Þann 11 júní var Benóný Ísak fengin til að koma og vígja rennibrautina í Ólafsvík sem hann á mikinn þátt í að hafi komið með samvinnu við Kristinn bæjarstjóra og Kristfriði Rós íþrótta og æskulýðsfulltrúa Snæfellsbæjar. Þetta var búið að vera langþráður draumur að fá að taka þátt í að velja og koma hugmyndum sínum að rennibraut fyrir Ólafsvík. Svo þetta var stór og mikill dagur í hans lífi að fá að klippa á borðann með Kristinn þegar rennibrautin var opnuð formlega og svo tilkynnti hann einnig nafn rennibrautarinnar sem er Hvellur og það var einnig eitt af þeim nöfnum sem hann hafi komið með í hugmyndabankann sem var svo valið úr. Ég náði ekki að vera viðstödd en fékk myndir og snap af honum því ég var með Freyju á fótboltamóti í Vestmanneyjum og við erum alveg rosalega stolt og ánægð af honum Benóný að fá þennan heiður.
Hér er svo Benóný og Kristinn að klippa á borðann.
Hér er svo Benóný Ísak við rennibrautina.
Hér eru krakkarnir með hænu ungana hjá Freyju og Bóa í Varmalæk.
Hér erum við komin út í Vestmanneyjar á Tm mótið og hér er liðið sem Freyja er í.
Hér eru þær allar saman ásamt þjálfurunum. Þeim var skipt í tvo lið 1 og 2.
Hér er Freyja að spila.
Flott hérna hún Freyja Naómí.
Við Embla gistum í svona tunnu út í dal í tvær nætur og tókum svo tvær nætur í íbúð sem ég fékk og það var mjög fínt. Við fórum til Vestmanneyjar á þriðjudagskvöld svo ég gæti komið með bílinn í bátinn og Freyja gisti með okkur fyrstu nóttina en svo gisti hún í skólanum hinar næturnar. Við vorum búnað græja okkur vel því það spáði rigningu og roki en það slapp svo ágætlega það rigndi mest fyrstu dagana en svo fengum við sól og rok einn dag og svo einn dag sem var bara mjög gott veður. Á seinasta deginum fór ég snemma um morguninn með bilinn yfir í landeyjarhöfn og tók svo Herjólf aftur til Vestmanneyja og við vorum fótgangandi restina af deginum og tókum svo bátinn allar saman þegar Freyja var búnað keppa seinni partinn og það gekk allt saman vel og við keyrðum svo vestur um kvöldið.
Hér er svo ein hópmynd af þeim svo flottar stelpur áfram Snæfellsnes.
Hér er verið að spila úrslitaleikina og það var alveg æðislegt veður.
Ronja Rós tók þátt í landsbankahlaupinu á 17 júní.
Ronja Rós bjó til þessa fallegu afmælisköku fyrir mig á afmælisdaginn minn 17 júní.
Við fórum til Reykjavíkur 20 júní og Emil fór í Slysavarnaskóla sjómanna og við gistum í ibúð í bænum sem var alveg niður í bæ og rétt hjá þessari sundhöll í Rvk sem Benóný er búnað langa að prófa mjög lengi og núna varð sá draumur að veruleika og við fórum í Sundhöll Reykjavíkur og hún var mjög kósý og fín og hann var mjög ánægður með hana og fór oft á risastóra stökkbrettið sem er þar.
Hænu ungarnir stækka hratt og hér er Embla með einn að gefa honum brauð .
Ronja elskar að vera með ungana.
Það er nú varla frásögufærandi að við mamma fórum í kirkjugarðinn á Brimisvöllum og settum engla hjá pabba og Steina og þá var snarbrjálaðar kríur sem ætluðu að gogga í mömmu og hún fékk engan frið og það endaði með að ein kom og kúkaði á hausinn á henni þær voru alveg rosalega ágengar svo tókum við eftir að það var búið að brotna skiltið hans pabba með nafninu hans það hlýtur að hafa fokið eitthvað á það og brotið það. En við mamma skemmtum okkur vel eða allavega ég var að kafna úr hlátri þegar krían skeit á hana he he alveg ótrúlegt og þær voru ekki eins brjálaðar við mig kanski því ég var með svarta derhúfu en þetta var eftirminnileg ferð og ekki annað hægt en að hlæja af þessu.
Þessi mynd var tekin seinnipartinn 26 júní og má segja að það sé eini dagurinn í langann tíma sem var svona góður sumarið hér er búið að vera mjög hráslegt og leiðinlegt og vona ég svo innilega að það fari að koma til okkar.
Við Emil áttum svo 9 ára Brúðkaupsafmæli 27 júní og var þessi mynd tekin við fossinn inn í Mávahlíð þar sem brúðkaupið okkar fór fram.
Þá er komið að næstu fótboltaferð en nú er ferðinni okkar heitið til Ísafjarðar og hér erum við um borð í Baldri.
Emil fór út með Ronju Rós því hún ældi tvisvar var svo sjóveik.
Við ákváðum að keyra firðina og hér er Patreksfjörður og við keyrðum aðeins um þar og tókum bryggjurúnt sem er skylda í hverjum bæ fyrir Emil.
Keyrðum að sundlauginni í Tálknafirði en rennibrautin var lokuð svo við slepptum því að fara í hana.
Svo hélt leið okkar áfram.
Fórum í þessa náttúrulaug í staðinn fyrir Tálknafjörð og hún er alveg æðisleg aðeins lengra en Bíldudalur.
Svo eru svona hlaðnir pottar líka.
Hér erum við komin á Flateyri en við gistum þar í sumarhúsi gegnum booking og það var mjög fínt.
