð með 66 norður húfuna . Embla með Hrafney sem er undan Hröfnu og Móra sæðingarstöðvarhrút. Hrafntinna er frá Jóhönnu frænku Emils og er undan Svarta Pétri og Hnotu. Jæja læt þetta duga að sinni það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af smöluninni. 21.10.2020 21:28SláturmatVið sendum 51 lamb í sláturhús og seldum 62 til lífs og svo verða settar á einhverjar gimbrar og 3 lambhrútar. Við erum búnað fækka talsvert af kindunum og seldum við 28 kindur og svo var einhverjum slátrað og munum við enda í 30 hjá okkur svo verður Jóhanna með 3 og Kristinn Bæjarstjóri verður með 3 og svo setur Jóhanna eitt lamb á og Kristinn 2 svo þetta fer allt að skýrast hvað verða margar í vetur. Lalli er að dæla út fyrir okkur núna svo allt fer að verða klárt fyrir að taka inn. Það á reyndar enn þá eftir að sækja eitthvað af sölulömbum. En já eins og ég sagði áður fóru 51 í sláturhús og vorum við frekar stressuð að matið yrði ekki gott því það fór svo seint í sláturhús og þau voru búnað vera svo lengi inn á túni. 10,94 Gerð 6,61 Fita 17,82 kg Ég er bara mjög sátt við þessa útkomu miðað við að ég er búnað taka allt það besta úr þessu og þetta er í rauninni bara það slakasta sem er eftir. Hér er Ronja Rós alsæl með einni af lífgimbrunum sem við setjum á. Þau eru svo ótrúlega spök hjá okkur lömbin hér eru krakkarnir að klappa þeim. Gaman í sveitinni hér er Guðjón vinur Emblu og Freyju og svo Aníta vinkona þeirra. Freyja að klappa sölu lömbunum. Embla og Ronja Rós. Nóg að gera að klappa þeim. Ronja búnað troða sér ofan í pott hún er alveg órtúlegur prílari og dettur ýmislegt í hug eins og þetta að troða sér ofan í pottinn he he. Hér er önnur gimbur sem við setjum á og Ronja fékk að klappa henni og klípa. Þetta er þrílembingur undan Hriflu gömlu og Mosa hans Gumma Óla. Hrifla kvaddi okkur núna og svo drapst Mosi hans Gumma í haust. Falleg grá gimbur sem við erum búnað selja hún er undan Vask og Vofu. Ronja að leika við Mikka. Hér er Bolti veturgamall hrútur hjá okkur sem Kristinn Bæjarstjóri á hann var að koma mjög vel út hjá okkur. Kolur veturgamall hjá okkur hann átti meðal annars 88 stiga mórauðann hrút sem við seldum Tóta á Ytri Hofdölum það verður spennandi að fylgjast með því hvað hann gerir í framræktun þar. Lömbin undan Kol voru fallega mórauð og mógolsótt. Hérna er svo Askur sá golsótti hann var í afkvæmarannsókn á Álftavatni og var bara mjög stutt í að við fengjum að vita úr henni en þá þurfti Askur endilega að drepast stuttu seinna. Askur er Kaldasonur og var að koma mjög vel út hjá okkur og kom einnig vel út í afkvæma rannsókninni sem við fengum svo að vita síðar. Við setjum einn lambhrút undan honum á og einnig undan Vask sem er sonur hans og vona ég að þeir erfi þessa miklu framræktun sem hann var að gefa svo vel í gegn frá sér. Hér er Kiddi með gripinn sinn hann Bolta sem er algjört gæðablóð og elskar að láta klappa sér og legst bara á rassinn þegar eins og sést þegar Kiddi klappar honum undir bringuna. Það var Halloween ball í skólanum hjá krökkunum og hér er Freyja,Embla og Aníta vinkona þeirra í þessum flottu búningum sem Gunna Þórðar amma Anítu saumaði fyrir þær og svo saumuðum við Anna svörtu saumana á kjólana og Anna málaði þær og ég aðeins og svo hjálpaði Irma okkur líka að setja lit í hárið og útkoman af þessu varð alveg rosalega flott og þær svo ánægðar. Benóný fór sem Covid eftirlits maður og við áttum gamlan málingargalla sem ég teiknaði og skrifaði á og límdi svo sprautu og eyranpinna og hár rúllur til að búa til líkan af veirunni. Þetta var hann með framan á gallanum. Þetta var svo hinum megin framan á. Aftan á skrifaði ég svo Covid-19 Heima með Helga og svo í kvöld er Gigg og svo var Sóttkví í 14 daga og tölur yfir hversu margir eru smitaðir þennan dag og hversu margir í sóttkví og einangrun. Hér eru glæsilegu Halloween börnin okkar og Benóný hlaut verðlaun á ballinu fyrir frumlegasta búninginn og var rosalega ánægður með það enda var þetta svo geggjuð hugmynd honum langaði að vera Covid og ég fann þennan galla svo þetta small allt saman hjá okkur svo var hann með grímu,gleraugu og derhúfu. Auðvitað varð svo litla dúllan að fá að vera með líka svo við skelltum henni í búning. Hér er hún alveg að krútta yfir sig í þessum sæta jarðaberja búning. Flottar systur saman. Við reiknum svo með að smala næstu helgi og fara taka inn lömbin og hrútana og þá mun ég blogga og setja inn myndir. 