Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
26.08.2018 11:55Rúntur 25 ágúst![]() Kolfinna með lömbin sín undan Flekkótta hrútnum hans Bárðar á Hömrum. ![]() Orðin svo falleg þessi verður ásettningur hjá mér. ![]() Virkar svo líka vel þykk að aftan séð. ![]() Skuggadís með gimbur frá Sigga sem er undan Gullu og Hlúnk hans Sigga. ![]() Ég er alveg að fíla þessa hún er æðisleg. ![]() Dúfa með hrútana sína undan Móra sæðingarhrút. ![]() Dúfa sleikjir hér vel út um þegar við köllum í hana að fá brauð. ![]() Hér er annar hrúturinn hennar Dúfu undan Móra. ![]() Hlúnkur veturgamall frá Sigga undan Máv og Skessu. ![]() Svanur veturgamall undan Máv og Svönu frá okkur. ![]() Hér eru þeir saman. ![]() Hexía með hrútana sína undan Ísak. ![]() Skvísa með lömbin sín undan Klett sæðingarstöðvarhrút. ![]() Önnur gimbrin. ![]() Hin gimbrin hún hefur örugglega fest annað hornið í einhverju því það vantar smá bút á það sýnist mér það er ekki eins langt og hitt. ![]() Íssól. ![]() Gimbrin hennar undan Bjart sæðingarstöðvarhrút. ![]() Hrúturinn á móti sem er undan Íssól og Bjart. Það eru svo fleiri myndir af þessum rúnti hér inn í albúmi. 26.08.2018 11:13Rúntur 24 ágúst![]() Hér eru stóru hrútarnir frá Sigga Grettir og Drjóli. Grettir er undan Máv og Drjóli er undan Hæng. ![]() Glámur er Saumsonur frá Sigga og svo hin hvíti er Ísak Tvinna sonur frá okkur. ![]() Askur Kaldasonur og svo Korri Garrasonur frá Sigga sem liggur. ![]() Þetta er Bomba gemlingur orðin svo stór og falleg og hún er með hrút undan Ask. ![]() Dimmalimm gemlingur frá Jóhönnu með hrút frá Sigga sem gengur undir henni og hann er undan Mjöll og Grettir. ![]() Sami hrútur bara sést betur. ![]() Rakst loksins á Hriflu sem er afbragðs rolla hjá mér og hún er með sæðing undan Tvist og hún var með 3 en tvö drápust í fæðingu 2 fallegar gimbrar sem drukknuðu því hún var farin af stað og fór fram hjá okkur hvenær hún byrjaði svo það var gripið of seint inn í að tékka á henni og þá náðist bara þessi hrútur á lifi alveg ömurlegt en svona gengur þetta stundum en jæja svo fóstrar hún líka annan þrílembing sem er undan Skuggadís og Klett sæðingarhrút. Það verður gaman að sjá þessa í haust. ![]() Held að þeir verði flottir sérstaklega þessi hér fremsti. ![]() Rakel gemlingur er undan Hriflu hér fyrir ofan og Grettir og hún er hér með hrút undan Glám. ![]() Nál með gimbur undan Tinna hans Gumma Ólafs Ólafsvík. ![]() Hrúturinn á móti. ![]() Nál með lömbin sín. Það eru svo fleiri myndir af þessum rúnti hér inn í albúmi. 23.08.2018 10:32Rollu rúntur 17 ágúst![]() Þessi er undan Mjallhvíti minni og Hlúnk hans Sigga. ![]() Gimbrin á móti. ![]() Hér eru þau saman. Hlúnkur hans Sigga er undan Skessu hans Sigga og Máv sem fór á Sæðingarstöðina. ![]() Þetta er Svana með sín lömb undan Part hans Bárðar og ég held að þetta verði svakalega falleg lömb þau eru svo þykk að sjá. ![]() Þetta er Arena með hrútinn sinn hún var tvílembd í vor en hitt fæddist dautt. Hrúturinn hennar er undan Glám hans Sigga sem er Saum sonur. ![]() Þessi hrútur er undan Álft og Svan. Svanur er Máv sonur frá okkur. ![]() Hér er Álft hún gengur líka með fósturlamb sem er frá Jóhönnu. ![]() Flott gimbur frá Sigga undan Völu og Korra. Korri er Garra sonur frá Sigga. ![]() Hrúturinn á móti. Þetta verða falleg lömb það sást strax í vor þegar þau fæddust hvað þau voru þykk og mikil. ![]() Lotta gemlingur hans Sigga með gimbur undan Glám. ![]() Búrka gemlingur frá Sigga með gimbur undan Hlúnk. ![]() Gimbur og hrútur undan Kvíku og Klett sæðingarstöðvarhrút. ![]() Veturgamli hrúturinn minn hann Svanur hann er undan Svönu og Máv sem fór á stöðina. ![]() Lambhrútarnir að djöflast í þeim. ![]() Hlúnkur hans Sigga hann er líka veturgamal og undan Máv. ![]() Þessar blómarósir voru með mér á rollu rúntinum. Freyja,Embla og Aníta vínkona þeirra. ![]() Morgunstjarna hennar Jóhönnu með gimbrar undan kraft. Kraftur er undan Ísak. ![]() Búið að hrista brauðpokann fyrir Hnotu hennar Jóhönnu og hún lætur ekki segja sér það tvisvar og hleypur til okkar. ![]() Hún á þennan gula hrút sem er undan Berg sæðingarstöðvarhrút og svo er gimbur undir henni sem er undan Skvísu og Klett sæðingarstöðvarhrút. ![]() Hríma hennar Jóhönnu er líka mikið fyrir brauðið og kemur hlaupandi. Hún er með lömb undan Svan. ![]() Maggý hennar Jóhönnu er hérna aftast hún er líka með lömb undan Svan. ![]() Gola hans Sigga með hrúta undan Berg sæðingarstöðvahrút. ![]() Móheiður með hrútana sína undan Kaldnasa. Kaldnasi er Magna sonur. ![]() Hér sjást þeir betur sá hvíti virkar þykkri og fallegri. ![]() Gimbur undan Hosu og Grettir. Grettir er frá Sigga og er undan Svört og Máv. ![]() Hin á móti. ![]() ![]() Skuld með sín tvö undan Hlúnk. Það eru svo fleiri myndir af þessum rúnti hér inn í albúmi. 