Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
15.09.2013 08:53Styttist í stigun og HrútasýninguTralla lalla það eru svo skemmtilegir tímar framm undan við erum komin með dagsettningu á stigun og verður hún mánudaginn 23 sept og við smölum um næstu helgi. Vona að það vanti nú ekki mikið af lömbum því ég er búnað sjá ansi margar sem eru bara með annað lambið svo það er bara að halda í vonina að þau hafi villst undan í þessu átaka veðri sem er búnað vera undan farið. Hrútasýning Veturgamla verður svo mánudaginn 30 sept og er hægt að nálgast auglýsinguna á því hér inni. Stóra Héraðssýningin verður svo laugardaginn 19 okt. ![]() Surtla hans Sigga í Tungu með gimbur undan Soffa sæðishrút. ![]() Sá til hennar Molu nú um daginn og hún er bara með annað lambið reyndar var hún búnað tapa hinu strax snemma sumars. En þetta er gimbur frá Sigga sem gengur undir henni. ![]() ![]() Gufa hans Sigga með hrút undan Kjöl. ![]() Hulda með lömbin sín undan Nasa hans Óla Tryggva. ![]() Þessi er undan Mjallhvíti sem er veturgömul og Blika. ![]() Gimbur undan Storm og Rósulind. Það eru svo fleiri kinda myndir hér í albúmi. ![]() Hérna er móflekkóttur hrútur frá Herði á Hömrum og er hann þrílembingur undan Klettssyninum sem var í 3 sæti á Héraðssýningunni í fyrra. ![]() Falleg gimbur hjá Bárði undan Kjark frá Ytri Skógum. ![]() Hér er hrúturinn á móti. Það eru svo fleiri myndir af fénu hjá Bárði og Dóru hér inn í albúmi á 123.is/bui Það eru svo fleiri myndir á Búa af kindunum í Bug og fleira með því að klikka hér ![]() Það var fjör þegar Simbi og Mikki komu í heimsókn til mömmu sinnar. ![]() Bjarki Steinn frændi alltaf jafn kátur. Það eru svo fleiri myndir af honum og Freyju og krökkunum með því að smella hér. 12.09.2013 08:55Freyja Naómí 9 mánaða og kindur![]() Þessi skvísa er 9 mánaða í dag. Hún er farin að reyna fara um á rassinum og reyna standa upp við allt svo ég hugsa að hún standi upp áður en hún getur farið að skríða. Það eru svo fleiri myndir af prinsessunni með því að smella hér. Kindur og aftur kindur ![]() Mjallhvít gemlingur með hrútinn sinn undan Blika. ![]() Náði að súma þennan inn langt frá mér. Þetta er gripurinn minn undan Eldingu og Soffa sæðishrút sem ég er búnað vera bíða í allt sumar eftir að sjá. Loks varð mér að ósk minni að sjá hann og viti menn auðvitað vantaði hinn hrútinn þann mórauða ![]() ARRRRRRRRRGGGGGGG hversu týpiskt þarf það alltaf að vera að það vanti það sem maður bíður mest spenntur eftir að sjá. Það vantar allavega aldrei eitthvað sem manni er allveg sama um en jæja það er eins gott að þessi standi fyrir sínu og verði ásettningur fyrir mórauðu ræktunina mína. ![]() Elding með hrútinn og hvar er Hinnnnnn ?????????????? ![]() Gaga hennar Maju með lömbin sín. ![]() Langt súm af gimbrinni hennar Bríet hennar Maju. ![]() Kjölur hans Sigga í Tungu. Hann er undan Klett hans Óttars. ![]() Bliki Gosa son. ![]() Brjánn Toppsson. ![]() Verið að dæla út úr fjárhúsunum í Tungu. ![]() Gimbur og hrútur undan Soffa sæðishrút. Ég veit nú ekki hvað það er með mig og þessa sæðishrúta allavega er ég ekki að veðja nógu vel á þá hvað frjósemina varðar alla vega hjá Gosa og Borða og nú ætlar Soffi líka að vera eitthvað slakur á því sviði með 94 í fjósemi á kynbótamatinu hjá Stöðvahrútum 2013. Svo nú er spurning hva skal gera við Borða og Gosa soninn sem ég á. Hvort ég eigi að geyma þá og sjá hva dætur þeirra gera eða á ég ekkert að vera halda í þá. ![]() Það er mikil pæling jæja það eru fleiri myndir af lömbunum með því að smella hér. 07.09.2013 01:22Spennan magnast óðum![]() Hér er Snotra með 2 hrúta undan Blika. Spenningurinn er orðinn svakalegur hjá mér núna ég fer á hverjum degi á rúntinn nema það sé aftaka veður og ekki hægt að taka myndir né skoða. Ég er enn að bíða eftir henni Eldingu minni með hrútana sína undan Soffa sæðishrút ég fæ bara fiðring í magann um að hugsa um þá mig hlakkar það mikið til að fá að sjá hverning þeir eru orðnir. Annars eru alltaf einhverjar nýjar að sjást til viðbótar