13.10.2020 10:34Ronja Rós og krakkarnir í göngutúr og fleiraRonja Rós að virða fyrir sér haustlitina í garðinum. Margt svo spennandi að skoða. Sópa stéttina með mömmu sinni. Svakalega gaman. Gaman að skoða hænurnar í sveitinni hún er alveg sjúk í gogg gogg eins og hún kallar þær hér er hún með systrum sínum og Anítu vínkonu þeirra. Flottar saman. Haninn hjá Freyju og Bóa Varmalæk. Hænurnar eru svo flottar og falla svo vel inn í haustlitina. Benóný hænsna bóndi. Fórum í göngutúr með Freyju ömmu inn í Bug um daginn í veðurblíðunni. Ronja Rós sofnaði á leiðinni og svaf svo fyrir utan heima hjá ömmu í vagninum. Við mæðgurnar. Krakkarnir skelltu sér í fjallgöngu. Krakkarnir komnir upp á topp. Og Benóný skellti sér upp á næsta topp. Hér er hann aftur að hlaupa milli hóla svo fékk hann ömmu Freyju til að snúa við og fara heim á undan mér og stelpunum því hann var orðinn svo þreyttur he he enda búnað vera mjög duglegur að hlaupa upp og niður. Þetta er í miklu uppáhaldi að fara ofan í alla kassa og príla. Donna treður sér alltaf ofan í bónus pokana þegar ég er búnað taka úr þurrkaranum og þá kemur Ronja og hlúnkar sér ofan á hana í pokanum og Donna er ekkert voðalega hrifin af því he he en lætur sig hafa það eða forðar sér í burtu. Birgitta frænka og Alex frændi komu til ömmu Freyju og afa Bóa seinustu helgi og það var mikil hamingja og gleði að fá þau hér er Birgitta og Freyja með Ronju. Flottar frænkur. Hér var smellt í eina grettumynd af krökkunum svo gaman að hittast öll. 04.10.2020 15:13SöluhrúturÞessi hrútur er til sölu hann er undan Kol og Óskadís. Kolur faðir hans er mógolsóttur og er undan Zesari sem á ættir í Dreka sæðingarstöðvarhrút og Óskadís er undan Knarran frá Bárði og Dóru Hömrum sem er móflekkóttur og Óskadís sjálf er móhosótt. Þetta er mynd af móðurinni Óskadís þegar hún var lamb hún er fædd 2018. Hér er kolur sem er veturgamall og er faðirinn. Kynbótamat hans er 108 gerð 104 fita 104 frjósemi 99 mjólk. Lambhrúturinn er tvílembingur og bróðir hans er mórauður og var með 31 ómv og 18 læri og var 84,5 stig Stigun á þessum hrút hljóðar svona : 47 kg 107 fótl 30 ómv 2,8 ómf 2,8 lögun 4,0 8 8,5 8,5 9,0 8,5 17,5 7,5 8,0 8,5 alls 84 stig Kynbótamat 104 gerð 104 fita 106 frjósemi 98 mjólkurlagni. Áhugasamir hafið samband í síma eða skilaboð 8419069 Dísa eða 8959669 Emil. 01.10.2020 11:33Ronja Rós 1 árs 27 septYndislega og káta Ronja Rós okkar varð 1 árs 27 sept. Við héldum upp á afmælið hennar laugardaginn 26 sept því hún á afmæli á annasömum tíma hjá okkur allt á kafi að gera í kindunum og við þurftum að afgreiða sölu lömb á afmælisdaginn hennar svo við flýttum þvi um einn dag og það var bara lítið fjölskyldu afmæli amma Freyja og afi Bói komu,Jóhanna frænka,Maja og Óli og Karítas,Jóhann,Þórhalla og Bjarki og Siggi í Tungu. Jóhanna fænka bakaði afmæliskökuna og svo var ég bara með pestó kjúkling í ofni og heitan rétt og smá kökur. Ronja fór í skoðun eftir afmælið sitt þann 29 sept og hún heldur sinni kúrvu. Hún er 8 kg og 20 gr lengd 74 og höfuðmál 46 cm. Hún fékk svo tvær sprautur og kippir sér ekki mikið upp við þær hún verður smá reið og grenjar bara í 5 sekundur svo búið ótrúlega hörð. Hún er enn sami gleðipinninn og elskar að láta fíflastí sér sérstaklega stelpurnar og pabbi hennar hún elskar þegar hann er með háróma stríðnistóninn sinn og þá skrækir í henni. Hún er farin að segja fleiri og fleiri orð með hverjum deginum sokkar og mjög hátt og skýrt mamma og babba,kis kis og núna er komið me og aff aff hundur og íhi hestur,bra bra