23.08.2018 10:16Frábært veður inn í Kötluholti og farið á paddel bard![]() Það var æðislegt veður um daginn inn í sveit og Maja og Óli eru nýbúnað fá sér þessi paddel board bretti. Við skelltum okkur með þeim og fengum að prófa. Hér er Freyja með Maju. Hjónin sem eiga Mávahlíð eru góðir vinir Maju og Óla og þau voru líka með þeim. ![]() Hér er Benóný að hafa það kósý með Maju. ![]() Freyja Naómí kát eftir að vera búnað fá að prófa. ![]() Æðislegt útsýnið yfir í Mávahlíð. Hér sést Richard og Erin sem eiga Mávahlíð og Óli. ![]() Richard var á svona uppblásum kajak bát. ![]() Hér er Maja með Emblu. ![]() Pollý fylgdist spennt með. ![]() Og Messí auðvitað líka og henni langaði að fara með. ![]() Og Erin lét það eftir henni og tók hana með og hún vildi helst bara fá að vera með. ![]() Hér er Erin á sínu bretti. ![]() Hér er Óli . ![]() Lét mig hafa þetta að prófa fyrst var ég eins og skjálfandi spýtukarl að ná jafnvæginu og sat fyrst en varð svo að standa upp og það var pínu kúnst að ná jafnvæginu og ég var óstyrk en svo eftir smá stund var þetta bara mjög gaman. ![]() Hér erum við systurnar saman ég og Maja. Embla var svo dugleg að taka myndir. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 23.08.2018 10:00Kíkt á lömbin í byrjun ágúst.Þegar við komum úr ferðalaginu af norðan i byrjun ágúst stoppuðum við og smelltum nokkrum myndum. ![]() Þetta er Rjúpa með lambið sitt sem hún fóstrar fyrir Björg gemling sem var tvílembd. Það var mjög magnað að sjá eina stærstu rolluna í húsinu með minnsta lambið og það þurfti að teppa leggja stíuna alveg svo lambið festist ekki í grindunum svo lítið var það en hér er hann og orðin jafn stór og hin lömbin enda mjólkar Rjúpa rosalega vel og hann gengur einn undir svo hann verður stór og flottur. ![]() Tala með sín lömb undan Grettir. ![]() Orðinn stór og flottur hann Golsi hjá Botnleðju. ![]() Hér er einn flottur. ![]() Hinn á móti þessir eru undan Ask og Frenju. ![]() Orabora með gimbrina sína undan Kraft. ![]() Stór hrútur undan Urði og Gutta sæðingarstöðva hrút. 17.08.2018 22:28Vestfjarðarævintýrið og langþráður draumur Benónýs rættist.Jæja við vorum heldur betur hvatvís á föstudaginn síðast liðinn eftir að við vorum ný komin heim að norðan og náðum að mála þakkantinn á húsinu sem var búnað bíða eftir að vera málaður í allt sumar en aldrei þurrkur eða tími til að sinna því en nóg með það og aftur að hvatvísinni okkar. Eftir hádegi á föstudaginn datt okkur það brjálæði í hug að láta draum Benónýs ekki líða þriðja árið í röð um að fara á Vestfirðina og prófa sundlaugarnar þar. Svo við skelltum í töskur og hentum inn í hjólhýsi og rukum af stað. Við komum við í matarvagninum hjá Viði og Kollu á Breiðabliki og fengum æðislega fiskipylsu. Svo fórum við upp Heiðdalinn og keyrðum fram hjá Hallkelsstaðarhlíð og mér fannst það mjög gaman því ég man eftir henni síðan ég var barn að fara með Steina frænda í heimsókn til Einars í Hlíð og mig langaði svo að sjá hvernig þetta liti út núna hvort minningin væri rétt. Jæja við fórum svo í gegnum Búðardal og þar á eftir kom svakalega leiðinlegur malarvegar kafli en þar var verið að laga og fara malbika. ![]() Keyrðum fram hjá Dunkárbakka í Dölum en þar býr frændi hans Sigga í Tungu og Gerða mamma hans Sigga er frá þessum bæ. ![]() Hólmavík er fyrsti viðkomu staður. ![]() Auðvitað var skellt sér í sundlaugina á Hólmavík Benóný langaði það mjög mikið. ![]() Mynd af sundlaugarhúsinu á Hólmavík. ![]() Gleymdi að taka eftir hvað þessi brú heitir en hún var mjög flott hún kom eftir að maður var búnað keyra svolítinn tíma frá Hólmavík. ![]() Eftir langa keyrslu inn alla firðina og skoða náttúrufegurðina í hverjum fjörð vorum við komin á Súðavík. ![]() Styttist óðum komin að Ísafirði. ![]() Jey loksins kominn á áfangastað Bolungarvík hér komum við. Það tók við allsherjar þrif því hjólhýsið var fullt af ryki eftir malarvegskaflann frá Búðardal. Svo hafði opnast hrásalat dolla og hún var út um allann ískáp voða stuð. ![]() Svona var útsýnið út um dyrnar á hjólhýsinu daginn eftir, rennibrautin í sundlauginni. ![]() Benóný gat ekki lýst gleði sinni yfir að fara loksins að prófa rennibrautina á Bolungarvík sem hann er búnað dreyma um í þrjú ár. ![]() Hann fékk mynd af sér og stóru plakkati sem er af Bolungarvík og var inn í sundlaugahúsinu. ![]() Það var svo gaman að bróðir Emils hann Marinó var akkurrat staddur á Bolungarvík og kíkti á okkur á tjaldstæðið. ![]() Við fengum æðislegt veður sól og 14 til 20 stiga hita loksins rötuðum við á réttann stað með gott veður. ![]() Það var skellt sér í sund strax um morguninn og hún stóð alveg undir væntingum og Benóný fannst hún rosalega flott og skemmtileg. Mér fannst aðstaðan sú besta sem ég hef farið í sturturnar voru æðislegar og hef ég nú farið í þær margar. ![]() Það var líka frábært leiksvæði við skólann og sundlaugina og líka hoppudýna. ![]() Freyja að klifra. ![]() Benóný að gera æfingar he he. ![]() Ísafjörður. ![]() Sundhöllin á Ísafirði. Við skoðuðum hana bara en fórum ekki í sund þar. ![]() Fallegt tjaldsvæðið á Ísafirði. ![]() Göngin sem liggja til