Hér erum við í kvöld göngutúr.
Það hefði mátt vera hlýrra en það var allavega gott veður en eins og sjá má erum við kappklædd.
Það var einhver bæjarhátíð í gangi á Flateyri þegar við vorum þar og við tókum rölt um svæðið og krakkarnir fóru í hoppukastala og svo fengum við okkur að borða það var verið að selja tælenskan mat og grillaðar pyslur og svo var svona útimarkaður með allskyns vörum til sölu.
Hér erum við komin upp á hið fræga Bolafjall og Benóný leist ekkert allt of vel á það og lét sig nú samt hafa það að fara aðeins út en var eins og ég að deyja úr hræðslu að keyra upp fjallið en það finnst mér verst að vera í bíl að fara upp og niður en ef ég þyrfti að labba væri það ekkert mál enda alvön að smala upp um öll fjöll. En þetta er alveg rosalega hátt og útsýnið alveg sturlað.
Hér erum við á útsýnispallinum.
Emil er mjög lofthræddur en fór samt og fannst þetta alveg magnað en jafnframt ógeðslegt he he.
Sést kanski ekki eins vel á myndinni eins í alvöru en hér erum við að keyra niður og hér sést hvað við erum hátt uppi fyrir ofan næstu fjöll sem sjást hér ofan á þau.
Þetta er Bolafjallið sem við vorum ofan á svo þið sjáið hvað þetta er gríðalega hátt og stórt fjall.
Það er fyrir ofan Bolungarvík og svo fórum við auðvitað í sundlaugina á Bolungarvík.
Við fórum svo í aðra nýja sundlaug en það var sundlaug Suðureyrar og hún var mjög kósý og fín.
Við fengum æðislegt veður á sunnudeginum 30 júní þegar Freyja var að keppa. Þeim gekk mjög vel þær unnu tvo leiki og töpuðu einum mjög flott hjá þeim.
Þær spiluðu á Ísafirði.
Hér er Freyja að fara skjóta á markið.
Freyja í harðri sókn.
Við gistum svo eina nótt í viðbót og tókum íbúð eða lítin bústað inn á Ísafirði og héldum svo heim á leið á mánudeginum 1 júlí og komum við á Súðavík í Raggagarð sem er alveg æðislegur garður fyrir krakkana og þeim fannst það mjög gaman.
Hér er hluti af garðinum svo flott leiktæki.
Benóný Ísak í Raggagarði.
Komum við hér á leiðinni heim og þetta er Litlibær í Skötufirði og var byggður 1895 og þar bjuggu tvær fjölskyldur og það var mjög gaman að koma þarna og sjá hvernig þetta var mikið af gömlu dóti frá þessum tíma og við fengum svo að setjast á efri hæðina og fengum dýrindis vöfflur og heitt kakó og kaffi alveg yndislegt að koma þarna við.
Hér erum við uppi að borða og skoða.
Við keyrðum fram hjá þessari náttúrulaug en hún heitir Hörgshlíðarlaug en það voru nokkrir í henni svo við fórum ekki í hana heldur ákváðum að keyra hringinn um fjörðinn.
Komum þá að þessari náttúruparadís í Heydal og fengum að borga okkur inn í sundlaugina sem var alveg æðisleg allt í trjágróðri sem er verið að rækta í gróðurhúsi sem er með sundlaug þetta er í botni Mjóafjarðar og svo er heitur pottur inni líka og svo hlaðnir náttúrupottar úti og svo er hægt að labba lengra og fara í aðra náttúrulaug en við fórum ekki í hana en eigum klárlega eftir að fara þarna aftur prófa þá að gista og prófa veitingarstaðinn sem leit rosalega vel út og svo er hægt að fara þarna á tjaldstæði eða fá gistingu. Benóný var búnað sjá þessa sundlaug á netinu og við vorum alveg hundrað prósent á því að finna hana og prófa.
Krakkarnir voru alveg að elska þennan kaðal sem hægt var að sveifla sér í og láta sig detta í laugina.
Svo er þessi heitipottur inni líka.
Þessir heitupottar eru svo hlaðnir með steinum og eru fyrir utan sundlaugina.
Hér eru Freyja og Ronja að taka sandinn úr botninum og leika sér.
Hér er mynd af Freyju þegar hún var að keppa á Ísafirði.
Jæjaj þá er ég búnað koma flestu fyrir hér sem er búiða að vera gerast hjá okkur í júní.
Arfgerðarsýnin eru svo komin hjá okkur og komu bara mjög vel út.
R 171 eru 10 gimbrar og 17 hrútar
H 154 eru 19 gimbrar og 14 hrútar
C 151 eru 4 gimbrar og 2 hrútar
N 138 eru 7 gimbrar og 4 hrútar
T 137 er 1 gimbur og 1 hrútur
Í heildina eru 73 gimbara og af þeim eru 40 með breytileika og 33 hlutlausar
Í heildina eru 70 hrútar og af þeim eru 38 með breytileika og 32 hlutlausir
Við vorum svo áfram óheppin þegar leið á sumarið við misstum tvær kindur í viðbót það var Dorrit hans Kristins hún hefur fengið bráðajúgubólgu og fannst dauð svo var það gemlingur frá okkur hún Bessa hún fannst dauð og hefur líklegast verið keyrt á hana. Svo héldum við einum gemling eftir í girðingunni en hún var komin með júgurbólgu líka og fékk pensilin kúr en hún á ekki eftir að ná að lagast greyjið svo hún mun örugglega vera ónýt og það er hún Lína undan Hnaus sæðingarstöðvarhrút og það er mjög leiðinlegt hún er svo stór og falleg og lofaði góðu sem framtíðarær.