við það sem er í hlíðinni við Fögruhlíð og við Mávahlíð og svo áfram út úr Hellunni í átt að Búlandshöfðanum. Já það eru jólin að nálgast hjá okkur í sauðfjárræktinni ![]() Þó er alltaf einhver kvíða hnútur líka ![]() ![]() Eygló gemlingur með 2 hrúta undan Brján. Hún er svo töff með svona hrúta í stíl við sig. ![]() Gimbrin undan Aþenu og Soffa sæðishrút. ![]() Litla Gul hans Sigga með gimbrina sína. ![]() Svört hans Sigga með lömbin sin undan Brimil. ![]() Bliki Gosa son. ![]() Fallegur hrútur frá Gumma Óla undan Klett. ![]() Frá Sigga undan Valbrá. ![]() Gemlingarnir Dropa frá Sigga,Hrifla mín og hún á hrútinn fyrir aftann og Toppa hans Sigga. Það eru svo fleiri rollu myndir með því að smella hér. ![]() Krúttið okkar hún Freyja Naómí klappaði saman lófunum í fyrsta sinn í gær og svo getur hún líka sýnt okkur hva hún er stór. Hún er farin að segja mama og baba algjör gullmoli þessi elska hún er líka orðin svo dugleg að reyna standa upp og færa sig á rassinum. ![]() Mikill fögnuður þegar pabbi kom heim eftir langa útiveru á sjónum á Skagaströnd og ekki spillti fyrir að fá pakka líka he he. Það eru svo fleiri myndir af okkur fjölskyldunni með því að smella hér. ![]() Hænan hjá Freyju og Bóa í Varmalæk með ungana sína. ![]() Að borða á pallinum hjá þeim. ![]() Benóný svo góður við ungana. ![]() Freyja að gefa þeim brauð með Bóa afa sínum. Það eru svo fleiri myndir af þessu öllu saman með þvi að smella hér. 26.08.2013 22:41Bland í ágúst![]() Töffarinn okkar fékk þessa flottu kórónu á leikskólanum á afmælisdaginn sinn. ![]() Birgitta frænka svo dugleg að ýta Freyju. Freyja er að núna aðeins farin að komast upp á lagið og farin að hlaupa um allt og tosa í blómin og svona. Hún er svo búnað læra að sýna hvað hún er stór rosa dugleg og lyftir höndunum upp og þegar maður klappar verður hún svo montin þessi elska. ![]() Svo eru það stóru fréttirnar af henni Emblu en hún er hætt með bleyju. Hún fékkst til að fara einu sinni á koppinn og hefur ekki hætt síðan. Ég er ekkert smá stolt af henni og hún þurrkar sér sjálf og girðir sig og maður þarf ekkert að hjálpa henni neitt. Hún bíður spennt núna eftir að fá pabba sinn heim svo hún geti sýnt honum hvað hún er orðin stór og já auðvitað ætlar hún líka að fá dúkku í verðlaun. Emil er búnað vera róa núna á Skagaströnd í viku en fer vonandi að koma heim bráðum við erum öll farin að sakna hans allveg rosalega mikið. ![]() Maggi bróðir kom og kíkti í heimsókn og færði krökkunum pakka og það var mikil hamingja. Benóný fékk legó og Embla dóta hest sem labbar. Maggi býr í bænum og er að læra lögfræði og vinna á lögfræðistofu með svo það er gaman að fá hann aðeins í heimsókn áður en allt stessið og vinnan byrjar hjá honum enda brjálað að gera. Það eru svo fleiri myndir hér af krílunum okkar og fleiru með þvi að smella hér. Ég fór á rúntinn minn í dag að kíkja á rollurnar og haldiði að ég hafi ekki gleymt myndavélinni og auðvitað var allveg týpiskt að ég myndi missa af einhverju. Já Dóra kom hlaupandi á móti bílnum með þrílembingana sína og svo stillti hún sér svo flott upp með þá og ég var ekkert smá fúl að hafa ekki myndavélina með. En ég er hér með aðrar myndir sem ég náði um daginn. ![]() Svört hans Sigga í Tungu með hrút og gimbur. ![]() Tvílembingar undan Eygló gemling. Eygló er þrílembingur undan Gosa sæðishrút og Ronju. ![]() Móra Freyju og Bóa með gráa gimbur en það virðist vera týndur hrúturinn hennar ![]() Hrútur og gimbur undan Heklu og Brimil frá Bóa og Freyju. ![]() Þetta er einhvað ókunnugt annað hvort frá Knörr eða Gaul og lýst mér allveg rosalega vel á þennan hrút hann virkar allveg rosalega fallegur. 