Velkomin á heimasíðuna okkar !

Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin.

03.09.2015 21:59

Rúntur 2 sept

Jæja nú magnast spennan það er orðið svo stutt þanga til við förum að sækja 
lömbin okkar. Ég er svo óþolinmóð að ég er farin að þjálfa mig í að ganga upp
á fjall og ekki sakar að taka myndavélina með og reyna ná myndum af því sem
ég sé. Rollurnar sem voru niðri á túni í Tungu og Hrísum eru búnar að færa sig
upp á fjall núna og er það bara mjög fínt ekki veitir af að bæta gerðina sem best
fyrir stigun emoticon og minnka fituna he he það er svo saðsamt á túnunum.

Hér er fyrirsætan mín undan Hæng sæðishrút og er kallaður Hitler.
Marel Guffa sonur er veturgamall og styllti sér vel upp fyrir mig þegar ég var að rúnta.

Fallega flekkóttur hrútur undan Myrkva sæðishrút og Kápu Topps dóttir.

Frenja veturgömul með tvö undir sér og hefur stækkað vel enda búnað vera inn í 
túni inn i Tungu í allt sumar.

Gimbrin undan Myrkva og Kápu svo flott á litinn.

Fórum í fjallgöngu og rákumst á Huldu huldukonu hana mömmu hún var í berjamó.

Svakalega flottur hrútur undan Soffíu hans Sigga í Tungu.

Flottar gimbrar frá Sigga undan Danna sæðishrút og Gloppu.

Skessa hans Sigga með hrútinn sinn.

Ýr veturgömul með gimbrina sína. Ýr er undan Garra sæðishrút.

Hér er Álft veturgömul með hrútinn sinn sem var annar seinastur að fæðast í vor hún
bar ekki fyrr en í byrjun júní.

Lamb frá Sigga búið að koma sér vel fyrir fannst þetta allveg æðislegt myndefni.
Það eru svo fleiri myndir inn í albúmi hér.

02.09.2015 16:07

6 ára afmæli Benónýs og fyrsti skóladagurinn

Benóný átti afmæli þann 19 ágúst og var þá 6 ára gamall.
Hann fékk Minecraft köku voða sáttur.
Það var fullt af krökkum og rosalega gaman hjá þeim.
Hér er flotti skóla strákurinn okkar á leið í fyrsta skiptið í skólann.
Mamman og pabbinn allveg með í maganum finnst tíminn líða svo hratt
og skrýtið að litli strákurinn sé að fara í skóla.
Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi.

29.08.2015 22:19

Myndir frá 17 ágúst sem gleymdust

Rán og Rauðhetta með lömbin sín undan Glaum.

Korri hans Sigga er undan Garra og Svört og er veturgamall.

Veturgömlu hrútarnir Korri, Marel Guffa sonur og Tvinni Saum sonur.

Tvinni Saum sonur.

Marel Guffa sonur.

Hrúturinn undan Hriflu og Hæng sæðishrút.

Frá Sigga veturgömul með 2 undir sér.

Frá Sigga veturgömul.

Frá Sigga með gríðalega fallega gimbur.

Gimbur undan Glódísi og Hæng sæðishrút.

Undan Myrkva sæðishrút og Kápu.

Hrúturinn á móti.

Dóra með Hitler og gimbrina undan Hæng sæðishrút.
Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi.

25.08.2015 17:06

Mánudags rollu rúntur

Jæja það kom loksins að því að ég kæmist smá rollu rúnt en það er bara búnað vera 
endalaus rigning til að geta farið og tekið myndir. En það stytti upp í dag og sólin skein
og það var 17 stiga hiti í sveitinni og ég var föst inni að hreinsa grindurnar. Það dróst
allt of lengi að þrífa eftir sauðburð og núna fær maður það í hausinn allt pikk fast á 
grindunum en það hefst með tímanum. 
Emil sló svo í Hrísum eitt tún sem Bárður og Jón Bjarni ætla að rúlla.
Rosalega fínt því við ætluðum bara hreinsa það svo við gætu heyjað það
næsta sumar svo það er frábært að einhver geti nýtt heyjið.

Þegar það var keyrt á Eldingu og gimbrina vantaði mig þennan hrút og hér er hann 
kominn í leitirnar og fylgir Loppu Doppu og hennar gimbur.

Eyrún með hrútinn sinn undan Saum sæðishrút.

Skvísa mín er svo spök hér kemur hún röltandi til mín og ég er ekki einu sinni með
brauð handa henni svo gæf er hún. Hér er hún með þílembingana sína.

