Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
25.11.2011 22:54Rollurnar teknar á hús og Breskir rúningsmeistarar Chris Hird og Ashley Story komu og tóku af.Nóg búið að vera gerast hjá okkur þessa dagana. Við tókum rollurnar inn 19 nóv og keyrðum þær út á Tungu á tveim bílum þar að segja bílnum hans Bóa og svo Gumma sem var svo almennilegur að bjóðast til að koma á bilnum sínum með hestakerruna og hjálpa okkur svo þetta gekk hratt fyrir sig. Þann 22 nóv komu svo til okkar Breskir rúningsmeistarar þeir Chris Hird og Ashley Story. Chris er búnað gera þetta í 5 ár og er frá Englandi og er einn fljótasti rúningsmaður Breta. Þessir strákar koma hingað og rýja þeir 10-15 þúsund kindur meðan þeir eru hér enda eru þeir allveg sjúklega snöggir að þessu og eru rúmmlega 1 mínótu með kind sem er náttúrulega bara rugl hraði. Hér eru þeir að störfum. Þetta er Ashley Story. Chris Hird. Sjá svo fleiri myndir hér Rollurnar komnar í réttina inn í Mávahlíð og skilja ekkert í því að fá ekki að fara inn. Verið að setja upp á kerru hjá Bóa og svo var Gummi einnig með kerruna sína svo þetta gekk mjög vel. Svo var keyrt með þær út á Tungu og þar bíður þeirra glæsileg fjárhúsaðstaða í vetur. Embla var fljót að eignast vínkonur og voru það Valbrá og Týra sem voru svo gæfar. Hér er Benóný lukkulegur á Rambó. Embla Marína og Donna. Emil Freyr og Embla Marína. Ég og Embla á Rambó. Það eru svo fullt af fleiri myndum af þessu öllu saman hér. Jæja nú er ég orðin grasekkja aftur því Emil fór austur núna í morgun en verður vonandi ekki eins lengi og seinast. Fyrsti snjór vetrarins kom svo í gær svo það hefur bara verið góður tími að taka rollurnar inn hjá okkur. 18.11.2011 11:43Gimbrarnar hjá Óttari upp á Kjalveg.Þessi heitir Dóra og er undan Morgun og Báru. Þessi heitir Skeifa og er undan Klett og Krumpu. Þessi er undan Tirtu og Klett og heitir Tirta ,mamma hennar dó í sumar. Þetta er hin systirin undan Tirtu og Klett. Þessi heitir Sending og er undan Eldingu og Klett. Þessi heitir Stygg og er undan Borða og Lummu. Þessi heitir Skrúð og keypti Óttar hana á Fáskrúðarbakka og er hún undan Sokka. Þessi heitir Dimmalimm og er undan Dimmu og Morgun. Þessi er þrílembingur undan Klett. Þá eru allar gimbrarnar hans komnar og er þetta feikilega fallegur og vænn hópur og voru þær allar með 30 í ómv og yfir og 18-18,5 í læri. Það er ekki hægt að fá það betra. Varð að setja þessa líka þær systur stilltu sér svo vel upp fyrir mig og sjáið sérstaklega þessa hægra megin hvað hún stendur gleytt og flott. Þær eru undan Klett. Það er svo fullt af myndum af heimsókn minni hjá Óttari inn í albúminu svo endilega skoðið. En nú er komið að hrútunum hjá Óttari. Hérna er hann Morgun 09-395 sem er undan Dag 08-392 og Drottningu 06-009. Hérna er svo Klettur 10-397 undan Kveik 05-965 og Lummu 07-023. Hér eru þeir saman ekkert smá bollangir og vel gerðir hrútar hjá honum Óttari. Það eru svo einnig fleiri myndir af þeim í albúmi. Jæja það er nú alltaf eitthvað spennandi að gerast í sauðfjárræktinni því nú er fundur á Breiðabliki um sæðishrútana en ég sá mér ekki fært að fara vegna barnanna minna en ég hlusta þá bara á hann á netinu eða fæ fréttir hjá Gumma eða Bárði um hann. Ég er núna sveitt af valkvíða hvernig ég á að raða hrútunum mínum á rollurnar, já það er bara vesen að setja svona marga hrúta á og vera með 3 fullorðna en það er þá bara meira úr að velja og svo á eftir að ákveða hvort maður eigi að sæða þegar að því kemur hverjar verða að ganga fyrstu vikuna í des. Skrifað af Dísu 11.11.2011 10:09Gimbrarnar hans Sigga í Tungu.