Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
20.10.2009 14:29Benóný og fyrsta hrútasýninginJæja þá er prinsinn orðinn 2 mánaða og svo fór hann á sína fyrstu hrútasýningu og hafði gaman af, hann svaf og svo þegar hann vaknaði brosti hann bara til allra voða gaman. Hjarðarfellsbúið fór með sigur á sýningunni og vann skjöldinn og var einnig í 2 sæti og svo fékk það líka verðlaun í hinum flokkunum svo þetta er stórkostlegur árángur hjá þeim. Verðlaunahafarnir voru þessir fyrir hvíta hyrnda : 1 sæti Guðbjartur á Hjarðarfelli 2 sæti Guðbjartur á Hjarðarfelli 3 sæti Kristján á Fáskrúðarbakka Kollóttir 1 sæti Eiríkur 2 sæti Guðbjartur á Hjarðarfelli 3 sæti Guðlaug á Hraunhálsi Mislitir 1 sæti Anna Dóra 2 sæti Gísli á Álftavatni 3 sæti Guðbjartur á Hjarðarfelli Þeir voru Hrútalegir saman Bárður og Benóný. Skrifað af Dísu 17.10.2009 01:37Klár gimburVið fórum á fimmtudagin til Gumma, og náðum í gimbrina sem að Helgi Kristjáns gaf mér og ekki gekk það áfallalaust fyrir sig, það byrjaði þannig að við misstum allar kindurnar af túninu og þurftum að smala þeim öllum aftur inn og eintómt vesen. En ekki nóg með það heldur þegar við settum gimbrina inn í bílinn hjá Gumma, var hún alls ekki sátt með að fara inn í bíl með framsóknarmanni og var fljót að stökka út úr bílnum, og ekki notaði hún hurðina heldur hliðarrúðuna sem hún braut með tiltrifum. En sú saga endaði með því að henni var skelt aftur inn í bíl og þurfti Emil, að halda í höndina á henni alla leið inn í Mávahlíð. Stór dagur verður á morgun, þegar hrútasýningin á Bergi gengur í garð, og verður það vonandi gaman, því við höfum titil að verja þar. En við munum segja ykkur meira frá því á morgun En takk fyrir okkur í bili Benóný vill vera miðpunktur athyglinnar og er öfundsjúkur út í tölvuskjáinn, þannig góða nótt. Hérna er svo hún Rauðhetta Hérna er svo bíllinn hans Gumma Hérna er svo æðsti strumpurinn. Skrifað af Dísu 14.10.2009 23:38Hverjum er ég líkur?Jæja nú er ég búnað setja myndir af bæði mér og Emil þegar við vorum lítil svo nú getið þið skoðað og kommentað hvað ykkur finnst , það eru mjög skiptar skoðanir hverjum Benóný er líkur og segja margir að hann sé líkur Leif afa sínum eða Magga bróðir en svo eru aðrir sem segja að hann sé líkur Steina frænda Emils svoleis er nú það. Svo um að gera skoðiði og kommentið hva ykkur finnst. Emil lítill Dísa lítil Benóný Ísak Skrifað af Dísu 13.10.2009 17:47Í fjárhúsunum með mömmuHæ núna fékk Benóný að fara aftur í fjárhúsin að skoða kindurnar og kynnast hrútunum og voru þeir vel forvitnir að skoða þessa litlu veru. Lömbin eru komin inn og lambhrútarnir og það var búið að opna rúllu svo við látum þau bara vera inni og hafa það gott, það er líka svo gaman að fara að gefa þeim og spekja þau. Við fórum í göngutúr í dag í góða veðrinu og kíktum á pabba niður á dvalarheimili og tókum hann með í göngutúr rosa stuð. Skrifað af Dísu 10.10.2009 01:42ÓtitlaðAllveg hundleiðinlegt veður alltaf þurfti meira segja að taka rollurnar bara inn og hafa þær allavega inni á meðan veðrið gengur yfir það þykir nú heldur snemmt að þurfa að taka þær inn núna en jæja það var allt á kaf í snjó og svo er bara rigning og rok núna en maður hefur það nú bara kósý heima og kveikir upp í arininum þegar svona veður er. Benóný stækkar og