Smá selfie af okkur skvísunum  saman .

Held að þetta sé Dropa hans Sigga með sæðinga undan Saum.

Gimbranar hennar Sessu og þær eru undan Myrkva sæðishrút.

Eygló með hrútinn sinn undan Glaum.

Hrúturinn hennar Rán og Glaums það var keyrt á bróðir hans um daginn.

Hér er Hlussu gengið hans Gumma Óla.

Frá Gumma Óla.

Frá Gumma Óla held þau séu undan Myrkva sæðishrút.
Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi.

18.08.2015 10:17

Ferðalag á Akureyri

Við fórum norður 7 ágúst og vorum í viku á Akureyri. Það var allveg rosalega
gaman við fengum yndislegt veður og við tókum rúnt um Skagafjörðinn þegar
við vorum á leiðinni á Akureyri og ég fékk loksins að sjá hvar Ytri Hofdalir eru 
og fleiri staðir og mér fannst það mjög gaman að sjá það loksins.

Við fórum í sund á hverjum degi fyrir krakkana og Benóný fékk að velja
sundlaugarnar því hann er allveg með sundlaugar dellu og það var farið í 
allar sundlaugar sem voru þarna nálægt. Akureyri, Hrafnagil, Dalvík, Húsavík
og Þelamörk. Þelamörk er allveg æðisleg sundlaug og mæli ég eindregið með
henni fyrir barnafólk þar er hugsað einstaklega vel um barnalaugarnar þær eru 
vel heitar og þar sem rennibrautin er , er líka mjög heitt. Því sá sem fer mikið
með börnin sín í sund og rennibrautir kannast vel við hvað það er alltaf kalt
þar sem rennibrautirnar eru. Á Hrafnagil er samt uppáhalds rennibrautin hans 
Benónýs og meira segja fór Freyja litla okkar í hana líka eins há og hún er
fannst henni þetta allveg æði.

Sundlaugin á Akureyri er líka rosalega fín en þar er líka smá kalt þar sem
rennibrautirnar eru. Á heimleiðinni fórum við í sundlaugina á Blöndósi en 
Benóný þorði ekki í rennibrautirnar þar því það er mjög erfitt fyrir hann að 
fara í lokaðar sem er myrkur í hann er nefla einhverfur og eru rennibrautir
hans þráhyggja núna og heltekur hann allveg á sumrin. Honum langaði
svo á Hvammstanga en við héldum að það væri ekki rennibraut þar því
ferðabæklingurinn segir að svo sé ekki og eins heimasíðan hjá sundlauginni
en Benóný hélt því framm að það væri rennibraut en við trúðum honum ekki
en svo þegar við komum heim sáum við á N4 stöðinni af norðan að það er
rennibraut sem er nýkomin þangað og hann hefur séð það á netinu einhvers
staðar svo ég mæli með þvi að þeir á Hvammstanga leiðrétti þetta á heima
síðu sundlaugarinnar því margir fara eftir síðunum hvort rennibraut sé eða 
ekki. 

Nú á bara eftir að þræða sundlaugarnar á suðurlandi draumurinn hans 
Benónýs er að fara í sundlaugina á Hellu og verðum við að reyna láta þann 
draum rætast. Svo á hann eftir að fara á Höfn í Hornafirði annars erum við 
að vera búin með margar laugar á landinu og er stefnan tekin á að fara í 
allar sundlaugar á landinu sem eru með rennibrautir og verður því takmarki
örugglega náð næsta sumar he he svo heillaður er hann af rennibrautunum
og hann veit hvar þær eru allar hann er með ferðahandbókina sem er gefin
út og skoðar nákvæmlega hvar þær eru á landakortinu og hann er kominn
með það vel á minnið aðeins 5 ára gamall og verður reiður ef við getum ekki
rétt þegar hann spyr hvað er rétt hjá sundlauginni á Akureyri þá eigum við að
vita nákvæmlega að það er Þelamörk og Hrafnagil og þetta veit hann um 
flestar aðrar sundlaugar á landinu allveg magnaður áhugi hjá honum.

Á handverkssýningunni í Hrafnagili. Þar var margt að skoða og gaman að sjá hvað
margir eru í íslenskri hönnun.

Við fórum í heimsókn til Birgittu og Þórðar á Möðruvöllum.
Það var æðislegt að koma til þeirra í þessa fallegu sveit og auðvitað var tekið á móti
okkur með kræsingum og við vorum í mat hjá þeim og ekkert smá dekrað við
okkur. Ég náði nú ekki að fara með henni á rollu rúnt en mun stefna á það næst þegar
ég á leið norður. Takk kærlega fyrir okkur kæru vinir.