En það er búið að vera allt til friðs eins og er og vona ég svo innilega og bið að það muni haldast og þau fái nú að dafna vel í sumar og koma falleg heim í haust lömbin því við sáum mikið af þeim eftir rigningar tímabilið mikla í byrjun júni að mörg lömb voru með skitu og hefur það örugglega verið fóðurtengt því gróðurinn fór hægt af stað en hefur svo tekið við sér og þá voru bæði kindurnar og lömbin með mikla skitu en ekki hefur þetta verið hníslasótt því þau eru öll búnað ná sér núna og orðin þurr að sjá svo ég ætla bara vera bjartsýn og vongóð að þetta verði allt í góðu hjá okkur núna.
Sauðburður hófst hjá okkur 26 apríl og lauk 24 maí. Þetta var mjög krefjandi sauðburður í ár og hefur ekki gengið svona illa hjá okkur síðan við byrjuðum mætti segja við vorum alveg einstaklega óheppin í ár. 3 kindur fórust á þessum sauðburði þær fengu svo heiftarlegan doða og við brugðumst skjótt við honum en náðum ekki að komast í veg fyrir það tvær fengu doða eftir burð og ein fékk doða fyrir burð og drapst áður en hún bar. Í kjölfarið af þessu virtist doðinn vera frekar smitandi og margar ær fengu doða eftir burð en náðu sér fljótt. Við misstum 13 lömb í allt það var bæði erfið fæðing og afturfótafæðingar sem voru erfiðar. 2 lömb fengu slefsýki og náðist ekki að bjarga þeim. En að öðru leiti voru lömbin frísk og mjög jöfn og frekar í stærri kantinum. Það var einn gemlingur sem kom með tvö lítil síli og í fyrsta sinn gaf Siggi einu lambi með magaslöngu og svo kom annað lamb sem átti erfiða fæðingu og var tekið heim til að hlýja því og hann gaf því með magaslöngu og það náði sér alveg svo það var mjög gott og kom á óvart hvernig er hægt að bjarga þeim með því að meðhöndla það svona. Ein tvævettla var að eiga í fyrsta sinn og kom það á afturfótum fyrst stór hrútur og átti hún mjög erfiða fæðingu svo daginn eftir byrjaði legið á henni að hvolfast út og ég náði að ýta því inn og setja spaða í hana og hún náði sér svo eftir nokkra daga svo var annar gemlingur sem lenti í þessu líka að það þurfti að setja spaða líka í hann svo það má segja að það hafi gengið á ýmsu hjá okkur þennan sauðburðinn.
Sæðingarnar komu vel út og fengum við auka lamb úr einni sem átti að vera með 3 og kom með 4 svo það voru í heildina 3 kindur sem komu með 4 lömb og það lifði allt hjá tveim en hjá einni drapst eitt lambið það drukknaði í belgnum inn í henni hann var svo þykkur utan um það. Við vorum mjög dugleg að venja undir og það gekk allt saman vel. Við þurftum að venja tvö lömb undir tvær tvílembur því ein ærin sem drapst var með tvö lömb og við tókum sitthvort lambið hjá henni og settum undir þær svo þær eru með 3 undir sér og þær eiga eftir að plumma sig vel því þetta eru mjólkurmiklar ær.
Af sæðingunum voru alls 5 lömb undan Styrmi, 3 undan Úlla, 4 undan Gullmola, 6 undan Jór, 1 undan Laxa, 2 undan Tjald, 2 undan Stein, 1 undan Glitra, 1 undan Anga, 2 undan Bjarka.
Ronja Rós ánægð í nýja KB gallanum sínum.
Það varð risa skriða yfir gamla veginn við Búlandshöfðann í apríl og það var þetta stóra grjót og svo var vegurinn alveg ófær lengra .
Hér sést skriðan yfir veginn. Núna í dag er búið að laga þetta og hægt er að keyra veginn.
Raketta gemlingur var fyrst til að bera grári gimbur undan Úlla sæðingarstöðvarhrút.
Lára með tvær gimbrar undan Styrmi sæðingarstöðvarhrút hún bar 28 apríl.
Dögg með tvo hrúta undan Gullmola sæðingarstöðvarhrút.
Díana fékk svo mikinn stálma fyrst að það þurfti aðeins að gefa lömbunum pela fyrstu dagana.
Allt orðið klárt kaffi kannan og hilla komin upp fyrir dót.
Agúrka gemlingur frá Emblu með lömbin sin undan Grím hans Sigga.
Hér er eitt kraftaverka lamb sem var undan gemling mjög erfiður burður og var nánast dautt þegar það kom út en við náðum lífi í það og svo tók Siggi það með heim til sín og gaf því svo í gegnum magaslöngu og það náði sér alveg.
Panda með lömbin sín undan Tjald sæðingarstöðvarhrút.
Ronja dugleg að hjálpa til þetta lamb var svo lengi að komast á lappir að það þurfti að blása það svo það myndi ekki kólna niður.
Stelpurnar svo duglegar í fjárhúsunum.
Elísa hans Kristins með fjórlembingana sína tvær gimbrar og tvo hrúta undan Sóla heimahrút.
Hér eru stelpurnar með fjórlembingana undan Elísu.
Hér er svo Dorrit hans Kristins líka með fjórlembingana sína og það er sama uppskríft tvær gimbrar og tveir hrútar.
Það var vanið undan Elísu tvö og eitt undan Dorrit svo Dorrit var með 3 og Elísa 2 en þegar við vorum búnað sleppa út missti Dorrit eitt lambið sitt það hafði drukknað í skurði svo hún verður með tvö undir sér í sumar.