Flateyrar,Þingeyrar og Suðureyrar. ![]() Sjáið þessa hæð á fjöllunum þvílík fegurð sem þau eru og dalirnir sem myndast inn í fjörðunum ég var alveg dáleidd af náttúrunni. ![]() Svakalega tignarleg fjöll. ![]() Komin á Suðureyri. ![]() Bingó kominn til Suðureyrar. ![]() Kort af bænum. ![]() Skoðuð bryggjan. ![]() Auðvitað vildi Benóný fá mynd af sér við sundlaugina á Suðureyri og honum langaði geggjað mikið í hana en við vorum bara ekki með sundfötin okkar með því við vorum búnað fara í sund á Bolungarvík. ![]() Krakkarnir á bryggju á vatninu við sundlaugina á Suðureyri. ![]() Það var fallegt sveita kaffihús sem heitir Kaffi Sól á bænum Neðri Breiðdal á leiðinni að Flateyri. ![]() Það var rosalega kósý að fá sér kaffi og ostaköku og Emil fékk sér vöfflu og horfa svo á þetta æðislega útsýni yfir Önundafjörðinn. ![]() Næsti staður var Flateyri. ![]() Það var keyrt fram hjá sundlauginni á Flateyri og skoðað hana fyrir Benóný. ![]() Löbbuðum upp þar sem snjóflóðavörnin er fyrir ofan bæinn. ![]() Hér sést útsýnið yfir Flateyri. ![]() Það var líka hoppudýna á Flateyri þeir eru mjög duglegir á Vestfjörðunum að vera með flotta aðstöðu fyrir börn. Við þurfum klárlega fara redda okkur svona í Ólafsvík. ![]() Jæja þá er að fara skella sér á Þingeyri. ![]() Embla kallaði þetta prinsessu kastala. Ég veit ekki hvað þetta er eða hvað þetta heitir. ![]() Hér sést til Þingeyrar. ![]() Jæja þá er komið að Þingeyri og svo förum við aftur til baka á Bolungarvík og gistum aðra nótt þar. ![]() Sundlaugarhúsið á Þingeyri. ![]() Kort af stöðunu sem við eru búnað rúnta í dag út frá Bolungarvík. ![]() Feðgarnir niðursokknir í að skoða kortin. ![]() Skruppum í Gamla bakaríið á Ísafirði og mér fannst svo flott að sjá þetta skilti í miðbænum að ég varð að taka mynd af því. ![]() Fórum í Raggagarð á Súðavík. ![]() Marinó bróðir Emils og konan hans Fríða sýndu okkar Raggagarð og sonur þeirra var líka með þeim hann Pétur og hann og krakkarnir náðu vel saman. ![]() Hér eru þau öll saman svo gaman að leika og þetta er frábær garður. Við ætluðum að fara sömu leið til baka vestur og fara heim í dag sunnudag en datt svo í hug að koma Benóný á óvart og hafa það hluta af afmælisgjöfinni hans að halda áfram og fara yfir á Tálknafjörð svo hann gæti farið í sundlaugina þar sem er líka búnað vera draumurinn hans ef hann færi á Vestfirðina. Það gekk svo allt upp þegar ég gat útvegað okkur ferð með Baldri frá Brjánslæk að Stykkishólmi svo við myndum sleppa við að fara með hjólhýsið alla malarvegina svo við lögðum aftur af stað frá Bolungarvík og fikra okkur í áttina að Tálknafirði. ![]() Komin aftur að Þingeyri og förum upp á heiði og malarveg. ![]() Þetta er Hrafnseyrarheiði og hún var gríðalega brött upp og hæðin að horfa niður eftir henni vakti manni óhug alla vega mér. Þó ég geti smalað um öll fjöll þá á ég ekki gott með að vera í bíl upp og niður svona fjöll og hvað þá með hjólhýsi í afturdragi. ![]() Og Guð minn almáttugur þegar upp á toppinn var komið að fara svo að keyra niður ég var alveg sturlast og Emil og krakkarnir hlógu bara af mér. Þetta var svakalegt ég er búnað fara Hellisheiði og yfir á Vopnafjörð en mér fannst þessi svakaleg því hæðin á fjöllunum er rosaleg en kanski er ég bara búnað gleyma hvað Hellisheiðin var svakaleg en þá var ég líka á fólksbíl en ekki jeppa og þá situr maður svo hátt uppi. ![]() Jæja eftir að vera búnað vera á bremsunni ,ríghalda í beltið og slátra tveim bjórum til að róa mig lifði ég af þessa niður leið he he. Hér erum við komin að fossinum Dynjanda. ![]() Og en er ein önnur heiðin og það er Dynjandisheiði en hún var nú mikið skárri. ![]() Jæja nú fer þetta að styttast. ![]() Þegar við komum svo neðar í áttina að Bíldudal sáum við þessa frábæru náttúrulaug sem var alveg ævintýri fyrir okkur hún var æðislega flott. ![]() Svo voru líka heitir pottar í læknum alveg geggjað og sá efsti var örugglega 42 gráður en þessir neðri aðeins minna. ![]() Þetta var það magnaðasta sem við gerðum í þessu ævintýri en Benóný fannst það auðvitað vera að komast á Bolungarvík í rennibrautina og hina sem er eftir á Tálknafirði. ![]() Benóný vildi fá mynd af sundlaugahúsinu he he en þetta var klósett og svo stelpu og stráka klefi til að skipta um föt en engar sturtur en samt alveg æðislegt. Við hittum þarna bandaríkjamenn sem spurðu okkur hvaðan við værum og þeir hlógu svo bara þegar við sögðum að við væru íslendingar að túristast um Vestfirðina þeim fannst það mjög skemmtilegt að heyra. ![]() Þessa bók gaf Irma Benóný þegar skólinn hætti það átti að fara hætta með þær og hún var sko mikið notuð í sumar bæði fyrir sunnan,norðan og núna Vestfjörðunum. Það var svo gaman að sjá hvað hann fylgdist með hvar við værum og svo gat hann sagt okkur til um nöfnin á fjöllunum og margt vissi hann því hann var búnað skoða það á kortavefnum inn á skólavefnum. ![]() Bíldudalur. ![]() Sundlaugar húsið á Bíldudal. ![]() Bryggjan á Bíldudal. Tekið mynd