Auðvitað smellti ég mynd af fræga lambaveggnum hennar Birgittu sem er í eldhúsinu.
Hann er allveg æði. Svo er hún með mynd af rollunum líka. Ekkert smá flott hjá henni.
Þetta er draumurinn minn allavega að setja myndir af rollunum inn í fjárhús ég á mynd af
þeim öllum en á bara eftir að koma mér í að prenta þær út.

Magnað að hugsa til þess að við Birgitta kynntumst bara hérna í gegnum síðuna
hún sá síðuna mína einn daginn að það var rollu rúntur og þá hafði hún samband við
mig og síðan þá höfum við allveg smollið saman og tölum saman reglulega gegnum 
síðunar okkar og höfum heimsótt hvor aðra þegar við eigum leið hjá.
Við erum líka með sömu rollu sóttina og er ég afar þakklát fyrir að hafa kynnst
Birgittu hún er allveg yndisleg manneskja og gaman að tala við.


Rakst á þetta svaðalega tún á leiðinni á Húsavík. Mér finnst þetta allveg geggjað ekkert
smá stórt og allveg í brekku eins og hjá okkur í Mávahlíð nema ekki allveg eins bratt.
Ef maður hefði eitt svona tún þyrfti maður bara að heyja eitt tún he he.
Þetta var rosalega flott sveit með flottum túnum.
Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu hér inn í albúmi.



07.08.2015 01:25

Lamba rúntur 5 og 6 ágúst

Jæja það er daglegur rúntur hjá mér þessa dagana að reyna að sjá einhverjar
nýjar rollur og lömb. Það eru oftast þessar sömu en svo dettur ein og ein ný
inn. Í gær og í dag sá ég nýjar sem bættust í hópinn. Við erum svo að fara á 
Akureyri í viku í íbúð og er ég viss um að ég á eftir að fá fráhvarfs einkenni 
að fara ekki inn eftir og taka rollu mynda rúnt. Svo ég hugga mig við það að
það verði enn meira spennandi að sjá þau þá eftir svo langan tíma og þá 
verða örugglegar einhverjar nýjar farnar að koma niður og láta sjá sig.

Þessi lét sjá sig hún heitir Þota og er veturgömul með hrút undan Tvinna Saum syni.
Þota er Garra dóttir og undan Aþenu sem er af Hlussu kyninu okkar.

Veturgömul Þorsta dóttir einnig með móðurætt í Hlussu kynið.
Hún er með gimbur undan Marel Guffa syni.

Hosa í fjarlægð með gimbranar sínar undan Korra hans Sigga sem er Garra sonur.
Hosa er undan Topp.

Hrútur undan Maístjörnu sem er móðir Marels. 
Þessi hrútur er undan Tvinna Saum sonar.

Salka með lömbin sín undan Marel.
Salka er undan Depil og Mús sem eru frá Bárði og Dóru á Hömrum.

Hyrna með lömbin sín undan Tvinna.
Hyrna er undan Hrímu og Snævari sæðishrút.

Hríma hennar Jóhönnu með lömbin sín undan Glaum.

Gimbur frá Jóhönnu undan Svört og Blika. Mér finnst hún svo falleg.

Botnleðja með gullin sín mér finnst þau svo æðisleg á litinn.
Botnleðja er undan Grábotna og nafnlausri rollu frá Fáskrúðarbakka.

Snælda með sínar gimbrar undan Tvinna.
Snælda er undan Topp og Hrímu.

Hrifla með hrútinn sinn undan Hæng.
Hrifla er undan Hlussu og Hriflon.

Gimbranar hjá Sigga í Tungu undan Gloppu og ég held Danna sæðishrút.

Flottur hann Fróði veturgamall sem ég keypti af Ströndunum í fyrra af Ragnari á 
Heydalsá hann er undan Stera. Ég er rosalega spennt að sjá hvernig lömbin koma
út undan honum því þau voru öll rosalega þroskamikill þegar þau fæddust og virka
vel væn núna sem ég hef séð.