Lömbin eru svo svakalega gæf hjá okkur hér eru stelpurnar að klappa þeim.
Ronja Rós með lambið sitt.
Emil og Kristinn að klaufsnyrta í fína stólnum sem Bói bjó til fyrir okkur fyrir nokkrum árum.
Þetta er allra minnsta lamb sem við höfum fengið og það náði ekki upp í spena svo það þurfti að gefa því með magaslöngu.
Það náði að lifa í nokkra daga og var farið að koma kraftur í það en fékk svo slefsýki og dó úr því.
Skemmtilegur litur á þessum lambhrút.
Lára er með mjög fallegar gimbrar undan Styrmi sæðingarstöðvarhrút.
Gyða Sól er með mjög falleg lömb undan Klaka.
Fyrsti og annar bekkur komu í heimsókn í fjárhúsin og Selma vinkona mín hjálpaði mér að taka á móti þeim.
Þau voru mjög ánægð að skoða lömbin og svo gáfum við þeim ís áður en þau fóru heim.
Ronja og Salka vinkona hennar að skoða lömbin.
Mamma hefur það gott á dvalarheimilnu og fagnaði 74 ára afmæli þann 18 maí og við fórum með hana út að borða á Skerinu.
Hænu ungarnir hjá Freyju og Bóa þeir komu 17 maí.
Freyja að tala við Snærós og hún er svo gjæf að hún kemur til hennar úti.
Við misstum hana Hrafney okkar hún var ein af þeim kindum sem dóu núna á sauðburði svo var það Klara og Birta og við eigum eftir að sjá mikið eftir Hrafney hún var ein af þeim kindum sem ég gat labbað að þegar hún var úti og kallað á hana þá kom hún langa leið frá bara til að fá klapp.
Við hjónin á leiðinni á sjómannahóf á sjómannadaginn.
Við tókum sýni úr öllum lömbum sem gátu verið með breytileika og verndandi arfgerð og ég er búnað senda það inn svo það verður næsta spenna að bíða eftir því hvernig það kemur út.
Jæja þá hef ég loksins gefið mér tíma til að koma þessu bloggi inn hjá mér enda búið að vera nóg að gera eftir að við komum heim frá Tenerife skall sauðburður fljótlega á.
Þessi Teneferð var sú allra kaldasta sem við höfum farið í og mikið rok en það var mjög ljúft að komast aðeins í frí og ekki var veðrið skárra heima um páskana það var mjög kalt og leiðinlegt svo við vorum ekki að missa af neinu. Við byrjuðum á að fara á GF Viktoría hótel og það var alveg geggjað og klárlega það flottasta sem við höfum farið á. Benóný var alsæll með garðinn enda margar rennibrautir og svo var hægt að fara í allskonar afþreyingu eins og klifurhús og krakkaklúbb sem höfðaði fyrir allan aldur en þau voru nú ekki alveg tilbúin að fara í hann en Benóný fór aðeins í smá tölvukvöld þá var hægt að fara og spila leiki og svona. Mér fannst líka æðislegt að þú gast farið í tennis og minigolf og það kostaði ekkert var bara innifalið með hótelinu. Við vorum á þessu hóteli í 6 daga og fórum svo yfir á Amerísku og vorum þar í 6 daga og það var hótel Cleopatra palace og það var allt annar standard miðað við hitt en staðsettningin var mjög góð alveg á laugarveginum og við ströndina en veðrið var stundum svo kalt og mikið rok að við vorum ekki mikið í garðinum fórum freka niður á strönd það var hlýrra þar en við áttum mjög góðan tíma saman sem fjölskylda og spiluðum mikið saman á kvöldin og svo var Karítas frænka og Danni kærasti hennar líka úti með foreldrum Danna og við hittum þau og fórum með þeim í Siampark og keyptum tvöfaldan fast pass fyrir Benóný svo hann gat farið í allar rennibrautirnar eins oft og hann vildi og Danni var alveg í uppáhaldi hann var svo duglegur að fara með krökkunum. Sem betur fer fengum við heitt og gott veður þegar við vorum þar svo allir gátu notið sín vel og Ronja fór í minni rennibrautirnar og fannst það alveg æði. Við fórum líka í Monkey park með Ronju svo hún gæti fengið að gefa dýrunum að borða og sjá alla apana það var mjög gaman.
Hér erum við á GF Victoria costa adeje og Ronja mjög ánægð með garðinn.
Benóný var mjög ánægður en hefði viljað hafa aðeins heitara það var frekar kalt að koma upp úr sérstaklega ef það var mikið rok og lítil sól.
Skemmtileg mynd af þeim og hér var hlýr og góður dagur. Bekkirnir voru æðislegir eins og sjá má þykkar dýnur og þú fékkst alltaf ný handklæði og það var ekkert vesen að fá bekki því það er ekki þetta kapphlaup að taka frá því ef þú varst ekki á bekknum var handklæðið bara tekið svo það var ekki hægt að taka frá og mæta svo löngu seinna.
Benóný með bestu frænku sinni Karítas Bríet.
Hér má sjá hluta af rennibrautunum sem eru í garðinum.
Hér eru yndislegu börnin okkar.
Ronja fór í froðupartý svaka stuð.
Þetta var mjög gaman fyrir þær og svo sniðugt að hafa svona alskonar fyrir krakkana.
Hér er Emil og Ronja í barnalauginni.
Þetta var svona líkan af hótelinu og þetta er einn hlutinn við vorum einmitt smá stund að fatta hvar rennibrautirnar væru því hótelið er svo stórt og margar sundlaugar.