af sundlaugum fyrir Benóný og bryggjum og bátum fyrir Emil. ![]() Jæja þá er best að halda áfram í átt að Tálknafirði og þá er ein heiði eftir þangað það er Botnheiði held ég. ![]() Jæja þetta er að hafast. ![]() Sundlaugin á Tálknafirði. ![]() Við búnað koma okkur fyrir og komið kvöld. Krakkarnir spenntir að prófa sundlaugina á morgun sem er hliðina á tjaldstæðinu. ![]() Hér er minn maður kominn í sundlaugina og er að fara í rennibrautina á Tálknafirði. Hann bræddi alveg konuna í sundlauginni og sagði við hana að þetta væri flottasta sundlaug sem hann hafi séð og það er mikið hrós því margar eru þær sem hann hefur komið í. Ég þarf endilega að fara taka það saman hversu margar sundlaugar með rennibrautum við eigum eftir að fara í á íslandi ég held að það séu bara mjög fáar eftir. ![]() Þetta er Pollurinn sem er fyrir ofan Tálknafjörð og er svona náttúrulaug ég tók bara mynd af henni en við prófuðum hann ekki. ![]() Hér sést Tálknafjörður nú erum við lögð af stað eftir sundið í áttina að Patreksfirði. Við erum upp á Botnaheiði. ![]() Jæja nú erum við komin á Patreksfjörð. Við náðum ekki að taka mynd af sundlauginni þar því hún er svo upp í brekku. En hún er víst mjög flott og flott útsýni úr henni. ![]() Sáum þennan á leiðinni frá Patreksfirði í áttina að Brjánslæk. Þetta er elsta stál skip á Íslandi. ![]() Áfram höldum við og förum yfir Kleifaheiði. ![]() Komin niður og sjáum Barðarströndina. ![]() Heilluðumst svo af ströndinni að við parkeruðum og hlaupum niður í fjöru. ![]() Þetta var æðislegt frjálsæðið og frelsið svo mikið og ekki má gleyma æðislega veðrinu sem var búnað fylgja okkur alla ferðina. ![]() Skrifað í sandinn. Kastað af sér skóm og sokkum og rokið af stað. ![]() Emil dugnaðar maðurinn minn búnað keyra með okkur alla þessa leið og hlusta á hræðsluna i mér yfir heiðarnar he he. ![]() Jæja þá erum við komin að Brjánslæk og hér er Baldur ferjan. ![]() Sundlaugin í Flókalundi við keyrðum að henni og tókum mynd og fórum svo á Hótel Flókalund og fengum okkur að borða. ![]() Þá er Emil að fara keyra um borð í Baldur. ![]() Krakkarnir ótrúlega spenntir að fara um borð. ![]() ferðalaginu okkar að fá að fara í ferjuna heim. ![]() Veðrið var náttúrulega bara æðislegt og siglingin tók aðeins 2 og hálfan tíma en er áætluð rúmlega 3 tímar. ![]() Freyja Naómí. ![]() Benóný Ísak. ![]() Embla Marína. ![]() Flatey við komum við þar en engin fékk að fara frá borði nema hann væri að fara til vera þar. ![]() Benóný í leikherberginu í Baldri. ![]() Farin að sjá Stykkishólm. ![]() Emil búnað keyra út úr ferjunni og kominn í Stykkishólm. ![]() Ein hér að lokum af krökkunum að nálgast Stykkishólm úr ferjunni. Þetta ferðalag var alveg æðislegt og munum við öll eiga góða minningu um hversu frábært ævintýri þetta var. Takk fyrir að skoða og upplifa þetta með okkur Það eru svo fullt af myndum í viðbót af þessu ferðalagi fyrst hér úr myndavélinni og svo með því að smella hér eru síma myndirnar. Ég er svo búnað ná flottum lamba myndum og þær munu koma hér inn á næstunni því nú er svo gaman að sjá lömbin það er farin að síkka ullinn og þau eru orðin svo stór og flott. 14.08.2018 21:55Verslunarmannahelgin á Akureyri með fjölskyldunniByrjuðum á þvi að koma við á Hvammstanga en þar var Steinar bróðir Emils og fjölskylda og Jóhann bróðir Emils og fjölskylda í útilegu. Við fórum í sund á Hvammstanga og svo borðuðum við með þeim á tjaldstæðinu. Við héldum svo áfram og fórum á Skagaströnd. Útgerðin sem Emil vinnur hjá var að kaupa bát og hann er að fara róa með hann um miðan ágúst. Þetta er bátur með beitningarvél um borð svo þeir verða 4 á honum í staðinn fyrir að þeir hafa verið 3 á línu bátnum sem Emil er að róa núna á. Við gistum eina nótt á Skagaströnd og Emil fór aðeins að ræða við mennina sem eiga bátinn. Tjaldstæðið á Skagaströnd var mjög flott og flott leiktæki fyrir krakkana. ![]() Hér er báturinn sem er á Skagaströnd. Ég gleymdi nú alveg að við fórum fyrst í sumarbústað í Húsafelli áður en leið okkar lá norður og vorum við hjá Freyju og Bóa þau voru með nýja bústaðinn hjá Verkalýðsfélaginu og hann er rosalega flottur og stór. ![]() Hér er stór hluti af barnabörnum Freyju og Bóa saman komin í heitapottinum í Húsafelli. ![]() Kamilla Rún skemmti sér vel í útilegu í Húsafelli. ![]() Við geymdum hjólhýsið okkar í Deildartungu hjá Önnu Dís dóttir Bóa og hér fórum við að skoða kálfana hjá þeim. ![]() Það var mikið sport að klifra upp á háaloft í fjósinu. ![]() Flottar saman allar upp í tré. Vigdís,Embla,Freyja og Sesselja. ![]() Hér sést hjólhýsið okkar parkerað í Deildartungu. ![]() Fórum í sundlaugina á Kleppársreykjum og hún var rosalega kósý og fín. ![]() Hreppslaug var lokuð en við urðum að keyra upp að henni fyrir Benóný til að sýna honum hana það verður bara fara í hana næst. Jæja leið okkar lá svo norður á Skagaströnd eins og ég sagði áðan og þaðan yfir á Varmahlíð sem við fórum í sund og Benóný var svo ánægður og