Hópurinn hans Gumma Óla sem er inn í Mávahlíð. Ég er svo rosalega hrifinn af botnótta
og höttótta hrútnum sem eru þarna í miðjunni. Mjög væn og falleg lömb að sjá.
Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

04.08.2015 01:37

Elsku Steini okkar kvaddi

Það er mér með sorg í hjarta að segja frá því að hann Steini okkar hefur kvatt okkur úr 
þessum heimi. Hann var frændi hans Emils sem bjó á móti okkur með systir sinni 
Jóhönnu. Þau eru okkur rosalega náin. Steini greindist með krabbamein í mars minnir mig
og tók það að herja á hann mjög hratt. Hans hinsta ósk var að hann myndi ná brúðkaupinu
okkar og tókst honum það ætlunarverk sitt og meira til og stóð sig eins og hetja.

Við erum enn í sjokki og meðtekur maður ekki allveg að hann sé farinn. 
Hann var daglegur gestur hjá mér mörgum sinnum á dag og ef mig vantaði einhvað
var alltaf hægt að hóa í hann því það var allt ekkert mál. Seinustu mánuði sem hann
var orðinn frekar máttfarinn hafði hann gaman af því að elda alltaf í hádeginu og 
bjóða mér að borða með sér til að fá félagsskap já svona var Steini alltaf að hugsa
um aðra og gera öðrum greiða, allveg gull af manni.

Það er erfitt að horfa yfir götuna og sjá hann ekki í dyragættinni á svölunum því þar sat
hann jafnan alltaf og leit yfir hvort einhvað líf væri vaknað hér snemma morguns til að koma og fá sér morgun kaffi og dekra við börnin.

Börnin okkar eiga erfitt með að meðtaka þetta og segja enn við ætlum að fara yfir til 
Steina og Jóhönnu sem auðvitað er bara eðlilegt í þeirra augum.

Benóný og Steini áttu rosalega sterkt band saman og á Benóný erfitt með að átta sig á 
þessu og spyr og spyr ótal spurninga um dauðann enda búnað kynnast honum allt
of mikið svona ungur af aldri. 

Hann veit að Steini frændi minn er dáinn svo dó pabbi minn
og Raggi frændi bróðir þeirra og þetta þurfti að útskýra fyrir honum því hann mundi 
eftir Leif afa sínum og Ragga frá því að þeir voru á Dvalarheimilinu og eins Dagmar 
ömmu Emils. Pabbi Emils dó svo á þessu ári og Gerða í Tungu árið áður svo þetta
hefur verið ansi mikil afföll hjá okkur á stuttum tíma.

Við munum sakna Steina óendalega mikið og það verður mikið skarð sem hann 
skilur eftir sig og verður aldrei fyllt aftur. Hann var tekinn allt of fljótt frá okkur
en hér kemur smá minningar til heiðurs honum og blessuð sé minning hans
um aldur og ævi. Við erum svo þakklát fyrir hvað við fengum að njóta nærveru hans
í gegnum árin.

Hér eru þeir vinirnir saman í sumarbústað í Húsafelli Benóný og Steini.

Í sveitinni hjá Freyju og Bóa.

Í fjöruferð með mér og börnunum um vorið. Mig langaði svo út með krakkana og gat
ekki farið ein með þau öll og Emil var á sjónum og auðvitað bauðst Steini til að koma
með mér svo ég kæmist aðeins út í góða veðrið.

Svo gaman hjá þeim í fjörunni inn í Bug. Steini með Emblu og Benóný.

Með eðal traktorinn sem honum þótti svo vænt um. Hann dekraði svo við hann og
gerði hann upp og málaði . Hann var svo stoltur þennan dag þegar hann var næstum
tilbúinn og svo var hann geymdur inn í upphituðum bílskúr en bílinn var geymdur úti.

Ungur að aldri með Emil að keppa. Þeir áttu sigursælan feril saman í mótum í 
hestamennsku og fóru á fjórðungsmót og landsmót og gerðu góðu hluti.
Emil og Steini voru eins og feðgar svo sterk voru bönd þeirra enda bjó Emil hjá þeim
Jóhönnu í nokkur ár. Emil á fullt af bikurum og verðlaunapeningum frá þeirra tíma og
príða þeir stofuskápana hjá okkur. Steini og Jóhanna áttu mjög flotta og vel gerða hesta.

04.08.2015 01:25

Rúntur 31 júlí

Svört hans Sigga með sæðingana sína undan Bekra. Hún var með þrjú og tapaðist
stærsti hrúturinn hennar fyrir um 2 vikum þá fann Siggi hann dauðann.
Alltaf jafn svekkjandi að missa þetta þegar það er svo stutt í að maður fari að smala.
Lömbin hennar Botnleðju og Glaums.