19.08.2013 00:04Benóný 4 ára![]() Stóri strákurinn okkar orðinn 4 ára Vá hvert fór tíminn eiginlega. Við héldum upp á afmælið núna á sunnudaginn en hann á afmæli á morgun 19 ágúst. Hann var svo ánægður elsku kallinn að fá alla pakkana og allt sem honum langaði í eins og playmó flugvél,mótorhjól,bát,löggubíl og bara nefdu það en það stóð þó mest upp úr legó flugvél sem Hafrún og fjölsk gáfu honum. Það komu fjölskyldur okkar og vinir og allir áttu góðan og skemmtilegan dag saman. ![]() Einn allveg búinn á því eftir daginn með allt dótið hjá sér upp í mömmu og pabba rúmmi. ![]() Hulda amma gaf Emblu þessa fallegu úlpu og húfu fyrir veturinn og var skvísan ekkert smá ánægð með flottu úlpuna og húfuna. ![]() Ég allveg mega sátt með geggjuðu peysuna sem Brynja frænka prjónaði fyrir mig. ![]() Það verða viðbrigði núna fyrir Benóný og Emblu því nú eru allir hvolparnir farnir á nýju heimilin sín og þau skilja ekkert í því afhverju það eru engir hvolpar lengur. Það eru svo myndir hér af afmælinu og þessu öllu með því að smella hér. Ég rakst svo á nýjar rollur núna um daginn á rúntinum. ![]() Hér er Lotta með gimbrina sína og hrútinn sem gengur undir henni frá Frigg en Lotta stal honum af Frigg í vor. ![]() Hér er Kápa með lömbin sín gimbur og hrút undan Kjöl hans Sigga. ![]() Hér eru Mýslu synir og Storms Kveikssonar. Ég er búnað vera binda mér vonir við þann flekkótta að hann verði góður því hann er svo svakalega fallegur á litinn. ![]() Hér er Eyrún með hrútana sína undan Kjöl. Það eru svo fleiri myndir af þeim með því að smella hér 13.08.2013 13:09Freyja Naómí 8 mánaða og rollu rúntur![]() Þessi skvísa er 8 mánaða og er á fullu að taka tennur og með hita greyjið. ![]() Sæti töffarinn okkar fer allveg að eiga afmæli og fékk þessi flottu föt fyrir framm frá Freyju ömmu og Bóa afa. ![]() Svo gaman inn í Varmalæk að skoða ungana sem er úti með mömmu sinni. Það eru svo fleiri myndir af þessu hér inni. Rollu rúntur ![]() Rakst á þennan flotta grip á rúntinum. Þetta er hrúturinn hennar Frigg og er undan Storm Kveik syni og ég held að hann eigi eftir að verða flottur. ![]() Hrúturinn undan Snældu og Brimil. ![]() Hrúturinn hennar Mjallhítar og undan Blika Gosa syni. ![]() Sæðingar undan Aþenu og Soffa. ![]() Tveir Kletts synir undan Svönu. ![]() Frá Sigga í Tungu undan Gloppu og Draum. ![]() Surtla hans Sigga með gimbur undan Soffa sæðis hrút. Það eru svo fullt af fleiri lamba myndum hér inni. Skrifað af Dísu 08.08.2013 01:15Rollu rúntur,Rvk ferð og hvolparnir.Jæja þá gafst mér góður tími til að setjast hérna niður og fá mér einn kaldann og slaka á með því að skila af mér góðu bloggi og myndum eftir að allt var komið í ró. Eins og hjá flestum sem eiga börn er óreglan orðin allveg svakaleg hér á bæ og börnin fara að sofa einhvern tímann sem þeim hentar og þeim leyft að taka lúr yfir daginn svo maður geti fengið smá pásu fyrir þessum orku miklu fjörkálfum sem þurfa alla athygli sem hugsast getur frá okkur foreldrunum. Þessi tími verður þó senn á enda því leikskólinn mun hefja göngu sína aftur og guð sé lof fyrir hann ![]() Því maður verður heldur betur ósofinn eftir 6 vikur með svona litil kríli sem vakna alltaf eldsnemma og fara sofa á öllum tímum kvöldsins og þá nýtir maður tímann sinn vel og vakir langt framm á nætur til að gera eitthvað. Já það gleymdist allveg að vara mann við þessu áður en það var sagt manni að klára dæmið bara og koma með þau öll í röð he he nei nei þau eru allveg yndisleg og fylla líf manns af gleði og hamingju inn á milli og þá gleymir maður öllu streðinu um leið með einu brosi og knúsi frá þessum elskum. Rollu rúnturinn ![]() Fékk þennan flotta rollu rúnt um daginn og náði hér góðri mynd af Pöndu með hrútana sína undan Storm Kveiksyni. ![]() Fallegu lömbin hennar Rák sem dó snemma í sumar en það virðist ekki hafa aftrað þroska þeirra því þau eru bara vel stór og falleg og þetta verður án efa ásettnings gimbur fyrir þennan lit. ![]() Flekka með lömbin sín undan Nasa hans Óla Tryggva. ![]() Dóra með þrílembingana sína undan Brján. ![]() Hosa gemlingur með hrútinn sinn undan Blika. ![]() Gimbrin undan Hriflu og Blika. Það eru svo fleiri rollumyndir með því að smella hér. ![]() Sæti Benóný að hjálpa pabba sínum að raka heyið. ![]() Embla Marína í Mávahlíð. ![]() Hænan hjá Freyju og Bóa flott úti með ungana sína. ![]() Stuð hjá Birgittu frænku. Við