Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
27.04.2022 11:11Framkvæmdir í mars til aprílÞann 8 mars byrjuðum við að rífa niður í eldhúsinu og hófust þá framkvæmdir á að rífa niður eldhúsinnréttinguna og taka gólf og veggi af því við ætlum að leggja nýtt rafmagn og þegar það var allt komið vel af stað að rífa kom í ljós að milliveggur milli eldhús og andyris var svo lélegur að við rifum hann niður líka og létum byggja upp alveg nýan vegg þar. Andyri var svo líka rifið af gólf,veggir og loft og verður þar líka nýtt rafmagn. Þessar framkvæmdir eru svo enn í vinnslu og er ég búnað vera nokkuð þolinmóð held ég að búa heima með 4 börn í öllu þessu raski og hefur það gegnið ótrúlega vel bara miðað við aðstæður. Við ætluðum að loka eldhúshurð sem aldrei var notuð og ég var búnað panta filmu í gluggann sem var þar en þegar þeir rifu gólfið af þar kom í ljós að það var mjög skemmt undir hurðinni og alveg fúnað og náði skemmdin langt inn að vegg næstum undir klósett en sem betur fer náðist að laga það en þeir urðu að taka útidyrahurðina úr sem við ætluðum ekkert að taka en það var ekki annað hægt því vatnið lak bara beint inn með hurðinni og það varð að saga stéttina fyrir utan hús til að komast í veg fyrir lekann. Það má auðvitað alltaf reikna með einhverju auka veseni þegar maður fer í svona framkvæmdir en þetta er allt á góðri leið núna Bói er búnað vera yfirsmiður og heilinn í þessu öllu hjá okkur án hans hefðum við aldrei getað gert þetta allt svo hjálpaði Jóhann bróðir Emils okkur alveg með rafmagnið það var hans sérsvið og Freyja tengdamamma var alveg ótrúlega dugleg að taka krakkana fyrir okkur og bjóða okkur í mat á meðan þessu öllu stóð og auðvitað að lána okkur manninn sinn allar helgar í vinnu fyrir okkur. Þórhalla og Jóhann bróðir Emils komu og hjálpuðu okkur að setja saman ikea innréttinguna og Bói og Emil sáu um að stilla allt og koma öllu upp á sinn stað. Við máluðum svo eldhúsið með litnum leir frá slippfélaginu og ég er mjög ánægð með hann held það eigi eftir að vera geggjað flott þegar allt hvíta er komið upp þá nýtur það sín í dökka litnum. Við skiptum svo um hurðar í öllu húsinu og það verða hvíta hurðar og harðparket frá harðviðarval. Í dag er 27 apríl og þá eru hurðarnar komnar upp að mestu og eldhúsið en það er eftir að klæða loftið í ganginum og parketleggja stofunar og herbergið okkar.
18.03.2022 16:46Tekið af snoðið 12 mars
Arnar kom og tók af fyrir okkur á laugardaginn seinasta og var eldsnöggur og vandvirkur eins og alltaf við erum svo lánsöm að fá hann til okkar.
Hér eru stelpurnar búnað vera dekra við Diskó áður en hann fer í klippingu.
Kristinn og Emil að skemmta sér vel.
Hér er búið að taka af lambhrútunum.
Hér eru svo stóru hrútarnir.
08.03.2022 09:37Arfgerðargreinar sýnatakaVið fengum afhent sýnin í seinustu viku og tókum svo sýnin núna á sunnudaginn og það gekk hægt fyrst meðan við vorum að komast í gang og skipuleggja okkur en svo gekk það mjög vel. Ég skrifaði og Siggi tók sýnin og Emil og Kristinn sáu um að halda kindunum. Við hólfuðum þær niður 7 til 8 niður í stíur og þá var ekkert stress og þær voru bara ótrúlega rólegar meðan var verið að taka sýnið. Við tókum sýni úr öllu bæði kindum og hrútum.
21.02.2022 17:55Allt á kafi í snjó
Hér er hún svo montin að vera búnað sækja eggin og ég þarf að draga hana á snjóþotu því það er svo mikill snjór allsstaðar.
14.02.2022 12:09Fósturtalning 12 feb
09.02.2022 11:43Jan til feb 2022
Hérna eru Diskó fremstur sem er undan Tón svo kemur Prímus og Fönix.