hissa þegar hann sá að það var komin ný rennibraut þar en því miður var ekki búið að opna hana strax það var en verið að gera og græja hana. Við létum það þó ekki stoppa okkur og fórum í sund þar og Benóný horfði bara á hana og skoðaði hana með aðdáunar augum. Við héldum svo áfram til Akureyrar og fórum á tjaldstæðið á Hömrum sem við höfum verið áður og er æðislegt að vera. Jóhann,Þórhalla og krakkarnir voru komin þangað og líka Steinar, Unnur og krakkarnir og þau voru búnað taka frá stæði svo við gætum verið öll saman. Þetta var alveg æðislega gaman hjá okkur og það var farið í sund alla dagana auðvitað Akureyri, Hrafnagil, Ólafsfjörð og tvisvar á Þelamörk sem er æðisleg sundlaug. ![]() Sundlaugin í Varmahlíð. ![]() Mikið um að vera á tjaldstæðinu á Hömrum nóg afþreying fyrir krakkana. ![]() Á leiðinni að fara í hjólabát sem var á Hömrum. ![]() Komin um borð. ![]() Hér sést hvað það var kósý hjá okkur hjólhýsið hans Steinars sést hérna fremst svo kemur hjá Jóhanni og svo glittir í okkar hér á endanum. ![]() Auðvitað var skellt sér á Kaffi Kú sem er alltaf viðkomu staður fyrir okkur þegar við förum norður við elskum þetta kaffi hús. ![]() Þessi kisa á Kaffi kú var alveg einstaklega gæf og alveg elskaði að láta krakkana klappa sér og meira segja þegar við opnuðum bílinn stökk hún inn ætlaði bara koma með okkur he he en svo tókum við hana auðvitað út aftur en ekkert smá fyndið að hún skyldi fara á eftir krökkunum inn í bíl. Við kíktum svo auðvitað á góðvini okkar Birgittu og Þórð á Möðruvöllum en við gleymdum að fá mynd af okkur í þetta skipti en við eigum auðvitað mynd af okkur þegar við fórum til þeirra í júní því þetta er annað skiptið í sumar sem við förum norður enda elskum við allt fyrir norðan það er svo æðislegur staður. Við fengum að sjá nýja eldhúsið hjá Birgittu sem er alveg frábært og auðvitað fengum við kaffi og kræsingar í nýja eldhúsinu. ![]() Kósý hjá krökkunum í hjólhýsinu okkar. ![]() Rafmagnsbílar voru á Hömrum yfir verslunarmanna helgina. ![]() Embla að keyra. ![]() Freyja að keyra. ![]() Það voru líka svona hjól. ![]() Freyja rétt nær niður he he. ![]() Benóný. ![]() Benóný gerði sér lítið fyrir og massaði alveg þetta flekahlaup alla leið yfir. ![]() Embla að hlaupa yfir hún þurfti smá hjálp fyrst frá Unni en svo kom þetta alveg eftir eitt skipti og þá fór hún endalaust aftur yfir. ![]() Freyja að fara yfir hún fékk líka hjálp frá Unni og lét sér eitt skipti duga. ![]() Birgitta að fara yfir. ![]() Unnur var svo dugleg að hjálpa krökkunum yfir og óð alveg út í. Hér er Alexsander svo stoltur að fara yfir með mömmu sinni. ![]() Hér erum við komin í Daladýrð dýragarð fyrir norðan. ![]() Embla svo glöð að klappa kettlingunum. ![]() Freyja með kettling. ![]() Svo gaman hjá þeim. ![]() Kamilla að kíkja á kettlingana. ![]() Alexander með kettling. ![]() Embla og Freyja með kanínu. ![]() Birgitta og Alexander að hoppa í heyjið. ![]() Kara og Daníel komu líka með okkur í dýragarðinn og hér er hún með kiðling. ![]() Embla og Kamilla sætar frænkur. ![]() Embla og Birgitta að skoða folöldin. ![]() Sundlaugin á Akureyri. ![]() Sundlaugin á Ólafsfirði. ![]() Hér sést í nýju rennibrautirnar sem eru að koma á Dalvík. Það verður nóg fyrir okkur að prófa á næsta ári nýju rennibrautina í Varmahlíð og kannski á Sauðárkrók ef hún verður tilbúin og svo þessar í Dalvík strax komin ný markmið fyrir Benóny næsta sumar. ![]() Hann Benóný fann meira segja teikningarnar af nýju rennibrautunum á Dalvík því hann var svo spenntur að það væri að koma nýjar því þetta hefur alveg farið fram hjá honum því hann vissi ekki að það væru að koma nýjar þar. ![]() Kósý hjá þeim Birgitta,Embla ,Freyja og Benóný. ![]() Svo kósý hjá okkur hér er krakka hornið með kojunum. ![]() Hér er svo matarkrókurinn hjá okkur og svo sést inn í krókinn hjá krökkunum. ![]() Öll að kúra hjá pabba í hjólhýsinu. ![]() Birgitta svo stolt með litlu systir. ![]() Allar saman frænkurnar svo gaman. ![]() Öll búin í klippingu og fengu lita sprey í hárið svo mikið sport. ![]() Það var þó ekki lengi í hárinu því við fórum svo beint í sund og þá lak allt úr he he. ![]() Í bakaleiðinni komum við aftur við á Skagaströnd því Emil var að tala við mennina í sambandi við bátinn og þá fékk Benóný ósk sína uppfyllta að fara í sundlaugina á Skagaströnd. Hún var ótrúlega hlýleg og kósý og gaman að koma í hana okkur var boðið upp á kaffi í heitapottinum og alveg dekrað við okkur. ![]() Benóný vildi að ég tæki mynd af henni og heitapottinum líka. Þetta var flottur endir á góðri útilegu hjá okkur. Það eru svo fullt af myndum hér inn í albúmi af þessu öllu saman. 