fórum til Reykjavíkur um versló og fengu krakkarnir þá að upplifa algjört draumaríki. Við fórum með þau í sund og í rennibrautirnar sem Benóný allveg dýrkar og ekki skemmdi fyrir að við fórum með Dagbjörtu,Kjartani,Jóhanni og Emelíu og þá fékk Benóný Emelíu til að fara með sér endalaust í rennibrautirnar og fannst það algert æði. Við fórum svo í bíó með þau á strumpana 2 og tókum meira segja Freyju litlu með og það gekk bara mjög vel. Því næst var farið með þau á Kfc í Mosfellsbæ og þar er svaka rennibraut sem Benóný og Embla elska líka að fara í og það fyndna við þetta er að Benóný borðar ekkert bara kanski eina franska en talar alltaf um að það eigi að fara borða á kfc gott eins og hann kallar það. Þau fengu svo auðvitað að fara í afmælisbúðina hans Benónýs en það er Toys n rus hann elskar hana. Bara að fara þarna inn og skoða er algert himnaríki fyrir börn. Við vorum svo heppin að fá íbúðina hjá Magga bróðir og Erlu lánaða yfir helgina og var það bara æðislega fínt. ![]() Skvísurnar okkar. Það eru svo fleiri myndir af þessum krílum hér inni. ![]() Hvolparnir stækka óðum og verða senn tilbúnir að fara að heiman. Hér eru þeir í veðurblíðunni inn í Mávahlíð. Það eru svo fleiri myndir af þeim með því að smella hér. Skrifað af Dísa 29.07.2013 23:34Heyskapur og sumarið komið loksins![]() Heyskapur hófst loksins í seinustu viku og má segja að þá hafi sumarið hafist fyrir alvöru hérna fyrir vestan hjá okkur. ![]() Hér er verið að klára rúlla fyrir Sigga í Tungu í blíðskapar veðri í sveitinni. Það er búið að ganga á með ýmsu hjá okkur t.d. bilaði þessi græni traktor og sá guli líka svo það þurfti að fá lánaðan traktor hjá Sigga í Tungu og hjá Gumma Óla. Þegar það átti að fara rúlla í Mávahlíðinni bilaði rúlluvélin og þurfti að fá stykki í hana sent að sunnan en við áttum svo góðan mann að hann Gumma Óla að hann rúllaði fyrir okkur á meðan. Steini skaust þá suður í Borgarnes þar sem hann mælti sér mót við Jóhann bróðir Emils sem kom með stykkið að sunnan. Já það er alltaf soddan basl þessi búskapur. Þetta gerist nú á hverju ári að eitthvað sé bilað en það eru svo fleiri myndir af heyskap blíðveðrinu í sveitinni með því að smella hér. ![]() Kristmundur veiddi þennan fína sjóbyrting í vaðlinum. ![]() Ég skellti mér með krakkana að vaða í vaðlinum inn í Mávahlíð það er allveg fastur liður á hverju sumri að gerast smá krakki aftur og fara að sulla he he. ![]() Við skelltum okkur í útilegu um daginn á Blöndós á Húnavöku með góðu og skemmtilegu fólki og það var allveg rosalega gaman. Þetta var svona fyrsta fjölskyldu útilegan okkar saman því einu sinni fengum við tjaldvagninn lánaðan hjá tengdó og rúntuðum bara með hann og enduðum á hóteli. En við létum verða að þessu núna og þetta var algert æði. Það eru svo myndir af þessu öllu hér. ![]() ![]() Ég dýrka þessa himnesku sveit okkar hún er allveg gull á svona fallegum sumardögum. Hérna eru krílin mín að hlaupa á nýslegnu túninu rosalega gaman. ![]() Freyja Naómí skartar sínu fegursta í blóma hafinu í Mávahlíðinni. Það eru svo fleiri dásamlegar myndir úr sveitinni og meiri heyskapar myndir hér. ![]() Traktors sjúku börnin mín alltaf svo hrifinn af þessum traktor frá Sigga í Tungu. ![]() Bjarki Steinn og Freyja Naómí frændsystkyni að leika saman. ![]() Já það má vægast sagt hafa að það hafi verið öllu lokið hjá basli hjá bændum þennan daginn. Hann Emil er nú þekktur fyrir það að stækka alltaf túnin og krúnka aðeins meira gras og hér kom það ekki að góðu gagni. Bói greyjið fór að raka saman og keyrir bara eftir túninu eins búið er að slá og tætla og obb obb ofan í skurð því Emil var búnað slá ofan af grasinu í skurðinum he he. Emil Strák skratti hvað ertu búnað gera núúú...... Enn Steini reddaði því og Emil og tókst eins og í sögu að draga hann upp. Bóa leyst ekkert á þetta fyrst og hljóp eins og fætur toguðu til að ná í bílinn og binda spotta þvi traktorinn var byrjaður að sökkva og sökk alltaf hægt og sígandi en allt er gott sem endar vel. ![]() Við Benóný