28.01.2022 11:22Dagleg rútína
Hér eru hvítu gimbrarnar sem eru allar svo gæfar að þær þurfa að fá klapp og klór þegar ég sópa í stíunni hjá þeim. Skrifað af Dísa 26.01.2022 16:36Styttist í talningu og fyrsta sinn í sóttkvíVið lentum í fyrsta skipti að dóttir okkar Freyja Naómí þurfti að fara í sóttkví því hún var búnað vera inn á heimili hjá smituðum einstakling. Við fengum að vita það á sunnudagskvöld og ákváðum út frá því að halda hinum krökkunum líka heima þangað til hún væri búnað fara í pcr próf sem hún fór í á þriðjudagsmorgun. Biðin eftir útkomunni virtist vera heila eilíf að líða enda smá stress að vita hvort hún væri með covid eða ekki. Það er aðeins farið að blossa upp núna covid hérna í bæjarfélaginu. Það var svo mikill léttir að fá neikvæðu útkomuna að hún væri ekki smituð á þriðjudagskvöldið og þá gátu allir mætt í skólann og Ronja farið í leikskólann á miðvikudaginn og þá var gott að geta fengið rútinuna aftur í lag þó svo að þetta hafi nú bara verið tveir dagar sem þau þurftu að sleppa. ![]() Hér er Embla Marína í fjárhúsunum með Snærós og Gjöf. ![]() Freyja Naómí umkringd af hamingjusömum kindum. ![]() Það er eitthvað error í gangi á 123 svo ég náði ekki að snúa myndinni rétt en hér er Benóný að knúsa Gjöf og Lísu. ![]() Þessi er eins á hlið þetta er hún Ronja Rós sem var á Þorrablóti á leikskólanum seinast liðinn föstudag. ![]() Það styttist svo óðum í fósturtalningu en það er væntanlegt 12 febrúar. ![]() Ronja Rós og Freyja síðan í fyrravor á sauðburði. Svo nú verður spennandi að bíða og sjá hvernig talningin kemur í ljós. 24.01.2022 16:54Búnað sækja um fyrir átaksverkefnið.Við erum búnað sækja um þáttöku í átaksverkefnið Arfgerðargreiningar vegna riðu og gera skráningu fyrir okkar fé og Sigga fé. Svo verður bara koma í ljós hvort við verðum valin. Við ákváðum að gera það því við seljum mikið af líflömbum og eins kom í ljós að Mávur sem var frá okkur og fór á sæðingarstöð var með C151 sem er eitt af verndandi genunum, svo það verður spennandi að sjá hvort það verði í einhverjum afkvæmum hans sem eru bæði hjá mér og Sigga. Eins er þetta alveg frábært verkefni og Karólína og allir sem af þessu hafa staðið eru algerir snillingar og eiga heldur betur hrós skilið þetta verður alger bylting í sauðfjárrækt. Hérna er mynd af Máv þegar hann var veturgamall. ![]() Hér eru þeir sumarið 2016 Mávur næst traktornum svo Drjóli frá Sigga svo Zorró og Ísak frá okkur. 22.01.2022 10:49Vír settur í hornin á lambhrútunumUm þar seinustu helgi fengum við fjölskyldan ælupest út frá því að sú yngsta fékk hana á leikskólanum og smitaði svo alla fjölskylduna koll af kolli. Benóný ætlaði að vera voða sniðugur því hann hatar ælupest mest af öllu og hann ákvað að flýja yfir til Jóhönnu frænku sinnar sem býr hinum megin við götuna hjá okkur og hann fór og gisti þar en það vildi nú ekki betur en svo að hann byrjaði að æla um nóttina og smitaði þar af leiðandi frænku sína líka. Hann skyldi svo ekkert í því að þetta plan hafi ekki virkað he he en hann slapp mjög vel og ældi bara tvisvar en var mjög slappur með því. Þetta er svo rosalegt þegar maður fær þetta upp og niður það lamast allt en sem betur fer fékk Ronja þetta á fimmtudeginum og var orðin góð á laugardeginum og þá redduðu Freyja tengdamamma og Bói okkur og tóku Ronju svo þá var aðeins minna að hugsa um meiri tími til að ná að hvílast og komst yfir þetta. Við vorum svo öll orðin góð á sunnudagskvöld. Það er svo alveg ómetanlegt hvað maður metur heilsuna mikið eftir svona veikindi og má í rauninni vera glaður og þakklátur hvern dag sem heilsan er í lagi. Kristinn