stækkar með hverjum deginum og ég held að það meigi nú fullyrða að hann verði með blá augu eins og pabbi sinn. Hér koma svo rúsínu myndir af prinsinum. Skrifað af Dísu 07.10.2009 01:53Kúturinn orðinn 6 viknaJæja þá er kúturinn orðinn 6 vikna og dafnar bara vel hann fór í skoðun í dag og er orðinn 4460 gr og 58 cm. og allt í fínu lagi. Ég setti hann út í vagn að sofa í dag og hann svaf allveg í 4 tíma voða duglegur,það var líka fínt veður í dag ekki eins og í fyrradag þá snjóaði á fullu hlussu snjókornum svona jólasnjó en ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna en það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið eldgamlar myndir og svo myndir úr hestaferð sem var farið í sumarið 2008 svo náttla fleiri af Benóný svo endilega kíkið og skoðið. Hér er æðsti strumpurinn á heimilinu. Varð að setja eina mynd af jólasnjónum. Skrifað af Dísu 04.10.2009 22:25ReykjavíkurferðJæja það er búið að vera nóg að gera um helgina við skelltum okkur í bæinn að sýna litla gull molann og var farið fyrst til Jóhanns frænda og skoðað nýja hundinn hans og tók hann vel á móti okkur og sleikti Benóný í framan og hann var nú ekki allt of hrifinn og fór að grenja og skildi ekkert í þessu hvað þetta væri. Jæja svo næst fórum við að heimsækja Emil afa og var hann að hitta litla í fyrsta sinn og var mjög stoltur af honum svo fórum við til langömmu og langafa í Hafnafirðinum og voru þau rosalega ánægð að sjá hann og Steini og Jóhanna elduðu svo læri heima hjá Dagmar og Jóni og við vorum í mat rosalega fínt. Síðan lá leið okkar til Fríðu og Helga og þau voru bara mjög hress og glöð að sjá litla frænda. Í dag fór Benóný svo í fyrsta sinn út í vagn og í göngutúr og var farið að heimsækja afa og Ragga á Dvalarheimilið og var afi rosa stoltur að sýna öllum litla prinsinn og það lifnaði yfir öllum að sjá svona lítið kríli og auðvitað lét hann aðeins vita af sér og öskraði smá fyrir þau og Raggi fékk loksins að sjá litla frænda sinn, hann var búnað bíða spenntur eftir því og var rosalega glaður að hitta hann loksins. Jæja þetta er komið gott og það eru nýjar myndir í albúminu. Emil og Benóný með Skugga. Sætir saman Raggi frændi og Emil með Benóný. Skrifað af Dísu 02.10.2009 22:44Benóný og nýjar skírnarmyndir frá ÓlaJæja tíminn flýgur áfram bara kominn október og Benóný stækkar með hverjum deginum. Hann er búnað vera mikið í bílnum upp á síðkastið því það er búið að vera svo mikið rollustúss og það var verið að slátra í gær hann Agnar kom og slátraði fyrir okkur og Emil og Bói hjálpuðu honum og Maja sá um inneflin því prinsinn vaknaði og ég gat ekki verið viðstödd meira. Það var slátrað 23 lömbum og var meðalvigtin 25 kg einu meira en í fyrra sem er mjög gott bara. Óli tók fyrir mig myndir í skírninni og var ég að setja þær inn núna svo þið getið séð þær í nýjasta myndalbúminu. Benóný brosti svona fallega til Freyju ömmu og Bóa afa í kvöld þegar þau komu. Varð að setja þessa með þeir eru svo sætir feðgar. Skrifað af Dísu 27.09.2009 16:05HrútasýningJæja þá er búið að stiga lömbin og kom það bara mjög fínt út og svo var hrútasýning á Mýrum og þar var margt um manninn og mikið af fallegum hrútum og vann Óttar besta hyrnda hrútinn og Óli besta kollótta og við vorum með besta mislita. Það er rosalega gaman að sjá