önd og gogg gogg hænur enda er barnið í kringum svo mikið af dýrum. Hún elskar lagið five little monkeys og ég segi alltaf með laginu á íslensku nei nei ekki hoppa í rúminu en það er sagt á ensku í laginu og hún er farin að segja nei nei og hreyfa visifingur svona eins og þegar maður er að skamma mjög krúttlegt. Hún er nánast hætt að skríða og labbar um allt er stundum aðeins of fljót að flýta sér og heldur að hún geti bara hlaupið og þá dettur hún. Prílið í henni er orðið ansi krefjandi hún er farin að komast upp í sófa og finnur allt til að stíga ofan á og færi sig ofar til að mynda i morgun fór hún upp á stól inn í svefnherbergi. Hún er komin með 6 tennur 4 í efri góm og 2 í neðri. Hún vakanar yfirleitt fyrir 7 og tekur svo tvo til þrjá lúra yfir daginn ýmist í 1 til 2 klukku tíma eða ef hún tekur 2 þá sefur kanski í 2 til 3 tíma og tekur þá stuttan um kvöldið. Sofnar yfirleitt milli 9 og 10 og sefur vel á nóttinni nema vaknar til að drekka og já hún er en á brjósti fær svona þrisvar yfir daginn og svo áður en hún fer að sofa og svo á nóttinni ég er enn að vinna í því að láta hana hætta en það er erfitt því hún vill ekki snuð eins og ég hef áður sagt frá. Hér er krúttið okkar í kjólnum sem Hafdís tvíburasystir mömmu heklaði svo heklaði Þuríður systir mömmu dúkku kjólinn,hatt,nærbuxur og hosur svakalega fallegt. Hér er hún og dúkkan saman svo flottar. Svo mikil prinsessa. Ég styllti henni svona upp fyrir myndatökuna og viti menn þá fann hún upp á því að hún gæti klifrað sjálf upp á arinn hilluna. Aðeins að fikta í dótinu hennar mömmu sinnar. Að opna fyrsta pakkann sinn á afmælinu. Krakkarnir fara létt með að hjálpa henni að opna hér er Bjarki Steinn,Embla Marína með Ronju Rós og Freyja Naómí og Aníta Sif vínkona þeirra. Þetta var nú ansi freistandi að fá að grípa í tertuna he he. Fallegar systurnar saman. Með ömmu Freyju og afa Bóa. Það er alveg með einsdæmum hvað féið er spakt hjá okkur hérna er ein sölu gimbur sem stelpurnar mínar voru aðeins búnað klappa og hún liggur bara með þeim. Hér er Ronja svo niður í kró að tala við eina mógolsótta gimbur sem er þrílembingur frá Sigga og hún er svo gjæf. Hér eru stelpurnar með sölu lömbin okkar og svo er ein tvævettla með þeim sem er mjög gjæf. Lömbin voru frekar gjæf í vor þegar krakkarnir og ég vorum að klappa þeim og það er eins og þau muni eftir því eða þetta sé bara orðið erfðavísir hjá þeim að verða svona gjæf. Þetta eru bara lömb sem koma núna niður af fjalli og þau eru bara strax gjæf. Þetta er alveg magnað að þau skuli vera svona rosalega spök. Benóný að teygja sig í þau. Freyja alveg í kremju he he. Stelpurnar eru alveg alsælar með þetta og alltaf bætast fleiri og fleiri lömb í hópinn sem vilja láta klappa sér. Ronja var alveg alsæl að fá að sitja bara á þessari gimbur og hún jórtraði bara á meðan og kippti sér ekkert upp við þó hún væri að tosa í ullina hennar og tromma á henni með höndunum. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi 25.09.2020 13:51Stigun 21 sept 2020Stigun fór fram mánudaginn 21 sept og það var Árni Brynjar Bragason sem kom og skoðaði Torfi átti að vera með honum en hann var frá vegna veikinda svo þetta var langur dagur hjá Árna. Hér eru þeir meðvitaðir um ástandið sem er í samfélaginu í dag halda bilinu og vera með grímu það einkennir nú árið 2020. Við vigtuðum á sunnudeginum 20 sept og var meðalvigtin minni en hún var í fyrra hún var 45 kg af 133 lömbum núna en í fyrra var 46,2 kg af 125 lömbum svo það munar 1,2 kg á árinu núna og í fyrra. Hér eru Siggi í Tungu og Emil og við fengum svo góða hjálp frá Kristinn að vigta lömbin. Stigunin gekk vel og vorum við bara mjög sátt við útkomuna og komu kollóttu kindurnar stóðu sig mjög vel og komu með afbragðs lömb. Það voru 53 hrútar stigaðir 1 með 89,5 stig 1 með 88,5 stig 5 með 88 stig 8 með 87,5 stig 2 með 87 stig 6 með 86,5 stig 4 með 86 stig 6 með 85,5 stig 4 með 85 stig 8 með 84,5 stig 3 með 84 stig 2 með 83,5 stig 1 með 83 stig 2 