og Siggi redduðu okkur alveg með kindurnar og gáfu fyrir okkur þessa helgi og vorum meira segja svo rosalega vinnusamir og duglegir að þeir settu vír í lambhrútana. ![]() Hér er Bassi og það er búið að setja vír og rör yfir svo vírinn meiði hann ekki og festist í ullinni. ![]() Hér sést þetta betur hvernig þetta er. Svo eru þeir hafði sér í stíu svo þeir séu ekki að krækja þetta úr sér. ![]() Ljúfur líka kominn með. ![]() Hér sést hvernig þetta kemur svo aftur fyrir haus og við gerðum þetta í fyrra og þetta virkaði rosalega vel og tók ekki langann tíma þetta er Ljómi hans Sigga. ![]() Freyja og Ronja glöddust yfir snjónum um daginn og fóru út að renna og leika sér en hann varði þó ekki lengi var horfinn allur daginn eftir það er búið að vera rosalegar veðurbreytingar frost og þíða til skiptist og mikið um lægðir og leiðinda veður með stormi, það er búið að einkenna þennan janúar mánuð. 11.01.2022 10:47Minningarorð Óttars á Kjalvegi.Ég fékk þann heiður að fá að fylgja góðum vin honum Óttari Sveinbjörnssyni þann 6 jan,var hann jarðsunginn frá Ingjaldshólskirkju. Ég hef þekkt Óttar frá því að ég var krakki enda var hann tíður gestur inn í Mávahlíð hjá pabba og Steina og auðvitað snerist allt um kindur,hrúta og ræktun. Ég var ekki gömul þegar ég átti mín fyrstu viðskipti við hann enda var hann mikill kaupmaður og samdi við mig að fá að kaupa hjá mér eina gimbur undan kind sem ég átti í Fögruhlíð og hét Rósalind og var svartflekkótt og þessi gimbur var alhvít og falleg og ég átti það til þegar ég var krakki að kalla alhvítar kindur bleikar því þær voru með svo fallega bleikar nasir og það fannst honum ekki rétt að segja og leiðrétti mig að kindur gæti ekki verið bleikar heldur væru þær mjallahvítar eða alhvítar og þetta tók ég gilt og full af áhuga að ekki skyldi ég segja bleikar kindur heldur alhvítar. Skondið hvað maður man suma hluti og tekur vel eftir þeim enda bar ég virðingu fyrir honum og leit upp til hans. Ég á líka minninguna um þegar geimverur áttu að lenda á Snæfellsjökli þá fórum við með Óttari á stóra bílnum hans held það hafi verið brúni Ford Econoline er samt ekki alveg viss en ég man bara að við fórum með honum og biðum eins og margir aðrir en aldrei komu neinar geimverur he he. Við áttum svo auðvitað margar ferðir í búðina til Óttars og Írisar í Blómsturvelli sem var án efa flottasta verslun á nesinu og margir áttu leið sína hingað vestur bara til að koma og kíkja á Blómó. Mamma átti mörg vöruskiptin við Óttar og pabbi lét hann hafa lömb og þá gat mamma fengið nýja hrærivél mjög hentug viðskipti þegar kaupmaðurinn var rollu bóndi. Mér þótti mjög vænt um núna seinustu ár hvað leiðir okkar Óttars héldu áfram saman og við höfðum tengingu í gegnum sauðfjárræktina og mér fannst alltaf ég halda minningu pabba og Steina nær mér þegar Óttar kíkti í kaffi til okkar Emils á kvöldin og við rifjuðum upp gamla tíma og spjall um kindur og ræktun auðvitað sem átti hug okkar allann. Ég mun sakna heimsókna hans og hafa hann sem keppinaut því það var langskemmtilegast hjá okkur að bera okkar bækur saman og keppa okkar á milli það var aðal stemmingin. Enda var það honum mjög erfitt að hætta búskapnum síðast liðið haust vegna heilsunar en honum til mikilla gleði hélt hann nokkrum eftir í umsjá Péturs Steinars barnabarn síns svo hann gæti fengið að fylgjast með og leiðbeina, enda algjört gull að varðveita slíka ræktun. Óttar var mikil keppnismaður og áhuginn og metnaðurinn svo mikill að það var aðdáunarvert að hlusta á hann og læra af honum. Hann kenndi mér að vera hörð að sía út það sem ekki virkar og ekki