Sumarrós með hrútana sína í Mávahlíðinni.

Prakkararnir hennar Mirröndu forrystu.

Gimbur undan Drífu og Glaum.

Hin gimbrin á móti.

Glódís með gimbrina sína mér líst svo rosalega vel á hana.

Sá þessa í Höfðanum held hún sé frá Önnu Dóru og Jón Bjarna á Bergi.

Sá þessa líka og fannst hún svo flott að ég varð að taka mynd af henni veit ekki hver á 
hana en hún gæti verið frá Bergi líka.
Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessum rúnti.

04.08.2015 01:17

Rúntur 30 júlí

Hrútarnir hennar Frigg.

Frá Sigga undan Botnu og Bekra sæðing. Virkar rosalega flottur hrútur.

Gugga með lömbin sín.

Svana með sín lömb undan Jóker sæðing.

Frá Sigga í Tungu.

Flottur hrúturinn hennar Draumarós og Marels.

Kindurnar hans Guðmundar Ólafs Ólafsvík.
Það eru svo fleiri myndir hér inni.

04.08.2015 01:12

Rollu rúntur 24 júlí

Gimbranar hennar Snældu undan Tvinna.

Flottir frændur saman Benóný og Alexsander.

Hrútur frá Sigga undan Gemling.

Fíóna með hrútinn sinn.

Gemsurnar Ísafold og Vofa með lömbin sín.
Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af þessu.

04.08.2015 01:00

Sumarbústaður í júlí

Fórum í sumarbústað með Steinari og Unni í júlí. Við fórum auðvitað í sund fyrir Benóný
á Húsafelli og Borgarnesi. Ætluðum í sund á Varmalandi en þar var engin rennibraut
þrátt fyrir að bæklingurinn sýni að það eigi að vera rennibraut og var Benóný ekki sáttur
með það. Við fórum í göngutúr hér í paradís sem er rétt hjá Bifröst og er mjög fallegur
staður svo áttum við skemmtileg kvöld saman sem var eitt í að svæfa börnin sem voru
mislengi að sofna svo fullorðna fólkið gæti spilað og slappað af.

Heyskapur er svo hafinn í Fögruhlíð í blíðskapar veðri.

Flotti traktorinn príðir Mávahlíðina.

Hér er svo verið að safna saman rúllunum í Mávahlíðinni og keyra þeim upp í Tungu.

Hestarnir hennar Jóhönnu hafa það frábært inn í Tungu.
Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu saman hér inn í albúmi.

23.07.2015 03:25

Rollu rúntur 2015

Já sæll það er sko hafinn rollu rúntur á þessum bæ ......
Ekki seinna vænna að fara þrusa því hér inn og auðvitað fylgir alltaf afföll á sumrin
á lömbum og rollum. Við misstum eina rollu í vor hana Heklu hans Bóa og hennar 
verður saknað hún var góð rolla. Lömbin hennar eru búnað vera móðurlaus inn í 
Mávahlíðar túni síðan snemma í júní.

Ég hef tekið eftir að það vantar annað lambið hjá Flekku, Ísey,Loppu og Eygló sem er 
leiðinlega mikið. Svo í dag kom ég að ömurlegu að það var búið að keyra á rollu
og lamb frá mér og auðvitað var það mórauð rolla sem ég vildi engan veginn missa
en það er aldrei spurt af því. Elding var það og gimbrin hennar sem var svarbotnótt.
Svo ég hringdi í Sigga og hann aðstoðaði mig við að jarða þær því Emil og Bói
eru á fullu að heyja inn í Bug. Það er samt að gott að engin slasaðist það er alltaf
leiðinlegt að lenda í svona.

Við heyjuðum hjá Sigga í seinustu viku og það er miki minna hey núna enn í fyrra
en það er miklu betra hey og kraftmeira. Þeir eiga eftir að heyja inn í Bug og Klettakoti
svo förum við inn í Mávahlíð,Tungu og Fögruhlíð og klárum þar.

Ég vona bara að við náum þessu öllu áður en það fer að rigna og rigna maður er svo
hræddur við það þegar það er búið að vera svona rosalega lengi þurrkur.


Dóra með Hitler undan Hæng sæðishrút.

Skvísa með æðislegu þrílembingana sína allar gimbrar og engin sama lit. 
Svarflekkótt, Botnuflekkótt og Botnubíldótt þetta verður vandamál í haust held
ég verði að setja þær allar á emoticon

Svo sætar.

Svana með sín undan Jóker sæðishrút.