skelltum okkur út með hvolpana niður á Oddum og leyfðum þeim að hlaupa í grasinu og fannst þeim það rosa sport. ![]() Grafan var líka tekinn með og prófað að moka grasið. ![]() Alltaf líf og fjör í sveitinni hjá Freyju og Bóa hér er ein hænan búnað koma sér vel fyrir og er að unga út. Það eru svo fleiri myndir af hvolpunum og fleiru með því að smella hér. O hvað ég er ánægð að hafa loksins getað bloggað og sett allar myndirnar inn. Það er bara allveg ótrúlega mikið að gera alltaf og maður kemst ekki yfir helmingin af þvi sem manni langar til að gera. Og þá verður maður svo geggjað pirraður og argur. Ég á henni Freyju tengdó og Bóa að þakka að hafa orkuna í að vaka núna og blogga þvi Benóný gisti hjá þeim í gær og Embla svaf út með mér til hálf 10 ég var allveg orðin viðþangslaus að lita á klukkuna hvað væri að ske því þetta hefur ekki skeð að ég sofi svona út án þess að vakna síðan ég átti Emblu liggur við. Já þetta var alger vitamíns sprauta fyrir mig og svo tóku þau Emblu líka í dag og ég gat slegið garðinn og skverað aðeins yfir heimilið og leikið við Freyju út á palli og notið sólarinnar. Takk kærlega fyrir mig þetta var allveg yndislegur dagur og svo tóku þau Emblu núna með sér til að gista þvi hún varð að fá að fara alein og gista allveg eins og Benóný. Alger dúlla þessi elska svo kanski fæ ég að sofa út líka á morgun ef Benóný sefur eitthvað lengur. Emil fór á sjóinn í dag og fer aftur á morgun hann er enn að veiða upp byggðarkvóta. Svo er það spurningin hvað maður á að fara um næstu helgi sjálfa verslunarmanna helgina það er að segja ef maður fer eitthvað. jæja nú er ég að fara hvíla mig með bros á vör 18.07.2013 11:08Hvolparnir og Freyja Naómí 7 mánaða![]() Litli ![]() Allir saman. ![]() Stóri. ![]() Allir strákarnir saman stóri fremstur svo ljósi og svo litli. ![]() Freyja Naómí var 7 mánaða núna 12 júlí. ![]() Smá rollu rúntur er tekinn þegar grislingarnir mínar þurfa að fara sofa og hér er Botnleðja með gimbrarnar sínar undan Draum. ![]() Gimbrin undan Hröfnu og Sigurfara syni frá Hraunhálsi. ![]() Aþena með lömbin sín undan Soffa sæðishrút. ![]() Svona leit gestaborðið út við erfðadrykkjuna hjá pabba. Tófan setti stíl á hans áhugamál í gegnum tíðina. Það var svo líka mynd af honum með besta hrútinn sinn í kirkjuskránni og mynd af Mávahlíð yfir síðuna sem var allveg rosalega fallegt. Við þökkum lions konum fyrir frábærar veitingar á laugardaginn og ættingjum fyrir alla hjálpina sem við fengum í kringum undirbúninginn. Þökkum Dvalarheimilinu Jaðar ómetanlega umhyggju og góða vinnu í kringum pabba í kringum árin sem hann var þar. Stuðning og ástúð starfsfólks og Sigrúnar Sveinsdóttur hjúkrunarfræðings sem stóðu með okkur seinustu dagana þið voruð allveg yndisleg. Það eru svo fleiri myndir af hvolpunum og fleira hér. 12.07.2013 00:29Faðir minn fær hvíldinaÉg er búin að vera lítið í netheiminum núna og er það vegna þess að seinustu vikur hafa verið mjög erfiðar hjá okkur fjölskyldunni. Pabbi er búnað vera glíma við taugahrönunar sjúkdóm í mörg ár og æða kölkun. Það hefur því alltaf verið tímaspursmál hvenær sá sjúkdómur myndi taka hann frá okkur. Það verður skrýtið að fara ekki lengur niður á Dvalarheimili þótt stundum hefðum við mátt vera duglegri að fara til hans en það var bara svo sjálfsagt eitthvað að hann væri alltaf þar til að taka á móti manni og maður bjóst ekkert við því að hann væri að fara neitt og maður gleymdi sér í sínu upptekna heimilis lífi. Nú á seinustu vikum fór honum að hrörna fljótt og vorum við yfir honum í 10 daga dag sem nótt og lést hann seinast liðinn sunnudag 7 júlí. Blessuð sé minning hans og hans verður sárt saknað En minningarnar þær lifa með okkur og hér er smá minningar tiltekt ![]() Ungur að árum hér í Mávahlíð. Ég tel að minn rollu áhugi hafi komið í gegnum pabba og Steina og þykir mér verst að hafa ekki fengið hann fyrr og getað rætt við þá um skoðanir og ræktun þegar þeir voru til taks að ræða um þau mál en einhvað hefur maður lært því ræktun þeirra lifir enn