Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
07.01.2013 21:54Frændsystkynin hittast öll og þrettándinn.Þessi frændsystkyni hittust öll saman í fyrsta sinn nú á föstudaginn og eru þau öll á sama árinu. Það verður fjör hjá okkur á líðandi ári að hittast með gullmolana okkar. Óskírður hjá Þórhöllu og Jóhanni,óskírð hjá okkur og Birgitta Emý hjá Steinari og Unni. Hún er 6 mánaða. Svakalega flott uppstilling hjá þeim. Birgitta var allveg búin á því og sofnaði og kippti sér ekkert upp við að láta raða í kringum sig. Það eru svo fleiri myndir af þessum dúllum hér í mynda albúmi. Á þrettándanum fórum við á brennu og Embla Marína og Benóný Ísak klæddu sig upp í búninga. Embla átti reyndar að vera jarðaber og Benóný trúður en hún vildi með engu móti vera í búninginum svo Benóný var alsæll að fá að vera jarðaberið. Við fórum svo með þau í nokkur hús að sníkja í gogginn með Emelíu og Jóhanni. Þeim fannst þetta rosalega gaman og mikið sport en urðu þó fljótlega þreytt enda klukkan að nálgast háttatíma að verða 8. 05.01.2013 11:55Áramót 2012 og Rolluflakk til kynbóta.Ætla að byrja á því að segja Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla og ég þakka kærlega fyrir innlitið á síðuna á liðnu ári. Við höfðum það rosalega gott yfir áramótin. Við borðuðum öll saman heima hjá okkur og það var 4 rétta hlaðborð sem sagt nautakjöt,marinerað læri að hætti Steina, hjarta kjöt og síðast en ekki síst léttreyktur lambahryggur. Í forrétt var svo brauð með graflax og karrý síld. Skotið var svo upp og Benóný svaf það af sér en Embla vaknaði og fékk að horfa út um gluggann bara því hún var svo ný vöknuð og það var líka einstaklega kalt úti. Unnur og Steinar létu ekki kuldann á sig fá og fóru út með Birgittu sætu og hún fylgdist með öllum látunum. Það var skotið upp fyrir Benóný á nýársdag en hann varð skelfingu lostinn og vildi bara fara inn. Þanning það var bara ágætt að hann skildi sofa áramótin af sér greyjið. Það eru svo myndir af áramótunum og fleiru hér inni í albúmi. Það var mikið lagt á sig milli jóla og nýárs í vonsku veðri. Þá lá leið okkar inn í Hraunháls með 3 kollóttar til að fá kynbætur úr gæðahrútunum hjá Guðlaugu og Eybergi. Það var svaka bylur á leiðinni inneftir og mikið slabb og héldum við að við kæmust ekki aftur til baka en það lá betur við á leiðinni heim því þá var búið að moka og salta og allt annað að keyra þá. Siggi og Emil að henda upp í bíl hjá Bóa. Við fengum bílinn hans lánaðan inn eftir. Embla og Benóný aftur í með rollurnar á pallinum og þær að kíkja yfir á þau. Hér erum við í fjárhúsinu hjá Óla á Mýrum. Þar fórum við með 4 kollur í móflekkóttan hrút sem Óli Tryggva á. Óli sá þær aldrei lemba og ekki við heldur en ég óska þess að hann hafi klárað þær því annars ganga þær heldur seint. Af sæðingunum að segja gekk það ekki nógu vel sem komið er. 3 voru sæddar fyrst og hélt ein af því. 9 voru sæddar þegar ég var að eiga og héldu bara 2 af þeim 1 með Soffa og 1 með Prúð. 3 sæddi ég sjálf 15 des og var ein frá mér og 2 frá Sigga og gekk ein frá Sigga upp í gær og ég er að deyja úr spenningi að fara í fjárhúsin í dag og sjá hvort hinar haldi sem sagt ein mórauð frá mér og svört frá Sigga. Það eru svo myndir hér af rollu