Þessi er undan Skessu og Svarta Kveiksyninum hans Hreins á Berserkseyri. Þessi heitir Valbrá og er undan Blíðu og Grána. Þessi heitir Brúska og er einnig undan Blíðu og Grána. Þessi er undan Fjöður og Grána eða Efa Siggi verður að kommenta um það ég man ekki allveg hvorum hún er undan ;). Ég man að þessi var með 18 í læri. Jæja það komið á hreint að hún er undan Efa. Þessi er undan Rjúpu og Svarta Keiksyninum og var hún með 18 í læri og 33 í ómv. Hér er svo hin systirin undan Rjúpu og svarta Kveikson einnig með 18 í læri. Þessi er undan Bollu og Grána. Ég man að hún var með 17,5 í læri. Þeir sem ekki vita þá er Efi undan Vafa hans Eiríks sem er væntalega að fara á Sæðingarstöðina held að hann fari fyrst í afkvæmarannsókn á Hjarðafell. Þessi er tvílembingur undan Svört gemlinginum hans Sigga og Efa og er með 31 í ómv og 5 í lögun og var hrútur á móti henni sem var með 18 í læri og stigaður upp á 84,5 stig. Svo Svört er allveg afburðar kind. Þessi er undan Gullu gemling og Grána held ég. Hún er einnig tvílembingur, já það vantar sko ekki frjósemina hjá honum Sigga. Þessi heitir Mjöll og er undan Hlussu og Herkúles og er með 30 í vöðva og 18 í læri. Ég varð að blogga núna meðan Embla sefur og Benóný er á leikskólanum svo ég fái frið og þess vegna gat ég ekki beðið og spurt Sigga um feðurna til að hafa það pottþétt en ég geri það næstu daga og þá bæti ég bara inn í til að hafa þetta hundrað prósent rétt Ég ætla svo að reyna gefa mér tíma til að heimsækja sem flesta hér á svæðinu og taka myndir af ásettnings gimbrum og hrútum hjá þeim sem vilja því það er voða gaman að geta skoðað það hjá öðrum Nú er Karítas frænka búnað yfirgefa okkur og Maja og Óli komin heim svo við erum bara 3 í koti ásamt köttinum Olíver og hundinum Donnu og fiskarnir 2 Steinar og Maggi. Það gekk þó bara ágætlega að koma Emblu og Benóný í háttinn í gær en Benóný er alltaf að spurja um Emil og kalla pabbi pabbi hann er ekki allveg að skilja að hann sé út á sjó og svo þegar Emil hringir ljómar hann allveg og segir Emil og fer að syngja fyrir hann Two and a half men lagið hann elskar það þessa dagana og syngur men men úhú úhú algjör dúlla svo það er víst að við erum farin að sakna Emils mjög mikið Hér kúra Embla og Olíver saman voða kósý. Hér er ég með vínkonu minni sem ég hélt að væri Feikirófa eins og ég var búnað skíra hana því hún er eins og þyrluspaði með dindilinn þegar maður klappar henni en svo kom í ljós að Bói á hana og var búnað skíra hana Dimmu svo þetta er hún Dimma he he. Við fórum að heimsækja Bárð og Dóru og skoðuðum ásettningsgimbrarnar hjá honum og eigum við eftir að fara og taka mynd af þeim einni og einni og fá upplýsingar um hverja og eina en hér eru þau Mist og Máni sem fæddust í sumar og eru heldur betur orðin pattaraleg. Karítas fór hamförum hjá Bárði að reyna ná hænunum og náði loksins einni he he. Bárður og Benóný í djúpum samræðum um hænsnabúið og hænurnar. Geðsleg he he ég var að gefa henni að borða og svo hnerraði hún og púff allt út um allt upp á nef he he og svo hló ég svo mikið að hún fór að skellihlæja. Jæja kæru vinir það er svo hellingur af myndum í albúminu endilega skoðið. 07.11.2011 10:46Hver þarf á líkamsrækt að halda þegar smölun er annars vegar !Þeir komust í hörku líkamsrækt yfir helgina þeir Sigurður Gylfason Tungu og Þórarinn (Bói) þegar þeir fóru að ná rollum sem við vorum búnað sjá í hlíðinni fyrir neðan Fögruhlíð. Þær voru komnar niður í vikunni þegar það fór að snjóa svo mikið upp í fjalli. Þetta byrjaði bara rólega með því að Siggi fór upp og Bói fylgdist með niðri á bílnum og svo kom ég líka á bílnum mínum og þá ákvað Bói að halda upp í hlíð til að koma á móti Sigga. Þá hófst ballið því ég sá að rollurnar sem Siggi var með fóru til baka upp að Rauðskriðumeli svo ég gaf í og náði að komast fyrir þær í gryfjunni og þá kom Siggi niður líka og náðum við að reka þær niður á veg og á meðan þurfti Bói að bíða þangað til Siggi kæmist upp aftur til að ná í hinar. En það gekk ekki betur en það að við vorum allveg að koma með þær inn að Mávahlíðarafleggjara þá tóku þær að strauja til baka aftur og aftur og svo bættist Óli á Mýrum í leikinn en þær ætluðu sér ekki inn. Hér er Siggi komin með þær að afleggjaranum. Þær fóru svo niður að Tröð og þeir á eftir og Siggi Arnfjörð var svo á rúntinum og slóst hann með í eltingarleikinn og Bói sá í hvað stemmdi og kom niður. Ég fór svo og náði í kerruna og var þeim þá búnað takast að handsama þær í skurðinum og halda þeim í gömlu rústunum af