góðu lífi í gegnum okkur og virðist alltaf bæta sig meira ár frá ári. ![]() Hér má sjá gamla fjölskyldumynd af Þuríði og Ágústi úr Mávahlíð með börnin sín 6 Leifur Þór, Elínborg , Ragnar, Hólmfríður, Jóna og Þorsteinn. Af þessum hóp er Hólmfríður sú eina sem eftir er á lífi. ![]() Hér er gömul blaðaúrklippa af pabba og heimilsrefnum sem var alltaf hefð á hverju sumri að hafa einn yrling yfir sumarið og það fannst okkur krökkunum ekki leiðinlegt. ![]() Einhvern tímann heyrði ég að aðal draumur pabba hafi verið að verða sjómaður en hér er hann út á sjó. ![]() Hér er Magnús bróðir með rjúpu og leikfanga rifill. Þetta var mjög vinsælt leikfang hjá okkur að fá eitt stykki rjúpu til að leika með he he það væri ekki mjög vinsælt í dag eða hvað.. ![]() Fjölskyldumynd Maja og Ágúst bara fædd þarna. ![]() Hér eru þau hjónakornin í seinasta jólaboðinu sem haldið var í Mávahlíð já maður á nú margar minningarnar úr Mávahlíðinni og þykir verst að hún sé að renna úr greipum okkar það væri svo geggjað ef hún gæti enn verið okkar fjölskyldu eign þessi fallega jörð. Vonandi hvílir þú í friði elsku pabbi minn og færð lengra og betra líf eftir þetta líf. Minning þín lifir að eilífu. Leifur Þór Ágústsson verður jarðsungin í Ólafsvíkurkirkju 13 júlí kl 14.00 og jarðsettur á Brimisvöllum. Erfðadrykkja mun svo fara framm í Grunnskóla Ólafsvíkur. 03.07.2013 23:06Hvolparnir og Hrafna myndir![]() Oðnir ekkert smá miklar bollur þessir gaurar. ![]() Hér er sá ljósi og þeir eru allir búnað opna augun. ![]() Sá stóri hann er með hvíta sokka á framan og aftann og svo með hvíta bringu. ![]() Minnsti er með hvíta bringu og hvita sokka á aftann. ![]() Smá hobby hjá mér að mála hrafna og gá hvort það sé einhver áhugi fyrir því að selja svona myndir annars get ég málað líka önnur dýr. ![]() Þetta er bara akkrýl málað á striga ég fékk smá hrafna æði því þeir eru jú svo mikið í tísku núna. ![]() Ég málaði þessar myndir og fleiri fyrir Ólafsvíkurvöku bara til að sjá hvort einhver hefði áhuga á þessu og ég náði að selja 6 myndir svo ég er bara mjög ánægð og held ég fari bara að leggja fyrir mig að mála aðeins fleiri og fleiri útgáfur ef áhugi verður fyrir því. Jæja ákvað að skellu þessu hér inn snöggvast því ég hef nú ekki getað varið miklum tíma hér í tölvunni vegna veikinda föður míns. Það eru svo fleiri hvolpa myndir og hrafna myndir hér inn í albúmi. 26.06.2013 23:34Útskrift Magnúsar MársJæja þá er hann elsku Magnús Már orðinn útskrifaður lögrfæðingur með BA gráðu. Það má með sanni segja að hann sé eins og elsta barn okkar Emils því hann ólst upp hjá okkur frá 11 ára aldri. Við vorum unglingar að ala upp barn sem var að fara á unglingsárin he he svo við erum komin með reynsluna fyrir okkar börn þegar þau fara á unglingsárin sín. Já hver hefði trúað því að þessi óþekktar angi ætti eftir að komast svona langt í skólamenntun sinni. Hún var ekki björt í byrjun Grunnskóla nei það voru ófáir dagar sem mamma fékk ekki kvörtunarbréf heim að Magnús og Sigrún frænka hans hefðu verið að gera eitthvað að sér. Það voru fengnir foreldrar til að sitja yfir bekknum og mamma var fengin í einhver skipti til að sitja með Magga í tíma vegna óspektar í tíma. Þá kom oft upp sú umræða meðal annara að hann væri ofvirkur og það ætti að fara með hann til læknis en mamma lét það um eyrun fjúka og sagði að börn ættu að fá vera börn og það ætti að heyrast í þeim og vera læt, það væri bara eðlilegt og það má sannreyna það á honum Magnúsi í dag því hann er allveg fyrirmyndar maður með gull hjarta. Ein saga liggur mér ofarlega í huga um skólagöngu hans. Það var þegar Maggi var óþekkur í tíma hjá Ólínu í Ólafsvík. Honum var hent út úr tíma og vísað til skólastjórans sem var þá Sveinn Elinbergsson. Ólína var kölluð stuttu seinna inn og henni bent á marblett sem var þar á stráknum gulur og ógeðslegur og hún spurð hvort hún hafi veitt honum þessa áverka. Ólína hvítnar í framan og roðnar um leið af reiði HVA eruð þið að grínast í mér nei það hef ég aldrei gert en strákurinn