Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
31.05.2019 22:20Skvísa ber fjórlembingunum og fleira í maí.![]() Skvísa bar fjórlembingunum sínum 19 maí og bar öllu alveg sjálf og það voru 4 hrútar og eru undan Korra Garra syni frá Sigga. Skvísa var þrílembd í fyrra og fjórlembd þar áður. ![]() Hér eru þrjú af þeim og eru þetta vænustu lömb hjá henni og öll svo jöfn. ![]() Skrýtla er hálf systir Skvísu og hún er hér þrílembd með tvær gimbrar og einn hrút undan Víking frá Bárði. Hún bar líka 19 maí. Víkingur á ættir að rekja í Kára sæðingarstöðvarhrút. ![]() Hér er verið að sleppa út Ljósbrá sem er með hrút undan Hlúnk Máv syni hans Sigga og svo er búið að venja undir hana einn hrút fjórlembing frá Skvísu. ![]() Bomba með lömbin sín undan Gosa Bjart syni frá Gumma Óla. ![]() Ísól með lömbin sín undan Svarta Sambó hans Óttars. ![]() Blíða gemlingur með gimbrina sína sem er tvílembingur undan Zesari en gengur ein undir hin var vanin undir Snót. ![]() Brúða gemlingur með lömbin sín undan Borkó sæðishrút. Þau ganga tvö undir. ![]() Klara gemlingur gengur með sín tvö undan Svarta Pétri hans Óttars og Von gemlingur gengur líka með sín tvö undan Kaldnasa. ![]() Hér fer Skvísa út með fjórlembingana en þeir ganga þrír undir. ![]() Skvísa. ![]() Skrýtla með þrílembingana sína undan Víking. ![]() Flottir litir hjá henni. ![]() Ljósbrá með fjórlembingin hennar Skvísu og sinn hrút undan Hlúnk. Það eru svo fleiri myndir af þessum hluta hér inn í albúmi. 31.05.2019 21:22Sauðburður í hámarki 15-23 maí![]() Sauðburður hefur gengið vel og hér er Embla að klappa sæðingarhrút undan Kraft sem er alveg einstaklega spakur og eru eiginlega bara öll lömbin gæf ef maður gefur sig að þeim. ![]() Gott að kúra saman. ![]() Margar útgáfur af litum hér er móflekkóttur og móhosóttur hrútur og móhöttótt gimbur. ![]() Freyja að klappa hrútnum hennar Vaíönnu. ![]() Skrautlegir hrútar tvílembingar undan gemlingum. ![]() Þrílembingar undan Eik og Ask. ![]() Hér eru flottir litir þessi með hvíta vaffið fremri er tvílembingur undan gemling sem var vanin undir. Hann er undan Botna hans Óttars. ![]() Krökkunum finnst voða gaman að koma í fjárhúsin núna. ![]() Vaíanna komin út með hrútinn sinn og annan sem var vaninn undir hana og er tvílembingur undan Óskadís gemling og Zesari. ![]() Eik með þrílembingana sína en þeir ganga tveir undir. ![]() Mamma átti afmæli þann 18 maí og varð 69 ára. Hér er hún með ömmu stelpurnar sínar. ![]() Héla hans Sigga með hrút frá Randalín gemling sem var vaninn undir hana og svo gimbrina sína undan Ask. ![]() Anna með flottar gimbrar undan Korra Garra syni frá Sigga. ![]() Emil og Siggi að klaufsnyrta lambhrútana áður en þeim var hleypt út. ![]() Það varð nú ekki mikill galsi í þeim og ég fékk engar myndir af slagsmálum. ![]() Hrifla með hrútinn sinn undan Ask og hrút undan Tölu sem var vaninn undir hana því hún fæddi nýdána gimbur sem hafði drepist fyrir nokkrum dögum. ![]() Snælda með hrút undan Einbúa sem er Ísak sonur frá mér og Bárði. ![]() Snúlla hennar Jóhönnu með lömbin sín undan Stjóra. ![]() Harpa gemlingur með hrútinn sinn undan Zesari. ![]() Gemsarnir glaðir að komast út hér er Randalín og Poppý. ![]() Fallegur hrúturinn hennar Óskadísar gemlings og Zesars. Hann er tvílembingur en gengur einn undir. ![]() Undan Poppý og Zesari. ![]() Hrútur undan Randalín gemling og Botna hans Óttars tvílembingur en gengur einn undir. ![]() Svala gemlingur með gimbur undan Stjóra. ![]() Hrúturinn hennar Poppý gemlings og Zesars. Zesar er undan Tinna hans Gumma sem er undan Dreka sæðis hrút. Ég er mjög spennt að sjá hvernig lömbin hans Zesars koma út. ![]() Randalín gemlingur með hrútinn sinn undan Botna Óttars. ![]() Dröfn með gimbrina sína unda Gosa frá Gumma Óla sem er undan Bjart sæðishrút. Þessi gimbur virkar rosalega sver og falleg. ![]() Hlussa 17-005 með lömbin sín undan Hlúnk Máv syni frá Sigga. ![]() Sprengja 17-003 með lömbin sín undan Botna Óttars. ![]() Magga Lóa með lömbin sín svarthosótta gimbur og móflekkóttan hrút. Þau eru undan Zesari. ![]() Botnleðja með hrút og gimbur undan Ask. ![]() Svakalega þykkur hrútur undan Rósu og Kaldnasa. Hann er kollóttur. ![]() Gurra með lömbin sín undan Grettir Máv syni frá Sigga. ![]() Kolfinna með gimbranar sínar undan Máv sæðishrút. ![]() Hexía með gimbrar undan Víking frá Bárði og Dóru. ![]() Dúfa hennar Jóhönnu með hrút og gimbur undan Kaldnasa. ![]() Hrafna með hrútana sína undan Kaldnasa. ![]() Tala með hrútinn sinn undan Kraft sæðishrút. Þessi fyrri hluti af sauðburði gekk afburðarvel og svo flott að geta sett allt út fljótlega því nóg er grasið allsstaðar. