Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
26.04.2010 23:11Ýmislegt í aprílJæja henti inn slatta af myndum af prinsinum og vormyndum úr Mávahlíðinni. Við skelltum okkur svo til Reykjavíkur í gær og kíktum í heimsókn á Emil og Önnu og voru þau voða kát að sjá drenginn og gaf afi hans honum vörubíl sem hann smíðaði sjálfur og var hann afar lukkulegur með hann svo næst var ferð okkar að kíkja á Fríðu og Helga og var þar kaffi og kræsingar og Steini og Ágúst komu einnig og kíktu á okkur. Við enduðum svo hjá Jóhanni og Þorhöllu og fengum okkur Dominos nammi namm. Donna fékk einnig að fara með svo hún fór í sína fyrstu Reykjavíkurferð. ![]() Lukkulegur með bílinn frá afa Emil. ![]() Fallegur dagur í Mávahlíð. 22.04.2010 14:01GLEÐILEGT SUMAR.![]() Ein gömul í tilefni dagsins tekin í Mávahlíð 2007. ![]() Búinn að velja sér fyrsta hnakkinn sinn :) 19.04.2010 13:078 Mánaða og Rúningur á hrútunum.Kúturinn orðinn 8 mánaða bara og er hálf slappur litla greyið. Er búnað vera með hósta og kvef og er allveg að fá tönn í efri góm, hann er svo bólgin litla sílið. Bárður kom á laugardaginn og tók af hrútunum og líta þeir bara vel út og kom hann Moli á óvart þó hann sé smár, er hann með hörku læri og fallega byggður hrútur. Bárður hjálpaði okkur svo líka að snyrta klaufarnar á þeim svo þeir eru búnað fá fyrsta flokks snyrtingu frá snyrtistofu Bárðs he he og þökkum við honum kærlega fyrir hjálpina. Emil er búnað vera róa með Kalla Fía á grásleppu og hafa þeir fengið bara fínt á þessa tvo róðra sem Emil fór með og fór ég niður á bryggju og tók myndir af þeim á laugardaginn. Það var svo hundaættarmót í Mávahlíð þegar Pollý, Donna og Dögg hittu Fídel hans Snorra, þau eru öll systkini voða stuð og var líka margt um manninn inn í Mávhlíð á laugardaginn Jói Ragnars kom með Snata hundinn sinn og svo voru Oddur og Margrét að veiða enda var blíðskaparveður. ![]() 8 Mánaða töffarinn með fyrstu derhúfuna sína. ![]() Bárður fagmaður í að taka af. ![]() Emil einbeittur á svip að ganga frá grásleppunni. 14.04.2010 21:54Fyrsti áfangi búinn í SauðburðinumJæja hún Eyrún hans Bóa bar í nótt hrút og gimbur undan Prúð og gekk það hjálparlaust og fljótlega hjá henni. Benóný Ísak fór svo í skoðun í morgun og braggast vel hann er orðinn 8 kíló og 72 cm og er bara en í línunni sinni og svo fékk hann sprautu en hann var svolítið reiður yfir því og grét sárum grát þegar hann fékk hana en svo var allt búið. Ég bætti myndum af Eyrúnu inn í sama albúm og hinar sauðburðar myndirnar eru. ![]() Eyrún stolt mamma. 13.04.2010 22:44SauðburðurJæja þá er byrjaður fyrsti hlutinn af sauðburðinum eða annar rétt að segja því Golsa var fyrst og núna er Stjarna og Bríet hennar Karítas bornar og kom Stjarna með í nótt hrút og gimbur hvítt og svo bar Bríet í dag hvítum hrút og svo Köru til ánægðu kom hún svo með svarkápóttan hrút og öllum heilsast vel. Þanning að það er búið að vera nóg að gera og Benóný er búinn að vera með 39 stiga hita og örugglega að fara að taka tennur í efri góm. Emil gerði svo skemmtilega tilraun að setja grænan matarlit í sósuna á fiskiréttinn í gær og gera hann svona nammi grænan og girnilegan svo þetta er æðið núna erum að spá í að hafa svona þema núna rauða sósu á jólunum og gula á páskunum skil ekki af hverju okkur datt þetta ekki fyrr í hug he he algjör snilld. ![]() Stjarna hennar Karítas. ![]() Bríet með hrútana sína einnig í eign Karítas og eru öll þessi lömb undan Prúð hans Sigga en því miður lenti hann í átökum við Flekk bróðir sinn um daginn og hlaut innvortismeiðsli og fannst látinn á grindunum í gær svo það er kanski bara lán í óláni að hann slapp fyrr í rollurnar í haust og eignaðist öll þessi fínu lömb áður en hann kvaddi. 12.04.2010 12:36Flugveiðinámskeið 11 aprílJæja það var skellt sér á flugveiðinámskeið um helgina í íþróttahúsinu í Ólafsvík og var þar margir menn komnir saman en flestir voru þó búnað kasta flugu áður en það hafði ég aldrei gert og ekki Emil heldur en við náðum þessu þó á endanum og svo var ég og Maja einu konurnar allveg geggjað góðar náttla he he, ég er að drepast núna úr harðsperrum í hægri hendinni voða gaman en við fórum svo inn í Mávahlíð og æfðum okkur þar en þar var hávaða rok og rigning svo það skeði nú ekki margt hjá okkur þegar við reyndum að kasta en það verður gaman að prufa þetta í góðu veðri fyrst maður veit núna út á hvað þetta gengur. ![]() Allir að æfa sig í íþróttahúsinu inn í Ólafsvík. 