stendur fastur á sínu og grey konan gat ekkert sagt því það voru bara hennar orð gegn saklausa drengunum. Það kom svo seinna í ljós að þetta var eldgamall marblettur sem honum datt í hug að nota til að hefna sín á Ólínu því hún henti honum út he he allveg magnað hvað þessi drengur gat verið uppátækjasamur og útsmoginn. Þessa sögu sagði Ólína mér sjálf og ég hlæ enn af henni þegar ég rifja hana upp. Já Magnús kunni sko að ljúga þegar hann var yngri og þræta var honum einum lagið líkt og það voru margar stundir sem þeir frændur hann og Steini sátu inn í eldhúsi í Máfahlíð og þrættu um allt milli himins og jarðar. Eins þrjóskur og harður sem Steini var lét hann ávalt undan þegar Magnús átti í hlut og fór að hlægja og vissi að þessar rökræður ættu sér engin endalok í þeirra umræðum ef hann léti ekki undan. ![]() Hér er svo meistarinn og gullfallega Erla kærastan hans. ![]() Mamma hélt svo kaffiboð fyrir drenginn sinn og það komu ættingjar og vinir. ![]() Hulda og Freyja Naómí ![]() Hvolparnir dafna fínt og fara nú allveg að opna augun. Þetta er smá tilraun í ljósmyndakeppni um Ballerina kex. ![]() Ein krútt mynd af Freyju sem stækkar og stækkar. Það eru svo fleiri myndir hér inni. Kveðja Dísa 19.06.2013 18:59Donna gítur og 17 júníJæja þá er loksins komið að því að ég gefi mér tíma til að blogga. Það er búið að vera eitthvað svo mikið að gera og krakkarnir búnað vera veikir svo heimilsverkin hafa hlaðist upp og þegar það kemur sól og gott veður eru þau látin sitja enn meira á hakanum...... Já og svo má ekki gleyma hvolpunum ![]() Donna gaut 13 júní frá 11 um kvöldið til 2 nóttina 4 hvolpum. 3 rakkar og ein tík en því miður var tíkin holgóma eða með skarð í vör og lifði ekki nema í 2 sólarhringa. Hinir dafna annars rosalega vel. ![]() Hér er hún með alla 4. ![]() Hérna eru svo strákarnir. ![]() Hér er stærsti hlunkurinn. ![]() Hér er þessi ljósi og hann verður örugglega með hvíta blesu. ![]() Hér er sá minnsti. Þessir svörtu verða eins og Donna á litinn og með hvít á bringunni. Eða ég held það en annars á það eftir að koma í ljós þeir opna augun þegar þeir verða um 12 daga gamlir svo það verður spennandi að sjá þegar það gerist. Núna eru þeir viku gamlir á morgun. Það eru svo fleiri myndir af hvolpunum hér inni. ![]() Ég átti afmæli þann 17 júní og fékk þessa svakalegu peysu frá Emil og krökkunum og ég er allveg í skýjunum með hana finnst hún allveg geggjuð svo gaf Unnur og Steinar mér hárband í stíl rosalega flott. ![]() Við fórum svo út að borða á Heraford steakhause í boði Jóhanns og Þórhöllu. Allveg rosalega góð þetta var nú ekkert stórafmæli en þetta var rosalega gott að borða þarna og gaman að komast 2 ein út takk kærlega fyrir okkur. Maggi bróðir passaði svo grislingana okkar 3 og Erla og gekk það mjög vel hjá þeim. ![]() Núna fer svo rollu rúnturinn okkar Birgittu að hefjast ekki satt Birgitta he he. ![]() Stuð á Mána og hestinum hennar Köru sem hún verður nú að fara skíra eitthvað. ![]() Svo góð að borða ís sem þau fengu í ísbílnum í góðu sumarveðri loksins. ![]() Freyja aðeins farin að fá að kynnast útiverunni. ![]() Heimalingarnir Sigmundur og Framsókn orðnir gífurlega stórir hjá honum Gumma og fylgjast vel með honum vera að dæla út. Fleiri myndir af þessu öllu hér. Jæja segjum þetta gott að sinni Kveðja Dísa 12.06.2013 09:19Freyja Naómí 6 mánaða![]() Litla krúttspengjan okkar 6 mánaða í dag og ég fór með hana í skoðun í gær Hún er 6840 grömm og lengd 68 og höfuðmál 43. Hún fékk ekki sprautu því hún er með eyrnbólgu og er á pensilíni en fær sprautuna í næstu viku. ![]() Það fer nú allveg að fara koma sumar hjá okkur og sólin skín allavega á okkur í dag. Hér er Freyja með fallega hárbandið sem Brynja frænka var að gefa henni og Emblu þetta hvíta ekkert smá flott hjá henni. ![]() Jæja þá er seinasta rollan komin út hún Nala og þá er sauðburður yfirstaðinn í ár og gekk allveg yndislega vel og öll lömb lifðu. Það eru svo myndir hér inni með því að smella hér. ![]() Hestarnir frá Steina,Jóhönnu og Bóa í góðu yfirlæti inn á túni inn í Tungu. ![]() Og skodi ljóti fékk fulla skoðun líka eins gott fyrir hann he he. Mamma var svo yndisleg að fara með hann fyrir mig í gær hér inn í Ólafsvík. 