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessum hluta. 26.05.2019 22:23Fjölskyldan stækkar og stúlka er væntanleg í september![]() Það er komið að því að afhjúpa leyndarmálið okkar að ég framfylgi sauðburðinum fram í september en þá eigum við von á okkar 4 barni og er ég komin rétt yfir 5 mánuði. Já sem sauðfjárbóndi er þetta afleidd tímasettning ég er búnað þurfa fara mjög varlega á sauðburðinum og vera með hanska og grímu ef ég þyrfti að veita burðarhjálp. ![]() Best að hafa allt öryggi í lagi því maður tryggir það ekki eftir á. Ég veit ég er alveg hrikaleg með þessa grímu og ég var alveg í hláturskasti þegar Emil kom með hana. ![]() Við ákváðum fyrst þetta er seinasta skiptið að fá að kíkja í pakkann og vita kynið. Við fengum aldrei að vita kynið með hin börnin. Hér eru börnin okkar að deyja úr spenningi að fá að sprengja blöðruna og sjá hvort það er stelpa eða strákur. Það kom svo í ljós að við eigum von á þriðju stelpunni og Benóný okkar var ekki sáttur við fréttirnar honum langði svo í bróðir og hélt að það væri alveg hundrað prósent að það væri strákur svo það tók smá tíma fyrir hann að melta að það væri stelpa. Stelpurnar hins vegar voru mjög glaðar með það eins og við öll. ![]() Nóg um að vera í sveitinni hjá Freyju og Bóa þar eru komnir hænu ungar. ![]() Hér er Freyja með einn. ![]() Benóný með tvo. ![]() Og enn bætist við held þeir séu orðnir 18. Hér er Embla. ![]() Hér er súpan af ungum. ![]() Hér er krefjandi verkefni í byggingu í sveitinni hjá Freyju og Bóa Costco kastalli. ![]() Emil ,Bói og Jóhann að setja saman. ![]() Þetta er allt að koma hjá þeim. ![]() Krakkarnir alsælir búnað koma rennibrautinni fyrir í brekkunni á meðan byggingin stendur yfir. ![]() Eyrún frænka Emils dóttir Jóhanns bróðir hans og Þórhöllu útskrifaðist á laugardaginn. Jæja læt þetta duga að sinni það eru svo fleiri myndir inn í albúmi. 15.05.2019 23:26Hrútunum sleppt á tún,Leikskólinn kemur í heimsókn og fleira![]() Það var stuð á hrútunum þegar þeim var hleypt út á tún. ![]() Alveg í loftköstum. ![]() Hér eru Embla og Freyja að passa lamb meðan annað er vanið undir kindina sem átti þetta lamb. Lambið sem var vanið undir var baðað upp úr volgu vatni og svo dregið þetta lamb úr kindinni og tekið frá og makað því saman við hitt og kindinni svo rétt lambið sem venja á undir hana og þetta geymt á meðan hún karar hitt. ![]() Krakkarnir með Hörpu gemling sem er svo góð og lambið hennar jafnt gæft líka. ![]() Á hrútsbaki á Kaldnasa sem er alveg einstaklega gæfur hrútur undan Magna sæðishrút. ![]() Hér er hún Rósa hennar Emblu að fara bera. ![]() stórt og erfitt að draga það úr. ![]() Það gekk svo mjög vel og hér er Embla svo stolt með lambið sitt. ![]() Það var móbíldóttur hrútur undan Kaldnasa og hér er Embla búnað spreyja á hann sótthreinsandi á naflastrenginn. ![]() Þessi er tvílembingur undan gemling og Zesari og er hrútur. ![]() Hinn hrúturinn á móti honum en hann var vaninn undir aðra kind. ![]() Siggi að gefa hrútunum ormalyf áður en þeir fara út á tún. ![]() Benóný að knúsa Kaldnasa sinn. ![]() Gimbrar undan Korra og Önnu. ![]() Freyja og Bói eru að smíða sólhús og það skot gengur hjá þeim. ![]() Fengum óvænta heimsókn á sunnudaginn. Alex,Aníta,Birgitta og Kamilla komu að kíkja á lömbin. ![]() Þessi er svaka boli og er einlembingur undan Bifröst og Korra. ![]() Freydís og Hanna komu með stelpunum um daginn að kíkja á lömbin. ![]() Leikskólinn Krilakot kom svo í heimsókn til okkar núna í dag í grenjandi rigningu og roki en