10.04.2010 21:28FjárhúsinÞað var farið í fjárhúsin í gær með Benóný og hann fékk aldeilis að kynnast sveitalífinu. Hann var settur inn í hlöðu og fékk að virða fyrir sér heyið og svo var honum plantað í jötuna og voru rollurnar náttla rosa forvitnar hva þetta væri og var Stjarna hennar Karítas sérstaklega hrifin af honum og nartað í hann og hann gretti sig allan svo fékk hann að klappa lömbunum sem hafa fengið nafnið Beggi og Pakas og varð hann hæst ánægður með þetta bara. Við fórum svo aftur í fjárhúsin í dag og vigtuðum gemlingana og voru þessir þyngstu 62 kíló og léttasti var 42 kíló, meðalþyngdin var 55.5 kg af 12 gimbrum. Svo settum við einnig ásettningsmerkin í þá. ![]() Sætastur í heyinu. ![]() Aðeins að kítla hann he he. 05.04.2010 22:29Páskaegg![]() ![]() Namm namm náði strax að gera gat á það með tönnunum og varð svo heldur betur æstur að fá þetta stóra. ![]() ![]() Þetta er næstum stærri en hann og hann var allveg óður að sleikja he he. ![]() ![]() Varð svo þetta líka brjálaður þegar það var tekið af honum en brosti svo bara og umm meira meira. 04.04.2010 21:04Gleðilega PáskaGleðilega Páska öll sömul. Það er alltaf að bætast í hundafólkið í fjölskyldunni því nú er Dagbjört og fjölskylda búnað fá gullfallegan Golden retriever og var svaka spenna að bíða eftir að sjá hann og fóru allir inn í sveit til Freyju og Bóa og þar kom allt hundastóðið saman Skuggi hans Jóhanns sem er labrador og svo Perla sem er border collie sem Freyja og Bói eiga og svo náttla Fróði hennar Dagbjörtu og síðast en ekki síst hún Donna litla. Það var allveg magnað að sjá Fróða hann er svo stór og fallegur minnir mann á ísbjörn. Við höfum svo haft það bara mjög gott yfir páskana og fórum til mömmu í mat í hádeginu í hangikjet og Svínahamborgara hrygg rosa fínt og svo fóru Jóhann og Þórhalla suður í gær en þau voru búnað vera hjá okkur siðan á fimmtudag og svo er hún Dóra vínkona komin frá Noregi og kíkti náttla á okkur í kerti og spil.... En við gleymdum síðan að láta Benóný borða páskeggið sitt því við vorum svo mikið á ferðinni í dag og svo var hann svo þreyttur að hann fær bara að borða það á morgun. ![]() Eyrún og Jóhann með Fróða og Skugga. ![]() Allir að leika saman Olíver, Donna og Benóný Ísak. 01.04.2010 21:24Emil 25 áraJæja þá er kallinn orðin 25 ára við héldum smá kaffi heima og fjölskyldan kom í kaffi og Dagbjört og fjölskylda gáfu Benóný risa páskaegg sem er hans fyrsta páskaegg og var hann allveg þvílíkt spenntur yfir því og eru núna allir að afvelta af áti. ![]() Emil voða hamingjusamur. ![]() Benóný með sitt fyrsta risapáskaegg. 28.03.2010 22:36Rúningur í MávahlíðJæja þá eru Bói og Emil búnað fá að spreyta sig á rollunum og gekk bara ljómandi vel og Bárður kom og aðstoðaði okkur svo þetta tæki einhvern tímann enda he he nei nei þeir stóðu sig mjög vel. Allavega eru allar en lifandi og með öll eyru á sér en það kom í ljós að 3 rollur bera örugglega fyrr en hinar því við misstum hrútinn í svo þær verða væntanlega 10 apríl. Ég fór náttla með Benóný í fjárhúsin og Donnu hundinn okkar og er hún allveg ótrúlega huguð þó lítill sé því hún æðir bara inn til hrútana eins og ekkert sé og er maður allveg skíthræddur um að hún verði stöppuð niður eða barinn en þeir þefa bara af henni og ekkert meir. Farið nú og skoðið afburðarríkar myndir af þessu í albúmi. Bless í bili Fjölsk að Stekkjarholti 6. ![]() Líf í fjárhúsunum í Mávahlíð. ![]() Emil SO... busted að dekra Donnu að gefa henni með sér ís hann er svo kolfallinn fyrir henni. 