fjárhúsunm hans Kalla í Tröð. Það kom svo í ljós að þetta voru allt saman kindur frá Óla á Mýrum svo það er gott að vera búnað ná þeim. Hann missti þær í leitunum og hefur ekki heimt þær síðan svo það voru lömb í þessu líka meira segja sæðishrútur undan Frosta. Óli og Siggi ætluðu að ná þessu lambi en það lét sér ekki segjast og tók á sundsprett í vaðlinum og fór svo inn á tún inn í Mávahlíð. Það voru svo fleiri rollur sem urðu eftir í hlíðinni og stuggðust þær við lætin í okkur niðri og héldu upp í fjall aftur en það var ákveðið að reyna við þær aftur á morgun. Dagur 2 í ræktinni Jæja þeir héldu aftur af stað að ná í restina sem varð eftir og voru þær komnar fyrir ofan rauðskriðumelið og hófst mikill eltingarleikur hjá þeim allveg niður að Tungu og svo var grá rolla frá Friðgeiri á Knörr sem var fyrir ofan bústaðinn hjá Maju og tók hún strikið niður og yfir allar girðingar og allt saman. Það var svo lambið með henni sem fékk sér sundsprettinn í gær svo það þurfti ekki að vera að elta það inn í túni. Þetta voru sem sagt rollur frá Knörr,Gaul og Óla á Mýrum. Þetta hafðist svo allt að lokum, þeir náðu að stökkva á þetta allt saman og færa upp í kerru,já það vantar ekki dugnaðinn í þessa rösku smalamenn. Hérna er verið að henda upp á kerru. Bói með eina frá Friðgeiri á Knörr. Jæja þá var þessum líkamsræktar degi lokið og þá beið þeirra heitt kaffi og meðlæti hjá Gerðu. Gaularinn var svo loksins mætt á svæðið svo Heiða getur verið glöð að hún sé komin og var hún með 2 lömb. Siggi og Bói eru svo á fullu að gera klárt fyrir okkur áður en við förum að taka rollurnar inn. Þeir eru að reisa upp stoðir undir grindunum og skipta út efni sem er orðið lélegt. Ein krúsídúllu mynd af henni Emblu Marínu í flotta kjólnum sem Hafdís frænka tvíburasystir mömmu var að hekla á hana. Sæti stríðniskúturinn minn Benóný Ísak og Embla Marína. Við erum bara þrjú í koti núna og ég orðin grasekkja því Emil er farinn austur á Breiðdalsvík að róa með Þórsnesinu og verður það fram að jólum en kemur vonandi einhverja helgi í frí heim en ég er svo heppin að hafa Karítas frænku hjá mér fram á fimmtudag en þá koma Maja og Óli heim þau eru búnað vera í Florída í viku. Það eru svo fullt af myndum af smöluninni og krökkunum í myndaalbúminu svo endilega kíkið á það. Kveð að sinni Skrifað af Dísu 31.10.2011 11:35Gimbrarnar okkar 2011Gimbrar 2011Búkolla 11-001 er undan Boga 04-814 sæðishrút og Flekku 07-005 Stigun 48 31 6,5 4 8,5 17,5 8,5 Nala 11-002 er undan Skugga 07-504 og Pöndu 10-004 Stigun 40 33 3,8 4 9 18 8 Frigg 11-003 er undan Herkúles 06-046 og Gulbrá 09-006 Stigun 46 34 3,6 4 9 17,5 8 Kría 11-004 er undan Herkúles 06-046 og Hlussu 01-660 Stigun 48 30 4 4,5 9 18 8,5 Lotta 11-005 er undan Morra 10-404 og Móru 10-014 og er í eigu Freyju Stigun 42 31 3,2 4 8,5 18 8 Dimma 11-006 er undan Negra 10-711 og Heklu 10-007 og er í eigu Bóa Stigun 41 31 2,7 4 9 18 8 Birta 11-007 er undan Mola 09-014 og Hrímu 04-767 hún er í eigu Bóa. Stigun 58 33 6,3 3,5 9 18,5 8,5 Týra 11-008 er undan Negra 10-711 og Þúfu 10-011 og er í eigu Bóa. Stigun 42 32 3,6 4 9 18 7,5 Elding 11-009 er undan Morra 10-404 og Rauðhettu 09-010 Stigun 50 34 4,3 4 9 18,5 8 Feykirófa 11-010 er undan Negra 10-711 og Mýslu 05-025 Stigun 50 30 3,2 4,5 9 18 8 Svana 11011 er undan Mola 09-014 og Aríel 08-006 Stigun 44 33 3,4 5 9 18 8 Mola 11-012 er undan Mola 09-014 og Rós 08-001 Stigun 40 33 2,7 5 9 18,5 8 Ösp 11-013 er undan Mána 09-849 sæðishrút og Rák 09-005 Stigun 50 35 5,6 4,5 9 17,5 7,5 Það á svo eftir að koma ein í viðbót sem ég fæ í skiptum hjá Bárði. Til gamans er ég svo búnað setja inn hér í horninu til hægri allan gimbra hópinn okkar frá 2007 undir Gimbrar 2007-2011. 