stússinu okkar með því að smella hér. 29.12.2012 16:01Óveður í Mávahlíð þakið að fjúka af hlöðunniÞakið á hlöðunni inn í Mávahlíð. Vonsku veður hefur verið inn í Fróðarhrepp. Við fórum að gefa inn í Tungu þegar Maggi bróðir hringdi í mig og sagði að Snorri Rabba hafi látið hann vita að þakplötur væru að fjúka af hlöðunni og fór ég og náði þessum myndum og hringdi svo aftur í Magga og hann ætlar að hafa samband við Björgunarsveitina hvað sé hægt að gera. 28.12.2012 10:30Jólin 2012 og Útskrift hjá Steina frændaJæja þá er kerfið komið í lag og ég er búnað skella inn fullt af myndum af jólunum og útskriftinni hjá Þorsteini Erlingi frænda. Biðin var rosalega lengi að líða hjá Benóný mínum eftir því að fá að opna pakkana en hann og Embla fengu óvænta heimsókn á aðfangadags hádegi og það voru jólasveinarnir með pakka sem þau fengu að opna þá. Það gladdi þau rosalega mikið og var ekki hikað við að taka við pökkunum og opna þá. Þorsteinn Erlingur Ólafsson orðinn stúdent. Innilega til hamingju Steini minn. Það var haldin veisla á Hótel Hellissandi rosalega fínt. Maggi bróðir og Erla mættu vestur. Við fjölskyldan á aðfangadag loksins sest við borð eftir mikinn eltingaleik að halda Benóný frá pökkunum og reyna elda og klára. Eins og ég sagði í fyrra bloggi komst hann í pakkana og varð allveg óður eftir það og vildi bara fara í pakkana og skildi náttúrulega ekkert í því að fá ekki að opna þá strax he he. Hann var róaður niður yfir matnum með því að gefa honum popp og engjaþykkni sem er varla frásögufærandi. Svakalegur jólamatur enda ekki séns að fá hann til að smakka jólamatinn. Emil komst ekki einu sinni í jólasturtuna sína svo mikið var fjörið hér á bæ en við gátum ekki annað en bara hlegið af þessu og hugsað já við erum með 3 börn núna til að hugsa um svo það verður að gefa sér aðeins meiri tíma en klukkutíma til að græja allt þvi við fórum inn í kirkjugarð á Brimisvöllum að kveikja á friðarkerti fyrir Steina frænda og Ragga frænda og ég náði engan veginn að kveikja á þeim það er alltaf svoddan rokrassgat þarna og Emil sagði einmitt við mig og þarna villt þú láta grafa þig he he í þessu rokrassgati. Þar af leiðandi vorum við ekki komin heim fyrr en 4 og þá áttum við eftir að græja allt nema kjötið var auðvitað að malla í pottinum. Þetta var svo kapphlaup að ná að skrifa niður hver fékk hvaða pakka frá hverjum en þetta var samt bara mjög gaman og þau fengu fullt af flottum gjöfum. Við fórum svo í jólakaffi hjá Steina og Jóhönnu og skiptumst á að fara því litlu grallararnir okkar voru alveg búnir á því eftir daginn. Embla stolt systir í jólaboði hjá Huldu ömmu sinni. Þá er komið að því að segja frá rollunum. Það voru sæddar 3 fyrst og var bara ein sem hélt úr því. 12 des voru næstu sæddar og það eru 3 gengnar upp úr því og kemur meira í ljós með restina í dag hverjar ganga upp svo þetta er ekki gott útlit hjá mér og svo á ég líka eftir að skrá sæðingarnar var allveg búnað gleyma því svo ég vona að ég sé ekki allt of sein í því. Hér er Brimill að sinna Heklu. Það var tekinn rúntur til Óttars á annan í jólum og já það er mikið lagt á sig til að fá kynbætur he he. Þegar við fórum og sóttum þær í gær var hávaða rok og endaði það með að Emil missti kerruna