með 82,5 stig meðaltal er 85,9 stig. Læri hjá hrútunum voru 18 að meðaltali og hljóðaði svona 4 með 19 10 með 18,5 21 með 18 15 með 17,5 3 með 17 Ómvöðvi var að meðaltali 31,5 1 með 39 7 með 34 7 með 33 9 með 32 12 með 31 11 með 30 5 með 29 1 með 28 Bak hjá hrútunum var að meðaltali 9 1 með 10 6 með 9,5 39 með 9 8 með 8,5 Lag að meðaltali var 4,3 Fita að meðaltali var 3,2 Malir að meðaltali 8,8 Gimbrar voru 55 42 voru með 30 í ómvöðva og yfir hæðst 40 meðaltal ómvöðvar er 31,4 Frampartur 1 með 9,5 35 með 9 18 með 8,5 1 með 8 meðaltal framparts er 8,8 Læri 1 með 19,5 5 með 19 14 með 18,5 17 með 18 17 með 17,5 1 með 17 meðaltal læra er 18,1 Lögun meðaltal er 4,3 Fita meðaltal 3.5 Hér er ein gimbur undan Kviku og Vask sem við erum að pæla í að setja á hún er 43 kg 33 ómv 3,2 ómf 4,5 lag 108 fótl 9 framp 19 læri 7,5 ull 8,5 samræmi. Hrútur undan Bombu og Vask. Hann er 89,5 stig tvílembingur. 50 kg 39 ómv 2,1 ómf 5 lag 104 fótl Settur á hjá okkur 8 9 9 10 9,5 19 8 8 9 alls 89,5 stig. Finnst þessi svo fallegur hann er undan Brussu og Mosa hans Gumma Óla. Hann er seldur þessi. Hann er 87,5 stig og 52 kg. Þessi er undan Ask og Snædrottningu hann er tvílembingur 48 kg 34 ómv 2,7 ómf 5 lag 109 fótl Settur á hjá okkur 8 9 9 9,5 9 19 7,5 8 8,5 alls 87,5 stig. Bróðir hans á móti er 48 kg og með 34 ómv 3,8 ómf 4 lag 104 fótl. Hann er seldur. 8 9 9 9 9 19 8 8 9 alls 88 stig. Þessi gimbur verður sett á og er þrílembingur undan Djásn og Bolta. Hún er 50 kg gengu tvær undir og er með 40 ómv 2,9 ómf 5 lag 109 fótl 9,5 framp 19.5 læri 8,5 ull 8,5 samræmi. Hún verður sett á. Systur hennar á móti voru önnur með 34 ómv og hin var með 38 ómv og báðar 18,5 í læri svo þetta eru alveg hörku systur. Bolti er undan Víking frá Bárði og Dóru og kind hjá mér sem heitir Hosa og er undan Topp frá okkur. Kristinn Bæjarstjóri er eigandi af Bolta. Stelpurnar völdu auðvitað þessa en hún er undan Möggu Lóu hennar Freyju og er mógolsubíldótt. Hún er 42 kg 34 ómv 2,9 ómf 4,5 lag 113 fótl 8,5 framp 17,5 læri 7,5 ull og 8 samræmi. Embla er búnað spekja gimbranar og við erum alveg í vandræðum því þær vilja setja allar spakar gimbrar á. En við ætlum að reyna setja ekki mikið á því við ætlum að fækka kindunum í haust. Fyrst var ég að íhuga að hætta með kindurnar því þetta var orðin svo rosalega mikil vinna og Emil er lítið heima yfir þessa háanna tíma og þá hef ég þurft að treysta mikið á aðra og það er stundum erfitt að vera alltaf háður því að vera alltaf að kvabba á fólki til að aðstoða sig, svo er mikil vinna hjá mér heima með 4 börn og allt sem því fylgir. En kindurnar eru mér svo mikils virði að ég get varla hugsað hver ég er án kindanna og þær eru minn heilunar tími út frá heimilinu svo ég ætla að minnka við mig svo ég geti notið þess að vera með þær áfram án þess að það sé kvöð og allt of mikil vinna. Börnin elska líka að stússast með mér í þessu og finnst mér nauðsynlegt að hafa þær til að ná gæðatíma með börnunum í áhugamáli sem við eigum saman. Svo planið er að selja eitthvað af kindum og halda eftir um 30 af 84. Setja svo eitthvað lítið á og við erum búnað fá mann til að dæla út fyrir okkur því það hefur alltaf verið mikið stress að ná því á haustin því þá er Emil farinn að róa. Það var svo stigað hjá Gumma Óla Ólafsvík Hér er Árni að stiga lömbin hjá Gumma í Ólafsvík. Hér eru flottir hrútar hjá Guðmundi. Hann fékk mjög flotta stigun og fékk 89 stiga og 89,5 stig hrúta og bakvöðvinn mjög jafn. Við kíktum á stigun hjá Óttari á Kjalveg í hans síðasta sinn því hann er að fara hætta með kindurnar i haust og er búnað selja þær allar. Það verður mikill söknuður að hafa ekki Óttar með í þessu enda mikil ræktandi og með eðal fé. Kristinn tók þessa mynd fyrir mig þegar var verið að dæma hjá Óttari. Hann fékk mjög góða og jafna stigun og lömbin hjá honum eru mjög væn eins og þau eru alltaf hjá honum. Hér má sjá hluta af lömbunum hans. Ég hafði orð á því að stríða honum hvað það væri mikið mislit hjá honum því hann var alltaf að stríða mér þegar ég var krakki að ég væri bara fyrir liti. Ronja Rós komin í fjárhúsin. Hér eru krakkarnir að spekja lömbin og Ronja Rós horfir á og kallar kis kis hún kallar kindurnar það he he. 24.09.2020 11:52Frá Fróðarheiði að Svartbakafelli,Svartbakafell og Hrísar.