21.10.2011 19:58Gimbrarnar teknar inn í Tungu.Jæja nú erum við búnað taka inn gimbrarnar og eins og flestir vita þá erum við hætt að vera í fjárhúsunum inn í Mávahlíð vegna þess að það er allt á sölu og einnig er komið verulegt viðhald á fjárhúsin sem er ekki vert að gera ef það yrði svo bara kippt undan manni ef það myndi seljast. Himnasending átti sér annars stað þegar Siggi og Gerða í Tungu voru svo rosalega almennileg að bjóða okkur að vera hjá sér í vetur og þáðum við það með þökkum. Ég er allveg himinlifandi yfir því að vera komin með gimbrarnar inn og geta farið að stjana við þær og er ég strax búnað gera eina spaka svo það byrjar vel . Mér lýst bara rosalega vel á þetta og eru fjárhúsin í Tungu líka mun flottari aðstað heldur en við vorum með í Mávahlíð og líka gaman að vera fleiri saman þá er meiri félagsskapur í kringum þetta. Ég er búnað taka böns af myndum af gimbrunum en ætla ekki að setja þær allveg strax inn hér á forsíðuna fyrr en ég er búnað ná góðum myndum af öllum svo ég geti sett mynd , stigun og ættir með inn. Það eru samt myndir af þeim í albúmi og einnig fór ég í heimsókn til Gumma Óla og tók myndir af ásettnings gimbrunum hans sem eru afskaplega flottur hópur og flottir litir. Ég set nú eiginlega allt of mikið á þær voru allar svo góðar en það voru 10 fyrir valinu hjá mér og 4 hjá Bóa svo við erum alls með 14 gimbrar. Siggi setur svo 10 gimbrar á. Þannig að þetta er stærðar hópur hjá okkur 24 alls. Það eru svo 4 lamb hrútar settir á og á ég svo 3 fullorðna og Siggi er með einn veturgamlan en ég set myndir af því öllu saman inn bráðlega. Í dag kom Bárður með Mána soninn minn,Borða soninn og Boga soninn sem voru allir í góðu yfirlæti hjá honum síðan á hrútasýningunni og þakka ég honum kærlega fyrir það. Hann kíkti svo á gimbrina sem ég ætla að láta hann hafa í skiptum fyrir aðra hjá honum. Jæja kíkið nú á gripina í albúminu. Hér eru ásettnings gimbrarnar hans Gumma Óla. Hér er ein hjá Gumma sem heitir Frú Laufey. Hlussu dóttirin hans Gumma. Hún er undan Hlussu Gumma og Þrándi. Þessi er undan Kveik og Hlíð hennar Þuríðar. Þessa fékk hann hjá Palla og er hún undan Dag. Þessi er undan Bjarka mórauða hrútnum hans. Þessi er þrílembingur hjá Gumma. Þessi er undan rollu hjá Snorra og Topp frá okkur. Hér er svo ein svartgolsótt hjá honum svo hann er að verða kominn með alla liti. Gleymdi allveg að það eru komnir hænu ungar hjá Bóa og Freyju í sveitinni. Bói duglegur að svíða í slyddunni. Skrifað af Dísu 16.10.2011 22:54Héraðssýning lambhrúta á Bjarnarhöfn 2011Verðlaunahafar á Héraðsýningu lambhrúta á Snæfellsnesi 2011. Hvítir hyrndir Í fyrsta sæti var Ásbjörn Pálsson í Syðri Haukatungu með hrút undan Gosa frá Ytri Skógum. Í öðru sæti var Heiða og Júlli frá Gaul með hrút undan Hriflon og í þriðja sæti var Gunnar frá Hjarðafelli með hrút undan Frosta. Stigun hrútana hljóði svo : 1 sæti : Þungi 54 fótl 112 ómv 33 fita 2,3 lag 5 8 8,5 8,5 9,5 9 18,5 7,5 8 8,5 alls 86 stig. 2 sæti : Þungi 52 fótl 108 ómv 39 fita 2,5 lag 5 8 8,5 8,5 10 9 18,5 8 8 8,5 alls 87 stig. 3 sæti : Þungi 50 fótl 111 ómv 36 fita 1,8 lag 5 8 8 8,5 10 9,5 18,5 8 8 8,5 alls 87 stig. Kollóttir hrútar Í fyrsta sæti var Guðbjartur og Harpa á Hjarðafelli með hrút undan Snær frá Hjarðafelli. Í öðru sæti var einnig frá Hjarðafelli og var sá hrútur undan Boga. Í þriðja sæti var svo Herborg Sigríður frá Bjarnarhöfn með hrút undan Frosta. Stigun hrútana hljóðaði svo : 1 sæti : Þungi 45 fótl 105 ómv 34 fita 4,2 lag 4 8 8,5 8,5 9 9 18 9 8 8,5 alls 86,5 stig. 2 sæti : Þungi 49 fótl 108 ómv 32 fita 4,1 lag 4 8 8,5 8,5 9 8,5 18 9 8 9 alls 86,5 stig. 3 sæti : Þungi 44 fótl 108 ómv 33 fita 3,1 lag 4 8 8,5 8,5 9 8,5 18 8 8 8 alls 85 stig. Mislitu hrútarnir Í fyrsta sæti var Guðlaug frá Hraunhálsi með hrút undan Lumbra sem er heimahrútur. Í öðru sæti var Haukatunga Syðri með hrút undan Bykar. Í þriðja sæti var Eggjart frá Hofsstöðum með hrút undan Sokka. Stigun hrútana hljóðaði svo : 1 sæti : Þungi 50 fótl 109 ómv 34 fita 2,5 lag 4 8 9 9 9 9 18 8 8 8 alls 86 stig. 2 sæti : Þungi 46 fótl 108 ómv 30 fita 2,3 lag 5 8 8 8,5 9 8,5 18,5 8 8 8 alls 84,5 stig. 3 sæti : Þungi 57 fótl 108 ómv 32 fita 3,1 lag 4,5 8 8,5 9 9 8,5 18 8 8 8 alls 85 stig. Besti lambhrútur Snæfellinga 2011 er í eigu Ásbjörnar í Syðri Haukatungu. Stalst til að taka afrit af þessari mynd hjá vini mínum Svan í Dalsmynni en þetta er sigurvegari