þegar hann ætlaði að setja hana aftan á bílinn og rann hún lengst út á tún hjá Óttari. Jæja þá er hann kominn niður á bílnum til að festa kerruna og koma henni upp aftur. Við erum búnað vera með bilinn hans Eggjarts vin Emils yfir jólin þvi hann er með tengdaforeldra sína yfir jólin og tengdamamma hans er á hækjum og komst ekki upp í jeppann. Það er reyndar búnað koma sér vel sérstaklega þegar snjórinn kom og svo er aðeins meira pláss fyrir krakkana aftur í og ég var allveg orðin á því að langa í jeppa en þegar við tókum olíu á hann þá breyttist það he he algjört brjálaði sérstaklega því ég keyri svo rosalega mikið að við myndum aldrei ráða við að eiga svona bíl miðað við hvað okkar bíll eyðir litlu. Við erum búnað fara með 2 á Mýrum til Óla í hrút hjá Óla Tryggva kollóttann og svo fórum við með aðrar 2 í gær og svo er ferðinni heitið til Laugu og Eybergs næst með 2 kollóttar svo það er nóg að gera að keyra út rollur he he. 26.12.2012 21:27Gleðileg jól 2012Gleðileg jól kæru netvinir vonandi höfðu allir það gott yfir jólin. Ég er búnað vera í stökustu vandræðum að setja myndir inn svo ég gat bara sett þessar tvær til að byrja með það hlýtur að vera eitthvað rugl á kerfinu. Ég blogga því bara betur og set inn myndir þegar þetta er komið í lag. Annars höfðum við það fínt um jólin en það var mikið fjör að vera bara við með 3 lítil börn og mikil spenna hjá Benóný að bíða eftir að fá að opna pakkana og gat engan veginn biðið svo hann sá sér um augnablik meðan ég fór í sturtu og Emil var að matreiða og fór og tók forsprett á pakkana og slátraði þrem pökkum rétt fyrir mat og eins og sjá má á þessari mynd leit þetta svona út ÁÐUR EN VIÐ OPNUÐUM PAKKANA he he. Sem betur fer voru lika ekki komnir allir pakkarnir undir tréið og við vissum líka hverjum þessir þrír voru frá þegar hann var búnað opna þá sem betur fer Jæja ég vona að kerfið komist sem fyrst í lag því það bíða fleiri skemmtilegar myndir og sögur eftir að komast hér inn. Kveð að sinni Dísa. 20.12.2012 00:03Fyrstu dagarnir hjá prinsessunni okkar.Það er nóg að gera þessa dagana í að skipuleggja allt fyrir jólin og svo fengitímann í fjárhúsunum og svo auðvitað að sjá um nýjasta gullið í fjölskyldunni sem er svo vær og góð að ég þarf enn að vekja hana til að gefa henni. Hún lætur mig þó aðeins hafa fyrir sér því hún á það til að vakna kl 3 á nóttinni og vaka til 5 og það er það mesta sem hún vakir yfir sólarhringinn svo hún mætti allveg gera það frekar á daginn. Benóný og Embla eru öll að koma til með að venjast henni þó Embla sé svakalega afbrigðusöm, hún á auðvitað mömmu sína og er ekki allveg tilbúin að deila henni svona og leyfa litla barninu að súpa mömmu sína he he. Þetta kemur þó allt saman ég leyfi henni að hjálpa mér að skipta á henni og ýmislegt og það finnst henni rosalega gaman hún er svo mikill vinnukona. Hér eru sætu gullmolarnir mínir sem voru svo fínir og áttu að fara í myndartöku hjá Óla fyrir jólakort en NEI þau voru kolvitlaus og neituðu að sita saman og allt ómögulegt svo það þýddi ekkert að taka mynd af þeim svo hann tók bara myndir af litlu prinsessunni. Og það heppnaðist allveg frábærlega eins og þið sjáið. Svakalega flott mynd hjá honum Óla hann er einmitt með síðu á