það reddaðist að það var gott skjól við hlöðuna þar sem þau komu inn. Það var mjög gaman að fá þau ég var nefnilega að vinna á leikskólanum fyrir sauðburð og var alltaf búin að vinna klukkan 12 og þá vissu þau að ég væri að fara gefa kindunum svo það var gaman fyrir þau að sjá loksins hvar kindurnar mínar væru og hvernig þetta væri. ![]() Hér erum við Siggi svo með þessum flotta hóp af frábærum krökkum af elstu og mið deildinni á leikskólanum. ![]() Flottar vinkonur Freydís,Embla og Hanna að fara syngja á vortónleikum í kirkjunni hjá skólakór Snæfellsbæjar. ![]() Flottur hópur og rosalega gaman að sjá og hlusta á þau undir stjórn Veronicu. Jæja sauðburður gengur vel og 37 bornar. Hef misst eitt lamb á sauðburði sem var þrílembingur og kom á afturfótum og hefur fengið einhverja eitrun því það komst aldrein almennilega til að vera hresst en lifði þó í 3 daga. 2 hafa fæðst dauð fyrir sirka 2 dögum eitt var tvílembingur og hitt á móti lifði og hitt var gemlingslamb. Einn kind tók þó upp á því að vilja ekki seinna lambið sem hún bar og hún gerði þetta líka í fyrra alveg einkennilegt en við vöndum það bara undan henni og hún fær að vera með þetta sem hún vildi því ég nennti ekki að strögla við hana því ég veit hversu þrjósk hún er því hún var líka svona í fyrra og tók því aldrei almennilega en fór þó með þau bæði á fjall en um haustið var lambið sem hún vildi ekki mun slakara en hitt og það hefur auðvitað verið þvi það hefur ekki fengið eins mikla mjólk og hitt því hún vildi það ekki. Jæja látum þetta duga í bili og það eru fullt af myndum af þessu öllu saman hér inn í 09.05.2019 22:44Sauðburður heldur áfram og gengur vel![]() Freyja með þrílembinginn sem var vaninn undir Sól. Sauðburður gengur mjög vel og það eru 19 bornar. ![]() Snúlla hennar Jóhönnu með gimbrar undan Svan. ![]() Harpa gemlingur með móbottnóttan hrút undan Zesari. ![]() Embla með lambið hennar Snúllu. ![]() Anna með lömbin sín undan Korra. Korri er Garra sonur frá Sigga. ![]() Brussa með lömbin sín undan Ask. ![]() Fönn hans Sigga með lömbin sín undan Hlúnk. ![]() Hlussa með tvo hrúta undan Hlúnk. Hlúnkur er veturgamall Máv sonur frá Sigga. ![]() Poppy gemlingur með móhosóttan hrút undan Zesari. ![]() Svala gemlingur með gimbur undan Stjóra. Stjóri er undan Gretti Máv syni frá Sigga. ![]() Zelda með þrílembinga undan Stjóra tvo hrúta og eina gimbur. ![]() Óskadis gemlingur er með tvo móflekkótta hrúta undan Zesari. ![]() Randalín er með tvo hrúta undan Botna hans Óttars. Já þessi mislitu flottu eru allt hrútar eins og þið sjáið. ![]() Fíóna með tvo hrúta undan Ask. ![]() Undan Botnleðju og Ask hrútur og gimbur. ![]() Fíónu hrútur undan Ask. ![]() Gimbur og hrútur undan Vofu og Svan Máv syni. ![]() Tvilembingur undan Óskadís og Zesari. ![]() Hrútur og gimbur undan Gurru og Gretti. ![]() Hrútur undan Snældu og Einbúa. Einbúi er undan Ísak. ![]() Embla með gimbrina hennar Vofu. Jæja þá er allavega komið smá sýnishorn af lömbunum sem eru komin og nú er best að fara leggja sig fyrir næstu vakt. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 05.05.2019 22:26Sauðburður hafinn 2019![]() Eik byrjaði sauðburðinn í dag og var búnað bera alveg sjálf 3 lömbum í morgun þegar Siggi kom upp í fjárhús. ![]() Það var svartbotnótt gimbur og svartbotnóttur hrútur og golsóttur hrútur undan Ask. Askur er Kaldasonur frá okkur. ![]() Gyða Sól veturgömul var einnig borin öðru lambinu þegar Siggi kom að Eik og seinna lambið kom á afturfótunum og Siggi aðstoðaði hana. Þetta eru hrútur og gimbur undan Svan. Svanur er Máv sonur frá okkur. ![]() Sól átti tal 8 maí en bar í dag þykkri gimbur sem er undan Fáfni sæðishrút og var hún bara með eitt og við náðum að skella golsótta hrútnum frá Eik undir hana svo það var frábært að hún skildi bera strax svo hægt væri að létta strax á Eik. ![]() Við klipptum svo klaufar á þessum sem voru geldar en það er ein rolla frá mér og ein frá Jóhönnu og svo þessir tveir gemlingar. Það kom svo skemmtilega á óvart að það áttu að vera 3 gemlingar í viðbót geldir sem voru sónaðir með 0 en þeir eru