Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|
26.03.2011 23:04Rúningur 25 MarsJæja þá er loksins orðið hlýtt og fengum við allveg yndislegt veður til þess að rýja kindurnar loksins og var það vel þess virði að bíða og fá svona hlýindi í það. Bói og Emil byrjuðu á lömbunum á föstudaginn og kláruðu þau 15 stykki. Daginn eftir tóku þeir svo rollurnar og hrútana og gekk þetta bara rosalega vel og fínt að hafa klárað í dag og eiga frí á morgun til að hvíla sig því þetta tekur heilmikið á. Það er svo annars ekkert að ske en þá hjá mér þetta barn virðist ætla láta bíða eftir sér en það er kanski bara ágætt að það bíði allavega til morguns þá er ég sett. Það er góð tímasettning að vera allavega búin að taka af rollunum svo það má bara fara koma núna fyrst það er búið. Ég er svo búnað vera dugleg að taka myndir upp á síðkastið af Benóný í hesthúsunum og hjá hænunum og inn í Mávahlíð að renna og fleira svo það er nóg að skoða í myndaalbúminu ásamt rúningsmyndum af rollunum svo endilega kíkið á það. Annars vona ég að þetta sé mitt seinasta blogg áður en ég bæti við næsta barni því þetta er allveg komið gott maður er orðin svo þreyttur að klæða sig í sokka og skó þegar maður er með þennan belg framan á sér he he hlakka mikið til að losna við hann og verða ég sjálf aftur. ![]() Bói og Emil í ham. ![]() Alltaf jafn kátur hjá hænunum og kallar Gagalagó á eftir þeim. ![]() Að klappa kindunum . Skrifað af Dísa 20.03.2011 23:02Nýja herbergið hans Benónýs Jæja þá er gaurinn loksins búnað fá herbergið sitt tilbúið. Það var nefla mál með vexti að við ætluðum að fara að mála um daginn og kom þá í ljós að það var búið að leka ofninn inn í herberginu hans Magga og eyðileggja parketið og undirlagið út á mitt gólf og þá þurfti náttúrulega að hafa samband við tryggingafélagið og fá þetta bætt og það var gert og við voða stressuð því það er svo stutt þangað til ég fer að eiga og mikið verk að klára þetta áður og mála og allt saman en það hafðist og erum við allveg þrusu ánægð með útkomuna og drengurinn líka nú er hann með me og gagala gó á veggnum hjá sér allveg hæðst ánægður naut þess bara ekki allveg litla sílið því hann var kominn með 39,5 stiga hita allt í einu í dag. En þetta styttist óðum hjá mér nú er bara vika eftir þangað til ég á tal 27 mars en ég er nú að vona að þetta fari bara að bresta á svo Emil verði nú ekki út á sjó eða eitthvað vesen því þá verð ég bara senda tryllu eftir honum ![]() ![]() Limmiðarnir komnir upp rosa flottir svona bóndabærs stíll. ![]() Í traktornum með Karítas rosa lukkulegur. ![]() Donna í frostinu inn í Mávahlíð. 10.03.2011 23:07Rúntur til Bárðar og Benóný í mars.Komiði sæl. Við fórum rúnt til Bárðar um daginn og kíktum og nýrökuðu gellurnar hjá honum sem voru vel sáttar eftir rúninginn enda fagmaður þar á ferð og auðvita smellti ég nokkrum myndum af þeim og setti inn í albúmið. Það styttist svo óðum í að við þurfum að fara taka af okkar kindum en það vantar bara að finna tíma því Emil er alltaf á sjó núna og er að róa alla helgina en það hlýtur að gefast tími fljótlega allavega til að taka af þeim sem voru sæddar því þær bera fyrr. Gemlingarnir okkar dafna mjög vel bara og er ullin aðeins farin að losna af þeim og tók ég myndir af þeim og Benóný og Köru í fjárhúsunum seinustu helgi til að deila með ykkur. Emil tók svo Herkúles í fótsnyrtingu og þurfti hann vel á því að halda og settum við hann svo einan því hann var svo stirður eitthvað og mér fannst hann vera svo rýr en hann er allur að taka við sér eftir að við færðum hann og eiga hinir ungu hrútarnir ábyggilega líka stóran þátt í því, því þeir eru svo frekir að hann gaf alltaf eftir. Ég fékk svo ekki góðar fréttir í dag því það er búið að banna mér að gefa því blóðþrýstingurinn hefur hækkað svo þannig að nú á ég bara að taka því rólega enda kanski kominn tími til en mér finnst ekkert að mér en ég á nú bara 2 til 3 vikur eftir núna og það víst hollast að hlýða og vera róleg því ekki vill ég verða lögð inn það er það versta sem ég get hugsað mér og myndi örugglega neita fara inn því ég hef allveg antipest af þessum spítölum en Bói og Maja redda gjöfin á kindunum úr þessu en það er ekki þar með sagt að ég fari ekki og kíki aðeins á rollurnar ![]() ![]() Hér er Karítas að klappa Pöndu og Rán. ![]() Hér er svo litli prílarinn okkar sem klifrar upp á allt þessa dagana. ![]() Já já kominn upp á klósett og teygir sig í vaskinn og ég allveg með hjartað í buxunum yfir að hann renni og detti. 