flicker sem þið getið farið inn á hér. Ég er búnað fara 2 svar út úr húsi síðan að ég kom heim og er það varla frásögufærandi fyrst fór ég inn í Grundafjörð að sækja sæði og sæddi svo 3 rollur eina fyrir mig og 2 fyrir Sigga og verð ég að viðurkenna að það var samt rosalega gaman ég fékk þá að sæða eitthvað því Bárður hefur séð um hinar sæðingarnar fyrir mig. Hann sæddi fyrir mig 12 kindur og svo sæddi ég þessa einu fyrir mig svo það eru 13 alls og 2 hjá Sigga. Svo nú er bara að biðja og vona að þær haldi það ætti að fara koma í ljós núna á morgun og hinn hvort að þessar fyrstu haldi. Ég notaði bara Soffa og Prúð. Já svo fór ég í annað skiptið út núna í kvöld og þá fór ég með Emil með eina rollu til Óttars í Botna botnótta hrútinn hans. Það var svo brjálað gera í fjárhúsunum hjá Bóa í dag að hleypa til og ég að segja honum til í símanum hver ætti að fara á hverja og hvaða rollur væru að ganga svo hann stendur sig allveg stórkostlega í þessu öllu saman fyrir mig en er samt pínu stressaður að hann sé ekki að gera allt rétt he he en það er allt saman í góðu lagi hann fær góða leiðsögn og þá gengur allt vel. Já ég fer nú svo að fara kíkja í búðir næst þegar ég fer út til að klára jóla innkaupin og svo eru tvær útskriftarveislur framundan hjá Steina frænda mínum syni Maju systir og svo hjá Hafrúnu vínkonu svo það verður nóg farið út á næstunni. Spennan er svo í hámarki að bíða eftir morgundeginum því þá verður Þórhalla kona Jóhanns bróðir Emils skorin og þá kemur í ljós hvort við fáum frænku eða frænda. Jæja það eru svo myndir af prinsessunni og fyrstu dögunum með því að smella hér. 14.12.2012 21:03Stúlka fæðist 12.12.2012Jæja þetta stóðst hjá mér og stúlka kom í heiminn 12.12.2012. Henni lá á í heiminn og gekk allt mjög vel. Það var bið í fæðingu því það voru tvær fæðingar í gangi og við þurftum að bíða á biðstofu eftir að komast inn en ég notaði tímann til að ræða við Bárð um sæðingar á kindunum því hann og Bói voru að sjá um að sæða fyrir mig já ég veit að maður er ekki með rolludellu fyrir ekki neitt he he en þeir redduðu þessu fyrir mig en við komumst svo loksins að hálf 7 og ég var of sein til að fá deyfingu og daman var komin í heiminn korter yfir 7. Við fengum svo svítu og góða umönnun á Skaganum eins og vant er þar er rosalega gott að vera. Daman var 14,5 mörk og 53 cm og er algjör engill bara sefur og drekkur og ég er í rauninni í vandræðum að vekja hana til að drekka. Hér er prinsessan okkar. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi. Svo var það nú leiðinlegra að segja að Donna hundurinn okkar missti alla hvolpana sína en henni heilsast vel og er að ná sér bara. 10.12.2012 21:42Donna Gítur 2 vikum fyrir tímannBúið að vera allt á haus hjá okkur í dag Embla byrjaði með 40 stiga hita í morgun og ældi líka svo tók annað við af öðru og í hádeginu tók sorgardagur við hún Donna okkar gaut 6 hvolpum 2 vikum fyrir tímann í dag. 3 dóu en 3 komu lifandi og vorum við eiginlega allveg búnað gefa upp vonina en þá lifði fyrsti hvolpurinn allveg til 3 um daginn og þá komu svo 2 aðrir lifandi og nú er verið að basla við að mjólka upp í þá úr tíkinni. Brynja,Marta,Jóhanna og Steini eru búnað vera hjálpa okkur og þeir lifa enn svo það