Á föstudaginn fór ég og Maja Fögruhlíðarmegin upp í Hríshlíð og fórum svo upp með Rjómafossi Fögruhlíðarmegin. Siggi,Emil,Kristinn,Hannes og strákurinn hans fóru upp á Fróðarheiði ,þeir ganga þar yfir í Svartbakafellið og skipta sér svo niður og Emil tekur Tungu megin. Við Maja fórum upp með Rjómafossi og lentum í stökustu vandræðum að komast yfir gilið það er svo mikið vatn allsstaðar. Hér er Kristinn Bæjarstjóri,Siggi í Tungu ,Emil og Hannes og strákurinn hans. Allir klárir og með bilið á milli sín. Hér erum við Maja að komast upp að Rjómafossi og þurfum að finna okkur stað til að vaða yfir í Svartbakafellið. Hér er Maja að fikra sig ofar svo við finnum einhvern stað til að komast yfir því það er bæði mikið vatn í og mikill straumur við enduðum með að komast yfir en óðum alveg upp að lærum og kuldinn var svo eftir því þegar við vorum komnar yfir. Hér er Maja komin yfir. Og hér klöngrumst við aftur upp úr gilinu og yfir í Fellið. Kikjum hér ofan í Skálina og þar var ekkert að sjá svo við héldum áfram. Ekkert að sjá hinum megin upp í Hríshlíð eða upp í Borgum. Hér sést hvar Rjómafossinn rennur niður og núna erum við komin upp í Svartbakafell og hér sést niður að Rauðskriðumel og eyrunum lengst niður frá sem eru hér neðst. Hlíðin sem blasir við hinum megin við gilið er Hríshlíðin. Vinstra megin lengst niðri er Tungufellið. Þetta gekk svo allt saman vel og var rekið niður með Holtsánni og yfir í Tungu. Hér er Maja,Siggi og Kristinn. Hér eru svo feðgarnir frá Eystri Leirárgörðum alltaf gaman að fá að hitta þá og við erum afar þakklát fyrir hjálpina þeirra á hverju ári. Gummi Óla Ólafsvík og Magnús Óskarsson komu líka. Verið að reka inn. Reka inn. Fjárhúsin inn í Tungu og hér renna þær inn. Og enn kemur fé sem vill komast inn og nú fer þetta að vera komið. Flott að láta vindinn halda sér á lofti. Allir duglegir að halda bilinu á milli sín meðvitaðir um covid ástandið. Og núna er þetta að klárast. Falleg lömbin að sjá. Vofa með lömbin sín. Gimbrin hennar Hröfnu og Móra sæðingarhrút. Þessi varð gæfur leið og hann kom inn reyndar var hann gæfur sem lamb og hefur alveg munað eftir því. Hann er undan Ask og Gersemi. Fæddur þrílembingur. Tvær fallegar mógolsubíldótt undan Kol og Magga Lóu og svo flekkótt undan Sölku og Ask þrílembingur. Þetta var á föstudeginum. Við eigum svo eftir að fara inn fyrir Búlandshöfða og sækja þær sem við Maja misstum upp á fjall. Í blogginu hér á undan skrifaði ég svo framhaldið af þessum degi óvart en það var þegar við tókum það sem var inn í Hrísum og hér er svo framhald af því hér. Hér er Maja og stelpurnar lagðar af stað upp í Hrísar og ég rek lestina með myndavélina. Hér eru stelpurnar vel veðurbarnar á föstudaginn fyrir ofan Hrísar það var svo mikið rok. Ég hljóp lengst fyrir ofan Hrísar og fann þessa Móru frá Friðgeiri með tvö svartbotnótt lömb og hún virtist ætla að vera voða góð fara niður en hún vildi engan veginn fara inn eftir og tók straujið úteftir svo ég sá að það þýddi ekkert fyrir mig að basla við hana ein svo ég leyfði henni að fara. Hér eru Embla og Aníta á leiðinni niður það var svo ofboðslega mikið gras að maður átti í stökustu vandræðum að labba án þess að festast í grasi og þúfum og það þótti stelpunum rosalega gaman. Mamma pantaði fyrir mig tertu hjá Jón Þóri og við létum skreyta hana í tilefni réttana. Hún var alveg rosalega góð hann er alveg snillingur í að baka. Jóhanna var svo með kjúklingasúpu fyrir okkur þegar við komum niður ásamt fleiri kræsingum. Ég tók svo ekki myndir af kaffinu því ég þurfti alltaf að skjótast heim á milli ganga og gefa Ronju og kíkja aðeins á hana. Þetta gekk samt allt saman vel hjá okkur og við náðum að heimta