28.02.2011 12:09Benóný og hestarnir og hænurnar í febJá það er alltaf nóg að gera að skoða dýrin í sveitinni og fórum við að gefa hestunum hjá Steina og fékk Benóný að máta alla hestana og var hann þó mest hrifinn af loftpressu sem var á gólfinu og spurði sí og æ hva er þetta og spáði og spekluraði mikið í þessu tæki það er líka svo fyndið hva hann spáir í öllum tækjum núna eins og skítadreyfaranum inn í sveit hann er í miklu uppáhaldi. Við fórum svo og kíktum á hænurnar hjá Bóa og Freyju og er það allveg yndislegt hva þær eru skemmtilegar þær eru svo spakar og sérstaklega haninn hann Bólingur hann er svo mikill karekter. Hann fylgdi Benóný eins og lamb á eftir rollu og réðst svo á hundinn Perlu ef hún ætlaði að koma nálægt. Við fórum svo líka inn í Fögruhlíð og kíktum á klárana þar og eru þeir í góðum holdum og má þar þakka góðmennsku Sigga í Tungu sem er svo duglegur að fara með hey í þá ,en það er líka búið að vera nóg beit þar sem þeir eru og gott skjól í gamla húsinu svo það væsir ekki um þá. Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra en það er svo nóg af myndum í albúmi svo endilega kíkið á þær ![]() ![]() Hér eru vinirnir saman Benóný og Bóalingur. ![]() Hér er hinn haninn svakalega fallegur. ![]() Hér er prinsinn á hestbaki á Ask. ![]() Að klappa Stert með Bóa afa. Skrifað af Dísu 20.02.2011 22:48Sveitarúntur í vorblíðuJæja það er aftur komið vor í loftið og yndislegt veður það passar náttúrulega akkurrat við þegar það er búið að taka hestana inn he he. En ég tók mér rúnt eins og alla aðra daga inn eftir að gefa rollunum og datt í hug að taka myndir af sveitinni sem er mér svo kær og deila því með ykkur og upplýsingum um hana. Það eru svo fleiri myndir í albúmi. ![]() Mávahlíð í vorblíðunni það er nú allveg synd að sjá þetta mannlaust hver man ekki eftir að hafa komið í kaffi og kökur hjá Huldu, já það var sko mikið um gestaganginn hér. ![]() Tröð, þetta er bílskúrinn hjá honum Herði ekkert smá breyting svakalega flott hjá honum. ![]() Hér er svo íbúðarhúsið búið að taka það allt í gegn líka. ![]() Hér er efri bústaðurinn í eigu Maju systir og Óla og sá neðri í eigu Ævars og Möggu Siggu afar fallegir og á skemmtilegum stað í Traðarlandi. ![]() Hér er bústaðurinn hans Gunna Óla og Ástu í Fögruhlíð og blasir Svartbakafellið þarna í baksýn. Ég tók ekki myndir af bústöðunum upp frá því það var of mikill snjór að keyra þangað vildi ekki fara festa mig. ![]() Tunga, þar búa Þorgerður og Sigurður sonur hennar og kötturinn Skotti og svo er það náttúrulega kindurnar og eru þau einu ábúendurnir hérna innst í sveitinni en það færist alltaf líf í sveitina á sumrin þegar fólkið streymir í bústaðina og þá er hvergi betra og fallegra vera en hér. ![]() Hrísar, hér bjuggu Hemmi og Gilli en nú er þetta bara mannlaust . ![]() Það er þessi fíni bústaður fyrir neðan Hrísar sem skyldfólk Gillana á. ![]() Snæfellsjökull í sínu fegursta. ![]() Ein hérna af vinunum saman Rambó og Benóný Ísak. ![]() Jæja hann Skuggi hans Emils sem er sá kollótti hérna á myndinni er kominn undir græna torfu, karl geyið honum sem var bjargað í haust hjá Eiriki þegar hann gaf okkur hann í stað þess að senda hann í sláturhús en örlögin hafa beðið hans því hann fékk svo svakalegt kýli undir hálsinn og ágerðist það alltaf meir og meir og á endanum var hann farinn að lykta hræðilega og hættur að fóðrast svo það lá bara ein leið fyrir hann greyið. Hann var nefla afskaplega geðgóður og spakur þegar Benóný kom labbandi inn jötuna byrjaði hann að dilla dindlinum vitandi að hann væri að koma klappa sér svo hans verður sárt saknað. En það er bót í máli að við fáum einhver lömb undan honum. 