er kanski ekki öll von úti en þetta er svakalega mikill vinna við þurfum að skipta með okkur nóttinni því það þarf að gefa þeim á 2 tíma fresti. Ég get nú ekki komið mikið nálægt þessu því ég bara þori því ekki því hún hálf partinn lét hvolpunum svo maður veit ekki hvort ég megi nokkuð koma nálægt þessu enda er ég líka komin svo langt að maður tekur enga sénsa. Nú er bara að biða og vona að dagsettningin standist hjá mér og ég fari að koma með þetta núna 12 Hér er Donna greyjið með krílin sín sem vigtuðu ekki 100 grömm sá stærsti vigtaði 80 gr og sá minnsti er 61 gramm og einn er 70 grömm og það er talið að þeir lifi ekki nema vera 100 grömm svo það er bara biðja og vona. Eins og sjá má á þessari mynd er þetta sá minnsti og hann lifir enn. Það eru svo fleiri myndir inn í albúmi með því að smella hér. Steinar og Unnur komu í heimsókn með Birgittu Emý sem er orðin svo stór síðan við sáum hana seinast enda orðin 6 mánaða skvísa og tóku Benóný og Embla vel á móti frænku sinni og kom þeim vel saman. Embla svo góð að knúsa Birgittu frænku sína. Benóný með Myrru sína. Jæja 39 vikur þetta má nú allveg koma svo 12.12.2012 hugsið stíft með mér. Það eru svo fleiri myndir af Benóný og Emblu og fleira í albúmi með því að smella hér. 30.11.2012 09:32Ég komin 37 vikur og ýmislegt í nóv.Jæja það er nú allveg kominn tími á blogg er þaggi ? Maður er búnað vera eitthvað svo upptekin en samt ekkert að ske nema að Embla var mikið veik í seinustu viku og það var allveg rosalega erfitt þurfti mikið að halda á henni og hún gat ekkert borðað í viku en svo loksins fékk ég mixtúru fyrir hana og hún lagaðist bara mjög fljótlega sem betur fer. Annars gengur bara allt vel ég er enn að gefa rollunum og við ætlum að vigta og gefa ormalyf um helgina svo ég blogga um það fljótlega eftir helgi. Ein gimbur er komin með drullu en ég átti töflu við hníslasótt svo ég gaf henni hana. Svo styttist óðum í sæðingar sem byrja núna í des og vona ég að einhverjar af þessum mórauðu verði að ganga ég er mest spennt yfir þeim. Já svo er það ég nú er ég komin 37 vikur og aðeins 3 vikur eftir en ég ætla að biðja alla að hugsa stert með mér að barnið komi á 39 viku sem sagt 12.12.2012 ég er búnað panta þessa dagsettningu svo kæru vinir hugsið þetta stíft með mér svo þetta verði að veruleika Allavega er ég sett 19 en ætla að biðja fyrir þessu og já ætla sko rétt að vona að það fari nú ekki að láta bíða eftir sér fram yfir það. Ég verð bara nógu dugleg að gefa rollunum og fara í heitapottinn he he. Hér er ég orðin allveg kas og þreytan aðeins farin að segja til sín og þetta má allveg fara koma bara þó svo að maður sé að deyja úr stressi hverning Embla og Benóný eiga eftir að taka þessu og hverning maður púslar þessu öllu saman. Donna er líka allveg kasólétt og það verður spurning hvor verður á undan á lokasprettinum he he spennan magnast. Pabbi átti afmæli um daginn og við kíktum auðvitað á hann en hann var frekar þreyttur bara og ekki mikið fyrir að láta taka mynd af sér. Það eru svo myndir inn í albúmi af þessu öllu og Benóný og Emblu í nóv með því að smella hér. 18.11.2012 15:59Gimbrarnar hjá Óttari á KjalvegiPrúð er undan Klett. Stigun : Þungi 57 ómv 36 ómf 3,2 lag 5 framp 9 læri 18,5 ull 