allir með lambi og komið undir þá svo Jökull Frosti sem ég hélt að ég fengi ekkert lamb undan hefur náð að lemba þessa þrjá gemlinga í restina. Jökull Frosti er Bergssonur og undan Dröfn sem er mamma Mávs á sæðingarstöðinni og ég var búnað binda svo miklar vonir við hann en eins og ég var búnað segja áður í bloggi gat ég ekki notað hann því hann meiddist á fæti og fékk sýkingu og hita en eftir að hann var meðhöndlaður og lagaðist setti ég hann í gemlingana bara til að tékka hvort hann myndi ná að virka og gaf upp alla von um að hann hafi verið með virkt sæði fyrst það var sónað tómt í þeim en þeir hafa þá greinilega fengið en bara það seint að það náðist ekki að greina það í sónarinum. Svo þetta var æðislega skemmtilegur bónus bæði að fá lömb og þá sérstaklega undan honum en þau eru auðvitað ekki komin en ég er jákvæð og bíð spennt hvað kemur. Jæja þetta fer svo allt að hrökkva í gang hjá okkur með látum það eru um 15 kindur sem geta farið að bera í nótt og morgun svo ég ákvað að skella allavega hér inn byrjuninni áður en ég hef engan tíma til setja inn. 03.05.2019 22:01Fyrsta veiðin og vitjað um í Klettakoti.![]() Freyja með fyrstu bleikju sumarsins einnig fengum við líka sjóbirting en slepptum honum því Benóný fannst hann svo flottur að hann mætti ekki deyja. ![]() Benóný að veiða. ![]() Embla að veiða. ![]() Veiddum einn sjóbirting næsta dag líka. ![]() Embla tók mynd af honum. ![]() Lagt af stað með afa Bóa að vitja um netið. ![]() Flottur hópur Bjarki Steinn,Freyja,Embla og Benóný. ![]() Allir spenntir hvað kemur. ![]() Það var yndislegt veður. ![]() Jæja spenningurinn í hámarki . ![]() Aflinn var ekki alveg eins og vonast var he he 20 stykki af ósaflúru og ein bleikja. ![]() En krakkarnir voru í skýjunum með þetta. ![]() Benóný og Embla orðin svo spennt að bíða eftir sauðburðinum en fyrstu eiga tal 6 maí. ![]() Fórum í Húsafell um daginn og allir hittust í pottapartý. ![]() Fleiri myndir frá Tenerife sem við keyptum í görðum. ![]() Embla. ![]() Þetta var rosalega gaman fyrir Emblu að fá að faðma og leika við höfrung. ![]() Benóný að leika. ![]() Embla að leika við tvo. ![]() Freyja að leika við þá með bolta. ![]() Embla. ![]() Freyja Naómí. ![]() Við fjölskyldan í Síam Park. Jæja nú er bara spennan að bíða eftir að sauðburður hefjist. Það eru fleiri myndir af páskunum og veiðinni hér inn í albúmi. 03.05.2019 21:47Páskar 2019![]() Nývöknuð á páskadags morgun og búnað finna eggin sín. ![]() Páskakaffi hjá mömmu. ![]() Mamma bauð okkur í kaffi á páskadag. ![]() Maggi bróðir og Erla kíktu vestur í heimsókn yfir páskana. ![]() Embla með ömmu Huldu og ömmu Freyju. ![]() Gullmolarnir okkar á páskadag. Við sprautuðum seinni sprautuna í kindurnar annan í páskum. 02.05.2019 15:42Tenerife ferð apríl 2019Við fjölskyldan skelltum okkur í byrjun apríl til Tenerife og það var æðisleg ferð og mikið gert. Benóný hafði langþráðan draum að fara í sundlaugargarðinn Siam Park og var sá draumur að veruleika og það var yndislegt að fá að upplifa hann með honum. Við fórum einnig í Aqualand sem er annar vatnsleikjagarður og þar fengu krakkarnir svakalega upplifun að vera með höfrungum og leika við þá. Við gerðum margt skemmtilegt með góðum vinahóp af kunningjum okkar sem voru líka á Tenerife. Það var farið í þrenn skonar dýragarða en engin var þó eins og stóð þar efst upp úr Loro Parque sem er svakalega stór og flottur dýragarður. Þar var einstök háhyrninga sýning og var það geggjað bara að fá að sjá þá svona í návígi. Við vorum á fremsta bekk og var boðið poka en tókum ekki veskið með okkur svo við bara nei nei þetta hlýtur að vera í lagi en svo hófst sýningin og háhyrningurinn kom ósköp sakleysislega til okkar og sneri sér svo við og gusaði yfir okkur með sporðinum og við vorum gersamlega á floti það lak úr okkur he he og Freyja mín var svo hrædd og blaut að hún fór að hágrenja greyjið. Við vorum á Amerísku ströndinni á hótelinu Parque Santiago 4 í sömu íbúð og við vorum seinast fyrir ofan matvörubúðina og hún er alveg æðisleg jafn stór að utan sem innan og hægt að vera í sólbaði