13.02.2011 20:55Fósturtalning hér og þar 2011Jæja það fór fram fósturtalning í rollunum hjá flestum bændum hér í dag að undarteknu hjá mér því ég vill ekki eyðileggja spennuna fram í maí er ein af þessum þverhausum sem vill ekki kíkja í pakkann. En ég fór og fylgdist með hjá hinum. Ég byrjaði á því að fara út á Sand og kíkti til Palla og þar var búið að telja og kom það mjög vel út hann fær 3 með 3 lömb og eina með 1 og rest með 2 og 2 gemlinga með 2 nema það er eitt dautt í einum. Það kom einnig vel út hjá Þórsa og Elfu og Andrési og Jensínu en ég er nú ekki með nákvæmar tölur af því. Það eru svo 6 þrílembdar hjá Óttari og 5 þrílembdar hjá Marteini í Ólafsvík svo ég held að bændur séu bara vel lukkulegir með þessar tölur. Gummi Ólafs datt allveg í lukkupottinn þetta árið og fær 3 þrílembdar rest með 2 og af gemlingunum eru 3 tvílembdir og rest með 1 og meira segja eru þeir tvílembdir úr sæðingunum hjá honum svo það hefur reynst honum vel að fara á sæðingarnámskeiðið og fá svona flotta útkomu hjá sér og óska ég honum innilega til hamingju með þessa frábæru útkomu og ekki er að verra endanum að lamb sem ég gaf Þurý frænku sem er konan hans Gumma er með 2 og það sæðinga undan Kveik svo hann hefur fengið stórt knús þegar hann kom heim ![]() ![]() Varð að setja eina mynd hérna af sigurvegara dagsins honum Guðmundi Ólafs með bros allann hringinn ![]() 12.02.2011 18:12Hestarnir teknir á húsÞað var farið í að gera hesthúsin klár í dag og svo var farið út á Engjar og smalað saman hestunum sem á að taka inn og voru 6 fyrir valinu og restin verður áfram úti. Það gekk fyrst erfiðlega að ná þeim en hafðist á endanum og voru þeir komnir svo áleiðis á stað þegar eitt tryppið sem á að vera úti stökk yfir girðinguna og tróð sér með þeim sem eiga að fara inn en hann fékk bara lúxus ferð í hestakerru aftur út á Engjar. ![]() Það var frekar kuldalegt og hrátt veðrið í dag. 06.02.2011 22:32SnjórHenti inn nokkrum myndum af Benóný í fyrsta almennilega snjónum sem er búinn að koma í vetur svo endilega kíkið á það. ![]() Hann gerði sér lítið fyrir og klifraði sjálfur inn í þurrkarann um daginn. ![]() Agalegt um daginn fórum við út að labba í þessu fínu veðri en það endaði svo með svaka byl og eins og sjá má þá sást ekki í okkur fyrir snjó. ![]() Í fína snjóhúsinu sem við gerðum inn í Mávahlíð en það stóð ekki lengi því klaufinn ég ætlaði að stækka það og snjórinn var svo mikið púður að það pompaði yfir mig. 27.01.2011 15:32Aurskriða og Benóný í Janúar![]() Mikið hefur verið um vatnsveður að undanförnu og þegar ég var að taka svefnrúntinn hans Benónýs á gamla veginum inn í Höfða blasti þetta við og þorði ég ekki að fara yfir þetta þó lítið sé því það er svo mikill drulla og bleita í þessu. Ég bakkaði því alla leiðina til baka aftur. ![]() Þetta grjót var líka búnað bætast við því ekki man ég til þess að það hafi verið þarna áður svo það er heldur betur farið að losna upp úr hlíðinni núna í þessum rigningum. ![]() Ungur smalamaður á leið sinni að elta rollurnar. ![]() Orðinn heldur þreyttur búnað þramma upp allt túnið á eftir þessum villingum og þær eru ekkert að gefa sig. ![]() Þessi óboðni gestur er búnað vera inn í Mávahlíð undanfarna daga og er orðinn spurning um að fara fá Snorra Rabba til plaffa hann áður en hann étur upp bleikjuna. ![]() Flottir saman Benóný Ísak og Olíver. Benóný er í fallega vestinu sem Brynja frænka var að prjóna og gefa honum. ![]() Það er sko varla hægt að segja að það sé hávetur og þorri því veðursældin sem er núna er allveg með ólíkindum. 