Hér er hinn hlutinn svo var líka sundlaug upp á þaki fyrir fullorðna ef þeir vildu slaka á og svo var sundlaug með glerbotni á efstu hæð en við fórum aldrei þangað enda má bara fullorðnir fara þangað.
Herbergin voru mjög flott þetta er stofan og svo var flatskjár sjónvarp og klósett frammi og svo líka inn af svefnherberginu. Við þurftum að taka tvö herbergi því það meiga bara vera mest 4 í hverju herbergi.
Hér er svo svefnherbergið og það er líka með sjónvarpi og mjög stóru rúmmi við sváfum stundum allar fjórar saman í því stelpurnar.
Hér erum við komin á hitt hótelið og Embla fékk afmælisköku og sungið fyrir hana afmælissöng þegar hún átti afmæli 28 mars.
Stelpurnar elskuðu að fara niður á strönd og ströndin var bara beint fyrir neðan hótelið.
Embla orðin 13 ára skvísa og hún fékk þessa poló peysu frá okkur í afmælisgjöf.
Hér sést stíllinn á hótelinu svona prinsessu stigar og eins og að vera á borð í skemmtiferðaskipi.
Hér er sushi veisla hjá okkur á Cleopatra hótelinu og eins og sjá má var það allt öðruvísi en hitt hótelið þetta var frekar gamaldags en svona prinsessustíl en alveg komið til ára sinna orðið frekar sjúskað en það á að fara taka það allt í gegn í sumar.
Hér erum við komin í Monkey park.
Hér eru allir saman með páfagauk.
Benóný og Ronja saman.
Embla og Freyja á hótelinu okkar.
Hér eru skvísurnar búnað grafa Ronju ofan í sandinn.
Ronja komin í klandur he he að hlaupa á undan öldunni í land.
Benóný og Karítas við fórum í minigolf saman.
Svo var farið í þetta líka og það var mjög skemmtilegt alveg órtúlegt hvað þetta er raunverulegt svona sýndarveruleika rússíbani.
Þá erum við mætt í Siampark og var það algerlega toppurinn á ferðinni fyrir Benóný.
Páskamáltíðin okkar var tekin á MC donalds með Köru og Danna.
Emil fagnaði svo afmælinu sínu líka 1 apríl og fékk blöðru og köku í tilefni dagsins.
Fórum í minigolf seinasta kvöldið.
Önnur mynd af okkur í minigolfinu.
Jæja þá er þetta ævintýri að taka endi og við að fara græja okkur upp á flugvöll.
Við héldum svo smá páska þegar við komum heim og keyptum páskaegg fyrir alla og földum þau og hér eru allir búnað finna sín egg.
Við komum heim aðfaranótt 3 apríl og þetta tók við 5 apríl fór allt á kaf og snjóaði mestan snjó sem komið hefur í vetur svo við fengum alvöru vetur leið og við komum heim he he.
Jæja þá er þetta loksins komið í lag hjá mér ég er búnað vera í vandræðum með tölvuna og myndirnar mínar því þær breyttust yfir í HEIC file og ég þurfti að kaupa mér forrit til að converta þeim yfir í JPG svo ég gæti komið þeim hér inn á síðuna og þetta er búið að taka mig svo langann tima að fatta hvað ég átti að gera til að geta breytt þeim yfir í JPG file en núna er það loksins komið. Í janúar fór Embla Marína okkar á Reyki með skólanum og kom unglingur til baka he he . Siggi og Kristinn settu vír og rör í hornin á lambhrútunum til að venja hornin á þeim. Ég ætla taka stutta upprífjun á þvi sem er búið að vera gerast hjá okkur frá janúar til dagsins í dag.
Erika og Embla vinkonurnar að fara í skólaferðalag á Reyki
3 febrúar fór að snjóa mikið og skaflar út um allt og óvenju miklir skaflar bak við hús hjá okkur og alveg upp að pallinum. Krakkarnir njóta sín vel og bjuggu til snjóhús og fengu heitt kakaó úti voða kósý stemming.
4 febrúar gerði svo mikinn skafl inn í Tungu fyrir hlöðudyrnar að Siggi þurfti að moka frá með traktornum til að geta tekið moðið út.
Kristinn og bróðir hans eru þarna í dyragættinni að fygjast með.
Ronja Rós var ánægð með snjóinn og fór að renna inn í Tungu.
Erika og Embla inn í sveit hjá Freyju og Bóa að búa til snjóhús.
Sunnudaginn 4 febrúar hófst mikill eltingarleikur við lamb gimbur sem var frá Friðgeiri á Knörr.
Kristinn og Siggi eru búnað vera svakalega duglegir í allann vetur að fara í göngur og ná í útigöngu fé sem hefur verið erfitt að ná heim.
Lambhrúturinn á móti þessari var kominn inn í Tungu og svo sást til þessara gimbur fyrir ofan Varmalæk hjá Freyju og Bóa og hún tók á rás alla leið lengst fyrir ofan Geirakot og náðist
þar niður við læk með hjálp Lalla á Hellissandi og hund sem hann var með náðu Siggi og Kristinn að handsama hana og teyma hana niður að veg.
Henni var svo skellt í skottið á bílnum hjá Kidda og keyrð inn í Tungu.
Hér eru þau svo sameinuð og líta bara nokkuð vel út þrátt fyrir að vera búnað vera úti allann þennan tíma.
Fósturtalning fór fram 10 febrúar og Guðbrandur kom og sónaði hjá okkur.
Eldri ær alls 47
2,13 meðaltal
7 með 1
29 með 2
9 með 3
2 með 4
2 vetra ær alls 17
1,88 meðaltal
2 með 1
15 með 2
Gemlingar alls 19
1,37 meðaltal
12 með 1
7 með 2
Heildartala fóstra er 158.