08.06.2013 16:53Reykjavíkur ferð og sauðburður klárast.![]() Freyja Naómí stækkar og stækkar og hér er hún alltaf svo glöð með tönnsurnar sínar 2. ![]() Við fórum til Reykjavíkur á Sjómannadags helginni og eyddum góðum stundum með krökkunum og fórum svo út að borða á Caruso með Brynju og Kristmundi. Við fengum okkur humarsúpu og nautasteik allveg rosalega gott. Reykjavíkur ferðinn fór þó ekki allveg eins og við vildum því við ætluðum í Grindavík en það varð ekkert úr því og svo tók Skodi ljóti upp á þeim óleik að bila hjá okkur svo við þurftum að vera í bænum einn dag í viðbót sem var í fínu lagi en kostnaðurinn við að laga bílinn var algjör blóð peningur svona rétt fyrir sumarið það var ónýt túrbínan og kostaði 260 þús að fá nýja og láta setja hana í. Já það er alltaf eitthvað skemmtilegt sem kemur manni á óvart en það þýðir ekkert að væla yfir því bara njóta lífsins og hugsa um eitthvað skemmtilegra. Eins og enn skemmtilegra var að það var hringt í okkur á leiðinni suður og þá var búið að keyra á lamb! ARG ekki byrjar það vel en við skulum vona að þetta sé bara upphafið af endinum og vera jákvæð. Bói átti þetta lamb og var það undan Skuggadís og Blika. ![]() Þessi elska var eins árs um daginn. Þetta er hún Birgitta Emý dóttir Steinars bróðir Emils og Unnar. Svo dugleg farin að hlaupa út um allt. ![]() Freyja Naómí í fjárhúsunum. Það eru svo fleiri myndir hér inn í albúmi af Reykjavíkur ferðinni og heimsókn á leikskólann Krílakot hjá Benóný með þvi að smella hér. ![]() Dóra með þrílembingana sína á leiðinni út. ![]() Fallegir tvílembings hrútar undan Eygló gemling og Brján. ![]() Gimbur og hrútur undan Rósulind og Storm. Það eru svo fleiri myndir hér. ![]() Flekka með hrút og gimbur undan Nasa hans Óla Tryggva. ![]() Nala rak lestina og kom með 2 hrúta í nótt 8 júní og þeir eru undan Brimil Borða syni. ![]() Grána hjá Sigga bar seinust hjá honum svakalega stórum hrút undan Storm. Grána greyjið er allveg búin í fótunum svo þetta verður seinasta árið hennar. ![]() Það er svo loksins hægt að fara bera á túnin milli rigninga. Óheppnin virðist svo ofsækja okkur því það var hringt í okkur í dag látið vita að útlendingar hefðu verið að labba niður á Hellu í fjörunni og rekist þar á 2 munaðarlaus lömb og dauða rollu. Við fórum strax og gáðum að þessu og viti menn auðvitað varð það að vera ein besta rollan okkar. Það var Rák hans Bóa sem er akkurrat með gimbrina sem ég ætlaði að skipta við hann ef hún kæmi af fjalli og ef hann myndi ekki setja hana á sjálfur. Æ þetta er svo ergilegt nú hættir til að maður fari að vera svartsýnni á jákvæðnina sem ég er alltaf að hamra á við sjálfa mig. En vonandi koma þau heim heil í haust og þá verður dekrað við þau allavega verður gimbrin sett á hjá honum Bóa í staðinn fyrir hana Rák blessunina. ![]() Hér eru lömbin hennar Rák sem eru nú móðurlaus gimbur sú botnótta og hitt hrútur. ![]() Freyja farin að figra sig áfram að prófa ýmislegt og hér er hún í göngugrind sem er allt of stór fyrir hana enn þá. ![]() Farin að fá í fyrsta sinn að borða og finnst það ekkert voða gott en brosir þó he he. ![]() Það styttist óðum í Donnu hún gítur sennilega í næstu viku og við ætlum að hugsa rosalega jákvætt um það og óska þess að allt gangi vel hjá henni núna. Við skelltum okkur í kvennahlaupið með Dagbjörtu,Emelíu og Emelý. Benóný og Embla voru svo dugleg að labba og skiptast á að vera í kerrunni og fengu þau verðlauna pening og voru rosalega ánægð. Það eru svo fleiri myndir hér af rest af sauðburði og fleira. Jæja kveð að sinni ![]() Flettingar í dag: 665 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 4577 Gestir í gær: 153 Samtals flettingar: 1554715 Samtals gestir: 77919 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:13:35 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is