sýningarinnar og er hann austan megin við girðinguna svo ég náði ekki mynd af honum, Hann er í eigu Ásbyrnar eins og kom fram og er undan Gosa frá Ytri skógum. Þessi var efstur í flokki mislitra frá Guðlaugu á Hraunhálsi og tók ég afrit af þessari mynd hjá honum Eiríki Helgasyni. Þessi var efsti kollótti frá Hjarðafelli og stalst ég líka til að taka afrit af henni hjá Svani í Dalsmynni. Dómarar voru svo þeir landsfrægu Lárus Birgisson og Jón Viðar. Það var svo einnig nýtt núna að það voru veittar viðurkenningar fyrir afurðamestu ærnar í skýrsluhaldi á þessum svæðum og var þar efst ær frá Mýrdal og svo frá Syðri Haukatungu og Hjarðafelli og einhverjar fleiri sem ég man ekki allveg hvaðan þær voru. Skrifað af Dísu 14.10.2011 11:34Senn líður að hrútasýningu.Skemmtileg helgi framundan hrútasýning á Bjarnarhöfn sem hefst kl 13 á laugardaginn. Allir að mæta og koma með góða skapið og góða veðrið með sér Komið nóg af rigingu og roki í bili réttara sagt og ekki má gleyma að taka aðal hrútana sína með sér og greiða þeim og pússa fyrir sýningu Það eru svo nýjar myndir í myndaalbúmi af afmæli Freyju hrútum og nýja rúmið hans Benónýs. Í tilefni að þessum merka áfanga set ég hér mynd af vinningshafa skjöldsins í fyrra 2010 Heiða á Gaul með farandsskjöldinn 2010 fyrir besta lambhrútinn. Svo nú verður spennandi að sjá hver verður arftakinn hennar eða hvort hún haldi titlinum. Gullfallegur hrúturinn hans Bárðar undan sæðishrútnum Sokka. Hann er þrílembingur og með 18 í læri svo hann verður að fara með þennan Demant á sýninguna. Freyja og Bói komu æðislega á óvart síðasta föstudag og giftu sig í leyni Óskum við þeim innilega til hamingju og megi gæfa og hamingja fylgja þeim um aldur og ævi. Skvísan okkar var svo 6 mánaða 28 sept ég var allveg búnað gleyma að setja það inn það er svo mikið að gera í rollu stússinu hjá mér ;) 30.09.2011 13:26Hrútasýning veturgamla á Mýrum 2011 og stigun hér og þar.Í fyrsta sæti hyrnda hrúta var Óttar með hrútinn Klett undan Kveik og stigaðist hann svona Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 9 9 9,5 9,5 18 7,5 8 8,5 87 stig Þungi 105 ,fótl 121,ómv 41, ómf 7,9 og 4,5 í lögun. Í öðru sæti var Snorri Rabba með Heysa sem er undan Þrándi sem er undan Bifur og stigaðist hann svona : Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 8,5 9 9,5 9 18 8,5 8 8 86,5 Þungi 90,fótl 119, Ómv 42, ómf 6,7 og 5 í lögun. Í þriðja sæti var svo Jón Bjarni og Anna Dóra með hrút undan Bjarti frá Bergi sem stigaðist svona : Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 8,5 9 9 9 18,5 8 8 8,5 86,5 Þungi 85,fótl 120, Ómv 37, ómf 3,1 og 5 í lögun. Í fyrsta sæti kollótta var Rúnar frá Kverná með hrút undan Blett og Gul stigaðist hann svona: Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 8,5 8,5 8,5 8,5 18 8 8 8 84 Þungi 67, fótl 120,Ómv 31,ómf 6,3 og 4 í lögun. Í öðru sæti var Ólafur Tryggva með hrút undan Grettir og Botnu sem stigaðist svo : Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 8,5 8,5 8,5 8,5 18 8 8 8,5 84 Þungi 86,fótl 122,Ómv 31,ómf 7,9 og 4,5 í lögun. Í þriðja sæti var svo Ólafur Tryggva líka með hrút undan Skugga sem stigaðist svo : Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 8,5 9 9 9 18 7,5 8 8 85 Þungi 80,fótl 121,Ómv 33,ómf 9 og 4,5 lögun. Í fyrsta sæti mislitra var Bárður og Dóra með hrútinn Negra undan At hann stigaðist svo : Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 8,5 9,5 9 9 18,5 8 8 8,5 86 Þungi 82, fótl 119, Ómv 33, ómf 4,1 og 4 í lögun Í öðru sæti var Siggi í Tungu með Grána undan Svarta Kveik syninum hans Hreins. Stigaðist hann svo: Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 8,5 9,5 9 9,5 18 8 8 8,5 86 Þungi 113,fótl 125,Ómv 35,ómf 8,1 og 4 í lögun. Í þriðja sæti var Hrútur frá Bibbu og Valla undan Pjakk og Snoppu. Stigaðist hann svo : Haus H+h B+útl Bak Malir Læri Ull Fætur Samr Alls 8 8,5 8,5 9 8,5 17,5 7,5 8 8,5 84 Þá er þetta upptalið það eru svo komnar fullt af myndum hjá mér 3 ný myndaalbúm, það er réttirnar í Ólafsvík og svo stigun hér og