allt á þessu svæði sem við sáum. Á laugardaginn héldum við Maja,Siggi og Kristinn áfram og fórum upp inn í Grensdölum inn fyrir Höfða það er sem sagt farið upp á fjall Grundarfjarðarmegin alveg á horninu. Það var geggjað mikið rok en sem betur fer sluppum við alveg við rigninguna. Við byjuðum að fara upp á fjall og labba svo á móti miklu roki upp og yfir í Mávahlíðargilið upp á fjalli og skoðum niður í það en hvergi var kindurnar að sjá en svo var ég og Maja neðar og þá sáu Kristinn og Siggi tvær tófur vera skottast í kringum okkur en við sáum þær ekki. Þegar við voru nánast búnað gefa kindurnar upp á bátinn og vorum að labba til baka sáum við loksins glitta í þær neðar og Siggi náði að fara fyrir þær og reka þær aftur til baka ofan í Grensdali og þær fóru svo þaðan upp í kletta þar sem hjartað er í Búlandshöfðanum Grundarfjarðarmegin. Það var svo heljarinnar mál fyrir okkur að komast niður út af roki við þurftum nánast að skríða niður þegar við komum fyrir hornið því hviðurnar voru svo miklar. Kristinn þurfti að leiða mig fyrir hornið svo ég myndi ekki fjúka svo mikið var nú rokið. Svo þegar við vorum komin niður í hlíð Grundarfjarðarmegin var skjól og miklu betra veður. Hér erum við komin í skjól hér er Siggi og Kristinn. Þeir biðu svo hér í skjóli meðan við Maja skriðum á rassinum niður brekkuna til að sjá hvert kindurnar fóru. Hér erum við Maja komnar niður á veg og planið er að reka kindurnar inn í girðingu hjá Bibbu í Grundarfirði en hún er með girðingu við Lárós svo það er styttra fyrir okkur að reka þær þangað og betra að hafa veðrið í bakið, ég held að þær hefðu aldrei rekist út eftir því veðrið var svo vont þar og núna var farið að rigna líka. Hér er Siggi að reka þær fyrir neðan veg og Emil keyrir á veginum til að passa að þær fari ekki upp fyrir. Það var ein ókunnug með þeim sem leiddi þær áfram sem betur fer ég er ekki viss um að þær hafi verið svona stilltar ef hún hefði ekki verið fremst. Það kom svo í ljós síðar að hún var frá Bibbu. Hér erum við á eftir þeim ég ,Maja og Kristinn og nú meiga þær fara fyrir ofan veg með fram girðingunni. Dugnaður í Maju,Kristin og Sigga að hjálpa mér í þessu veðri enda vorum við öll frekar lúin og veðurbarinn eftir þennan dag og ég er þeim rosalega þakklát og var með hálf samviskubit yfir að vera smala í þessu roki sérstaklega þegar við fundum ekki kindurnar en sem betur fer var þetta ekki til einskins og við náðum þeim öllum. Hér erum við alveg að komast að girðingunni sem þær eiga að fara inn í og Bibba kom svo og hjálpaði okkur að reka inn og við sækjum þetta svo þegar hún rekur inn næst. Þetta var alveg frábært að ná þessu en mig vantar þrjár kindur af fjalli sem ég held að hafi drepist því lömbin hafa skilað sér og svo vantar mig 12 lömb í heildina sem hafa týnst í sumar. Ég kláraði svo að þrífa á miðvikudaginn og Emil hjálpaði mér. Svo allt yrði nú klárt áður en við færum að reka inn. Jæja þá er ég loksins búnað gefa mér tíma í að koma þessu bloggi inn og næst mun ég setja inn stigunina hjá okkur en hún kom mjög vel út bara og það var stigað hjá okkur á mánudaginn 21 sept og Árni og Torfi áttu að koma tveir en Torfi veiktist svo Árni kom bara einn og stigaði fyrir okkur, Ólafsvík og Óttar á Kjalveg. Það stóð svo til að það væri Hrútasýning veturgamla hjá okkur í Búa og átti hún að vera hjá Bárði og Dóru inn á Hömrum á morgun föstudaginn 25 sept en vegna Covid og almannavarna hefur Rml haft samband við okkur og það verður aflýst sýningunni um óákveðin tíma meðan ástandið er svona endilega látið það berast. 