á svölunum þar voru bekkir fyrir okkur öll. Það var frekar kalt fyrstu dagana hjá okkur en svo varð hlýtt og gott og við vorum ekkert tilbúin að koma heim í rigninguna og rokið. En jæja ætla núna bara láta myndirnar tala sínu máli. ![]() Hérna er Freyja með naggrís í Monkey Park ![]() Og hér er Benóný. ![]() Og Embla með naggrís líka þetta var voða spennandi fyrir þau. ![]() Freyja aftur með naggrís. ![]() Freyja í gokart. ![]() Benóný í gokart. ![]() Í sundlaugargarðinum. ![]() Benóný alsæll í rennibrautunum á hótelinu sem við vorum á. ![]() Meistarinn sjálfur mættur í langþráða drauminn Siam Park. ![]() Það var mikið stuð á strákunum í rennibrautunum. ![]() Benóný og Aron við Sincha rennibrautina en hún stóð upp úr hjá Benóný og var skemmtilegust. ![]() Hér kemur Benóný niður með Emma og Bergrúni og fannst þetta alveg æði. ![]() Svalirnar hjá okkur náðu allan hringinn um íbúðina. ![]() Freyja og Bergrún. ![]() Benóný fyrir utan leiksvæðið í Síam Park og var pínu kalt þegar sólin hvarf. ![]() Í Tívoli sem við fórum með Olafvíu og Arnóri og krökkunum. ![]() Við fórum öll saman í Jungle Park sem sagt við og Eva,Emmi og krakkarnir og Ólafvía, Arnór og krakkarnir. Það var rosa stuð. ![]() Benóný og Magnús í Aqualandi. ![]() Það voru rosalega flottar rennibrautirnar. ![]() Magnús fór í þessa sem var eins og klósettskál og sturtað niður og Benóný langði svo geggjað mikið í hana en þorði því ekki því hann hélt að hann gæti ekki synt frá henni. ![]() Benóný fór í þessar báðar. ![]() Hann fór í þessar líka. ![]() Í Loro Parque á sæljóna sýningu. ![]() Benóný,Freyja,Eyrún,Embla og Bergrún. ![]() Á háhyrninga sýningunni. ![]() Svaka fjör. ![]() Stelpurnar fengu svo flotta málingu. ![]() Emil og Arnór skelltu sér á túnfisk veiðar en því miður fengu þeir engan túnfisk en sáu þá. ![]() Svo flottur hópur Aron,Magnús,Embla,Benóný og Freyja. ![]() Benóný var mjög erfiður að borða úti og hér var tilraun til að láta hann borða pizzu botn og hann borðaði hann. ![]() Í mínigólf. ![]() Benóný og Freyja í minigolf. ![]() Freyja og Embla ![]() Við fjölskyldan skelltum okkur í fiska spa rosa gaman. ![]() Flottu gullin okkar. ![]() Freyja Naómí. ![]() Fórum út að borða saman með Evu og Emma á Hard Rock. ![]() Á leiðinni í dýragarðinn. ![]() Á leiðinni í hótel garðinn. ![]() Mörgæsa landið í Loro. ![]() Freyja Naómí. ![]() Embla Marína. ![]() Benóný Ísak. ![]() Gaman í rennibrautunum. ![]() Benóný. ![]() Þessi var tekin í flugvélinni á leiðinni út allir rosa spenntir. Jæja þá er ég búnað skella þessu helsta inn og svo er fullt af myndum inn í albúmi af ferðinni. 26.03.2019 22:00Mávur valinn lambafaðir ársins 2018 hjá SæðingarstöðvunumOkkur hlotnaðist sá mikli heiður á Fagráðsfundi í sauðfjárrækt sem haldinn var í Bændahöllinni þann 1 mars að fá veitt verðlaun fyrir Máv sem besta lambafaðir ársins 2018. Mávur er hútur sem við seldum sæðingarstöðvunum. ![]() Þessi mynd kom af okkur í Bændablaðinu með verðlaunin sem eru ekkert smá falleg. ![]() Hér er mynd sem ég á af Máv þegar hann var veturgamall. Við erum ólýsanlega stolt af að hafa fengið þessa glæsilegu viðurkenningu. Hér inn á Rml má lesa greinina um Máv og Dreka sem voru verðlaunaðir á Fagráðsfundinum. Mávur sem besti lambafaðirinn og Dreki sem besti kynbótahrúturinn. ![]() Þessi glæsilegi gripur er kominn upp í hillu inn í stofu og tekur sig vel út. ![]() Þessa glæsilegu viðurkenningu fengum við líka. ![]() Hér er ein mynd af fundinum. ![]() Mynd af Dreka á fundinum. 