27.03.2010 12:40Margt í MarsÞað er búið að vera nóg að gera hjá okkur Emil er búnað vera heima eintóm bræla og fórum við í heimsókn til Freyju ömmu og Bóa afa og tókum Donnu með og hún hitti Perlu í fyrsta sinn og var það svolítið skrítið fyrst en svo kom skapið hjá henni Donnu og reyndi að gelta á Perlu og fór svo að leika við hana. Benóný elskar Perlu og hlær svo innilega þegar heyrist í henni ýkt fyndið. Við fórum svo í svaka göngutúr um daginn og löbbuðum inn í hesthús og meira segja upp hestaveginn og bak við Klumbu og fundum ilminn af henni. Það var mjög hressandi svo gáfum við hestunum og kíktum á Mána og hina hestana hjá Bóa. Vorverkin voru svo kominn í huga okkar og fór Emil að klippa tréin og ég að hreinsa og gekk það bara mjög vel. Daginn eftir fórum við svo inn í Hólm í Bónus og tókum hvolpana með okkur til að sprauta þá og heyrðist ekki múkk í .þeim, þeir eru svo góðir en þeir fengu smá hita um kvöldið eftir sprautuna greyin. Benóný Ísak er svo farinn að spjalla heil mikið með góli og skrækjum og er allveg rosalegur fjörkálfur er svo öflugur í fótunum að hann stoppar ekki að sparka og alltaf er hann brosandi og hlæjandi þessi drengur og fékk hann að gæða sér á gúrku til að naga um daginn en jæja það er ekki meira í bili, endilega kíkið á myndirnar í albúminu. ![]() Öflugi göngutúrinn. ![]() Benóný Ísak með Dögg. 21.03.2010 00:04Rúningur og Fyrstu lömbin.Emil,Bói og Gummi fóru á Námskeið í Rúningi á Bergi hann Guðmundur frá Hvanneyri kom og kenndi og tókum við Maja rúnt og fylgdumst með og Kara og Selma komu með og hitti svo heppilega á að Dögg var hjá Önnu Dóru. Hún var búnað eignast 6 hvolpa en aðeins tveir lifðu og eru þeir algjörir boltar þeir eru svo feitir og stórir en það var fagnaðarstund hjá okkur að sjá hana og tók hún vel á móti okkur og þekkti okkur allveg á því að dæma. Við fórum svo inn til Önnu og hjálpuðum henni að gera klárt áður en mennirnir kæmu í mat og þá hitti Benóný hana Sól og var allveg rosa hrifin af henni en hún var pínu feimin við hann. Næst héldum við af stað heim og komum við að gefa og fyrsta sem við heyrum er jarm í lambi og viti menn þá var hún Golsa Ronja borin þrem hrútum og var einn dauður á grindunum frekar leiðinlegt en við bara vissum ekki að hún myndi bera svona snemma hún hlýtur að hafa fengið með hrútnum áður en þeir voru teknir inn og vissum við enga dagsettningu þar af leiðandi en það er nú samt fínt að þessir tveir lifi og eru þeir bara myndarlegir þrílembingar. Það er svo allt að koma hjá Olíver og Donnu því þau eru orðnir vinir og þegar ég set hana út á pall vill Óli alltaf fara með og leika við hana ýkt fyndið. Það eru svo myndir af þessu öllu í albúminu endilega kíkið. ![]() Benóný með lamb í fyrsta sinn. ![]() Allir að læra að rýja. ![]() Ronja með hrútana sína 19.03.2010 11:167 MánaðaJæja nú er strákurinn orðin 7 mánaða svaka gaur. Við skutumst til Reykjavíkur í gær með Magga því hann var að fara með bílinn á sölu og því miður komumst við ekkert í heimsóknir svo það verður bara að vera næst. En við komumst þó með Benóný í heimsókn til langömmu sinnar hennar Dagmar hún er búnað vera svo veik og er inn á Borgarspítala en er öll að hressast og varð en þá hressari við að sjá littla kút. Það gengur svo bara allt vel Olíver er allveg að taka Donnu í sátt nýja hundinn okkar sem við höfum gefið nafnið Donna eða ég það eru búnað vera miklar pælingar hva hún ætti að heita og var ég að spá í Týra en mér finnst það svo margir hundar sem heita það svo ég endaði á Donnu nafninu. Ég keypti handa henni bæli í gær og er hún voða ánægð með það. Við höfum svo verið dugleg að fara á hestbak og fórum við í rigningunni um daginn og komum allveg upp að húsi hérna í Stekkjarholtinu það er svo nice að geta bara komið allveg heim eins og í sveitinni bara. ![]() Í nýju körfunni sinni. ![]() Alltaf brosandi. 15.03.2010 00:44SvartfuglsveiðarSteingleymdi að skella þessu inn að Emil,Dagbjört,Kjartan og Bói fóru að veiða svartfugl á laugardaginn og fengu tuttugu og eitthvað fugla og tók Emil myndir af því. ![]() Dagbjört allveg í essinu sínu að veiða. Flettingar í dag: 665 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 4577 Gestir í gær: 153 Samtals flettingar: 1554715 Samtals gestir: 77919 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:13:35 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is