Af væntanlegum sæðingar lömbum frá hrútum er staðan svona:
Jór 6 fóstur
Tjaldur 2 fóstur
Angi 2 fóstur
Laxi 1 fóstur
Glitri 1 fóstur
Gullmoli 4 fóstur
Úlli 3 fóstur
Bjarki 2 fóstur
Steinn 2 fóstur
Styrmir 5 fóstur
Hrútur frá Óla Ólafsvík einn mórauður og einn ARR hrútur
Mósi sá mórauði 6 fóstur
Bogi ARR 15 fóstur
Heimahrútar :
Grímur 11 fóstur
Bibbi 2 fóstur
Ljómi 1 fóstur
Vindur 14 fóstur
Friskó ARR 12 fóstur
Diskó 2 fóstur
Prímus 10 fóstur
Bylur 12 fóstur
Klaki 14 fóstur
Svali 14 fóstur
Vestri 3 fóstur
Sóli 13 fóstur
Það voru 24 hrútar notaðir á þessum fengitíma held að það sé nýtt met hjá okkur he he flott að geta verið með þetta fjölbreytt þá er nóg um að velja úr.
Við þurfum svo að taka sýni úr 112 lömbum erum búnað taka það saman og panta sýni svo við getum tekið þau strax í vor.
Þessi 112 lömb geta verið með R 171,T 137,C 151,H 154, N 138.
Hér eru Freyja Naómí og Ronja Rós duglegar að þrífa vatn stampana.
Ronja Rós var Gurra Grís á öskudaginn í leikskólanum.
Freyja fór í fyrsta sinn með rútunni eða strætó til Borgarnes og Steinar frændi kom og sótti hana og hún fór með honum til Akranes til að leika við Birgittu frænku sína yfir helgina við vorum svo stolt af henni að vera svona hugrökk að þora ein með rútunni svo dugleg stelpa. Þetta var 16 febrúar.
Mamma með Ronju Rós inn á Dvalarheimili en það er núna orðið heimilið hennar hún flutti þangað í febrúar. Minnið hefur verið að glatast hjá henni og hún veiktist illa heima og gat ekki verið ein svo við vorum svo lánsöm að hún skyldi komast inn á Dvalarheimilið í ÓIafsvík. Ronja dýrkar að fara í heimsókn til hennar og við förum yfirleitt daglega til hennar. Fyrst var hún í þessu herbergi til að byrja með en var svo flutt yfir í stærra og betra herbergi á móti Sigrúnu sem er kona bróðir pabba mins svo þær eru alsælar að búa á móti hvor annarri og eiga það sameiginlegt að bæði pabbi og Raggi eru farnir í draumalandið svo þær eru einar og njóta félagsskap af hvor annari.
Hér er Ronja inn á Dvalarheimili að leika við ömmu Huldu.
Við systkynin komum saman helgina 2 mars og tæmdum íbúðina fyrir mömmu í Engihlíðinni svo við gætum skilað henni af henni.
Við Maja byrjuðum að sortera fyrst úr skúffunum og svona svo kláruðum við þetta öll saman.
Ronja teiknaði þessa fallegu mynd á leikskólanum.
Benóný á leiðinni á Reykhóla á samvest 12 mars.
Hér er búið að sortera kindurnar og við erum að bólasetja fyrri sprautuna við lambablóðsótt 12 mars.
Það gekk mjög vel að sprauta og þær voru mjög rólegar og fínar.
Við tókum skyndiákvörðun fyrir páska og skelltum okkur til Tenerife með mjög stuttum fyrirvara.
Kristinn og Siggi sáu um að hugsa um kindurnar fyrir okkur og við erum svo geðveikt þakklát að komast í fri og geta unnið þetta saman.
Ég mun blogga nánar um Tenerife ferðina í næsta bloggi.
Freyja Naómí okkar fagnaði 11 ára afmæli sínu þann 12 desember. Hún hélt upp á það hér heima og bauð nánustu vinum í smá partý.
Hún var vakin á afmælisdaginn með köku og kerti og sungið fyrir hana.
Hér er hún um morguninn að fara opna pakkann sinn. Þetta er alveg einstaklega skemmtilegur afmælisdagur sem hún er búnað bíða svo lengi eftir og svo fær hún alltaf líka fyrstu skógjöfina frá jólasveininum svo spennan var mikil að vakna og byrja þennan frábæra dag svo á Kolur hundurinn hennar ömmu Freyju og afa Bóa líka afmæli sama dag.
Hér eru kræsingarnar fyrir stelpu partýið svo vorum við með heimabakaðar pizzur.
Við höfðum það mjög gott yfir hátíðarnar og óskum ykkur kæru síðu vinir Gleðilegra jóla og farsælt komandi ár og takk fyrir innlitið á síðuna okkar á árinu sem er liðið.
Við borðuðum inn í sveit hjá Freyju og Bóa og mamma kom með okkur á aðfangadag svo þegar búið var að borða fórum við heim til okkar að opna pakkana enda krakkarnir orðnir verulega spenntir að bíða eftir að væri búið að borða og ganga frá svo gamanið gæti byrjað. Jóhanna frænka Emils og mamma mín komu svo heim til okkar og opnuðu pakkana með okkur og Freyja og Bói komu svo aðeins seinna eftir að þau voru búnað slappa aðeins af eftir matinn. Það er svo geggjað fyrir okkur og við erum svo þakklát að fá að koma til þeirra í mat því þetta er svo annasamur tími hjá okkur í fjárhúsunum á fengitímanum og þá er svo gott að geta klárað það í róleg heitum og græjað svo alla í jólabað og föt sem tekur talsverðann tíma og þurfa ekki að stressa sig yfir að hugsa um matinn líka. Á gamlársdag sáum við svo um matinn vorum með nautalund frá Kjötkompaní sem Steini frændi sótti fyrir okkur og svo vorum við með lambahrygg úrbeinaðann í lambafille og svo grillaði Emil bæði og svo vorum við með bökunarkarteflur stórar sem ég steikti inn í ofn og þetta var allt rosalega gott. Freyja,Bói, Jóhanna og Siggi í Tungu komu til okkar í mat og voru með okkur á áramótunum. Mamma borðaði hjá Maju systir en kom svo yfir til okkar og var með okkur þegar var skotið upp.