27.07.2018 01:13Heyjað í Tungu og keyrt möl í veginn í Kötluholti.![]() Stelkur á staur inn í Tungu. ![]() Ísak. Tvinna sonur. ![]() Drjóli. Hæng sonur frá Sigga. ![]() Grettir hans Sigga. Máv sonur. ![]() Kaldnasi. Magna sonur. ![]() Glámur. Saum sonur. ![]() Askur tók til fótana. Askur er Kalda sonur. Þeir voru að sniglast í túninu þegar við voru að heyja í Tungu en vildu þó ekkert tala við mig og Benóný þegar við reyndum að nálgast þá. ![]() Jóhanna búnað snú fyrir Sigga. Það var ansi hvasst í dag þegar Jóhanna var að snúa en það lægði seinni partinn og þeir byrjuðu að rúlla klukkan 5 og það gekk allt saman hratt og vel fyrir sig. ![]() Drífa með hrút undan Svan og fóstrar hrút fyrir Hrímu hennar Jóhönnu og hann er líka undan Svan. ![]() Flottir feðgarnir saman í lyftaranum að fara ná í möl. ![]() Það þurfti að fylla í gras veginn í Kötluholti svo við kæmumst niður eftir til að sækja rúllurnar og keyra þær á vörubíl upp í Tungu. Emil og Bói náðu að keyra talsvert í veginn í kvöld en svo verðum við að keyra rúllurnar bara í rólegheitum á morgun. ![]() Skrúfa hans Sigga með lömbin sín undan Drjóla. ![]() Snúlla gemlingur hennar Jóhönnu með hrútinn sinn undan Kaldnasa. ![]() Þeir feðgar lagðir af stað. ![]() Fíóna með lömbin sín undan Ísak. ![]() Urður með hrútana sína undan Gutta sæðishrút. ![]() Botnleðja með boltana sína undan Ask. ![]() Nútella með lömbin sín undan Glám. ![]() Gimbrin. ![]() Hrúturinn. ![]() Flottar mæðgur Nútella og gimbrin hennar. ![]() Frenja með hrútana sína undan Ask. Hinn er botnóttur og er bak við þann hvíta. jæja Siggi fékk 13 rúllur af túninu heima hjá sér og þeir kláruðu það í kvöld. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 27.07.2018 00:22Heyjað í Kötluholti og ný lömb sjást.![]() Ljósbrá með hrútinn sinn undan Dranga sæðishrút og svo með gimbur sem gengur undir henni og er þrílembingur undan Dröfn og Berg sæðishrút. ![]() Skrúfa hans Sigga með lömb undan Drjóla. ![]() Frá Sigga Storð með gimbur undan Drjóla og svo eru tvær gimbrar undan Fönn og Hlúnk. ![]() Sarabía með hvíta gimbur undan Móra sæðishrút og svo er svartur hrútur undan Sölku sem gengur undir henni. ![]() Jökulrós með lömbin sín undan Kaldnasa. ![]() ![]() Hrúturinn á móti. ![]() Hyrna með hrútinn sinn undan Bjart sæðishrút. ![]() Hér sést hrúturinn betur. ![]() Flottir hrútarnir hennar Skrýtlu og undan Tinna hans Gumma Óla. ![]() Ég komin á gamla flotta Zetorinn og er að fara snúa inn í Kötluholti. ![]() ![]() Skessa hans Sigga. ![]() Gimbrin hennar Skessu sú golsótta og svo er hrútur undan Sprengju gemling sem gengur undir. Hann er undan Tinna hans Gumma Óla. ![]() Undan Frenju og Ask. ![]() Emil að rúlla inn í Kötluholti. ![]() Allt á fullu til að vera á undan rigningunni og það hafðist leið og seinasta rúllann kom út úr rúlluvélinni þá byrjaði að rigna. Þetta var á miðvikudagskvöldið. ![]() Bói að raka saman. ![]() Siggi að plasta. ![]() Hann var orðinn ansi þungur yfir en sem betur fer beið hann eftir okkur með að fara rigna og þegar við fóru yfir á hitt stykkið þá sneri ég á meðan þeir rúlluðu. Við fengum 23 rúllur af fyrsta stykkinu og 4 af litla og 25 af stóra stykkinu hér fyrir ofan. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. ![]() 26.07.2018 22:57Heyjað í Fögruhlíð og fleira![]() Verið að tættla heyjið inn í Fögruhlíð. ![]() Emil að raka saman fyrir framan sumarbústaðinn hjá Gunna Óla og Ástu í Fögruhlíð. ![]() Rákumst á Hrímu hennar Jóhönnu og gáfum henni brauð. ![]() Björg gemlingur með hrútinn sinn undan Ask og Morgunstjarna hennar Jóhönnu með gimbrar undan Gretti. ![]() Gurra gemlingur með lömbin sín undan Hlúnk. ![]() Morgunstjarna. ![]() Björg gemlingur með hrútinn sinn. ![]() Hríma hennar Jóhönnu með lömbin sín. ![]() Krakkarnir fundu þennan fína sílapoll til að veið síli. ![]() Hér erum við búnað raka frá Spóa hreiðri sem þeir voru næstum búnað slá en tóku eftir því sem betur fer og skildu það eftir. ![]() Hér eru þeir. ![]() Hér eru krakkarnir með ungan voða gaman. ![]() Botnleðja með lömbin sín. Mér finnst þau virka svo geðveikt þykk og falleg. Þau eru undan Ask. ![]() Gimbur undan Villimey og Ísak. ![]() Urður með hrútana sína undan Gutta sæðishrút. ![]() Gimbur undan Fíónu og Ísak. ![]() Hrúturinn á móti. ![]() Bói að koma með gamla djásnið fyrir mig svo ég geti farið að tættla í Kötluholti. ![]() Hrútur undan Hnotu hennar Jóhönnu og Berg sæðishrút og gimbrin er undan Skvísu og Klett sæðishrút. ![]() Dúfa hennar Jóhönnu með hrútana sína undan Móra sæðishrút. ![]() Svo flott. ![]() Hinn hrúturinn. ![]() Lömb undan Snædrottningu og Svan. ![]() Hér er Snædrottning. ![]() Grár hrútur frá Sigga. ![]() Hinn á móti. ![]() Hláka hans Sigga með lömb undan Gretti. ![]() Flottir hrútar frá Sigga ég náði ekki að sjá hvaða rolla þetta væri. ![]() Héla gemlingur frá Sigga með lömbin sín undan Glám. Þau ganga bæði undir. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. Það gekk vel hjá okkur að heyja í Fögruhlíð en það voru frekar blaut túnin. Það voru 38 rúllur á Fögruhlíðar Eyrunum og 6 rúllur af litla stykkinu við afleggjarann upp Fögruhlíð. 