Botnleðja með hrút og gimbur svona fallega botnuflekkótt með hvítan kraga.

Heyskapur í Tungu. Emil er á rúlluvélinni í ár vegna veikinda Steina.

Lulla gemlingur hans Bóa með gimbrina sína. 

Gugga með sín lömb.

Ísafold gemlingur undan Garra með tvílembingana sína undan Tvinna Saum syni.
Hún bar í endað maí frekar smá hjá henni.

Held að þetta verði einhver dreki þetta er Hæng sonur undan Hriflu Hriflonsdóttur.
Hún var með 3 í fyrra öll geggjað góð og svo sæddi ég hana of daufa og hún hélt og 
auðvitað kom hún bara með eitt ég dauðsá eftir að hafa sætt hana svona daufa því 
þetta er án efa besta rollan mín og ég hefði viljað fá hana með tveimur lömbum.

Hulda hans Emils hana þarf nú ekki að kynna he he aðal karekterinn okkar og hér er hún
komin til mín með gimbrina sína og ég lék heldur á hana lét skrjáfa í poka en var ekki með
neitt og hún var frekar fúl við mig og húrraði í burtu í fýlu allveg yndisleg rolla.

Krútturnar okkar með í sveitinni.

Perla hennar Jóhönnu með hrútinn sinn.

Hrúturinn hennar Skuggadís undan Marel Guffa syni.

Ísey bara með annað lambið sitt.

Gimbranar hennar Rauðhettu svo fallegar hlakka svo ógó mikið til að sjá þær í haust.

Lömbin undan Kápu og Myrkva sæðishrút.

Mjallhvít með boltana sína.

Stóru pungarnir Glaumur og Fróði.

Gloppa hans Sigga með sæðis gimbranar sínar.

Forrystu hrúturinn hennar Mirröndu er alltaf að villast undan henni en ég sá hann var svo
kominn aftur til hennar. 

Hér eru sæðislömb undan Bekra og Myrkva.

Hér er Frigg með boltana sína undan Glaum sem ég var að gera tilraun til að fá gráa
gimbur en það misheppnaðist eitthvað he he þetta er þvílíkur ólitur á þeim ljós grá 
botnóttir. Frigg er nefla undan Herkúles sem var gráflekkóttur svo ég var að vonast eftir
að fá almennilega grátt.
Jæja það eru svo fullt af fleiri lamba myndum hér inn í albúmi.

23.07.2015 01:34

Brúðkaups undirbúningur og Brúðkaup

Jæja ætlaði nú að vera löngu búnað blogga um Brúðkaupið okkar en svo hef ég verið að 
bíða eftir tíma og myndum en ég er aðeins með örfáar myndir. Ég á eftir að fá myndirnar 
hjá Óla hennar Maju systir hann tók allveg æðislegar myndir af okkur og á eftir að vinna 
þær. Stóri dagurinn okkar var 27.júní og fór athöfnin framm í Mávahlíð sveitinni minni.

Dagurinn var fullkominn í alla staði nema smá smáatriði sem klikkuðu eins og þegar 
Ég var komin inn í Mávahlíð að klæða mig þá fattaði ég að ég hafi gleymt blómunum inn
í ískáp heima ob ob þá kom smá stress en Steini frændi minn reddaði því og sótti þau.
Síðan voru rosalega fallegar blómakörfur sem stelpurnar áttu að vera með og þær
gleymdust óvart í bílnum okkar heima svo við létum það bara eiga sig.

Þetta var allt útpælt hjá mér og ég var löngu búnað semja við Fróðahreppinn minn að
gefa mér fullkominn dag og ég varð ekki fyrir vonbrigðum og er allveg fullviss að ef
maður þráir eitthvað nógu heitt og stefnir að því alla daga til þess að maður fái það.
Þessi dagur allavega staðfesti það fyrir mér því ekki er veðrið búið að leika við okkur
í sumar og yfirleitt er alltaf gola eða rok inn í Mávahlíð á daginn en ekki þennan dag.

Besta vínkona mín Irma greiddi mér og ég bað hana allveg sérstaklega að setja nóg
af hárlakki í hárið því það væri alltaf rok eða gola. En aldrei eins og vant var allveg 
logn og ekki það mikil sól að allir væru grettnir á myndunum svo þetta var fullkomið
ljósmyndaveður fyrir Óla. Sigrún frænka faðraði mig og Marta frænka og Milla systir
Irmu sáu um að vinna fyrir okkur í veislunni. Svavar frændi var tæknimaður.