hvað hrútarnir eru alltaf að verða betri og betri t.d. núna fékk hrúturinn hans Óttars 19 í læri sem er allveg glæsileg útkoma. Það sýnir sig líka að féið er orðið svo rosalega vænt og bakvöðvinn miklu meiri hjá flestum í ár heldur en í fyrra. Skrifað af Dísu 23.09.2009 22:53ÓtitlaðJæja hérna er ein krúsídúllu mynd af prinsinum sem er að gera mömmu sína vitlausa, hann er alltaf að pissa yfir mig alla þetta er allveg ótrúlegt hvað það getur komið mikið magn úr þessum litla líkama meira segja það að hann var næstum búnað pissa upp í pabba sinn þegar hann var að tala við hann þegar ég var að skipta á honum algjör prakkari. Á morgun er svo stór dagur það verður komið að stiga lömbin og svo er hrútasýning á veturgömlum hrútum á Mýrum svo það verður gaman og vonandi verður Benóný stilltur við mig svo ég komist á sýninguna og geti verið viðstödd þegar verður stigað en svo vil ég bara minna á að þið sem kíkið á síðuna að endilega skrifið í gestabókina og kíkið í mynda albúmið því það eru alltaf að steyma inn nýjar myndir hjá mér. . Krúttí púttí hann er nú aðeins of lítill í þetta og nær ekkert í þetta er mamma allveg rugluð Skrifað af Dísu 21.09.2009 12:23FYRSTA SMÖLUNINJæja það var smalað fyrir mig á laugardaginn og var heldur erfitt að vera föst í bílnum með kíkirinn í allar áttir en svona verður það þetta árið og fékk hann Benóný Ísak að hristast í bílstólnum aftur í steinsofandi á malarveginum inn í sveit. Þetta gekk svo allt bara ljómandi vel og var svo farið í frábærar veitingar hjá Gerðu í Tungu. Spenningurinn var síðan orðin svo mikill að ekki var hægt að bíða lengur eftir að fara skoða lömbin. Benóný þurfti þá náttla endilega að vakna, þegar ég var að fara út í fjárhús en ég lét það nú ekki stoppa mig og fékk hann að koma með og finna rollu ilminn í fyrsta sinn og líkaði vel því hann sofnaði í fanginu á mér. Skrifað af Dísu 14.09.2009 16:09Halló, heimasíðan er fædd!Jæja þá er maður loksins búnað láta plata sig í að búa til heimasíðu. Það er allveg hræðilegt að byrja ég veit ekkert hva ég á að skrifa en jæja við erum sem sagt 5 í heimili ósköp óvenjuleg fjölskylda Ég,Emil og litli prinsinn og svo er það Maggi bróðir og feiti sæti kötturinn okkar hann Olíver en er alltaf kallaður Óli og við búum öll í Stekkjarholti 6. Ég ætla að setja eitthvað skemmtilegt hérna, aðallega myndir af kindunum sem ég er með í Mávahlíð og eins hestunum okkar og ekki má gleyma frumburðinum okkar sem var drengur og fæddist 19 ágúst. 12 merkur og 50 cm. Hann var svo skírður 12 september Benóný Ísak í Brimisvallarkirkju og það var voða kósý og sætt nema minn maður var sko allveg crazy hann grét og öskraði allann tímann þessi engill sem heyrist aldrei neitt í en það er svona með mávahlíða skapið og þrjóskuna blandað við skapið hans Emils það verður eitthhvað rosalegt greyi barnið nei nei hann verður algjört gæðablóð. Þorsteinn Bergþórsson frændi Emils hélt á honum undir skírn og Maggi bróðir og Steinar bróðir Emils voru skírnarvottar. Skrifað af Dísu Flettingar í dag: 316 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 1296 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 1188505 Samtals gestir: 69640 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:31:23 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is