Hér eru börnin okkar við jólatréið.
Benóný Ísak með sjoppu brauðstangir sem hann fékk tilbúnar frá Sjoppunni og ég þurfti bara baka þær
hann var alsæll með þær í jólamatinn.
Hér sést jólatréð okkar betur það var mjög fallegt tré.
Ronja Rós við jólatréð hjá ömmu Freyju og afa Bóa.
Kósý í sveitinni á aðfangadag.
Skvísurnar allar saman stelpurnar okkar og amma Freyja.
Það var gaman að leika í jóla snjónum.
Embla að búa til snjó virki.
Freyja að hjálpa til. Það var svo fallegur snjórinn og ekta til að búa til snjókarl og snjó virki.
Freyja spennt að opna pakkana.
Benóný kátur að opna pakkana.
Hér er Embla í skýjunum að opna gjöfina frá Eriku vinkonu sinni fékk kósý teppi,hestamúl og gæru mottu.
Hér erum við inn í sveit hjá Freyju og Bóa á aðfangadag svo kósý og flott.
Mamma kát á aðfangadag spennt að fara opna pakkana.
Hér er Ronja á gamlárskvöld.
Hér er Freyja með líka með blis.
Hér er Embla með blis líka .
Hér er Benóný búnað kveikja smá bál hann alveg elskar áramótin.
Það var mikil litadýrð í loftinu þegar gamla árið var kvatt.
Hér eru Siggi, Bói,Freyja og Jóhanna á gamlárskvöld heima hjá okkur.
Hér eru Ronja Rós og Freyja Naómí að borða á gamlársdag.
Hér eru flottir álfar á þrettándanum að fara sníkja gott í gogginn.
Embla og Ronja með Særúnu og Eriku vinkonum Emblu.
Hér er svo Freyja og vinkonur hennar Hekla og Birta.
Hér er Ronja Rós með gemlingunum sem eru svo gjæfir og sjúkir í hana að hún verður alltaf innikróguð af þeim.
Af fengitímanum og sæðingunum að segja þá settum við hrútinn hann Ljóma í 31 des og ég leiði hann svo á milli yfir í hinar krærnar þegar ég gef.
Við sæddum 18 kindur og það 15 sem héldu og ég sæddi 9 fyrir Sigga og það voru 6 sem héldu hjá honum svo við erum bara mjög sátt við úkomuna.
Sæðingarhrútar voru
Angi með eina kind
Laxi með eina kind
Glitri með eina kind
Gullmoli með tvær
Úlli með tvær
Bjarki með eina kind
Steinn með eina kind
Styrmir með tvær
Jór með þrjár
Tjaldur með eina kind.
Heimahrútar voru
Bibbi með eina kind
Diskó með eina kind
Prímus með 6
Ljómi með eina kind
Bylur með 6
Klaki með 7
Svali með 8
Vestri með 2
Sóli með 5
Vindur með 7
Friskó ARR með 6
Grímur með 5
Fengum lánaða hrúta hjá Óla Ólafsvík
Mósi mórauður undan Kurdó hann fékk 4 kindur
Bogi ARR hrútur hyrndur hann fékk 9 kindur.
Það voru þrjár gimbrar sem gengu upp eftir hrúta en það var ekki sami hrútur svo við höfum eitthvað hitt vitlaust á þær svo vonandi halda þær núna þær fengu í janúar byrjun.
Ég er enn með Ljóma í og hann verður eitthvað áfram svona til 14 jan til að vera alveg örugg.
Siggi og Kristinn settu vír í hornin á lambhrútunum seinsustu helgi eða 7 janúar.
Ég er enn að klára gefa lýsi ætla gefa það þangað til brúsinn klárast annars höfum við gefið lýsi um fengitímann og aðeins fram í janúar.
Bloggið kemur frekar seint inn hjá mér en síðan lá niðri svo lengi í desember og þá gat ég ekkert sett inn svo hér kemur þetta aðeins eftir á það sem var að gerast í desember og jólin.
Ronja Rós á leiðinni á jólaball í leikskólanum.
Ég hætti að vinna á leikskólanum 8 desember og fór þá að sinna fengitímanum og sæða.
Ronja var möndlumeistarinn á leikskólanum.
Hér er hrúturinn að kíkja á þær sem á að sæða svo allt fari þetta fram í rólegheitum.
Hér eru Freyja og Ronja að kaupa jólatré.
Við fengum mjög fallegt jólatré í ár.
Hér er Ronja Rós að hjálpa ömmu Huldu að skreyta jólatréið hennar.
Svo flottar saman mamma og Ronja Rós.
Hér er Ronja Rós umkringd af gemlingunum.
Hér er Mósi hans Óla í ÓIafsvík að fara á Hríslu við notuðum hann á nokkrar mórauðar.
Hér eru stelpurnar að hjálpa til við tilhleypingarnar og eru svo duglegar að sækja hrútana og fara með þá á kindurnar.
Hér er Friskó ARR hrúturinn okkar að fara á Ósk.