25.07.2018 00:13Öskubuska í sjálfhelduÞað skall heldur betur hurð nærri hælum hjá henni Öskubusku í gær. Við vorum á leiðinni að fara inn í Fögruhlíð að slá þegar við rákum augun í Öskubusku út í miðjum Ós niður við Tungu. ![]() Þarna sjáiði hana á eyrinni eftir að ég var búnað öskra á hana en hún var á smá blett þarna nær sem sést varla á þessari mynd en næsta mynd gefur til kynna hvar hún var. ![]() Þar sem örin bendir þar stóð hún fyrst og það er ágætlega djúpt þar í kring svo þær þurftu að synda út í eyrina. ![]() Hér er ég að reyna öskra á hana því oftast nær hefur það dugað þegar þær festast þarna. ![]() Jæja búið að sækja vöðlurnar og hér er Emil að klæða sig í. ![]() Virkar glæfralega djúpt og ekki lengra kominn en þetta. ![]() Þetta leit þó betur út en á horfðist því það eru svona hólar ofan í vatninu og það var grunnt inn á milli. Emil komst alveg yfir og leið og hann var kominn upp á grasið þá synti hún yfir í land svo allt endaði þetta vel. ![]() Hér var Emil að græja tindana a tættluna. Þetta var tekið áður en við fórum að byrja heyja. ![]() Emil og Bói að setja olíu á traktorana. ![]() Búið að slá og snúa stóra stykkið í Fögurhlíð. ![]() Hér er svo minna stykkið en það gefur yfirleitt vel af sér. ![]() Siggi að slá í Tungu. ![]() Gemlingarnir hans Sigga með lömbin sín. ![]() Emil og Bói að slá í Kötluholti. ![]() Stelpurnar alsælar í sveitinni. Fundu smá sílapoll til að veiða síli voða gaman og veiddu 11 síli. ![]() Dásamlegt veður loksins. ![]() ![]() Nál með gimbrina sína og hin er fyrir aftan hana. ![]() Villimey með gimbur undan Ísak. ![]() Hrúturinn á móti. ![]() Hrútur og gimbur undan Bifröst og Gutta sæðishrút. ![]() Tunga með hrút undan Bjart sæðishrút. ![]() Sami hrútur. ![]() Dröfn með þrílembingana sína sem ganga tveir undir og eru undan Berg sæðishrút. Dollý hans Sigga þessi kollótta er þarna með henni á myndinni. ![]() Hér er önnur mynd af þeim. ![]() Kvika með gimbur og hrút undan Klett sæðingahrút. ![]() Önnur mynd af þeim. ![]() Hrúturinn hennar Tungu og Bjarts sæðingarhrúts. ![]() Smá prufu mynd af Donnu hún var alltaf fyrir þegar ég var að taka myndir. ![]() Hér er hún svo blörruð og sólarlagið og kindurnar í fókus. Jæja það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 24.07.2018 23:31Útilega á SelfossSkelltum okkur í útilegu á Selfossi með Steinari , Unni og börnunum. Það var mjög gaman þó svo að það hafi verið rigning mest allann tímann. Við fórum í sund á Selfossi og kíktum í Slakka dýragarðinn. Vorum frá fimmtudegi til sunnudags. ![]() Út að borða á KFC á Selfossi. ![]() Freyja á KFC. ![]() Benóný, þau fengu öll derhúfu voða lukkuleg. ![]() Benóný að hafa það kósý í hjólhýsinu. ![]() Emil með Emblu og Birgittu. ![]() Fyrsta útilegan hjá Kamillu Rún Steinarsdóttur. ![]() Á leiðinni í Slakka. ![]() Í Slakka Freyja, Birgitta,Embla og Benóný. ![]() Freyja með naggrís. ![]() Embla með páfagauk. ![]() Og Freyja og Birgitta. ![]() Benóný lika með hann. ![]() Hérna voru hvolpar. ![]() Með kanínur. ![]() Birgitta með einn á hausnum. ![]() Alexander Ísar Steinarsson. ![]() Embla var yfir sig hrifinn af þessari hænu. ![]() Hér eru þær saman frænkurnar með hænuna. ![]() Benóný í mínigolfi í Slakka. ![]() Töff haninn í Slakka. ![]() Hér endaði svo ferðalagið okkar í Slakka og þá lá leiðinn heim að fara heyja. Benóný var ekki sáttur því hann átti eftir að fara í sund á Laugarland og Reykholt svo það verður að bíða til næstu útilegu að fara í þær. Það var nefnilega sunnudagur þegar við vorum á ferðinni og þá loka sundlaugarnar svo snemma að við náðum ekki að fara í þær þegar við vorum búinn í Dýragarðinum Slakka. Það eru svo fleiri myndir af ferðalaginu okkar hér inn í albúmi. 19.07.2018 12:03Rúntur 18 júlíJæja þetta hafðist hjá þeim að klára að binda allt heyjið. Þetta var frekar minna en fyrra en það voru 11 rúllur af Gilinu, Túnið hliðina á Gilinu eru 3, Hliðina á fjárhúsinu í Mávahlíð voru 7 og í Mávahlíðinni voru 13 svo alls voru þetta 34 rúllur. Það er svo ekki útlit fyrir að fara slá meira alveg strax því nú spáir hann áfram rigningu um helgina. ![]() Hrútur undan Mjallhvíti og Hlúnk hans Sigga. ![]() Hér er Mjallhvít með lömbin sín. ![]() Næla. ![]() Hrútur undan Svan og Nælu. ![]() Hinn á móti. ![]() Hérna eru þeir saman virka vel þykkir og flottir. ![]() Svakalega fallegur á litinn þetta er hrútur frá Gumma Óla í Ólafsvík. ![]() Hitt á móti. ![]() Hér er kindin hans Gumma með lömbin. ![]() Glittir í lömbin hannar Þoku. ![]() Hosa með sín lömb undan Grettir. ![]() Hér sést önnur gimbrin betur. ![]() Sóldögg með gimbranar sínar. ![]() Önnur gimbrin hannar Sóldögg og Ísak. ![]() Hin gimbrin hennar Sóldögg. ![]() Undan Hexíu og Ísak. ![]() Hin gimbrin á móti. ![]() Hrútar undan Skrýtlu og Tinna hans Gumma Óla. Svo flottir. ![]() Hér eru þeir. ![]() Hér er Skrýtla mamma þeirra. ![]() Litla Gul með hrút undan Skuggadís þennan gráa og svo gimbrina sína undan Ask. ![]() Held að þessi golsótta verði svakaleg gimbur hún virkar rosalega þykk. ![]() Hér er ein frá Gumma Óla. ![]() Aðrar frá Gumma Óla. ![]() Hér sést það betur. ![]() Annað frá Gumma. ![]() Frá Gumma. ![]() Litla krúttið sem fær greinilega ekki mikið hjá rollunni. ![]() Hér er litla sílið og svo hrútur og rolla frá Sigga. ![]() Hér er Björg gemlingur með lambið sitt hún er einmitt mamma litla lambsins sem gengur undir hjá hinni rollunni. ![]() Þetta verður örugglega vænasta lamb hjá henni. jæja læt þetta duga í bili af rollu rúntinum. það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. 