24.09.2020 10:34Smalað Búlandshöfða,Mávahlíð og Fögruhlíð 17septByrja á því að smala inn fyrir Búlandshöfða og hér er ég komin með þær af stað niður í Búlandi sem er fyrir neðan veg og þar tekur við annað eins fjall og engi eins og fyrir ofan veginn. Ég byrja Grundarfjarðarmegin í Höfðanum alveg fremst upp í brekkunni þar sem er hægt að keyra út fyrir og þar fyrir neðan er Búlandið. Hér eru þær komnar yfir á næstu sléttu og svo fara þær áfram inn kindagötu. Áfram halda þær. Það liggur svo kindagata undir öllum Búlandshöfðanum fyrir neðan veg en það er ekki gott fyrir lofthrædda að fara þessa leið því það er þverhnýtt niður og svo þvert upp líka þegar maður fer kindaslóðina á eftir þeim en annars elska ég þessa leið og finnst alltaf jafn gaman að fara hana því umhverfið og náttúran er svo falleg og mikið af fallegum steinum sem maður finnur á leiðinni. Hér erum við komin undir útsýnispallinn sem er í miðum Búlandshöfða. Allt að koma hjá okkur. Hér er ég svo komin upp og fór upp fyrir útsýnispallinn í Höfðanum. Það er mikið gras og sleipt að ganga. En selfie með Mávahliðarrifið í baksýn. Ég og Maja systir eltum Fíu Sól mína og Móönu og Vaíönnu í hlíðinni og þær sneru á okkur og stukku upp á fjall í Kotengishöfðanum og ég var bara í núll formi og mikið veðurbarinn til að elta þær svo ég gafst upp og við ætlum að reyna ná þeim bara á morgun. Óskadís með hrútana sína mórauðan og mógolsóttan undan Kol. Kolur er mógolsóttur hrútur hjá okkur undan Kviku 15-026 og Zesari 18-002. Zesar á ættir í Dreka og Grábotna. Hér er ég að komast fyrir hornið og hér sést í Ólafsvíkur Enni lengst hinum megin og fyrir neðan er Mávahlíðarhellan. Hér er ég komin yfir Mávahlíðina og er staðsett fyrir ofan Tröð lengst upp í hlíð og hér sést Mávahlíð fyrir neðan mig og Vaðalinn og allt vatnasvæðið í kringum hann. Við smöluðum þetta svæði fimmtudaginn 17 sept því það spáði svo illa á laugardaginn. Með okkur voru Siggi,Maja,Kristinn og Jóhanna. Bói kom svo líka og aðstoðaði okkur. Emil að fara af stað neðar í hlíðinni með Donnu aðal smala hundinn okkar he he sem ætlaði varla að komast neitt fyrir grasi það er svo ofboðslega mikið gras allsstaðar. Hér sést svo yfir Traðarlandið og yfir í Kötluholt og Fögruhlíð . Hér er ég svo komin þar sem ég á að standa fyrir og ég er fyrir ofan Fögruhlíð og Siggi og Kristinn voru með okkur og þeir koma niður af Sneiðinni sem er hér innar og lengst hér innar og langt fyrir ofan sumarbústaðinn hjá Sigrúnu og Ragga frænda. Ég farinn að sjá Sigga og kindurnar svo ég get farið að fikra mig niður með þeim og við rekum þetta svo allt inn í Tungu. Hér erum við komin niður í Fögruhlíð. Hér erum við komin niður að Holtsá og hér sést í Sigga í Tungu og Kristinn Bæjarstjóra vera smala. Bústaðurinn sem er efst í hlíðinni er í Traðarlandinu og Maja systir mín á hann. Verið að reka upp með Holtsánni. Hér komast þær yfir brúna það er svo mikið vatn í ánni að þær fara ekki yfir hana en að öllu eðlilegu hefðu þær farið yfir hana neðar ef ekki hefði verið svona mikið vatn. Hér halda þær óðum áfram inn í Tungu. Hér er Kristinn og Siggi aðeins lengra að fikra sig upp á veginn. Hér eru þær komnar hinum megin við ána og yfir í Kötluholts landið. Virka falleg þessi lömb þau eru frá Sigga og eru undan Röst sem ég er búnað vera taka svo mikið af myndum af. Stelpurnar kátar komnar að smala í rokinu. Embla,Aníta vinkona þeirra og Freyja. Hér er allt að gerast og meira segja komnir smá sólargeislar. Komið upp inn í Kötluholti. Stelpurnar duglegar að reka á eftir þeim. Hér er Kristinn og stelpurnar að reka milli Kötluholts og Tungu. Hér renna þær svo inn bak við hlöðuna í Tungu. Hér koma svo allir smalarnir og halda bilinu á milli sín. Þetta gekk allt saman mjög vel. Þetta var á fimmtudaginn. Það voru svo einhverjar að nálgast hinum megin frá Hrísar megin og það var farið af stað að sækja þær og hér er Maja systir að standa fyrir. Þetta var á föstudaginn eftir að við vorum búnað smala Svartbakafellið ég setti það óvart í þetta blogg og vildi ekki fara stroka það allt út og færa það fyrst ég var búnað skrifa það. Hér koma þær. Og Emil á eftir þeim. Og Kristinn. Þær runnu svo létt inn á eftir hinum. Flottar smala stelpur Freyja Naómí,Aníta Sif og Embla Marína. Þær stóðu sig svo vel að smala. Gyða Sól með lömbin sín. Þetta var tekið aðeins áður þegar það var ausandi rigning. Ég er mjög spennt að sjá hvernig lömbin hennar koma út. Búið að reka inn og fara yfir hvað vantar. Hér er Benóný búnað finna Hörpu sína. Við fórum svo yfir hvað væri komið og klipptum rass ullina líka á fimmtudaginn. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 16.09.2020 17:32Rúntur 14-15 septSprengja 17-003 með þrílembingana sína undan Mosa hans Gumma Óla Ólafsvík. Brúða 18-005 er undan Isak 15-001 og Villimey 16-014. Hún var tvílembd en missti annað lambið á sauðburði. Hér er gimbrin hennar hún er undan Bolta. Hrútarnir hennar Hexíu 15-009 og Ask 16-001. Lambhrútur frá Sigga veit ekki undan hvaða kind en hann er svakalega andlitsfríður. Hér eru tvær frá Sigga og ein frá mér fyrir ofan það er Skvísa sú botnótta. Mórauða er frá Sigga og er með þrjár gimbrar sem ganga allar undir mórauð og tvær mógolsóttar og eru undan Kol 19-003 frá okkur. Gimbur frá Sigga. Frá Gumma Óla Ólafsvík. Hin á móti frá Gumma. Þetta eru bolta gimbrar frá Gumma. Hrútur undan Zeldu og Mosa hans Gumma. Vaíanna með hrútinn sinn og svo er hún með hrút undan Hriflu. Undan Fíu Sól og Kol þessi mórauði og sá hvíti er í fóstri hjá henni og er undan Botnleðju og Svan Máv syni frá okkur. Hér er Fía Sól 16-011 með hrútana. Hér er Álftin með ungana sína fjóra við Holts tjörnina. Það var haldið upp á 11 ára afmælið hans Benónýs í sveitinni Varmalæk hjá ömmu Freyju og afa Bóa og það gekk rosalega vel og allir voru úti að skoða hænurnar og svo í kastalanum og fóru í leiki úti mjög gaman. 15.09.2020 14:34Rúntur 12 septKvika 15-026 með lömbin sín undan Vask. Þau voru frekar blaut þegar ég tók myndina. Hrúturinn virkar gleiður að framan. Svana 11-006 með gimbrar undan Ask. Hrútur og gimbur undan Fíónu 13-003 og Bolta. Hosa 12-006 með lömbn sín undan Mosa hans Gumma Óla. Magga Lóa með gimbrina sína undan Kol og fóstrar hrút fyrir Bombu. Það fer vel um þær í hlíðinni. Móna Lísa er líka á myndinni með mórauðan hrút undan Kol og hann virðist vera gefa fallega mórautt ekki eins ljóst eins og faðir hans gerði í fyrra. Hrygna 15-021 með 2 hrúta undan Vask. Hér er annar þeirra. Hér er hinn. Þoka 16-004 með þrílembingana sína undan Vask. Hér er hún og gengur með þau öll og mér sýnist þau vera bara mjög jöfn hjá henni. Öskubuska gemlingur eða veturgömul núna með hrútinn sinn undan Kol. Björt líka veturgömul með gimbur undan Kaldnasa. Krummi var að gæða sér á kola inn í Mávahlíð það er allt fullt af hrafnsungum núna. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér í albúmi. 12.09.2020 09:50Rúntur 8 septUrður 16-009 er undan Ísak 15-001 og Snældu 10-009 Hún var þrílembd í vor en var svo óheppin að eitt var úldið og hefur smitað einhverja eitrun í eitt lambið því það lifði í einn dag svo núna er hún bara með eitt undir sér. Hér er gimbrin hennar orðin svo stór og falleg hún er undan Ask 16-001 Villimey 16-014 er undan Vetur 12-914 sæðingarhrút og Ýr 14-016 sem er Garra dóttir. Virka þéttar og fallegar gimbrar. Nútella 16-015 er undan Máv 15-990 og Snót 14-025 Hún er tvílembd með tvær gimbrar undan Ask. Hér er önnur gimbrin. Hér er hin. Það er mjög algengt að Askur gefi eina alhvíta og hina venjulega hvíta þegar hann fer á hvítar kindur. Brussa 16-008 er undan Máv 15-990 og Þotu 14-020 Hún er tvílembd með hrút og gimbur undan Mosa hans Guðmundar í Ólafsvík. Fallegur hrúturinn að sjá Brussa er ein af uppáhalds kindunum mínum. Nál 15-011 er undan Tvinna 14-001 og Tungu 14-019 Hún er með hrút og gimbur undan Bolta hans Kristins Bæjarstjóra. Hér er gimbrin. Hér er hrúturinn á móti. Þessi er frá Sigga og heitir Rönd og hún er með lömb undan Mosa hans Guðmundar Ólafsvík. Virka öll stór og falleg. Núna fer þetta óðum að styttast við smölum næstu helgi svo spennan magnast. Það eru fleiri myndir hér inn í albúmi. Flettingar í dag: 121 Gestir í dag: 29 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188310 Samtals gestir: 69632 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:10:19 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is