þar hjá bændum hér í nágrenninu og svo hrútasýningin svo endilega kíkið og kommentið kæru blogg vinir. kveðja Dísa 26.09.2011 14:33Til SöluEr búnað setja inn myndir af fé sem ég er búnað velja fyrir þá sem vilja kaupa svo endilega kíkið inn í myndaalbúmið hér hliðina á í hægra horninu. Er með 2 svarta hrúta sem stigast báðir upp á 85,5 stig með 18 í læri og 30 í vöðva og er stigunin á þeim ásamt myndum í myndaalbúmi ef einhver hefur áhuga á að kaupa. Það væri allveg synd að þurfa að slátra þeim. 24.09.2011 00:40Stigun hjá okkur 23 sept.Jæja hnúturinn í maganum er farinn núna og fæ ég örugglega spennufall eftir þetta allt saman he he. Nú tekur annars við erfitt val milli fallegra lamba því dómarnir voru sko bjartari öllum vonum. Við stiguðum 33 gimbrar eða allar gimbrarnar okkar nema eina sem var hölt og einn hrút líka sem var eitthvað haltur og fengum við af þessum 33 gimbrum 24 með 30 í ómv og yfir og hæðsta var með 35 í ómv og var hún undan Mána sæðishrút og var hún með 17,5 í læri. Næst á eftir henni var mórauð gimbur með 34 í ómv og 18,5 í læri og er hún undan Morra mórauðum hrút frá Lalla í Gröf sem er undan sæðishrútnum Smyril. Við fengum 13 gimbrar með 18 í læri og 3 með 18,5, þrjár með 17 og 14 gimbrar með 17,5 svo ég er allveg virkilega sátt með þessa útkomu. Sæðishrútarnir voru mjög góðir og reikna ég með að setja þá alla á því ég get bara ekki valið á milli þeirra Hrútarnir mínir komu líka vel út ég fékk 11 af 22 hrútum með 85 stig og yfir og 2 svarta með 85,5 stig báðir með 30 í vöðva og svo einn annan svartan með 86 stig og 35 í ómv svo það má segja að ómvöðvinn hafi verið gríðalega sterkur hjá mér í ár. 12 af 22 hrútum með 30 í ómv og yfir. Ég verð með það sem ég ætla selja inni yfir helgina en svo verður fljótlega slátrað því girðingarnar eru ekki góðar hjá mér til að halda þessu inni. Svo þeir sem hafa hugsað sér að koma og kaupa endilega kíkið þá um helgina og hafið samband við mig í síma 8419069. Það eru svo fleiri myndir í albúmi . Sæðingur undan Mána og Rák frá Mávahlíð. 52 kíló 109 fótl ,34 í ómv, 4,7 í fitu, 5 í lögun, 8 haus 8,5 H+h, 9 B+útl,9 bak, 9,5 malir,18 læri 7,5 ull,8 fætur 8,5 samræmi Alls 86 stig. Sæðingurinn undan Kveik og Nínu frá Mávahlíð. 51 kíló 110 fótl ,36 í ómv, 3,2 í fitu, 4,5 í lögun, 7 haus 8,5 H+h, 9 B+útl,9,5 bak, 9 malir,18,5 læri,8 ull ,8 fætur 9 samræmi Alls 86,5 stig. Það var búið að stiga hann 87,5 stig en þá leyndist smá trana á honum sem lækkaði hann um 1 stig algjör synd því þetta er allveg klassa skepna. Sæðingurinn undan Borða og Ylfu frá Mávahlíð. 61 kíló 110 fótl ,36 í ómv, 5,2 í fitu, 4,5 í lögun, 8 haus 8,5 H+h, 9 B+útl,9,5 bak, 9 malir,18,5 læri, 8 ull,8 fætur 9 samræmi Alls 87,5 stig. Sæðingurinn undan Boga og Flekku frá Mávahlíð. 64 kíló 114 fótl ,30 í ómv, 4,7 í fitu, 4 í lögun, 8 haus 8,5 H+h, 8,5 B+útl,8,5 bak, 8,5 malir,17,5 læri, 8,5 ull,8 fætur 9 samræmi Alls 85 stig. Þessi mórauði er undan Rauðhettu og Morra hans Lalla í Gröf og var hann stigaður upp á 50 kíló 114 fótl ,29 í ómv, 3,8 í fitu, 4 í lögun, 8 haus 8 H+h, 8,5 B+útl,8,5 bak, 9 malir,17,5 læri, 8,5 ull,8 fætur 8,5 samræmi Alls 84,5 stig. Það var einnig gimbur á móti honum sem var allveg gríðalega góð og er einnig mórauð. 50 kíló, 34 í ómv , 4,3 í fitu, 4 í lag, 9 frp , 18,5 í læri og 8 fyrir ull. Hún er auðvitað sett á. Það er sko aldeilis orðið flott hjá honum Gumma Ólafs hann er búnað gera extream makeover á fjárhúsinu sínu. Svo nú er bara að fara fjölga og ég veit að hún Þurý frænka fær bara vatn í munninn að hugsa um allt kjötið he he. Það var aldeilis fallegt veðrið þegar við vorum að reka inn. Hér er Tunga. Skrifað af Dísu 19.09.2011 10:31Stigun hjá Bárði og Dóru og smalað hjá okkur 17 sept.Jæja það var stigað hjá Bárði og Dóru um daginn og kom það bara allveg ljómandi út held að það hafi verið um 20 gimbrar með 18 og 18,5 í læri og mjög sterkan bakvöðva sá mesti sem ég heyrði var 34 (sú gimbur var undan Hróasyni frá þeim )svo þetta eru allveg gríðalega flottir dómar. Hér er Árni frá Búnaðarfélaginu