vera halda bara í litina því ég var nú ansi litaglöð þegar ég byrjaði fyrst eftir að ég tók við af pabba en sem betur fer voru það samt góðar ær og skiluðu góðu. Ég notaði þetta svo oft á hann og heyri hann hlægja þegar ég skrifa þetta niður hvað segiru Óttar hvað áttu margar hvítar kindur núna he he því hann var orðinn ansi litaglaður og litirnir hjá honum voru orðnir fleiri en hjá mér og í meirihluta miðað við hvítu ærnar en það var nú bara því það var orðið jafngott fé eins og það hvíta. ´ Óttar átti ofboðslega vænt og fallegt fé og einkenndi það mikil þyngd og lærahold. Hann var bóndi frá toppi til táar og ræktun hans til fyrirmyndar. Hér má sjá grein sem birtist í Skessuhorni í október 2013 ![]() Grána heggur nærri heimsmetinu"Ef Dimma bakarans í Borgarnesi hefur skilað Íslandsmeti í afurðum, hefur hún Grána mín trúlega hoggið nærri heimsmetinu," segir Óttar Sveinbjörnsson kaupmaður og tómstundabóndi á Hellissandi. Grána er fimm vetra ær í eigu Óttars. Hún skilaði sér til réttar í haust með þrílembingana sína rígvæna. Hrútlömbin vógu 55 og 57 kíló og gimbrin 52 kíló. Alls vega því þrílembingarnir undan Gránu 164 kíló eða 24 kílóum meira en þrílembingar hinnar gráu Dimmu, Sigurgeirs Erlendssonar bakara í Borgarnesi, sem greint var frá í Skessuhorni í síðustu viku. Aðspurður segist Óttars þó ekki ætla að tilkynna þetta til heimsmetabókar Guinness. "Grána hefur alltaf skilað góðum afurðum og verið til skiptis tvílembd eða þrílembd," segir Óttar sem hefur verið tómstundabóndi í 50 ár eða meira. Hann segir að Grána hafi borið 4. maí í vor og verið á beit í þjóðgarðinum í sumar. Lömbin eru undan sæðingahrútnum Grábotna og munu öll verða sett á í haust. Gimbrin verður á fóðrum hjá Óttari í vetur ásamt móður sinni, en hrútarnir tveir voru seldir norður í Skagafjörð. Þar mun ætlun bænda að ná genum úrvals fjárstofns á Snæfellsnesi inn í sína ræktun, að sögn Óttars Sveinbjörnssonar. Ég hef oft heimsótt Óttar í fjárhúsin hans í gegnum árin og á dágott safn af myndum af ásettningi hans og aðrar myndir og ég tók hér aðeins smá myndar minningar sem mig langði að deila með ykkur. Ég votta ástvinum Óttars mínu dýpstu samúð og hlýhug. Hér er Óttar með besta veturgamla hrútinn árið 2010 held það sé rétt hjá mér að hann hafi heitið Morgun. Hann var með 19 í læri og 87 stig. Hér er hann virkilega fallegur og mikill hrútur þessi mynd var tekin þegar hann var eldri. Hér er Óttar svo með gullið sitt hann Klett en honum var hann mest stoltur af og batt miklar vonir við hann. Klettur var besti veturgamli hrúturinn árið 2011. Hann á enn mikla afkomendur víða um landið og hefur verið að skila mikilli gerð og feikna kindum. Óttar hafði oft orð á þvi að dæturnar undan honum mjólkuðu svo mikið að þær gátu fengið júgurbólgu út frá því að ná ekki að tæmast. Hér er svo klettur svakalega gleiðhyrndur, þrekvaxinn og mikill hrútur. Hér eru Bárður og Dóra með farandsskjöldinn fagra fyrir besta lambhrútinn 2017 og átti hann ættir í Klett hans Óttars svo hann fékk heiðurinn að vera með þeim á verðlaunamyndinni enda átti hann stóran þátt á bak við ræktunina með þeim Bárði og Dóru. Þessi hrútur fékk nafnið Skjöldur. Ég held að þessi stund hafi verið honum afar kær og hann hafi verið uppfullur af stolti. Hér erum við á Aðalfund Búa 2013 að taka móti verðlaunum árið 2013. Óttar var oftar en ekki kallaður upp að taka á móti verðlaunum fyrir afrakstur sinn í sauðfjárræktinni. Hér er önnur mynd af öðrum Búa fundi að taka á móti verðlaunaskjölum. Hér er Óttar í fjárhúsunum á Kjalvegi að sýna okkur Emil hvernig gjafgrindin virkar. Þessi kind