8 Dúfa er alsystir Prúð. Stigun : Þungi 55 ómv 35 ómf 4,5 lag 4,5 framp 9 læri 18 ull 8 Lukka er undan Klett. Stigun : Þungi 49 ómv 27 ómf 3,1 lag 4,5 framp 9 læri 18 ull 7,5 Bára er undan Klett líka. Stigun : Þungi 47 ómv 29 ómf 2,4 lag 4,5 framp 9 læri 19 ull 8 Tinna er undan Klett. Stigun : Þungi 53 ómv 34 ómf 2,7 lag 4,5 framp 9 læri 19 ull 8 Hrefna er undan Klett. Stigun : Þungi 51 ómv 35 ómf 3,3 lag 4,5 framp 8,5 læri 18 ull 8 Dimma er seinust og er einnig undan Klett. Stigun : Þungi 51 ómv 31 ómf 3,2 lag 4,5 framp 9 læri 18 ull 8 Jæja þá eru þessar gullfallegu gimbrar upptaldar og eru þetta án efa fallegasti hópur og vel stigaðisti sem ég hef á ævinni séð. Ég óska Óttari innilega til hamingju með þennan gríðalega fallega hóp og til hamingju með stórafmælið sitt um daginn. Hann fékk einmitt innrammaða mynd af honum Klett sínum í afmælisgjöf sem er besti kynbótahrúturinn hér á svæðinu að mínu mati og hann er svo aldeilis búnað sanna það nú í ár. Þessar gimbrar hér fyrir ofan eru einmitt allar undan honum. Það eru svo fleiri myndir inn í albúmi hér af gimbrunum hans Óttars. Gimbrarnar hjá Þór og Elvu Hellissandi Þessi er í eigu Þórs og Elvu og er einnig undan Klett. Stigun : Þungi 47 ómv 29 ómf 2,2 lag 4 framp 8,5 læri 17,5 ull 8 Þessi er einnig undan Klett og fékk Þór hana hjá Óttari og mig vantar stigun á hana. Þessi er líka undan Klett. Stigun : Þungi 55 ómv 37 ómf 4 lag 5 læri 18 ull 8 Þessi er Mána dóttir en Máni er veturgamal hrútur hjá Þór undan Klett. Stigun : Þungi 50 ómv 30 ómf 2,7 lag 4,5 framp 9 læri 17,5 ull 8,5 Þá er þessi flotti ásettningur upptalin hjá Þór og Elvu og eru þær rosalega fallegar og einnig allar komnar undan Klett hans Óttars. Það eru svo fleiri myndir inn í albúmi af þeim með því að smella hér. Hér er Máni sem er undan Klett hjá Þór og Elvu. 17.11.2012 08:18Gimbrarnar hjá BárðiByssa nr 12-005 er undan Jökull og Bombu. Stigun : Þungi 45 ómv 28 ómf 2,9 lag 4 framp 8,5 læri 17,5 og ull 7,5 Mér vantar stigun á þessa en hana fékk Bárður hjá Óttari og hún heitir Skella. Þessar eru þrílembingar undan Gosa sæðishrút og Birtu. Nr 12-006 Stigun : Þungi 40 ómv 30 ómf 1,1 lag 4,5 framp 9 læri 18 ull 8 Nr 12-007 Stigun : Þungi 40 ómv 31 ómf 1,8 lag 4 framp 9 læri 18 ull 8 Nr 12-008 Stigun : Þungi 40 ómv 32 ómf 2,5 lag 4 framp 8,5 læri 18 ull 8 Ekkert smá flottir þrilembingar hjá Dóru og Bárði. Nr 12-012 er undan Negra og Hyrnu. Hún er líka þrilembingur. Stigun : Þungi 41 ómv 31 ómf 2,2 lag 4,5 framp 9 læri 18,5 ull 8 Nr 12-713 er undan Gosa sæðishrút og Þorveig. Stigun : Þungi 45 ómv 30 ómf 2,4 lag 4,5 framp 9 læri 18 ull 8 Nr 12-009 er þrílembingur undan Týr og Monulysu. Stigun : Þungi 44 ómv 27 ómf 3,1 lag 3,5 framp 9 læri 18 ull 9 Nr 12-012 er þrílembingur undan Mugg hans Lalla og Trillu. Hún heitir Mygla Stigun : Þungi 42 ómv 32 ómf 2,3 lag 4 framp 8,5 læri 18 ull 8 Nr 12-004 er undan Skál og Depil og heitir Skál Stigun : Þungi 46 ómv 29 ómf 3,1 lag 4 framp 9 læri 18 ull 7,5 Nr 12-010 er þrilembingur undan Negra og Lukku. Stigun : Þungi 45 ómv 28 ómf 3,3 lag 4 framp 8,5 læri 18 ull 8 Nr 12-001 er undan Frey og Kolbrá. Stigun : Þungi 41 ómv 29 ómf 3,4 lag 4 framp 9 læri 17,5 ull 7,5 Nr 12-003 er undan Frey og