að dæma. Hérna er Sokka sonur hjá Bárði sem er þrílembingur og fékk hann 18 í læri. Það er svo búið að vera mikill gleði því það var smalað á laugardaginn hjá okkur og hittumst við öll í Tungu hjá Sigga og Gerðu og ákváðum málin og fór það svo að Siggi og Hannes vinur hans frá Leirárgörðum fóru upp Tungu megin og Bói með þeim og lá leið þeirra lengst upp í Svartbakafell og þar fyrir ofan. Maja og Óli fóru svo upp hjá Kotaketilshöfðanum og löbbuðu þar yfir í urðirnar og yfir í Fellið. Ég,Emil og Karítas tókum hlíðina og gekk þetta bara allt rosalega vel og var þó nokkuð mikið af aðkomufé inn í þessum hóp sem við náðum. Okkar biðu svo stórkoslegar kræsingar og kaffi hjá Gerðu sem er orðin árlegur viðburður í okkar smalamennsku. Hér eru smalarnir með hluta af fénu. Þessi er frá Friðgeiri á Knörr og kom hún líka í fyrra og gafst hún upp núna og fékk far á fyrsta farrými með Emil. Það komu 35 kindur frá Knörr í þessari smölun og eitthvað frá Ólafsvík og svo Óla á Mýrum. Brynjar kom að sækja sitt fé og notuðum við tækifærið til að vigta hann og stiga Nei nei hann var vigtaður til að sjá hvort vigtin væri rétt og reyndist hún vera það . Hér eru svo sæðingarnir okkar kollóttur undan Boga og var hann þyngstur eða 64 kíló svo nú er bara vona að hann verði ekki allt of feitur en þukklurunum Sigga og Hannesi fannst hann heldur með slakari læri í samanburði við hina. Næsti er undan Keik og var hann 51 kíló svo áttum við annan en hann drapst fyrir 3 vikum. Svo er það Mána sonur en hann var 52 kíló og sá síðasti er Borða sonur og var 61 kíló. Þeir eru allir tvílembingar nema Borða sonurinn og er hann undan tvævettlu. Ég er agalega spennt fyrir að fá stigunina á þessum og vona að einhver af þeim verði ásettningur. Mér líst eiginlega best á þennan en þetta er Borða sonurinn og er allveg gríðalega fallegur og löng skepna. Ég náði ekki nógu góðum myndum af þeim þeir vildu ekki stilla sér upp fyrir mig en ég á örugglega eftir að ná betri myndum þegar það verður stigað. Það var svo einn svartur hrútur undan Negra hans Bárðar sem strákunum leyst vel á svo það verður mjög spennandi að sjá þegar það verður stigað ég er allveg að farast úr spennu og kvíða fyrir föstudeginum hverning þetta kemur allt saman út. Mána sonurinn og Kveik sonurinn. Þyngdin á lömbunum kom mjög vel út, léttasta lambið hjá Sigga í Tungu var 40 kíló svo það var afburðar þung lömbin hjá honum. Meðalþyngdin hjá okkur Bóa var 46 kíló svo það er ekki hægt að kvarta yfir því. Léttasta hjá okkur var tvílembingar gemlings lömb sem voru 34 og 38 kíló. Mána sæðingurinn hann er aðeins gulur. Jæja það eru svo fleiri myndir í albúminu svo endilega skoðið. Skrifað af Dísu 14.09.2011 09:37Fljótstungurétt og Benóný byrjar í leikskólanum.Góðan daginn það er sól í dag úti þrátt fyrir að það sé nú bara 6 stiga hiti og rok og kuldi svo það er sannarlega orðið haustlegt á að líta. Það er áætlað að smala um helgina svo það er bara að vona að veðrið haldist skykkanlega. Við brugðum okkur í Fljótstungurétt seinustu helgi og var þar mikið fé rekið inn ég hef bara aldrei farið í svona stórar réttir áður og var mjög flott að sjá þetta efst upp í dal var þessi gríðalega stóri hópur sem kom svo niður hlíðina og niður í rétt og ætlaði hópurinn aldrei að taka enda. Sagt er að þetta séu 4 þús til 6 þús kindur. Það versta var að Benóný var veikur svo við gátum lítið staldrað við úti nema því aðeins til að taka myndir af því það var nístings kuldi og rok. Ég náði þó nokkuð af myndum og eru þær inn í myndaalbúminu. Hér eru rollurnar komnar inn í þessa fallegu rétt. Og hér er restin að týnast niður og tók það dágóðan tíma að sjá allan þennan skara koma niður til réttarinnar. Náði loksins að mynda sæðinginn minn undan Borða og lýst mér bara vel á hann í fjarska og er ég búnað binda miklar vonir við hann svo nú er bara að bíða og vona. Svolítið skondin mynd en hér sést aftan á Borða soninn en það er víst ekki alltaf að marka að sjá það en mér finnst voða gaman að pæla í því úr því að ég er ekki en þá búnað læra þessa