26.03.2019 21:35Ýmislegt í marsJæja hef ekki verið sú duglegasta að blogga um tíma svo það er kominn tími til að ég fari að henda einhverju hér inn. Við sprautuðum fyrri sprautuna í rollurnar og gemlingana 16 mars. Arnar ætlaði að koma og rýja fyrir okkur þá en varð fyrir því óláni að togna á fæti og gat ekki tekið að sér rúninginn fyrir okkur en til allra lukku þá náði Siggi á Gumma sem klippti fyrir okkur í fyrra og hann gat reddað okkur núna á föstudaginn 22 mars en við vorum því miður ekki heima því við vorum stödd við jarðarför hjá ömmu hans Emils. Siggi tók því á móti honum og Bói og Jóhanna hlupu í skarðið fyrir okkur og allt gekk þetta vel. ![]() Set hérna inn mynd síðan í fyrra úr því að ég var ekki viðstödd núna til að mynda. ![]() Mamma á bollu daginn hún stendur alltaf fyrir sínu og býður okkur í bollur. ![]() Við fórum suður í byrjun mars og hér eru frændsystkinin í gistipartý í íbúð sem Þórhalla var með í bænum og við fengum að gista hjá henni eina nótt og eins og sjá má var rosalega mikið fjör hjá þeim að fá að vera öll saman. ![]() Í Húsdýragarðinum Bjarki Steinn, Benóný Ísak og Embla Marína. ![]() Embla orðin vel tannlaus he he búnað missa þrjár á stuttum tíma. ![]() Hér er hún Árný Anna amma hans Emils við kvöddum hana á föstudaginn í jarðarför í Hveragerði. Við þekktum hana sem Öddu ömmu og hún kom reglulega í heimsókn til okkar síðast liðin ár þegar hún bjó í Stykkishólmi. Hún var ótrúlega hress og keyrði eins og herforingi á milli Stykkishólms og Ólafsvíkur. Henni fannst mjög gaman að spjalla við mig um kindurnar og hefði viljað komast í heimsókn í fjárhúsin en því miður komst hún aldrei til þess. Hún hafði gaman af að spjalla við krakkana og hlustaði af athygli á það sem þau höfðu að segja við hana. Við munum sakna hennar og hvíli hún í friði. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 17.02.2019 17:41Fósturtalning 9 febrúarLaugardaginn 9 febrúar kom Guðbrandur Þorkelsson að fósturtelja hjá okkur ásamt að hann taldi inn í Ólafsvík og Hellissandi og held ég að það hafi komið víðast hvar vel út. Frétti að Gummi Ólafs Ólafsvík hafi fengið fjórlembu og hjá Óttari á Kjalvegi hafi verið 7 þrílembdar. En að okkar talningu þá kom hún bara ágætlega út þó svo ég hafi viljað sjá sæðisærnar í meiri frjósemi en þetta getur verið margt annað að spila inn í eins og heyið og annað. Ég hef eitthvað ruglast í talningunni á kindunum sem héldu úr sæðinu en þær voru 10 en ekki 8 svo maður er alltaf að græða he he. En af þessum 10 sæðiskindum voru 5 sónaðar einlembdar. Af 93 kindum alls voru talin 159 fóstur. Eldri kindur alls 61 Eldri kindur voru ein ónýt hjá mér og ein hjá Jóhönnu. 10 hjá okkur með 1 og ein með 1 hjá Jóhönnu. 39 hjá okkur með 2 og 4 hjá Jóhönnu. 4 hjá okkur með 3 1 hjá okkur með 4 Meðaltal eldri ær er 1,85 Tveggja vetra ær 15 í heildina 2 með 1 13 með 2 Meðaltal tveggja vetra ær 1,87 Gemlingar 17 í heildina 5 geldir 6 með 1 6 með 2 Meðaltal gemlingar 1,06 Skvísa sem er fjórlembd í ár er fædd árið 2013 og kom með eitt sem gemlingur og svo tvisvar sinnum þrílembd svo fjórlembd og svo aftur þrilembd og núna aftur fjórlembd. Skvísa er undan Lunda sem var undan Grábotna og Svört hans Sigga. Móðir Skvísu var Rán sem var undan Rambó frá mér og Dóru. ![]() Hér er hún árið 2015 með þrílembingana sína. ![]() Búið að gera klárt fyrir fósturtalninguna. ![]() Og svo hefst glaðningurinn. ![]() Hér sést Guðbrandur að störfum. ![]() Hér er svo Skvísa eins og hún er í dag. ![]() Freyja með okkur í fjárhúsunum. ![]() Að skoða gemlingana hjá Sigga. ![]() Hér er Svarti Pétur hans Óttars og þeir eru allir komnir með mikil hornahlaup lambhrútarnir og taka vel við sér. ![]() Botni hans Óttars á Kjalvegi. ![]() Stjóri hans Kristins Bæjarstjóra. Kristinn kom i heimsókn til mín núna á laugardaginn og leist vel á hrútinn sinn sem er líka með mikil hornahlaup. ![]() Zezar hefur lika bætt sig vel hann var frekar tuskulegur á fengitímanum en lítur vel út núna. ![]() Jökull Frosti dafnar líka vel. Hann hefur ekki virkað á þennan eina gemling sem ég setti hann á því hann gekk upp svo sæðið hefur ekki verið virkt eftir pensilín kúrinn hans svo ég fæ engin lömb undan honum í ár en kemur vonandi bara sterkur inn á næsta ári. ![]() Það var mikið fjör hjá krökkunum í snjónum í sveitinni hjá Freyju ömmu og afa Bóa þar sem var búið að byggja svaka snjóhús. ![]() Það voru vel stórir skaflarnir til þess að byggja snjójhús. ![]() Hér eru þau inn í húsinu og með friðarkerti voða kósý. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 17.02.2019 17:22Freyja á Reiðnámskeiði í febrúarHestamannafélagið Hringur í samvinnu við Fanney Gunnarsdóttur hélt reiðnámskeið tvær helgar í röð og ætluðu báðar stelpurnar okkar að fara en Embla var ekki alveg tilbúin og hætti við en Freyja Naómí var alveg tilbúin og stóð sig eins og hetja. ![]() Búið að gera Ljóra hennar Jóhönnu tilbúinn fyrir námskeiðið. ![]() Emil teymdi undir henni fyrst. ![]() En hún var fljót að biðja um að sleppa sér og vildi gera alveg sjálf svo dugleg. ![]() Fyrst var Freyja með eldri stelpunum því Embla hætti við en fór svo næstu helgina með sínum flokki. ![]() Hér er hún komin með sínum flokki. ![]() Hér er Freyja komin fremst en þau skiptust á að taka fram úr hvort öðru og gera æfingar. ![]() Svo gaman hjá henni. Þetta var flott námskeið og hún er orðin svo örugg og vill bara fara ein og orðin svo sjálfstæð að öllu leiti á hestbaki og við auðvitað mega stolt af henni. Það eru svo fleiri myndir af námskeiðinu hér inn í albúmi. 30.01.2019 17:50Janúar 2019Kæru vinir Gleðilegt nýtt ár þó seint sé og takk kærlega fyrir það gamla og innlitið á síðuna. Af sæðingum að segja þá gengu þær ekki vel í ár. Við breyttum til og leituðum á morgnana í staðinn fyrir kvöldin svo ég vil kenna því um en annars er engu um að kenna he he þetta getur bara verið svona þetta árið. 25 kindur frá okkur sæddi ég og af þeim héldu 8 og hjá Sigga sæddi ég held ég 8 og aðeins 3 héldu svo þetta var mjög lélegt ár hjá okkur í sæðingum. Við notuðum Fáfnir, Kraft, Óðinn, Guðna, Dreka, Bergsson, Máv, Anga og Borkó. Við fáum lömb úr Máv, Fáfni,Borkó,Kraft,Óðinn og Guðna. Ég fæ ekkí úr Bergsson en Siggi fær það var eitt lamb sem ég sæddi hjá honum sem hélt með honum. Þetta verður langur sauðburður því það gekk seint upp úr sæðingunum því ég sæddi frekar seint síðan gekk ein kind upp leiðinlega seint eða 16 janúar svo það verður stuð. Næsta spenna verður svo núna á næstunni þegar fósturtalningin verður. ![]() Hér er Freyja með Dröfn mömmu hans Mávs sem er á Sæðingarstöðinni. ![]() Jökull Frosti er þrílembingur undan Dröfn og Berg sæðingarstöðvarhrút og ég ætlaði að nota hann á mjög margar kindur en hann heltist á afturfót fyrir fengitímann og við sáum svo að hann hafði stungið sig á einhverju og fékk sýkingu í fótinn og við urðum að setja hann á pensilín kúr og þá lagaðist hann og ég prófaði svo að nota hann á eitt lamb og ég bíð spennt eftir hvernig þetta eina lamb sem ég fæ úr honum verður eða 2 ef hún skildi verða tvílembd. ![]() Korri Garrasonur hans Sigga hann fékk 6 kindur. ![]() Hlúnkur Mávsonur frá Sigga fékk 6 kindur. ![]() Grettir Mávsonur frá Sigga fékk 3 kindur. ![]() Askur Kaldasonur fékk 11 kindur. ![]() Kaldnasi Magnasonur fékk 7 kindur. ![]() Zezar sona sonur Dreka sæðingarstöðvarhrút fékk 15 kindur svo það eru miklar væntingar með hann. ![]() Botni hans Óttars fékk 10 kindur. ![]() Gosi frá Gumma Ólafs Bjartssonur fékk 5 kindur. ![]() Einbúi Ísakssonur fékk 1 kind og hann átti að fá aðra en það var svartur hrútur hjá Bárði sem heitir Svarti Sambó sem fékk hina. ![]() Víkingur er undan Skjöld frá Bárði og hann fékk 3 kindur. ![]() Stjóri Grettissonur frá Kristinni Bæjarstjóra fékk 6 og Svarti Péturs hans Óttars fékk 3 Svanur Mávsson fékk 4 kindur og svo fór hann í afkvæmarannsókn á Hofsstaði svo hann var bara notaður rétt í byrjun hjá okkur áður en hann fór. Þannig ef allt gengur eftir þá ættum við að fá lömb úr 19 hrútum alls með sæðingunum. ![]() Fengum frænku og frænda stelpnanna með okkur í fjárhúsin yfir hátíðarnar hér er Embla, Sunnefa, Freyja og Bergþór. ![]() Hanna Líf nágranni okkar með stelpunum okkar í fjárhúsunum. ![]() Á brennunni á áramótunum. ![]() Embla og Freyja. ![]() Freyja með Lóu sína sem er alveg einstakur karekter en er að verða of frek hún er farin að stanga í rassinn á mér þegar ég er að sópa. ![]() Embla og Feyja hjá kindunum. ![]() Hér eru gemlingarnir. ![]() Hér er Svala Partsdóttir og Lóa. ![]() Hér er Klara Svansdóttir og Rósalind. ![]() Hér er Terta og Óska Dís. ![]() Bára undan Berg og Dröfn og svo Blíða. ![]() Frostrós, Elektra,Klara og Rósalind. ![]() Randalín og Aska. ![]() Brúða og Poppý. ![]() Lóa, Harpa og Dröfn. ![]() Embla