Þetta var svolítið mikið útpælt hjá okkur því ég lét teyma mig á hesti og ég var með hring
undir kjólnum svo hann passaði allveg og steig þá ekki á hann en ég gat ekki verið með
hringinn á hestinum svo þegar ég steig niður af hestinum þurfti ég að fá aðstoð við að
skella hringnum undir he he en það gekk allt saman eftir og hesturinn henti mér ekki 
af baki og ég rann ekki af, svo allt tókst vel úfff ég hafði mestar áhyggjur af þeim 
áfanga að komast alla leið á hestinum. Maggi bróðir leiddi mig svo upp til Emils og
Óskars prests og Steina frænda Emils sem var svaramaður hans.


Bói að teyma mig niður brekkuna frá Mávahlíð. Ég keypti auðvitað bleikt teppi á hestinn
og var með bleikt semelíu beisli og taum og múl og svo fékk hann bleikt slör.
Bói var að hafa áhyggjur að aumingja hesturinn sem er karlkyns þyrfti smá 
áfallahjálp eftir alla þessu bleiku múderingu he he.

Svona boginn sem Bói smíðaði fyrir mig og svo skreytti ég hann með bergfléttum og
greni og svo hvítar gervi rósir. Við vorum svo með stóran rekaviðs staur sem við 
settum svo gæru yfir til að krjúpa á. Skrautið að er svo hvittaðir girðingastaurar með
bleiku skrauti og bandi. Mottur til að labba á og það var svolítið mál að redda þeim og
ég pældi mikið í hvernig skóm ég ætti að vera í og endaði að vera bara í stigvélum 
renndum og fór svo í fínu skóna í veislunni sem var svo haldin í Félagsheimilinu í 
Ólafsvík.

Hér er hringurinn kominn undir kjólinn og gæran á rekaviðinn allt orðið klárt emoticon

Við orðin hjónó æðislega gaman og vaðalinn allveg sléttur í baksýn og æðislegu
fjöllin sem mér þykir svo vænt um.

Benóný flotti strákurinn okkar stóð sig með prýði sem hringaberi.

Sætu skvísurnar okkar svo var Karítas frænka brúðarmey með þeim og þær voru allar
svo rosalega flottar og stóðu sig svo vel vantaði bara blómakörfurnar sem gleymdust.

Alda Dís besta söngkona landsins söng fyrir okkur og pabbi hennar spilaði undir og 
það var allveg meiriháttar allveg gæsahúð allan hringinn. Hún söng fyrir okkur 4 lög
og útgöngulagið var Lífið er yndislegt og hún gerði það svo fallega að sínu og breytti
Stjörnusalnum í Mávahlíðinni og Herjólfsdalnum í Fróðahreppnum það var allveg æði.

Við að labba upp úr athöfninni og út í bíl í myndatöku leiðangur um sveitina.

Irma og Nonni bestu vinir okkar voru svo yndisleg að skreyta og pússa bílinn sinn til að
lána okkur. Maggi bróðir var svo bílstjóri.

Veislan fór svo framm um 2 tímum seinna eftir myndatökuna og var hún langt framm á nótt
og Dóra vínkona var veislustjóri og sá um að halda uppi stuðinu til 10 hálf 11 en þá tók við
Dj sem spilaði framm eftir nóttu. Í veislunni voru stelpurnar í Saumó með skemmtilega 
leiki fyrir okkur og stelpurnar okkar Embla og Freyja sungu fyrir okkur ógleymalega flott
lag með Friðrik Dór Mannstu eftir mér eurovison lagið. Við yfirgáfum svo veisluna um 
hálf 1 og þá keyrði Óli og Maja okkur upp í bústaðinn þeirra í Bröttuhlíð sem er rétt við 
Mávahlíð og þar beið okkar kex og kræsingar inn í ískáp í boði Maju systir og Irmu vínkonu
allveg yndislegar.


Nú ætla ég að byrja á byrjuninni hér er boðskortið okkar að utan.

Inn í mynd af mér á hrút og ljóð um hrúta.

Neðar var svo mynd af Emil á hesti þegar hann var lítill. Ég hannaði kortið sjálf og valdi
pappír svo lét ég Steinprent búa það til fyrir okkur.

Þessi mynd var á Brúðartertunni okkar. Ég á ekki mynd af henni en ég held að Óli hafi
tekið mynd af henni.