þukkl tækni heldur fæ ég bara álit hjá Bárði. Hér er svo stóri leikskóla strákurinn okkar sem neitar allveg að borða á leikskólanum allveg agalegur þetta er 3 vikan hans sem hann kemur glorsoltinn heim því hann neitar að borða. Embla Marína stækkar með hverjum deginum og fékk að naga gulrót í fyrsta sinn um daginn og var mjög lukkuleg. Bói og Perla í réttunum. Karítas með kanínu stofninn sinn og Benóný allveg sjúkur í þær og Donna voða forvitin. Það var sleppt kanínum út á Hellissandi og eru þær út um allt lausar og tókst Köru og vinum hennar að ná nokkrum og eru með þær í bílskúrnum hjá Karítas. Benóný var aldeilis búin á því eftir leikskólan í gær og steinsofnaði í sófanum ofan á Olíver ekkert smá fyndið þetta hefur aldrei skeð að hann hafi sofnað svona sjálfur. Svo komst Olíver ekki burtu og var að reyna að komast undan svo Emil lyfti Benóný aðeins upp svo hann kæmist he he. Skrifað af Dísa 06.09.2011 11:31Rollur og aftur lömb.Jæja ég er allveg að tapa mér í því að fara á rúntinn á hverjum degi og reyna að ná alltaf betri og betri myndum af lömbunum. En svona er þetta þegar maður er svona heltekinn af þessari vitlausu he he. Það er komið á hreint að það verður stigað 23 sept svo ég smala líklega helgina 17 á sama tíma og Grundararnir enda er þetta allt í einum graut inn í Höfða bæði frá mér og öðrum. Það er samt allveg yndislega gaman að hafa þetta áhugamál og hafa þennan spenning í maganum að bíða eftir smölun og stigun sérstaklega núna þegar ég á loksins sæðinga eftir mína sæðingu. Ég sæddi nú samt fleiri rollur hjá Bóa en hann er svo mikil öðlingur að hann skiptir fúslega við mig því hann var ekkert að sækjast eftir að sæða heldur sæddi ég bara það sem var að ganga þessa daga. Endilega kíkið í myndaalbúmið ef þið hafið áhuga að skoða því þar eru fleiri myndir af lömbunum. Ég ætla nú að bæta því hér við að ég hef ekki verið talandi í 3 daga fékk svo heiftalega hálsbólgu að ég þarf að hvísla og get ekki einu sinni öskrað á hundinn né Benóný þegar hann er að gera eitthvað af sér allveg skelfilegt helvíti. Aríel með gimbrarnar sínar undan Mola. Moli er undan Róna frá Bergi sem er undan Raft og var Moli annar hæðsti á veturgömluhrútasýningunni í fyrra og var með 18,5 í læri og 35 í ómvöðva minnir mig. Virkar andlitsfríður Kveik sonurinn sem er eftir því við misstum hinn allveg ömurlegt. Kveiksonurinn virkar þykkur að aftan. Gummi er í framkvæmdum að stækka svo hann geti fjölgað he he. Hér eru Emil og Gummi í fjárhúsunum hans Gumma. Hér eru kollóttu sæðingarnir undan Boga. Hrútur og gimbur. Hrúturinn hans Bóa undan Eyrúnu og Topp hann verður líklega til sölu ef hann stigast vel. Þeir Bói,Steini og Emil voru að dæla út úr fjárhúsinu hjá Óla,Sigga og Brynjari um helgina og gekk það mjög vel. Gemlingurinn Þúfa hans Bóa með tvílembingana sína. Gimburin hún er undan Negra hans Bárðar sem er undan At sæðishrút. Hrúturinn á móti virkar mjög vænn. Bottnótti hrúturinn undan Rán og Móra hans Gumma. Kollótti hrúturinn hennar Pöndu og Skugga. Hér er svo gimbrin. Gulbrá með gimbrarnar sínar undan Herkúles. Önnur mynd af þeim botnótta. Skrifað af Dísu 30.08.2011 12:58Benóný 2 ára afmælisveisla og Embla 5 mánaða.Rosa spennandi að blása á kertinn með pabba. Það var búin til smá traktors kaka úr skúffukökunni sem snillinginum mér tókst náttúrulega að brenna svo ég reddaði mér bara og skar út það sem var heilt Afmælisborðið allt í bláu meira segja blá brauðterta. Embla úti að spóka sig. Á kanó með pabba voða stuð. Alltaf að skoða lömbin það styttist óðum í smölun og spenningurinn er allveg í hámarki. Dögg hennar Jóhönnu og Steina. Donna okkar. Fórum í heimsókn til Emils afa í Reykjavík. Skytturnar þrjár Dögg,Donna og Pollý mamma þeirra. Ekkert smá lukkulegur með alla traktorana,gröfu,vörubíl og rútu og allt saman Flettingar í dag: 121 Gestir í dag: 29 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188310 Samtals gestir: 69632 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:10:19 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is