19.01.2011 11:48Benóný heimsækir hænurnar og hestana í Varmalæk.Jæja henti inn hérna nokkrum myndum af Benóný hjá hænunum og hestunum og einnig af honum úti að leika í snjónum svo endilega skoðið inn í myndaalbúminu. ![]() Bóalingur tók vel á móti okkur og stökk upp á Emil he he. ![]() Vorum aðeins að stríða Olíver og klæddum hann í föt og vakti það mikla lukku og reyndi Donna að hjálpa honum úr. 15.01.2011 21:42Óvæntir gestir inn á tún og Benóný í snjónum.![]() ![]() Moli var ekki lengi að stökkva á þessa nýju skvísu enn og aftur he he.... Og ég varð að setja þessa inn fyrst ég náði mynd af þessu. ![]() Fór svo með sæta drenginn að leika í snjónum en það var heldur mikið slabb og bleita. 10.01.2011 23:43Mávahlíð 2011Það er fátt skemmtilegra en að eyða deginum inn í Mávahlíð við að gefa kindunum og nýta svo frostið og kuldann til að fara að skauta og renna sér á ísnum þó svo að það væri enn þá betra ef það kæmi einhver snjór að ráði. Við létum það þó ekki aftra okkur og prufuðum bara að renna á grasinu og svo út á vaðli og fílaði Benóný það allveg í botn og brosti út að eyrum. Donna hundurinn okkar er svo ársgömul í dag, það er allveg merkilegt hva tíminn er fljótur að líða og klukkan tifar og tifar því ekki líður á löngu þangað til næsti skæruliði kemur í heiminn því það eru ekki nema 2 og hálfur mánuður úff þá verður sko nóg að gera ![]() ![]() Rosalega gaman á ísnum. ![]() Rosa stuð að renna í grasinu inn í Mávahlíð. ![]() Flottir félagar Benóný og Alvin páfagaukurinn hennar Köru. ![]() Varð að setja svo eina mynd af afmælisbarninu hérna henni Donnu. 04.01.2011 18:57Áramót 2010Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir árið sem er að líða Við höfðum það rosalega gott yfir áramótin og fórum í mat til Steina og Jóhönnu og var þar öll fjölskyldan saman. Það var tvíréttað lambakjöt og nautakjöt og var það allveg snilldar matreitt af Jóhönnu og Steina. Við fórum svo á brennu og kippti Benóný sér ekki mikið við lætin í flugveldunum og horfði svo bara stjarfur á eldinn en það var rosalega kalt og mikið rok þegar brennan var og voru flestir að deyja úr kulda. Benóný svaf svo bara af sér Gamla árið því hann missti af flugveldunum kl 12 því hann steinsvaf við öll lætin. Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra núna en það eru myndir af þessu öllu inn í myndaalbúminu. ![]() Benóný Ísak að hitta jólasveininn á sínu fyrsta jólaballi. ![]() Að halda á blisi voða fjör en hann vildi helst fá að smakka það he he. 28.12.2010 18:30Jól 2010Jæja við erum búnað hafa það afskaplega gott yfir jólin og borða góðan mat og fara í jólaboð og annað sem jólunum fylgir. Í fjárhúsin höfum við svo farið daglega og verið að hleypa til og eru aðeins örfáar eftir núna. Við erum búnað vera með Móra hans Gumma í láni og einnig Sr Hreinn frá Óttari og svo fengum við Negra hjá Bárði til að hafa í eitthvað af lömbunum svo þetta verður allt nýtt blóð og engin skyldleika ræktun í ár. Það fór svo ekkert rosalega vel með sæðingarnar en það má alltaf búast við því en það héldu þó allavega 7 af 15 og er ég bara rosalega ánægð með að fá einhvað nýtt og fæ ég úr öllum hrútunum sem ég notaði nema Hriflon. Þetta verður spennandi og virkar heil eilíf að bíða fram í enda apríl eftir lömbunum en það er bara gaman að því. ![]() Benóný Ísak duglegur að opna pakkana og Donna ekki síður spennt að hjálpa. ![]() Hér er Karítas í vestinu og með húfuna sem ég prjónaði á hana og gaf henni í jólagjöf. ![]() Sætir saman Benóný Ísak og Olíver. 23.12.2010 12:19GLEÐILEG JÓL'Eg ætla bara að hafa þetta stutt og laggott að sinni og óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þakka góð komment og innlit á síðuna á liðnu ári og hafið það sem allra best yfir hátíðarnar. Engin takmörk bara borða nóg og hafa það kósý ![]() ![]() Hér er svo jólamyndin af þeim krílum saman. Flettingar í dag: 665 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 4577 Gestir í gær: 153 Samtals flettingar: 1554715 Samtals gestir: 77919 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:13:35 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is