18.07.2018 01:53Heyjað langt framm á nóttÞað byrjaði ekki vel hjá okkur önnur rúllan sem átti að fara í plast fór ekki strax í plast heldur affelgaðist dekkið á plastaranum. Alltaf svo gaman þegar byrjar allt á afturfótunum og þá er engin sem andmælir því að bölva því. ![]() Hér má sjá dekkið en til allra lukku tók ekki mikinn tíma að tjakka upp vélina og Siggi og Emil kipptu því undan og svo náðist að koma því á og setja meira loft í dekkið. Ég byrjaði auðvitað á að plasta fyrstu rúlluna og fór af stað á traktornum og fattaði ekkert að horfa eftir því hvort væri lint í dekkinu eftir að hann væri búnað standa í geymslu yfir veturinn svo það hefur örugglega verið orsökin fyrir því að dekkið fór svona. En engin skaði skeður fyrst þetta reddaðist svona fljótt. Ég fór heim að hugsa um krakkana og Bói var búnað vinna og kom til að hjálpa. ![]() Hér er verið að byrja. Siggi á plastaranum, Emil á rúlluvélinni og Bói á rakstrarvélinni. ![]() Allt komið í lag og verið að rúlla Mávahlíðina. ![]() Farinn að þykkna upp með kvöldinu. ![]() Benóný og Embla dugleg að hjálpa til. ![]() Byrjað í brekkunum í Mávahlíðinni. ![]() Stelpurnar duglegar að merkja rúllur. ![]() Túnin eru ansi blaut á ýmsum stöðum í ár. ![]() Það var fjör í sveitinni hjá Freyju ömmu þennan langþráða sólardag. ![]() Auðvitað var tekið myndir af lömbum sem við rákumst á í dag. Hér eru tveir hrútar undan Hriflu og Tvist sæðingar hrút. ![]() Hér er hún Hnota hennar Jóhönnu að koma hlaupandi til krakkana eftir að þeir voru búnað hrista brauðpoka. ![]() Svo gaman hjá þeim. ![]() Hér eru lömbin hennar hrúturinn er sæðingur undan Berg og gimbrin er undan Skvísu og Klett sæðingar hrút. ![]() Hrúturinn undan Berg sæðingar hrút. ![]() Þrílembingur undan Skvísu og Klett sæðingar hrút. ![]() Vala hans Sigga með gimbur undan Korra. ![]() Hrúturinn undan Völu og korra. Korri er Garra sonur. ![]() Jæja náði loksins mynd af veturgömlu hrútunum hér er Svanur undan Svönu og Máv. ![]() Hlúnkur hans Sigga undan Skessu og Máv. ![]() Hér eru þeir saman. ![]() Nál með lömbin sín undan Tinna hans Gumma Óla. ![]() Bifröst með lömbin sín undan Gutta sæðingar hrút. ![]() Hér er Nótt hans Sigga með hana Emblu eins og dóttir mín skírði hana he he. Embla er þrílembingur undan Klett sæðingar hrút. Jæja ég er að klára þetta blogg núna klukkan hálf 3 um nótt 18 júlí og enn er Emil ekki kominn heim svo þeir eru enn að klára heyja og nú ætla ég að segja þetta gott og segi bara góða nótt . Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi. 17.07.2018 00:15Þurrkað af krafti og sílaveiði með krakkanaÞað var þurrkað og þurrkað heyjið í dag og túnin eru ansi blaut. Ég þurfti að raka heilmikið af túnunum í Mávahlíð og fékk Freyju tengdamömmu með mér með krakkana. Hann er aftur búnað breyta spánni og nú á hann að fara rigna á miðvikudaginn svo það verður reynt að gefa allt í botn og binda það sem búið er að slá. ![]() Emil að tættla. ![]() Hér sést yfir Mávahlíðina og Siggi er að vinna við að skipta um þak með Jóni smið og Emil er svo að tættla þarna fyrir neðan við vaðalsbakkann. ![]() Það hefði mátt vera aðeins meiri sól í dag en það rættist þó úr því þegar leið á seinni partinn og þá kom líka gustur með þvi svo það hefur þurrkað vel. ![]() Hérna er Bói að raka saman. ![]() Það er mikið sport hjá krökkunum að fá að sitja í traktornum hjá Bóa afa en þar er spes barnasæti. ![]() Jæja nú er sólin loks farin að láta sjá sig. Hér er Alex stoltur í traktornum með afa sínum. Alex er sonur Unnar og Steinars bróðir Emils og eru þau hérna fyrir vestan núna. ![]() Hér er amma Freyja og Steinar að veiða síli með krökkunum. ![]() Steinar, Bjarki og Alex. ![]() ![]() Birgitta, amma Freyja, Embla og Alex. ![]() Freyja og Alex. ![]() Kamilla litla sú yngsta hjá Steinari og Unni fékk líka að koma með og var í bílnum hjá mömmu sinni. ![]() Rakst á þessar gimbrar þær eru sæðingar undan Klett og Skvísu. Fæddir þrilembingar en ganga tvær undir Skvísu. ![]() Skvísu gimbrar og svo hrútur frá Sigga þessi hvíti og þetta litla botnótta var vanið undir og rollan tók því ekki alveg svo það sést á vextinum að það fær örugglega ekki mikið að sjúga hana en fylgir henni. ![]() Jæja læt þetta duga af bloggi í bili . Flettingar í dag: 665 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 4577 Gestir í gær: 153 Samtals flettingar: 1554715 Samtals gestir: 77919 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:13:35 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is