var í miklu uppáhaldi bæði hjá mér og Óttari mér fannst hún svo falleg á litinn og líka var hún að skila afburðar góðum lömbum. Hér er Óttar að kalla í féið sitt og láta þær elta bílinn upp að fjárhúsum á Kjalvegi. Hér er hann á sauðburði að fara sýna mér lömbin og er að fara hrista brauðpokann svo þær komi. Þessi var tekin að hausti og má sjá þær koma til hans að gæða sér á brauði. Hér má sjá vinina Kristinn Bæjarstjóri, Óttar og Haukur á Vatnsenda. Þetta er hrútasýning inn í Bjarnarhöfn. Hér mikið fjör á hrútasýningu veturgamla á Mýrum árið 2010. Hér er Óttar og Gunnar frá Fáksrúðarbakka á héraðssýningu lambhrúta árið 2012. Þessi mynd er tekin inn í Bjarnarhöfn árið 2012 á héraðssýningu lambhrúta. Fannst þessi mynd eitthvað svo táknræn að lokum kindurnar hans að hlaupa á Kjalveginum með Ingjaldshólskikju toppinn í baksýn svo frjálsar og glaðar að hlaupa út í frelsið. 09.01.2022 17:58Búið að taka þakið niður af FögruhlíðarhúsinuHér má sjá Fögruhlíðarhúsið eftir að þakið var tekið niður fyrir miðvikudaginn þegar næsta lægð var á leiðinni svo það færi ekki að valda skaða út frá sér. Hér sést það betur en það er mjög hreifð myndin þvi það var hávaða rok þegar ég tók hana um morguninn 6 jan á fimmtudeginum. Hér má sjá brimið sem var á Mávahlíðarrifinu og rétt áður en ég fór inn í sveit að gefa þá var ég að keyra á eftir vegagerðarbílnum og fékk alveg sjógusurnar yfir bílinn hjá verkstæðinu hjá Tomma inn í Ólafsvík og þegar ég fór svo framm úr honum setti hann ljósin á og veginum var lokað inn í Ólafsvík um tíma það var svo svakalegt brim sem gekk yfir þar og malbikið mjög mikið búið að flettast af og eyðileggja veginn. Svona var þetta séð inn á Mávahlíðarrif og Mávhlíðarhelluna á fimmtudagsmorguninn og mér finnst þetta samt ekki sjást eins mikið og þegar maður sér þetta með berum augum þetta var eins og að vera í bíómynd að sjá brimið þegar maður keyrði þjóveginn við Helluna. Ég var svo aðeins og fljót á mér að segja að fengitíminn hafi aldrei verið eins stuttur því það var einn gemlingur svo mikið að ganga hjá mér í morgun að hún jarmaði af athygli við hrútinn svo ég varð að tékka á henni og þá kom í ljós að þetta var hún Orka mín sem er svo stór og fallegur gemlingur að ég bara gat ekki hugsað mér að hafa hana gelda svo ég hleypti Ljúf á hana og lengdi þar með sauðburðinn í vor en það er í lagi við erum með svo gott myndavélakerfi sem Kristinn reddaði fyrir okkur svo þetta verður ekkert mál þó það teygist aðeins. ![]() Hér mynd af henni Orku í haust hún er undan Brussu sem er Mávs dóttir og undan Bolta Víkings syni og systir hennar var einnig sett á og ég gaf Kristni hana. ![]() Ég hleypti svo aftur á Orku daginn eftir og viti menn þá kom önnur í ljós sem var að ganga upp og heitir París og fyrst ég var búnað hleypa á Orku varð ég að hleypa á hana lika og það var Ljúfur sem fékk hana líka svo enn lengdi ég aðeins sauðburðartímann en vonandi halda þær núna og að ég fái þá lömb úr öllum gemlingunum. 09.01.2022 17:175 janÞann 5 janúar var vonsku veður og enginn skóli og þá var Embla Marína mín alveg að njóta sín að fá að koma með að gefa hestunum og kindunum. Ég er að prófa að blogga ég hef ekki náð að setja neitt inn út af bilun í kerfinu en næ því með því að setja mynd annars staðar inn en í mynda albúm þá get ég náð því en það tekur lengri tíma. Flettingar í dag: 665 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 4577 Gestir í gær: 153 Samtals flettingar: 1554715 Samtals gestir: 77919 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:13:35 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is