að knúsa gimbranar. ![]() Freyja að klappa þeim. ![]() Og svo dugleg að hjálpa mér að gefa. ![]() Embla og Guðjón vinur hennar komu með mér í fárhúsin. ![]() Verið að sníkja á þrettándanum Benóný aftastur og svo Freyja og Bjarki frændi þeirra. ![]() Embla og Hanna á þrettándanum. ![]() Embla og Freyja misstu báðar tönn á sama tíma í janúar. ![]() Alex og Birgitta komu í heimsókn í janúar. ![]() Og það var farið út að renna leið og snjórinn kom loksins. ![]() Allir að baka pizzu saman. ![]() Skellt í eina grettumynd. ![]() Alexander Ísar að baka. ![]() Við fórum svo til Reykjavíkur með Birgittu og Alex til foreldra sinna og skelltum okkur í bíó með þeim. ![]() Benóný svo glaður að fá að sjá spiderman í bíó. ![]() Í snjónum hjá ömmu Freyju og afa Bóa. ![]() Fallegt vetrarveður í sveitinni. ![]() Að renna inn í Mávahlíð. ![]() Benóný Ísak. ![]() Sólin skein á okkur enda æðislegt veður en það var mjög kalt. ![]() Inn í Mávahlíð. ![]() Embla og Freyja. ![]() Embla Marína, Freyja Naómí og Benóný Ísak. ![]() Ég var að sýna þeim fjárhúsið í Mávahlíð og segja þeim að þegar ég var lítil var svo mikill snjór alltaf að maður gat klifrað upp á þak og rennt sér niður en það vantar talsvert upp á það núna. ![]() Freyja að renna með dúkkuna inn í Ólafsvík. ![]() Benóný að renna líka inn í Ólafsvík. Jæja nú er ég búnað skella svona því helsta inn sem er búið að vera gerast hjá okkur 28.12.2018 00:57Gleðileg jól og fengitímiVið fjölskyldan óskum ykkur kæru vinir Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hér hefur verið nóg að gera eins og sést á blogginu ég hef ekki getað gefið mér neinn tíma þanga til núna og þá hendi ég inn marga daga bloggi. Fengitíminn fór jafnt og þétt af stað ég byrjaði að hleypa til 14 des og byrjaði svo að sæða 16 des og sæddi til 22 des. Það er að segja að ég geymdi sæði í ískápnum og sæddi daginn eftir og svo kemur bara í ljós hvort ég hafi dottið í lukkupottinn með það. Ég sæddi 25 kindur og notaði Kraft,Óðinn,Máv Bergsson,Borkó,Fáfnir,Dreka,Anga og Guðna. Svo geng ég með hrút á hverjum einasta degi í kindurnar. Korri Garrasonur hans Sigga sér um að leita fyrir mig og ég skelli á hann skírlifs poka svo hann nái ekki að lemba neina óvart þegar ég leita með honum því hann er svo stór og sterkur að það gæti auðveldlega gerst óvart. Því miður hef ég ekki getað notað aðal hrútinn sem ég ætlaði að nota en það er hann Jökull Frosti sem er undan Berg sæðishrút og Dröfn sem er mamma hans Mávs sem er á sæðingarstöðinni. Hann meiddist á afturfót og hefur ekki getað sinnt sínu starfi en ég vona að hann nái sér og þá verður hann bara að koma að góðum notum á næsta ári. Það eru 11 rollur eftir að fá og ég reikna með að það verði kominn hringinn á gamlársdag. ![]() Mamma með krakkana okkar heima hjá okkur. ![]() Á aðfangadag. ![]() Það er mjög vinsælt þessa dagana að hafa eina grettimynd líka he he. ![]() Freyja og Embla. ![]() Freyja að opna pakkana. Embla las á alla pakkana og rétti svo okkur. ![]() Hér eru þær saman að opna. ![]() Benóný alsæll með sínar gjafir. ![]() Benóný var svo montinn að fá loksins síma en við létum undan þeirri ósk og gáfum honum síma í jólagjöf. ![]() Stelpurnar fengu þessar flottu peysur frá Maju systir og fjölskyldu. ![]() Benóný með ömmu Freyju og Bóa afa. ![]() Það var fjör á þessum að hittast eftir að búið var að opna pakkana. Freyja,Embla og Bjarki ![]() Jólaboð hjá Huldu mömmu minni á Jóladag. Við höfðum það rosalega kósý yfir jólin við vorum bara við fjölskyldan þetta árið en svo komu allir í kaffi til okkar eftir að við vorum búnað opna pakkana og það var mjög gaman að hitta alla. Ég mun setja frekari blogg um fengitímann þegar mér gefst timi en læt þetta duga í bili og hafið það sem allra best yfir hátíðarnar það eru svo fleiri myndir af jólunum hér inn í albúmi. Flettingar í dag: 665 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 4577 Gestir í gær: 153 Samtals flettingar: 1554715 Samtals gestir: 77919 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:13:35 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is