Laufey Stigun : Þungi 40 ómv 31 ómf 2,3 lag 4 framp 9 læri 18 ull 8 Nr 12-011 er þrílembingur undan Týr og Brynju. Stigun : Þungi 40 ómv 31 ómf 2,7 lag 5 framp 9 læri 18 ull 8. Hér eru svo stóru karlarnir Negri undan At , Rafts sonur og Hróa sonur. Skrifað af Dísu 13.11.2012 11:48Samantekt frá fæðingu á Emblu Marínu og Benóný Ísak07.11.2012 08:35Ásettnings gimbrarnar hjá Sigga í Tungu.Spíra er undan Bollu og Hróa sæðishrút. Stigun : þungi 49 ómv 29 ómf 4,3 lögun 4 framp 8,5 læri 17 ull 8 Toppa er undan Gloppu og Topp. Stigun : þungi 46 ómv 28 ómf 4,0 lögun 4 framp 9 læri 17,5 ull 7,5 Gufa er undan Gullu og Gosa sæðishrút. Stigun : þungi 48 ómv 28 ómf 3,2 lögun 4 framp 8,5 læri 17 ull 8 Dropa er undan Mjöll og Brimil. Stigun : þungi 49 ómv 28 ómf 2,9 lögun 4 framp 9 læri 17 ull 8 Mókolla kemur frá Friðgeiri á Knörr og ég veit ekki undan hverjum hún er en Siggi fékk hana í gjöf fyrir alla hjálpina við að smala í haust. Hún var ekki stiguð. 05.11.2012 10:00Ásettningsgimbrar hjá Gumma Óla og Óskari og Jóhönnu Bug.Dóra er undan Hlussu og Grábotna sæðishrút. Stigun : ómv 32 framp 8,5 læri 18 og lag 5 Silja er á móti hinni undan Grábotna og Hlussu. Stigun : ómv 31 framp 8,5 læri 17,5 og lag 4,5 Gulla er undan Mókápu og Frosta. Golsa er undan Frú Laufey og Svarta hrútnum hans Marteins. Dimma er undan Lullu og Mikka. Skessa er undan Tungu og Grábotna. Stigun : ómv 31 framp 9 læri 17,5 og lag 4,5 Kría er undan Helgu og Mikka. Fríð er undan Hlíð og Mikka. Klumba er undan Kofu og Jökli. Hrútarnir þessir tveir aftari eru frá Óla og sá svarti er undan Guffa og er í eigu Gumma. Það eru svo myndir af þessum fallegu gripum inn í albúmi hér með því að smella með músinni. Hér eru svo ásettningsgimbrarnar hjá Óskari og Jóhönnu í Bug. Eyrún er í eigu Óskars og er undan Hött og Mjallhvíti. Stigun : þungi 47 ómv 31 ómf 4,4 lag 4,5 framp 9 læri 17,5 ull 8,5 Kápa er í eigu Óskars og er undan Bjart og Þoku. Stigun : Þungi 45 ómv 28 ómf 3,2 lag 4 framp 8,5 læri 17,5 ull 7,5 Snúlla er í eigu Jóhönnu og er undan Herdísi og Hött. Stigun : Þungi 42 ómv 25 ómf 3,8 lag 3,5 framp 8,5 læri 17,5 ull 8,5 Hríma er í eigu Jóhönnu og er undan Hnotu og Brimill frá Mávahlíð. Stigun : Þungi 44 ómv 29 ómf 3,6 lag 4 framp 8 læri 17,5 ull 8,5 Hrútarnir þeirra Höttur og Bjartur. Höttur hefur verið svo mikið notaður hjá þeim að hann er kominn með nýjan eiganda hann Jóa á Hellissandi. Það er svo komið inn á Búvest vefinn hvaða sæðishrútar verða okkar megin í ár og getið þið séð það hér með því að smella með músinni hér. Ég er mest spennt yfir þeim mórauða og er búnað vera velta mikið fyrir mér hvort ég ætti að svampa mórauðu rollurnar og sæða með honum en ég hugsa ég endi með að nota bara mína hrúta en ég vona að einhver af þessum mórauðu verði að ganga þegar sæðingar hefjast svo ég geti sætt þær. Ég bloggaði líka inn á Búa mjög svipað blogg en endilega kíkið :) 123.is/bui 30.10.2012 10:01Ásettningsgimbrarnar 2012Drífa 12-018 er í eigu Dísu og er undan Laufey gemling og Frey hans Bárðar. Þungi 48 ómv 27 ómf 4,3 lag 3,5 framp 8,5 læri 17,5 ull 9 Hrifla 12-005 er í eigu Dísu og er undan Hlussu og Hriflon sæðishrút. Þungi 49 ómv 30 ómf 2,9 lag 4 framp 8,5 læri 18 ull 8. Hosa 12-006 er í