Svona var þegar inn var komið gömul taska með gæru svo gestabók . Mynd af Emil
á hestbaki og svo hrúturinn okkar upp á vegg og svo mynd sem mamma gaf okkur
daginn fyrir Brúðkaupsdaginn af málverki af mér með hest sem Þurý systir mömmu
málaði. Húsið málaði ég sjálf og gerði borðaskipunina inn í rammana.

Gestabókinn ég gerði hana sjálf.

Inn í gestabókina setti ég svo myndir og klippti út af okkur litlum og meira.

Húsið fékk ég hjá Einari nágranna og ég málaði það og skreytti og klippti út pappír og
skrífaði borðaskipunina.

Það var rolluþema og skærbleikt og líka svolítil náttúra því ég týndi þessi grjót í 
Fögruhlíð í sveitinni hjá mér og svo skeljar í fjörunni og málaði þær sumar en hafði svo
litlu bara venjulegar svo sneri ég skel á hvolf og límdi og setti kerti á hana. Skeifuna
hafði ég bara lausa því hún er það þung að hún var allveg kyrr. Græna er svo hreindýra
mosi sem ég týndi í fyrra í Búlandshöfða og hann límdi ég á  :) 

Það voru rollustyttur þar sem ég sat.

Bátar þar sem hann sat. Svona áhugamál og vinnan okkar.

Á veisluborðinu var hrútur og rolla hvað annað............

Önnur svo hinum megin.

Þessi skreyting var svo fyrir aftan okkur og sá Freyja tengdamamma um að gera hana
mjög flott hjá henni.

Saumó skvísurnar mínar í Preggy að halda á mér þær eru allveg æðislegar og hjálpuðu
mér svo mikið við allt takk kærlega fyrir okkur elska ykkur knús knús og takk kærlega 
allir fyrir að deila með okkur þessu frábæra Brúðkaupsdegi hann var fullkominn.
Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi.
Það eiga svo eftir að koma geggjaðar myndir í viðbót þegar Óli er búnað vinna þær.

23.07.2015 01:23

Húsdýragarðurinn

Hér er Embla í Húsdýragarðinum.

Freyja að kíkja á geiturnar.

Emelía frænka kom með okkur í garðinn svaka gaman hjá þeim.

Steinar og Unnur með Alexsander og Birgittu og Benóný að prófa kerruna.

Benóný að keyra rosa flottur að setja olíu eins og Steini frændi sinn.
Við fórum í Húsdýragarðinn í júní byrjun ég hef bara haft svo lítinn tíma eins og alltaf
til að blogga en svo tek ég algera rispu og skelli öllu inn. Þíðir ekkert annað he he.
Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inn í albúmi.

23.07.2015 01:06

Útskrift Magga bróðirs

Snillingurinn hann Magnús Már bróðir minn er nú orðin löglegur lögfræðingur . 
Hann hefur útskrifast úr Háskóla Reykjavíkur. 
Hann útskrifaðist 22 júní svo það er löngu orðið tímabært að fara blogga hér inn og
monta sig af honum enda frábær drengur og glæsilegt að fá að fagna þessu með 
honum. Ég get ekki annað en brosað þegar ég hugsa til þess að hann bjó hjá okkur
Emil í þó nokkur ár þegar hann var unglingur og var alltaf að horfa á Boston legal 
lögfræði þætti og hann elskaði þá og sjá gaurana með koníak og feitan vindill þetta fannst
honum svo geðveikt svalt og ég er allveg pottþétt að þegar hann var allveg límdur við 
þessa þætti fann hann hvað hann ætlaði að verða þegar hann yrði stór he he.
Allavega hef ég voða gaman af því að stríða honum á því.

Hér er kallinn nettur á því á vinnustaðnum sínum Logos.

Geggjaður árangur hjá honum. Hann var með frábærar einkanir og hæðstur í mörgum
áföngum svo svefnleysi,höfuðverkur og ótrúleg vinnuseigla hefur skilað honum hingað.
Innilega til hamingju elsku Maggi okkar þetta er frábært hjá þér.
Það eru svo fleiri myndir af útskriftinni hans hér inn í albúmi.
Flettingar í dag: 2267
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 30516
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 1741829
Samtals gestir: 80182
Tölur uppfærðar: 21.5.2025 16:10:17

Um okkur

Nafn:

Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja Naóm

Farsími:

8959669,8419069

MSN netfang:

Disa_99@hotmail.com

Afmælisdagur:

17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 Mars

Heimilisfang:

Stekkjarholt 6

Staðsetning:

355 Ólafsvík

Heimasími:

4361442

Um:

Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.

Tenglar

Tenglar

Tenglar