Hér erum við að gefa hestunum hey úti við Varmalæk hjá Freyju og Bóa.
Hér er Embla og Erika að klappa Snæós og Melkorku.
Búið að vera svo yndislegt veður hjá okkur allan nóvember.
Arnar kom til okkar 18 nóvember og tók af kindunum og það er alltaf jafn flott að sjá hvað hann er góður við þetta
og hann er svo rólegur og yfirvegaður og svo snöggur.
Hér eru Kristinn,Emil og Siggi. Kristinn og Emil skiptast á að draga og skella niður og Siggi sér um að flokka ullina.
Ég sá um að koma með mat fyrir þá í hádeginu og svo tók Ronja upp á því að vera veik þessa helgi svo ég var mikið til heima með
hana en við náðum svo að gefa öllum ormalyf líka þennan sama dag.
Hér er verið að gefa ormalyfið. Við gleymdum sprautunni heima sem skammtar ofan í þær svo ég var með glas og dró upp í stóra sprautu
og gaf Sigga og Kristinn til að gefa þeim og Emil var á hleranum.
Hér er hann Diskó hann er fæddur 2021. Við höfum ekki notað hann nema lítið því hann er frekar skyldur okkar kollótta fé en hann er undan Tón sæðingarstöðvarhrút og Vaíönu sem er móflekkótt kind hjá okkur undan Kaldnasa sem við fengum hjá Laugu og Eyberg Hraunhálsi og var undan Magna og Urtu.
Óli Ólafsvík hefur verið að nota Diskó meira en við og fengið fín lömb undan honum og við líka. Hann er að gefa miklar mjólkur ær og einstaklega gæfar.
Diskó er alveg einstaklega gæfur hrútur og krakkarnir elska hann og vilja helst ekki láta hann frá sér þau geta kallað á hann úti og þá kemur hann til þeirra til að fá klapp.
Hann var 88 stig sem lamb og er með 11 fyrir gerð og 8 fyrir fitu í kynbótamati en núna erum við komin með ARR hrút sem er undan sömu kind og hann svo við verðum að fá reynslu á þann nýja og þurfum því að gefa Diskó annað heimili svo endilega ef þið hafið áhuga á að fá hann Diskó okkar hafið samband við mig Dísu í skilaboðum eða hringið í 8419069. Hann getur bara farið í Snæfellsneshólf og hann getur gefið alla grunnliti og tvílit og mórautt og hreinhvítt hann er hreinhvítur sjálfur stór og mikill hrútur. Hann er með gulan fána samkvæmt arfgerðar greiningu. Faðir hans Tónn er með gulan og gráan og móðir hans er með ljósbláan fána.
Hér er betri mynd af honum.
Það er svo yndislegt hvað krökkunum finnst gaman að koma með okkur í fjárhúsin og eru svo dugleg að hjálpa til.
Þær eru farnar að vera svo duglegar að taka stór föng að þær eru farnar að taka jafn mikið og ég.
Embla með risa fang svo dugleg.
Fórum með Gumma,Óla og Sigga á sæðingarfundinn sem var haldinn á Lyngbrekku.
Hér er Torfi og Árni að kynna fyrir okkur hrútana og útskýra allt þetta nýja með ARR.
Núna hefjast miklar pælingar hjá manni að velja hrúta og hvort eigi bara að nota hrúta með breytileika og verandi gen.
Það var gaman að sjá að Jón Viðar og Lárus Birgisson mættu á fundinn.
Jón Viðar tók svo ræðu um ARR og ráðlagði bændum að fara á fullu í að nota ARR hrútana og koma þessum genum sem fyrst inn í allann stofninn sinn svo það væri hægt að komast hjá miklum kostnaði við að þurfa sýnataka á hverju ári og vinna hratt af því að gera Ísland riðulaust. Hann fór líka vel í að menn ættu að vera óhræddir við að skyldleika rækta svona fyrst meðan væri verið að koma þessum arðgerðum inn í stofninn. Hann hafði líka orð á því að það þyrfti ekki nema fara inn á fjárvís í íslenska stofninn og þar sést að það er mikið til komið allt fé út frá nokkrum ærfeðrum og svo koll af kolli svo er það fljótt að blandast þegar lengra er komið af stað. Jón Viðar er sá allra vitrasti og hefur gríðanlega mikla reynslu og þekkingu á íslensku sauðfé svo auðvitað tekur maður mark á því sem hann segir og reynir að fylgja því sem hann ráðleggur því hann er algjört átrúnaðargoð hjá okkur bændum.
Ég persónulega vill ekki glata allri ræktun með því að nota eingöngu þessa hrúta en þó kemur að þessir ARR hrútar sem eru á stöðunni voru margir að koma mjög vel út og eru af flottum búum svo það ætti alveg vera góður kostur að nota þá en ég ætla líka að halda áfram að nota mína hrúta og reyna stýra þannig inn að ég noti þá á ær sem eru með breytileika svo það séu meiri líkur á að þær verði með verndandi en svo eigum við líka einn ARR hrút og einn með ljósbláan fána og munum nota þá á þær ær sem þeir geta farið á. Við áttum enga kind með áhættu gen en það eru þó nokkrar með gulan fána sem sagt hlutlaust en það voru líka margar með breytileika gráan og ljósbláan fána.
Við ættum að geta leitt þetta vel inn hjá okkur því við létum arfgerðargreina allar kindurnar okkar í fyrra svo við vitum hvað hver og ein er með og getum því stýrt vel hvaða hrútur getur farið á hverja kind. Þetta er mjög spennandi og krefjandi verkefni sem verður gaman að taka þátt í og fylgjast með.
Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.