eigu Dísu og er undan Topp og Dóru. Þungi 44 ómv 29 ómf 3,8 lag 4 framp 8,5 læri 17 ull 7,5. Mjallhvít 12-007 er í eigu Emils og er undan Frigg gemling og Storm Kveiksyni. Þungi 54 ómv 33 ómf 3,6 lag 5 framp 9 læri 18 ull 9. Dröfn 12-008 er í eigu Dísu og er undan Guggu og Hróa sæðishrút. Þungi 47 ómv 31 ómf 2,9 lag 4 framp 9 læri 17,5 ull 7,5. Sigurrós 12-009 er í eigu Emils og er undan Móheiði og Sigurfara sæðishrút. Þungi 44 ómv 30 ómf 5 lag 4 framp 9 læri 17 ull 7,5. Mist 12-010 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Nínu og Brimill Borða syni. Þungi 46 ómv 32 ómf 4,1 lag 4,5 framp 9 læri 17,5 ull 9. Hyrna 12-011 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Hrímu og Snævari sæðishrút. Þungi 47 ómv 32 ómf 3,8 lag 4,5 framp 9 læri 18,5 ull 9. Hrafna 12-012 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Flekku og Sváfni frá Hraunhálsi. Þungi 47 ómv 27 ómf 3,4 lag 4 framp 8,5 læri 17,5 ull 8. Sumarrós 12-013 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Kápu og Grábotna sæðishrút. Þungi 56 ómv 30 ómf 6,5 lag 4 framp 8,5 læri 17,5 ull 8. Maístjarna 12-014 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Stjörnu og Týr Mánasyni. Á eftir að fá stigun hjá Maju. Glódís 12-015 er í eigu Bóa og Freyju og er undan Skuggadís og Brimill Borðasyni. Þungi 47 ómv 31 ómf 2,5 lag 4,5 framp 9 læri 18 ull 8,5. Silla 12-016 Graslambið hans Bóa sem er undan Birtu og Brimill. Gjöf er í eigu Óla hennar Maju systir og er undan Gaga og Mola hún er eina gimbrin sem þau setja á. Á eftir að fá stigun hjá Maju. Þessi átti að vera með í ásettningshópnum en skilaði sér ekki heim og ég sé gríðalega eftir henni hún var á móti hinni flekkóttu þrílembingur undan Topp og Dóru og auðvita var hún betri helmingurinn það er alltaf þær sem koma ekki. Þungi 45 Ómv 34 ómf 3,2 lag 4 framp 9 læri 17,5 ull 7,5. Það eru svo myndir af þessum gimbrum og fleira inn í albúmi og gimbrunum hans Sigga í Tungu og set ég þær næst hér að framan en mig vantar bara fleiri upplýsingar um þær. Ég er búnað búa til link hérna hægra megin í horninu sem heitir gimbrar 2012. En hér eru myndirnar með því að smella hér. Hér eru Freyja og Bóa með barnabörnin það vantar bara Benóný hann var í fýlu og vildi ekki vera með Hér til vinstri er Jóhann sonur Dagbjörtu systir Emils svo kemur Freyja með Birgittu dóttur Steinars yngsta bróður Emils og svo Eyrún sem er dóttir Jóhanns elsta bróður Emils og við hlið hennar er bróðir hennar Jakob svo kemur Bói með Emblu okkar og síðan Emelía sem er dóttir Dagbjartar. Já þetta er sko flottur hópur og svo eiga 2 ný eftir að bætast í hann í desember því þá kemur eitt hjá Emil í viðbót og líka hjá Jóhanni elsta bróður Emils. Ég er sett 19 des og hún Þorhalla hans Jóhanns 20 svo þetta verður spennandi. Svakalegt stuð með kisu sem fékk nafnið Myrra. Henni leiddist ekki að láta keyra sig í traktrornum en var þó fljót að stökkva úr he he. Það eru svo myndir af Benóný og Emblu og fleiru með því að smella hér. Skrifað af Dísu Flettingar í dag: 316 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188505 Samtals gestir: 69640 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:31:23 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is